Ísafold - 25.05.1898, Page 2
126
leg, að hann vildi fyrir hvern mun
endurreisa alþingi á þingvelli og gera
það sem allra-líkast alþingi forfeðra
vorra, enda þótt það riði bág við alla
hugsanlega hagkvæmni. Svo frjáls-
lyndisleg, að mönnum þótti þar kenna
sjálfræðis- og uppreistaranda. - Andinn
sem móti manni blæs, þegar »Fjölni«
er lokið upp, er ekki varhygðar-and-
vari frá konunglegum embættismönn-
um, eins og þeim, er fram að þeim
tíma höfðu mest um landsmál rætt,
heldur í flestum efnum hvassviðri æsk-
unnar, gáfnanna, gremjunnar, bylt-
ingatrúarinnar.
Kennarafræðslan
við gagnfræðaskólann í Flensborg.
J>að er varla óþarft að minna menn
á, að barnakennarar eigi kost á, að
afla sjer nokkurrar undirbúningsmennt-
unar við Flensborgarskólann. Jeg
hef rekið mig‘ á, að ýmsum er ókunn
ugt um, að nokkuð sje til, sem heitir
kennarafræðsla hjer á landi, auk held-
ur að menn hafi glögga hugmynd um,
í hverju hún er fólgin.
Síðan kennsla þessi byrjaði hjer við
skólann, 1891, hafa nokkrir menn,
karlar og konur, notið hennar árlega,
en tiltölulega fáir hafa þó notaðtæki-
færið til að búa sig undir hið af-
ar vandasama og mikilsverða kennslu-
starf. Alls hafa 26 leyst próf af
hendi, 21 piltur og 5 stúlkur.
Fyrstu árin var kennarafraeðslan að
eins aukageta við gagnfræðakennsluna
einn vetur, og svo verklegar kennslu-
æfingar 6 vikna tíma að vorinu. En
tvo síða3tliðna vetur hefir verið sjer-
stök deild eða »bekkur« handa kenn-
araefnum. I þessari deild hefir verið
kennt hið sama og í gagnfræðaskól-
anum, að ensku undanskilinni, en
færri kennslustundir í hverri náms-
grein. Aðalnámið hefir þó verið fólg-
ið í uppeldisfræði, eða kennslufræði
og verklegum kennsluæfingum. Nem-
endurnir hafa þannig fengið daglega
allan veturinn æfingu í því að kenna
börnum sömu námsgreinar og kennd-
ar eru í barnaskólum, og eru þeir á-
vallt látnir kenna undir umsjón og
með leiðbeiningu kennaranna við skól-
ann. f>eir sem taka próf, eru yfir-
heyrðir í uppeldísfræði og látnir kenna
börnunum í áheyrn tveggja prófdóm-
enda, sem stiptsyfirvöldin til nefna.
Prófið á þannig að veita trygging fyr-
ir því, að þeir, sem standast það, sjeu
nokkurn veginn heima í grundvallar-
atriðum uppeldisfræðinnar og hafi
nauðsynlega þekkingu í þeim náms-
greinum, sem þeir síðar meir eiga að
kenna börnunum, auk þess sem hið
verklega próf á að sýna, aðþeirkunni
að umgangast börn og hafi lag á að
kenna.
Var hef jeg orðið við það, að nokkr-
ir prestar og sveitarstjórnir hafa reynt
að útvega sjer til að kenna þá menn,
sem hafa aflað sjer þessarar fræðslu,
sumir enda sent hingað pilta eða
stúlkur til undirbúnings undir kennslu-
8tarfið. |>etta er og hið minnsta, sem
heimta má af þeim, sem á að takast
það vandaverk á hendur, að kenna
börnum og styðja að góðu uppeldi á
þeim, enda verður þess varlalangt að
bíða, að sú krafa verði almennt gerð
til barnakennara.
Sjerstaklega vil jeg taka það fram,
að það er allsendis nauðsynlegt, að
þeir, sem ætla sjer að njóta þessarar
kennslu, hafi nokkura bóklega þekk-
ingu. Hins þarf ekki að geta, að
konur hafa eigi síður en karlar aðgang
að kennarafræðslunni.
Menn eru beðnir að taka eptir aug-
lýsingum um umsókn um skólann íár
í ísafold, og vanrækja ekki að senda
umsóknarbrjef sín í tæka tíð. Sömu-
leiðis skal brýnt fyrir umsækjendum,
að tilgreina í umsóknarbrjefi sínu, ef
þeir óska að fá húsnæði í skólahúsinu
(heimavist).
Flensborg 17. maí 1898
Jún pórarinsson.
Heimdallur fengsæll.
Fjórir botnverpingar handsainaðir.
Heimdallur, herskipið danska, hefir
verið harla fengsæll á seka botnverp-
inga þessa dagana.
Fyrst kom hann með einn laugar-
dagsnaorguninn 21. þ. m., »Fides« frá
Hull (H. 372), kapt. George Ware,
er hann hafði staðið að veiði með
botnvörpu í landhelgi hjer úti í fló-
anum. Hann var sektaður um 80 pd.
sterl. (1440 kr.), og botnvarpa hans
og veiði gerð upptæk. Með skipinu
var Bínar bóndi Sveinbjarnarson í
Sandgerði; hafði verið innanborðs, er
það var tekið, að sicja um afla.
Morguninn eptir, sunnud., sást apt-
ur til ferða Heimdalls hingað inn á
höfn með 2 botnvörpuskip í eptirdragi
í einu. þau hafði hann hremmt út
við Garðskaga, »Hermes« frá Hull (H.
209), kapt. Charley Ward, og »Emer-
ald« frá Grimsby (G. Y. 613), kapt.
William Staff. »Hermes« hafði verið
með vörpuna úti og var sektaður um
80 pd. sterl., eins og hinn, en veiðar-
færi og afli upptækt. En »Emerald«
komst af með 30 punda sekt, með
því að ekki sannaðist að það hefði
veitt í landhelgi. — Heimdallur hafði
haldið um kveldið, laugardagskveldið,
er hann Ijet út hjeðan, rakleiðis suður
fyrir"Garðskaga, og munu botnverp-
ingar og aðrir hafa búizt við að hann
ætlaði til Austfjarða; en hann stað-
næmdist í Hafnasjó og tók síðan stjór-
ann inn fyrir Skaga aptur um nóttina
og kom þar að botnverpingaþvögunni
á óvart. — Enn lagði hann út hjeðan
aðfaranótt mánudagsins og var á sigl-
ingu úti í flóa fram eptir degi aðtemja
hð sitt. Bregður síðau skyndilega við
að finna botnverping, er honum""sým
ist heldur nærri landi í Garðsjó.
Botnverpingurinn hraðaði sjer að draga
upp vörpu 'sína og hjelt á rás; en
Heimd. kom þar í flasið á honum og
hremmdi banu áður hann kæmisí úr
landhelgi. Tveimur skotum hleypti
herskipið fyrir hann áður hann næmi
staðar. Sumir segja, að hann hefði
aðra vörpu úti og dufl við, en
að skot frá Heitnd. hæfði duflið, og
sykki það. þetta skip hjet «Cuekoo»
frá Hull (H. 309), kapt. Carl Nielson,
sænskur. Kom Heirnd. með það hing-
að inn á höfn um miðaptansleyti í
fyrrakveld. Fyrir þrjózkuna varð sekt-
in fyrir þetta skip 100 pd. sterl., og
afli og veiðarfæri upptækt.
Sektirnar allar greiddar eptir sætt
fyrir lögreglurjetti, er bæjarfógeti (nú
Jón Magnússon landritari) heldur úti
í Heimdalli. Botnvörpuskipstjórarnir
kjósa það heldur en að tefjast við
málsrekstur.
Enn ljet Heimd. f haf í fyrri nótt,
hvort sem hann á uú nýrri veiði að
fagna eða ekki. Hann hefir vasklega
að verið undanfarið; því getur enginn á
móti borið. Virðist sem hinum nýja
yfirforingja, kapt. Middelboe, sje vel
sýnt um sína iðju, víkinguna við botn-
verpinga.
Sigling.
Tvö kaupför nýkomin: »Thrift«, 55
smál. (kapt. Petersen) frá Mandal,
með viðarfarm til B. Guðmundssonar
timbursala; kom í fyrrakvöld. — »Au-
gust«, 78 smál. (kapt. N. H. Dreyö«),
frá Dysart, með kolafarm til verzlun-
ar Eyþórs Felixsonar; hafði verið 9
daga á leiðinm; kom í gær.
Tröllafiskur.
þríhlaðið hefir nú Guðmundur í
Nesi,aðsagt er, fiskiskútu sína »Klar-
ínu« af tröllafiski svo nefndum, þorski
úr botnverpingum. / Onnur skúta fylg-
ir botnvörpufiotanUm sunnan að, gerð
út af þeim Einari í Sandgerði og Aru-
birni kaupmanni í Keflavík, og aflar
drjúgum. Og landburður af tröllafiski
á opin skip á Akranesi með köflum.
Amtmannsbanninu hjer um bil ekkert
skeytt nú orðið. Auðvelt reiknings-
dæmi, segja þeir, að sektin fyrir að
brjóta það verður ekki nema örlítið
brot af gróðanum á að skipta við
botnverpinga. T. d. hafði einn for-
maður á Akranesi verið búinn fyrir
nokkru aö fá 1400 í hlut af trölla-
fiski fyrir alls 40 flöskur af brermivíui
og 300 vindla. Sumir botnverpingar
hafa nú orðið fastan taxta á hverjum
skipsfarmi, 10—12 kr., eptir stærð.
Sagt er um tvö af þeiin 11—12
botnverpingaskipum, er hafast við hjer
i flóanum að staðaldri, að þau fargi
engum fiski, heldur hirði allan fisk og
verki, sem vörpur þeirra draga, hvers
kyns sem er. |>au kvað vera töluvert
stærri, þessi skip en hin, eða stærri
en almennt gerist, og auðsjáanlega út-
búin til þess heiman að, að hirða all-
ann aflan. Búast menn við, að það
verðí alsiða hvað af hverju, og að þá
taki fyrir þessa tröllafisks-lind lands-
búa hjer.
Hvítárvellir seldir.
Hr. Andrjes Fjeldsteð hefir selt eign-
ar og ábýlisjörð sína, Hvítárvelli, á-
samt búinu öllu, í síðustu yiku. Kaup-
andinn er þýzkur maður, sem hingað
kom í fyrsta sinni fy-rir fám vikum,
með Birni kaupmanni Kristjánssyni,
C. Gauldrée Boilleau að nafni, frá
Múnchen. Verðið á öllu saman, jorð-
inni og búinu, var 30,000 krónur. Hr.
Boilleau ætlar að reka búskap á Hvít-
árvöllum, tekur við jörðinni nú í far-
dögum og verður Sigurður Andrjesson
Fjeldsteð ráðsmaður hans næsta ár.
Sagt er, að hann hafi í hyggju að
græða Hvítárvallatúnið út að miklum
mun. Enn mun óráðið, hvort hann
ætlar sjer að verða sjálfur lang-
dvölum á Hvítárvöllum eða ekki, en
fullyrt samt, að hann muni setjast
að til fulls og alls hjer á landi.
Flensborgarskólinn.
þessir tóku burtfarapróf þaðan í
vor:
I. Kennaradeild:
1. Brynjólfur Magnússon,
(bókl. dável 4, verkl. dável).
2. Guðmundur Sigurðsson,
(bókl. dávet 4, verkl. dável 4).
3. Jón Finnbogason,
(bókl. dável, verkl. dável).
4. Jón Jónasson,
(bókl. dável 4, verkl. dável).
II. Gagnfrceðaskólinn:
1. 01. Metúsalemsson (dávél 4 , 5.46)
2. Jón Jónsson (dável 4, 5.21)
3. Sveinn Arnason (dável, 5.08)
4. Sigurður Jónsson (dável, 5.00)
5. Ásm. Gestsson (dável 4, 4.69)
6. þórður Einarsson (dável 4, 4.69)
7. Hinrik Knudsen (vel 4, 4.48)
8. Ásm. þórðarson (vel 4, 4.48)
9. Dorothea B. Proppé (vel, 4.06)
10. Eggert Eggertsson (vel, 3.98)
11. Hjörtur Árnason (dável, 4.92)
12. þorst. f>orsteinsson (dável, 4.88)
Tveir hinir síðasttöldu hafa áður
notið kennslu í skólanum 2 vetur, en
voru ekki í honum í vetur er leið.
Tveir úr eldri deild skólans tóku ekki
próf að þessu sinni.
Mikið unnið að húsagerð hjeríbæn?
um um þessar mundir, — að Ieggja
undirstöður undir þau. Auk stórhýs-
anna á almenningskostnað er fjöldi
smáhýsa í smíðum fyrir einstaka menn,
meira en dæmi eru til áður. Grunnur
undir barnaskólann langt korninn;
það er mikið verk. En ekki búnar
nema undirstöður undir bankagrunn-
inn. þak komið á Laugarnesspítal-
ann og búið að slá utan um hann
Barnaskólanum gamla verið að breyta
í pósthús; komnar dyr á suðurgaflinn,
og verið að breyta herbergjaskipun
niðri. Heldur verður þar of þröngt en
hitt.
Sundkennsla fer fram hjer ílaugun-
um utn þessar mundir, fyrir skólapilta
þessa viku og þá sem leið. Síðan
taka við barnaskólasveinar. Aðrir
gefa sig ekki að henni, nema lítils
háttar á helgum dögum. Kennari
sami og áður, Páll Erlingsson.
Hjólreiðar feíðkaðar hjer í bænum
til muna nú orðið, og ógætilega nokk-
uð. Tveir sektaðir í gær fyrirað hafa
riðið menn um koll og meitt þá (skóla-
pilt og barn), um 15 kr. kvor, þrí
aðrir fengu smærri sekt fyrir of harða
reið.
Af ófriðinum.
Sjóorusta viö Filippseyjar,
m. m.
Með kaupskipi, er hingað kom í gær
frá Skotlandi, bárust ensk blöð, fram
undir miðjan þennan mánuð, — hið
síðasta frá 13. maí, og þar með þau
tíðindi, er hjer fara á eptir.
Bandamenn hafa unnið allmikinn
sigur á Spánverjum í sjóorustu aust-
ur við Filippseyjar 1. þ. m.
Filippseyjar eru eyjabálkur allmikill
austurí Kyrrahafi, austan við meginland
Asíu sunnanhalt. það er meginland-
eign Spánverja í öðrum álfum, eigi
öllu minni fyrirferðar en Bretland hið
mikla og Irland, og eyjaskeggjar hátt
upp í 6 miljónir. Heitir höfuðeyin
Luzon, og er rjett á stærð við Island,
rúmum 20 ferh. mílum stærri. |>ar
er höfuðborgin á eyjunum, Manilla,
við fjörð einn samnefndan vestan
á eynni. Borgarbúar eru sagðir fullar
150,000.
Aðfaranótt sunnudags 1. maí lögðu
Bandamenn flotadeild sinni þar við
eyjarnar, 9 skípum, inn á fjörðinn við
Manilla; Ijetu myrkrið gæta sín og
hirtu eigi um sprengitól þau, er Spán-
verjar höfðu sökkt niður í fjarðar-
mynnið, enda sakaði þá eigi hót.
f>ar lágu Spánverjar fyrir með 11
skipum, í skjóli kastalavirkjanna við
Manilla. Er svo sagt, aðBandamenn
kæmu þeim á óvart og væru komnir
inn á miðjan fjörð, er dagur rann á
svipstundu; þar er svo nærri miðjarð-
arbaug.
Hófst þar orusta að vörmu spori,
hálfri stundu fyrir miðjan morgun.
Spánverjar tóku fyr til að skjóta, á
3000 faðma færi, en hæfðu hvergi.
Hinir ljetu skip sín halda skriðinu á-
fram og svöruðu eigi fyr en þeim h'k-
aði skotfærið, en það voru 2000 faðm-
ar eða hálf míla dönsk. þ>á gerðu
þeir fyrstu hríðina, og síðan hvora af
annari í 3 stundir samfleytt, 5 eða 6