Ísafold - 20.04.1898, Blaðsíða 2

Ísafold - 20.04.1898, Blaðsíða 2
86 ismaður af öðrum bæ heyrir þessar getgátur. þegar hanu kemur heim, er hann spurður frjetta, »eins og plagar að vera«. »Já! þær eru nú fremur fáar, nema að hann Páll á Sandi var í nótt, er leið, á Hóli hjá honum Pjetri. Og þáð er meining manna, að þeir hafi fengið sjer ueðan í því um kveldið, drengirnir!« Nú er þegar farið að lagast; nú er það orðin ')>mnin- ing mannao. pétta er fyrsta stiybr yt- ing. Á þessa frásögn hlýðir Jóka frá Skarði. H* nni fer að smáókyrrast og hún fer að hafa orð á því, að hún sje nú »búin að sitja nógu lengi«. þegar hún er búin að ganga á röðina og kyssa hvern mann stundarlanga, 3—4 kossa á bæði borð í endilangri bað- stofunni, þakka öllum »fyrir allt gott fyr og seínna« og láta í ljós; að hún vilji sfegin eiga alla að, hvað sem fyrir kemur«, þá fer hún á stað heim- leiðis. Á heimleiðinni þarf hún að koma við í Selkoti; hún mátti til að »skrafa svolítið við blessunina hana Sigríði sína«. ' Selkot er að vísn ekki í stórbæjatölu, en það er samt ekki þýðingarlaus bær; það er brjefhirðinga- staður fyrir sveitarpóstana. f>egar Jóka er komin inn í baðstofu, búin að kyssa fólkið, búin a.ð hagræða sjer á innsta rúminu og leysa utan af kjálkunum á sjer, þá fer fólkið að fikra utan að því, að hún segiífrjett- um. Jóka lætur fátt yfir því, en fólk- ið lítur þó svo til, sem hún mnni ekkí með öllu kona einsömul. jpegar Sig- ríður sjer, að Jóka muni ekki ætla að fæða meðalalauBt, þá sendir hún Tobbu fram með ketilinn og fer sjálf að hringla í diskunum á hillunni yfir stofu- glugganum. ]pá fer fyrirbandið frá Jóku. »Helztu frjettirnar, blessuð mín, eru nú það, að ekki er um annað tal- að hjerna fram á bæjunum en þetta dæmalausa slark í honum Páli á Sandi og Pjetri á Hóli. pað er al- skrafað, að þeir hafi setið jafnvel nótt eptir nótt drekkandi og drabbandi, og sumt vill maður nú ekki hafa eptir«. A þessum bænum er það orðið al- skrafað; petta er önnur stigbreyting.— Nú komu stundarlangar hvíslingar með höfuðhristingum og langdregnu »ussi« og »sussi« í enda hverrar setn- ingar. |>egar Jóka er búin að fá vana- leg sögulaun í mat og kaffi og hæfi- lega »ballest« í staðinn fyrir vörurnar, sem hún hafði skipað upp í Selkoti, þá fer hún leiðar sinnar, og látum við hana nú »eiga sig«. En — þegar hún er farin, þá fer Sigríður í Selkoti að tygja sig til ferðar. »Hvert ætlar þú að fara?« segir fólkið. Já! Hún þarf endilega að skjótast upp að Brekku- koti og finna hann Sigmund ganala »upp á ýmislegt, sem þeim fer á rnillú. »það hefir lengi orðið í undandrætti, en má ekki dragast úr þessu«. Sig- ríður kastar yfir sig skýlu, styttir sig og heldur á stað í meira lagi tindil- fætt, því það er eitthvað innvortis, sem kvikar og rekur á eptir! Hún þarf raunar að flýta sjer, því margt er að snúast heima fyrir; þó kemur hún við allrasnöggvast á -Yztu-Grund, Mið-Grund og Innstu-Grund. »það tefur svo sem ekkert«. jpegar hún kemur að Brekkukoti, býður Sigmund- ur henni til baðstofu og spyr frjetta. »f>ær eru nú fáar nemaþetta, sem all- ir vita, um draslið í honum Pjetri og Páli«. Sigmundur kemur eins og úr álfheimum og hefir ekkert heyrt um þetta. »Já! það er þó orðið hljóðbærte, segir Sigríður ))pdr kvað ekki gjiira annað en ríða hvor til annars og drekka. Konurnar orðnar úrvinda og bálfgerðir aumingjar út úr öllu saman. f>eim er það heldur ekki láandi, ef surnu má trúa af framferðinu, sem þó er almennt ta!að«. Laga-t það enu! Nú kváðu þeir ekki gera annað enn o. s. frv. petta er þr ðja. stigbreyting. Sigríður fær mestu góðgerðir fyrir sinn gleðil. boðskap; þessar frjettir eru fyr- ir Sigmund gamla betri hressing en þó honum hefði verið boðið í beztu erfisdrykkju. f>egar Sigríður í Selkoti er farin, þá rankar hann við sjer, að hann þarf endilega að fara út í Heið- arhverfi til að gegna erindum þar út á bæjum, sem ómögulega tnega lengur dragast. Jeg get nú ekki veríð að rekja þessa sögu lengur; en uokkuð er það, að með tímanum fer það að verða fdtalað og því almennt trúað, að Pjet- ur og Páll sjeu orðmr mestu óreglu- menn og meira en lítið vondir við konurnar og börnin. Og tilefnið er ekkert annað en miður góðgjörn til- gáta, sem vanalegar kjaptakindur hafa lagað, aukið og borið út. Á slíkan hátt myndast almenningsálitið opt hjer á landi; því er ver og miður. »-«•«►#--- Sigur vinstrimgima í Danmörkií. Kosningasigur vinstriinanna í Dan- mörku 5. þ. m. mun hafa þótt þar allmikil tíðindi, — fagnaðartíðindi þeim til handa og öllum framsóknarmönnum á Norðurlöndum. Ekki af því, að það sje beinlínis nýlunda, að vinstrimenn ajeu í rneiri hluta í fólksþinginu danska. Heldur er það hitt, að horfurnar eru nokkuð öðru vísi nú en áður, meiri von en áður um tilætlaðan árangur af baráttu þeirra og sigurvinningum. Enda þar á ofan liðsmunurinn á þinginu meiri en dæmi eru til áður. Tala hægrimanna í fólksþinginu hefir aldrei áður komizt lengra niður en í tæpan i hluta þeirrar þingdeild- ar, 19 af 102 þá (1884). Nú eru þeir ekki fullur þ hluti, 15 af 113. það er fullur fjórðungur aldar liðinn síðan vÍDstrimenn urðu í fyrsta sinn hinum hlutskarpari í kosningum (1872), þótt miklu munaði það eigi; þeir urðu 55 af 102. En ekki kunnu þeir vitur- legar með að fara þann sigur en svo að þeir sýndu sig þegar í að vilja beitaof- ríki til þess að hafa úndir sig ráð- herravöldin. Jpeir felldu í því skyni fjárlögin frá annari umræðu, haustið 1873. því tiltæki svaraði stjórnin svo, að hún rauf þingið, — skaut þar með málinu til kjósendanna. Vinstnmenn gerðu sjer auðvitað von um aukið fylgi af þeirra hálfu; en það brást; þeirra þingliði fækkaði heldur, þótt lítið væri. þá hægðu þeir á sjer, veittu enga stóratlögu í 4 ár. þá, 1877, voru þeir orðnir 74 á móti 28afhinna liði. þá sprengdu þeir fjárlögin, vor- ið 1877, þ. e. ljetu fjárlagaárið líða svo á enda, 31. marz, að ný fjárlög voru óbúin frá þinginu og aftök um samkomulag milli þingdeildanna. þetta átti að vera rothögg á ráða- neytið. En svarið var þingslit og bráðabirgðafjárlög. þegar þing kom saman um haustið var áform vinstrimanna að synja þeim staðfestingar af þingsins hálfu; en þá dignuðu þeir margir, og klofn- aði flokkurinn í tvennt, svo að hægri- menn fengu sitt fram og fjárlögunum borgið. Stóð sá tvístringur í rnörgár, þaugað til 1885, er vinstriflokkarnir urðu aptur samtaka um að sprengja fjárlögin; en ráðaneytið svaraði á sama hátt og fyrir8árum, — gaf út bráða- birgðafjárlög og bjargaðist við þau. Gekk svo ár frá ári, í 10 ár samfleytt. þá, 1894, ko.mst á sætt með hægri- mönnum og hinum hóglátari flokk vinstrimanna, meðalhóísmönnum, er studdu hina til þess að fá regluleg fjárlög samþykkt á þingi og gáfu ráða- neytinu upp sakir fyrir undanfann gjörræðistiltæki þeirra, er svo voru kölluð, — ýms strembin bráðabirgða- lög, víggirðing Kauprnannahafnar, m. m. En það kom í móti af hinnahálfu, að Estrup gaf upp völdin, eptir 19 ára harðfengilega vörn. Ekki greiddist þó leiðin fyrir raeðalhófsmönnum að ráð- herratigninni, heldur tóku nokkrir hóg- látari hægrimenn við, og hefir allt far- ið skaplegar með þingflokkunum síð- an, regluleg fjárlög kornizt fram ár- lega o. s. frv. I fyrra vor þokaði eptirmaður Est- rups, Beedz-Thott, úr sessi, og er það margra manna mál, að þá hafi viustrimenn átt kost á að skipa ráða- neyti, en færzt undan, með því að þeim þótti liðskostur sinn á þingi of rýr, ekki meiri hlutur atkvæða öðru vísi en með fylgi meðalhófsmanna eða sósíalista. En nú er það fengið, sem þá skorti. Nú skipa þeir, hinir eindregnu vinstri- menn, fullkominn meiri hluta þing- deildarinnar, 63 sæti gegn 50; fleiri sæti en það (50) hafa ekki hinirflokk- arnir allir 3: meðalhófsmenn 23, hægri- rnenn 15 og sósíalistar 12. Eyrir því má nú ganga að því hjer um bil vísu, að forkólfar vinstrimantia á þingi verði kvaddir til aðskipanýtt ráðaneyti einhvern tíma fyrir haustið, áður en þirig kemur sarnan þá. þeir eru hyggnari orðnir, ráðnari og rosknari og þar rneð stilltari og spaklátari en þeir voru fyrrum. jpví þykir miklu minni ábyrgðarhluti að sleppa við þá völdum nú en meðan þeir geipuöu og gjálfruðu sem hæst. því hóglegar sem menn láta sjer ura upphefðina, því líklegra er vanalega, að þeir hugði meira um vandann en vegsemdina, — eins og á að vera. þeir hafa óefaö rnargt. þarflegt numið í hinDÍ löngn baráttu, þar á meðal gætni og forsjálni, að vonandi er. Hverjir helzt skipa iuudí hið nýja ráðaneyti, er til kemur eða ef til þess kemur, — um það er ekki gott áreiðaulegum getum að leiða hjer, í fjarska. Hinir görnlu, nafnkenndustu leiðtogar vinstrimanna eru dauðir eða úr sögunni. Berg er dauður; Holstein-Ledraborg úr sögunni, hálfgenginn í klaustur, og Horup hætt- ur þingmennsku. Hogsbro orðinn fjörgamall, — mun jafnvel eigi hafa gert kost á sj r til þingsetu framar; hann hefir verið forsetí fólksþingsins síöustu árin. Sjálfsögð ráðgjafaefni mun mega telja þá Cþristopher Ha.ge kaupmann og Oct. Hansen hæstarjettfir-miílfærslumann; hann er einn hinna fáu vinstrímanna í landsþinginu. Hage er mikilsmetiun atgervismaður, sonur Alfr. Hage, er var nafnkendur þingskörungur fyrir40 árum og mikill auðmaður. Hefir C. Hage verið framsögumaður í fjárlaga- nefnd hin síðari áriu, en til þess verða þar ekki nema mestu atkvæðamenn þingsins. Pleiri mætti nefna sem lík- leg ráðgjafaefni, t. d. Er. Bojsen, >f meðalhófsmenn verða látnir skipa ein- hvern minni hluta í ráðaneytinu, sem ekki er óhugsanlegt; en hann er aðal- leiðtogi þess flokks. En anðvitað þýð- ir litið að fara mikið út í þá sálma. Aðalatriðið er hin væntanlega stjórn- arstefnubreyting, í fyrsta skipti um meira en heilan mannsaldur. Er ó- líklegt, að vjer förum alveg hlutlaus- ir af henni hjer á landi, og því hljóta áminnzt tíðindi í Danmörku að vekja miklu meiri athygli vora en vandi er til um það, sem við ber um stjórnar- hagi bræðra vorra við Eyrarsund. Sigling. Tvö kínipfi'.r nvkomin, í g*r og í fyrra d:ig: »R*gnheiftnr« (73 smál, kapt. Bönne- lykke) til W. Christensens verzlnnar og »Augnst« (78 smá!.. kapt. Breyö) til Eyþórs FeliXsonar. Bæði hlafJin ýmsum vörum frá Khöfn. »Ragnh.« var mánuð á leiðinni, var nærri komin i strand i Helsingeyri, nvissti liæði akkeri; gnfuskip bjargaöi. »August« var ekki nema 10 daga. Skipstrand, Enn er nýlega striinduð, ló. }i mán.,ein frönsk fiskiskúta, »Isabelle«, við Stokks- eyvi i Árnessýslu. Hafði laskast nðnr aust- nr við Meðatland. Bjargað varð öllu úr skipinu á Stokkseyri og óskemmdu. Dáin 10. þ. m. (páskadagmn) sýslumannsfrúin i Vestmannaeyjum (Magnúsar Jónssonar), Kirstin Sylvia, dóttii L. E. Sveinbjörns- sons háyt'irdómara, — eptir barnsburð, gáfuð kona og vel að sjer, um 27 4r,«, að aldri. Fjárkláða kvað vart hafa orðið í Kjósiuni fyrir skemmstu, á 3 nágrannabæjum Morastöð- nm, Kiðjafelli og Utskálahamri. Annars ekki orð haft á um kláða hjer í nærsveit- unum. Vinstrimenn og- Islendingar. Engin ástæða er til annar3 en gera sjor góðar vouir um sjálfstjórnarmál vort, ef vinstrimenn skyldu komast til valda í Danmörku á þessu ári. Óhætt ex að fullyrða, að síðan hin síðari stjórnarbótarbarátta vor hófst, hafa vonirnar un: viðunanleg iirslit hennar lengst af verið byggðar á þeirri trú, að einhvern tíma hlyti að því aðreka, að vinstrimenn kæmust til valda.. Samkomulags-horfurnar við hægrimenn voru, eins og að líkindum ræður, allt annað en ríkar, rneðan kröfum vorum var ekki svarað neinu öðru en blá- köldu, órökstuddu nei-i úr þeirra flokki. Og, svo sem kunnugt er, var það ekki fyr en 1 fyrra sumar, að þeir ljetu nokkurn bilbug á sjer finna. Eyrst og fremst styðjast vonirnar, sem menn hafa gert sjer um samkomu- lag við vinstrimenn og eðlilega gera ajer enn, á þeirri aðalstefnu, sem flokkurinn hefir jafnan haldið fram. það er þjóðarvaldið, sem hann hefir barizt fyrir öllu öðru fremur — rjett- ur þjóðarinnar til að fá vilja sínum framgengt, eins og sá vilji kemur fram í þeim hluta ríkisþingsins, sem kosinn er ttf öllum atkvæðisbærum mönnum í landinu. þess er með engu móti tilget- andi, að flokkurinn vilji ekki unna oss sama þjóðfrelsis, sem hann jafnan hef- ir talið óhjákvæmilegt skilyrði fyrir sannri menning og frarnbúðar-framför- um sinnar eigin þjóðar. Ekki virðist heldur ósennilegt, að flokknhm rnuni þykja sinn vegur að meiri., ef honum tækist að leysa fljót- lega þann hnút, er andstæðingarnir gengu frá ráðlausir á annan áratug. En ekki er nema rjett að hafa það hugfast þegar frá byrjun, að engin líkindi eru til þess, að vinstrimenn hallist að landstjóra-frumvarpi Bene- dikts Sveinssonar, nje heldur að miðlunarfrumvarpinu frá 1889. A það benda skýrt ummæli hr. Oct. Hans- sens, — mannsins, sem lang-líklegast- nr er til að verða dómsmálaráðgjafi í ráðaneyti vinstrimanna og þá um leið íslandsráðgjafi —, bæði í Lögfræð- ingafjelaginu haustið 1895 og í Stú- dentasamkundunni siðastliðið haust. Og á hið sama banda, að því er oss er frekast kunnugt, ummæli allra

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.