Ísafold - 07.05.1898, Qupperneq 2
106
McKinley. Forsetinn tók öllu sem
fjarst um landvinningar, en kvað allt
ráðið í friðar-skyui og frelsis. Kyjabú-
ixm skyldi fullt frjálsræði tryggt til að
skipa sjer svo sjálfsforræðisstjórn, sem
gegndi þegnlegum mannúðarkvöðum
vorrar aldar. Hitt sjálfsagt, að þeir
skyldu svo lengi, sem þörf gerðist, njóta
tilsjár og verndar af hálfu Bandaríkj-
anna. — Til lykta er þess að geta,
að stöku ferða- og flutningsskip hafa
þegar verið hertekin af hvorumtveggja«.
Ekki hafði neitt sögulegt g< rzt í
ófriðinum dagana sem liðu frá burtför
póstskipsins frá Khöfn og þangað til
það ljet í haf frá Skotlandi 30. f. m.,
laugardaginn var. Eitthvað af skipa-
líði Bandamanna var setzt um Ha-
vanna ogfarið að skjóta á borgarvirk-
in þar. En floti Spánverja nýlagður
af stað vestur um haf frá Grænhöfða-
eyjum. Vissu menn eigi, hvar hann
mundi stefna að landi vestra, og ótt-
uðust sumir, að hann mundi leggja
að Boston eða jafnvel New York og
gera þann óskunda þar, er framast
mætti.
Vígamóður ákafur á báðar hendur.
Spánverjar teknir til að skjóta saman
fjegjöfum til þess að auka herskipa-
flota sinn, og gaf drottningin, Kristín,
er stjórnina rekur fyrir son sinn ung-
an, 1 miljón franka (peseta). það er
flestra manna mál, að hvorirtveggju
sje fremur vanbúnir við ófriðinum.
Fregnritar enskra blaða vestan hafs
voru sammála um, að Bandamenn
mundu hvorki hafa landher sinn nje
skipalið fullbúið fyr en eptir 10 daga
í minnsta lagi.
Ófriðarályktun fulltrúadeildar sam-
bandsþingsins í Washington var svo
látandi, og samþykkt með öllum þorra
atkvæða:
»Með því að Spánarstjórn hefir 3
ár samfleytt átt í ófriðí á Kúba við
landsbúa, er gert höfðu uppreist, og
þó eigi tekizt að bæla uppreistina
verulega; með því að hún hefir háð
ófrið þennan svo hrottalega og siðaðri
þjóð ósamboðið, í bág við alþjóðalög-
mál, en fyrir það hafa 200,000 manna,
mestmegnis kvenDa og barna, orðið
hungurmorða; með því að ófriðurinn
hefir gert verzlunarhagsmunum Banda-
ríkjanna stórmikinn hnekki; með því
að margir samþegnar vorir hafa fyrir
hann týnt fje og fjörvi; með því að
vjer höfum orðið að verja fje svo milj-
ónum skiptir til strandgæzlu hjá oss
og til þess að halda uppi hlutleysi
voru af ófriðinumjog með því að þetta
margfalda tjón, er Spánarstjórn verð-
ur að bera ábyrgð fyrir, hefir kórón-
azt með sprengingu Bandaríkjaher-
skipsins »Maine« á höfninni í Havanna
—, þá ályktar þingið hjer með að
veita ríkisforsetanum heimild til og
skora á hann, að skerast í leikinn til
þess að binda enda á ófriðinn á Kúba
og koma þar á friði .og reglu, og koma
þar upp óháðri stjórn, er landslýður kýs
sjer sjálfur. Ennfremur veitist forset-
anum full heimild til að beita herafla
Bandaríkjanna á sjó og landi til þess
að framkvæma þessa ályktun*.
Svipaða ályktun gerði öldungadeild-
in samtímis, en með minni atkvæða-
mun.
önnur tíðindi útlend.
Norðmenn samþykkt nýlega á þingi
mjög rífkaðan kosningarrjett til stór-
þingsins, — til handa öllum karlmönn-
um hálfþrítugum eða eldri, þar á
meðal vinnumönnum, en með venju-
legum smá-undantekningum (glæpa-
menn, fjárþrotamenn m. m.).
f>ar andaðist 16. f. mán. Tambs
Lyche, ritstjóri tímaritsins »Kringsjaa«,
ágætismaður, vart fertugur.
Brúðkaup Kristjáns Danaprinz
(Friðrikssonar konungsefnis) og heit-
meyjar hans Alexandrínu fór fram 26.
f. mán. suður í Cannes á Frakklandi,
að móður brúðarinnar, stórhertoga-
ekkjunnar frá Mecklenburg-Schwerin.
Engin ráöirja íiiskipti.
þ>að fullyrða þeir, sem öðrum frem-
ur er trúandi til að víta, hvað þeir
fara með í því efni, að engin ráð-
gjafaskipti muni verða í Danmörku í
sumar.
Vinstrimenn mundu eiga við svo
ramman reip að draga, þar sem er hinn
íhalds-sami, mikli meiri hluti í lands-
þinginu, að þá fýsir eigi mjög í svip-
líka sennu við það eins og hægri-
mannastjórnin átti leDgi í við meiri
hlutann í fólksþinginu, Nú á að kjósa
til landsþingsÍDS í haust, og má vera,
að þá vaxi þar eitthvað liðsafli vinstri-
manna; mikið getur það aldrei orðið.
Og þá fyrst yrði farið að taka í mál
ráðherraskipti.
Annars vegar er og þetta hægri-
mannaráðaneyti, sem nú situr við völd
í Danmörku, ekki nærri því eins ó-
geðfellt hinum hóglátari framsóknar-
mönnum þar, eins og fyrirrennarar þess.
f>að dregur nokkuð úr ákefðinni að
hrinda því af stóli.
Ófriðurinn
og verzlunin.
Eins og vant er að vera, hefir ófrið-
ur þessi, sem nú er nýbyrjaður, hin
verstu áhrif á verzlunina víða um
lönd. Korn var tekið til að hækka
óðum í verði, er síðast frjettist frá
útlöndum. Er búizt við, að það muni
verða innan skamms sjálfsagt fjórð-
ungi dýrara en áður. Líkt verður
um fleiri vörutegundir, þótt í minna
mæli sje. Peningaleigan hækkar, og
það spillir fyrir kaupveltunni.
f>á er ekki sízt hætta búin saltfisks-
verzluninni við Spánverja, og þess
verðum vjer Islendingar varir flestum
fremur að tiltölu.
Horfurnar voru óvanalega góðar fyr-
ir 088, vegna fádæma-fiskileysis í Nor-
vegi síðustu vertíð. Aflinn í Lofót
ekki nema 12 miljónir fiska, í stað 23
miljóna meðaltals undanfarið. En nú
má búast við öllu illu, bæði hættan,
að kaupskip verði tekin á leiðinui
þangað af Bandamönnum og að sú
hætta dragi úr viðskiptunum, og eins
má . ganga af því vísu, að spænskir
peningar verði rniklu minna virði en
áður á heimsmarkaðinum, sakir þverr-
andi lánstrausts Spánverja.
Faxaflóagufubáturinn
»Reykjavík«, kapt. Vaardahl, kom í
fyrra dag frá Mandal, var 5 daga á
leiðinni. Hefir verið umbættur mikið
í vetur. Byrjaði ferðir sínar í morg-
un, suður í Keflavik.
---- ■ | ■ -----
Farsóttir
í Reykjavík. Marzmánuður : Tauga-
veiki 2. Heimakoma 2. Bráð liðagigt 2.
Hectusótt 17. Hálsbólga 31. Lungna-
kvef 4. Lungnabólga 8. Maga- og
garnakvef 7. Gonorrhoea 1. LungDa-
b rklar 3. Holdsveiki 1. Ölæði (De-
lirium tremens) 1. Samtals 79. Apríl-
mán.: Heimakoma 4. Bráð liðagigt 1.
Hettusótt 8. Hálsbólga 19. Lungna-
kvef 6. Lungnabólga 2. Garnakvef
ð. Gonorrhoea 1. Ulcus venereum 1.
Lungnaberklar 1. Sullaveiki 2. Sam-
tals 50.
G. B.
Til konungs
var sent um daginn með landshöfð-
ingja svo'j látandi skrautritað afmælis-
ávarp, undirskrifað af nál. 200 bæjar-
mönnum:
AUra mildasti herra konungur !
YfirZlangan. fagran og farsœlan œfi-
ferilveitir guðleg forsjón Ydar Hátign
að líta á þessum fágœtaminningardegi
að fullnuðum áttatíu œfiárum.
"Knúðirjaf - einlœyum" tilfinningum
ástar ogjlotningar og minnugir hinna
mörgu votta um lconunglega mildi og
landsföðurlega umhyggju, sem Yðar
Hátign hefir sýnt vorri ástkæru fóstur-
jörðu á ríkisstjórnarárum Yðar, óskum
vjer íslendingar að skipa oss í hugan-
um í hóp annara samþegna vorra um-
hverfis veldisstól Yðar á þessum fagra
hátíðisdegi, til þess ásanit ]>eim. að bera
fram fyrir Yðar Hátign lotningarfu.lt-
ar samfagnaðaróskir vorar. tjá Yður
]>egnlega hollustu vora og biðja algóð-
an Guð að blessa Yður á öllum þeim
árum og dögum, sem honum enn þókn-
ast, að veita Yður af gœzku sinni
Astsœli herra konungur !
Jafnframt og vjer af hjarta þökkum
Drottni fyrir þá rikulegu blessun, sem
hann á allan hátt hefir veitt Yðar Há-
tign á hinum liðnu 80 œfiárum, biðj-
um vjer hann í auðmýkt að krýna
heillum, friði og náð Yðar háu elli-
daga, að láta ]>á verða marga og bliða,
að styrkja yður með sinum krapti og
mildilega varðveita Yöar Hátign oy
alla yðar konunglegu aztt.
Reykjavík 8. apríl 1898.
Allraþegnsam legast
Póstskipið Thyra,
kapt. Ryder, kom hingað 5. þ. m.,
eins og til stóð, beint frá Skotlandi.
Með því komu frá Kaupmannahöfn
margir kaupmenn o. fl.: konsúll N.
Chr. Gram. frá Dýrafirði; Chr. Riis
frá Borðeyri; Arni Riis, umboðsm.
Tangs stórkaupmanns (Isafirði); Mark-
ús Snæbjarnarson kaupm. á Patreks-
firði; Pjetur Ölafsson frá Flatey á
Breiðaf. Ennfremur Torfi skólastjóri
Bjarnason í Ólafsdal og Magnús Benja-
mínsson úrsmiður og bæjarfulltrúi í
Rvík. Frá Skotlandi kom alþm. Skúli
Thoroddsen, ritstj. og kaupm. á Isa-
firði, og Ásmundur Torfason prentari
frá New York með konu og 4 börnum.
Verzlanir Grams
á Dýrafirði, í Stykkish.og Olafsvík eru
seldar dönsku verzlunarhlutafjelagi, er
bræðurnir Adolph, stórkaupmenn í
Khöfn, hafa komið á legg og standa
fyrir, en seljandi, konsúll N. Chr.Gram,
hefir stjórn og umsjón yfir verzlunum
hjer.
þ>á hefir og kaupm. Markús Snæ-
bjarnarson selt sína verzlun á Pat-
riksfirði Flateyjar-fiskiveiða- og verzl-
unarfjelaginn (Björns kaupm. Sigurðs-
sonar).
Tóvinnuvjelastofnunin
í Ólafsdal. Handa henni er nú
bráðum von á timburskipi frá Friðriks-
stað, eptir ráðstöfun Torfa skólastjóra
Bjarnasonarí utanför hans. Húsið verð-
ur smíðað fyrri part sumars. Síðar á
8umrinu er von á vinnuvjelunum, frá
Aachen á |>ýzkalandi, og manni með
þeim þaðan til þess að koma þeim upp.
Uppboðsauglýsing.
Miðvikudaginn 11. þ. m. verður
eptir beiðni Páls kaupm. Jóhannes-
sonar haldið opinbert uppboð í Vest-
urgötu nr. 38 og þar selt búðarvarn-
ÍDgur, bækur, eldhúsgögn, stofugögn
o. fl.
Uppboðið byrjar kl. 11 f. hád. og
verða skilmálar birtir á undan.
Bæjarfógetinn í Reykjavík, 7. maí 1898.
Halldór Daníelsson.
Appelsínur og
Laukur
fæst hjá
C. Z i m s e n.
Hið alþekkta baðlyf
JEYES FLUTd
fæst, útmælt, í
verzluu W. FISCHERS.
REYKTA RADÐMAGA:
kaupir háu verði
Th- Thorsteinsson
(Liverpool)
Nýkomið i bókverzkm
Sigfúsar’Eymundssonar
Fest-Album
í Anledning af Deres Kongelige Höj-
heder Prins Christians og Priusesse
Al'xa.ndrines Bryllup.
Kostar 3 kr.
Spegepylsa, Cervelatpylsa, reykt
Skinke, saltað og reykt síðuflesk, rullu-
pylsur og saltað kjöt fæst í verzlun
W. Ohristensens.
Verziun
B. H. Bjarnason
í Reykjavík
hefir nú fengið full hús af alls konar
vörum; Matvöru af öllu tagi, Kaffi og
alls konar Sykur, Kat'fibrauð og Te-
kex, ótal teg. Brjóstsykur, Chocolade,.
Te, Rúsínur, Gráfíkjur, Döðlur, Svezkj-
ur, Kúrennur, alls konar krydd heil
og steytt, þorskalýsi, ()sta, Ymislegar
efnavörur (Material), Vín og áfengi af
öllu tagi, þar á meðal mitt alkunna
Kornbrennivín, sem engum verður illfc
af.
Alls konar niðursoðið, bæði
fisk og kjötmeti, Syltutau og Pickles,
Vindla, Cigarettur, Reyktóbak, Munn-
tóbak, Rjóltóbak, Alls konar smíðatól,
bæði þau frá Eskilstúna og ensk smíða-
tól, svo góð, að enginn getur boðið
jafn góð verkfæri fyrir svo lítið verð;
allt tjlheyrandi jbyggingum: Skrár,
Húna, Lamir, Gluggajárn galv. og
svört, Málningu af öllum litum og allt
því tilheyrandi, þar á meðal alveg
nýtt uppleyst S k e 11 a k á 1 kr. 60 a.
Með því að kaupa Skellak uppleyst
spara menn 60 a. á sprittinu. Stifti,
Skrúfur, Pappasaum, Lím, Kítti og fl.
Alls konar Handsápu, Stangasápu á,.
2S a. pundið.
Grænsápu 1 heilum dunkum
ágæt tegund á 17 a. pd.
Sóda, Taubláma, Stífelsi o. fl. alls
konar Höfuðföt, bæði handa fullorðn-
um og börnum, Klúta, Sjöl, Tvinna,
Axlabönd o. fl. Mikið af Glysvarningi,
Leirtau og Glervara af ýmsu tagi og
yfir höfuð allt, að undanskildri álna-
vöru, sem þó er pöntuð eptir sýnis-
hornum, sem menn eiga kost á að fá
í þeirri búð í Reykjavík, sem hefir
margbreyttastar vörur.
Með tilliti til þess, aó verzlunin er
eingöngu rekin gegn peningaborgun á
báðar hendur og tiltölulega litlum
kostnaði í samanburði við stærri verzl-
anir, þá vona jeg, að verzluninni á
yfirstandandi sumri veitist svo auð-
velt að fylgjast með hverri sem
helzt skynsamlegri verzlunarsam-
keppni, að hún geti boðið skiþtavin-
um sínum fullt svo góða prísa, sem
sá er bezt getur boðið. Verzluniu
leyfir sjer því að hvetja ferðamenn að
leita þaugað, áður en þeir festa kaup
hjáföðrum,
Korsör-Margarine
er það allrabezta smjörlíki, sem hægt
er að fá, hvað sem hveUsegir. f sum-
ar verður það selt ódýrara en'áður, þeg-
ar 100 pd. eru keypt í einu; í smá-
kaupum er verðið samaTog|áður.
Einkaútsala hjá
B H. Bjarnason.