Ísafold - 04.06.1898, Qupperneq 3
139
stefnunni; og, eins og ég heíi áður
tekið fram, liggur veguriun þá um
mesta jafnlendi, sem til eru á þessari
leið; að vísu verður brúin vfir Steins-
læk hjá Áshól dýrari en uppi undir
Sumarliðabæ, þar sem hr. Sigurður
ætlaði að hafa hann; en vel mun verð
þeirra 4 eða 5 brúa nægja í þann mis-
mun, sem sparast, ef vegurinn verður
lagður þessa leið, sem ég hefi bent á.
Að vegurinn verði lengri þessa leið,
munar mjög litlu.
Enn er eitt, sem virðist mæla mjög
mikið með þessu vegarstæði. og það er,
að með því móti liggur vegurinn
alveg við Selssand, en þar mun vera
ákjósanlegasti ofaníburður, sem til er
á þessum vegarkafla.
Ég vil því leyfa mér fyrir hönd allra
þeirra, sem veg þ nna þurfa að nota
á vetrum, að óska þess alvarlega, að
verkstjóri sá, sem falið hefir verið á
hendur að standa fyrir vegargerðinni
milli þjórsár og Eangár, skoði báðar
þessar vegarstefnur, og efast ég ekki
um, að ef hann gerir það nákvæmlega,
þá muni hann verða á sama máli og
ég; og, ef hann færi síðan þess á leit
við landshöfðingja eða hans umboðs-
boðsmann, að vegurinn muni þá verða
lagður á þeirn stað, sem ég hefi hér
bent á.
Verói þessu ekki gaumur gefinn, má
búast við, að þessi vegarkafli verði lítt
fær alloft fyrir hesta að vetrinum,
auk heldur að hann verði akfær, eins
og þó er til ætlast.
Eins og kunnugir munu vita, koma
minir hagsmuuir hvergi nærri þessu
máli. Heimili mitt veit svo við veg-
inum, að eg hefi hans engin not, hvora
leiðina sem hann er heldur lagður.
það stendur alveg á sama, hvað mig
snertir. — Lg læt þessa getið vegna
þess, að þau t-íðkast allmjög nú orðið,
hin breiðu spjótin; að hver, sem .legg-
ur eitthvað til almennra mála, geri
það af óhreinum hvötum, — af sín-
girni eða einhverri eiginhagsmuna von.
Hala i Holtum 2S. mai ÍMW.
þ. Guðmundsson.
' þýzkt vísindarit, Grundriss der
'jcrmanischen Philologie, hafa þeir dokt-
orarnir, Valtýr Guðmundsson og Kr.
Kaalund, ritað alllanga og fróðlega
ritgjörð urn menningarástand Norður-
landamanna að fornu, svo sem ýmsar
hliðar heimilislífsins, hýbýli, fatnað,
leika, atvinnuvegi, gjaldeyri o. s. frv.
Dr, Augnst GebJiardt
í Mtinehen sem ferðaðist hér um
land fyrir 15 árurn, hefir þýtt rnegin-
atriðin úr fyrirlestri Indriða revisors
Einarssonar um nokkrar breytingar d
landshögum, sem prentaður var í ísa-
fold í vetur, og látið prenta í þýzku
land- og þjóðfræðistímariti, sem Globus
heitir.
Húsbrnni.
Enn er frá nýjum húsbruna að segja
úr sveit, frá Smiðjuhóli á Mýrum.
f>að var áannan í hvítasunnu, 30. f.
m., meðan fólk var flest við kirkju,
að kviknaði (að menn ætla) í einhverj-
um rýjum of nærri reykpípu úr járni
upp frá eldavél uppi á lofti í íbúðar
húsinu og tókst ekki að slökkva, með
því að ekki var fleira manna heima
en konan með yngstu börnin og 1—2
gamalmenni, en mannhjálp frá næsta
bæ, Ánabrekku, kom um seinan, sem
náttúrlegt er. þegar bóndinn, Jón
híeppstjóri Hallson, kom heim frá
kirkju á Álftanesi — þar hafði verið
fermt þann dag —, var húsið alt
Ijfunnið, nema skúr norðan undir því
áveðurs, er geymd voru í ull og mat-
V®H; tókst að velta honum um koll
og frá bálinu. Fatnaði varð bjargað
trr húsinu og fleirum lausum munum
niðri, af þessu fólki, sem heiina var;
en eitthvað brann af rúmum uppi á
lofti. Vátrygt kvað húsið hafa verið
fyrir 1400 kr.
Varla má svo búið lengur standa
að því er snertir ótryggilegan utnbúnað
um eldfæri í timburhúsum í sveit. Slys
af því orðin afartíð, og við búið að
eldsvoðaábyrgð á þeim verði rándýr
■eða jafnvel ófáanleg, ef þessu vindur
fram.
Inn að skyrtunni
er nú Klemens Jónssou, Eyfirðinga-
valdsmaður, afklæddur, að þvíerþing-
mensktma snertir. Dr. Yaltýr Guð-
mundsson ber í »jpjóðv. unga« vitni
um það, og tilnefnir votta að því,
að það sé dagsatt, sem sagt
hefir verið: Kl. J. hafi haílast svo af-
dráttarlaust að »valtýskunni« á síðasta
þingi, að hann hafi lofað að greiða at-
kvæði með henni og reynt að fá aðra
til að Jofa því.
En dr. V. G. lætur ekki þar við
lenda. Hann lýsir yfir því, að Kl. J.
hafi fleirum sinnum sagt »afdráttar-
laust, að eftir þeirri þekkingu og
reynslu, er hann sem fyrverandi að-
stoðarmaður í ráðaneytmu fyrir Is-
land hefði fengið, þá áliti hann, að
pað hefði sárlitla eða enga )>prakt-
iska«. þýðingu, hvort ráðgjafinn sœti í
ríkisráðmu eða eigi«. Á þessa sann-
færing hafði Kl. J. alls enga dul
dregið, oft látið hana uppi um þing-
tímann í fleiri manna áheyrn.
Skemtilegra leiks með sannfæring-
una minnumst vér ekki í stjórn-
málasögu vorri. Sömu dagana, sem
þingmaðurinn talar í þingsalnum í
heyranda hljóði af þeirri mælsku og
andagift, sem honum er gefin, um
þær þungu búsifjar, er þjóð vor verði
að sæta fyrir setu ráðgjafa vors í rík-
isráðinu, gerir hann milli þingfunda
gangskör að því, að koma mönnum í
skilmng um, að fyrir sérstaka þekk-
ingu 8Ína og reynslu geti hann um
það borið, að það hafi sárlitla eða
enga »praktiska« þýðingu, hvort ráð-
gjafinn sitji í ríkisráðinu eða ekki!
Auðvitað er það fyrirtaks-léttir fyr-
ir hvern mann,að vera einurðargóður.
En svo getur einurðin stundum kom-
ið manni út í ógöngur.
Veðuratlmganir
i Keykjavík eptir lamllækni Dr. J. Jónas-
sen.
~p' B Hiti | (á Celsius) ' Loptvog ímiliimet.) 1 Veðurátt.
á nóttnni l ui. árd. siðd. áid. síðd.
28. + 4 + 5 i59.ö 75! .5 Sv b b Sv b d
29. + 1 + 6 í .59.5 759.5 N ltv b N h b
30 31. f 1 + 6 769.5 764.5 N bvb N bv d
+ 3 + •■> 767.1 7i>i.l N hv b N b b
1. + 5 + 9 • 62 0 759.5 Nv b b v ll b
2. + 5 + 11 759.5 759.5 v h b N hv b
3. + 3 + 8 759.5 762,0 N bvd Nhv b
4. + 5 762.0 N h b
Hefir verið við norðanátt, oft r dihvass
°g kaldur ofan fj 'ik um tima b. 28. snjóaði
í Ksjuna aðfaranótt h. 29. Rokhvass á norð'-
an aðfaranótt h. 4. og hvass allan þann
áag á norðan.
Meðalhiti i maí á nóttn -þ 2.7 fi fyrra
+ 2-1) á hád. -þG.7 (+(> 0).
Messaö
á morguní dómkirkjunni aukreitis kl.
5 síðdegis (síra J. H.)
Dáinn
er (10. maí) Bogi Sigurðsson, Sig-
urðssonar, hreppstjóra í Litlugröf, að
heimili sínu Brennistöðum í Borgar-
hreppi. Hann var um fertugt að aldri,
og dó úr lungnatæringu, frá konu og
mörgum börnum í ómegð. Konahans
var Guðrún Bjarnadóttir, systir Ás-
geirs Bjarnasonar, amtsráðsmanns í
Knararnesi og þeirra systkina. Bogi
heit. var í betri bænda röð, lipur
maður og fremur vel gefinn, gestrisinn
og vinsæll.
Vegagerð 1898.
Fyrir nokkru er hr. Eleudnr Zakar-
íasson byrjaður á fluíningabrautinm
niður Flóann, frá Seifossi, í stefnu milli
Stokkseyrar og Eyrarbakka, með all-
miklu verkaliði. Hefir Árnessýsla
tekið til þess 12,000 kr. lán, en hitt
leggur landssjóður til, nema Lefolii
verzlun á Eyrarbakka 2,000 kr.
Annar vegagerðarstjóri landsstjórn-
arinnar, hr. Einar Finnsaon, er nýfar-
jnn austur í Holt tneð nokkurn hóp
verkamanna til að byrja á veginum
þar, milli þjórsár og Rangár ytri, sem
minst er á í grein hr. alþiugismanns
þórðar í Hala hér í blaðinu.-Er þar
sem oftar ágreiningur um vegarstefn-
una, eu sá munurinn þó, að því er
merkir og skilorðir innanhéraðsmenn
tjá oss, að þeir, héraðsmenn, eru all-
ir á einu máli, því sama og alþm. þeirra
heldur fram, og verður það þá vonandi
ofan á. Til þessarar vegagarðar eru
ætlaðar 30,000 kr. þ. á.
Vegagerð í Srandasýslu, er land-
sjóður styrkír þ. á. með 5,000 kr.,
móts við annað eins frá sýslubúum,
auk tillags úr sýsluvegasjóði, stýrir
Tómas Petersen, er réð vegagerð í
fyrra í Barðastrandarsýslu.
Veðrátta.
Gekk upp aftur norðanveðrið í fyrra
dag; bálviðri þá og í gær, með miklurn
kulda, talsverðu næturfrosti til sveita;
í dag aftur hægur. Gróður á út-
jörð enn lítill sem enginn, og
tún ekki full-litkuð nema sumstaðar,
hvað þá heldur meira; og komnir þó
fardagar. — Sauðburður gengið von-
um framar, það er til spyrst, og er
það þurviðrunum að þakka; lamba-
dauði mikið lítill. Skepnur verið
heldur vel framgengnar.
—• • »
Hitt og þetta.
Albert prins af Wales, konungs-
efni Breta, og Alexandra prinsessa kona
hans voru einu sinni að skoða mjólk-
urafurðir á búnaðarsýning. Prinsinn
segir við umsjónarmann þess varnings;
»Eg hefi ávalt heyrt sagt, að bezt
smjör só aðflutt frá Danmörku«. Maóur-
inn vildi ekki almennilega kannast við
það og segir eftir dálitla umhugsun;
»Við fáum bezt drotningarefni frá
Danmörku, enbeztsmjörfráDevonskíri«
f>að bar til í ófriðinum, sem kendur
er við Iírim, að tuttugu hafskip, sumt
herskip og sumt flutningaskip, fórust
á einum degi í ofsabyl í Svartahafi. f>að
var 26. nóvember 1854, Sum sukku
inni á Balaclavaflóa, en hin á hafi
úti; þar á meðal hét eitt »Prinoe Con-
sort« (Drotningarmaðurinn) og var á
leið til hersins á Krim með 200,000 pd.
sterl. (3,600,000) í gulli frá stjórninni
í Lundúnum, í vel bentum tunnum.
f>að liggur á 32 faðma djúpi, 230 faðma
undan landi fram undan Sidero-hömr-
um; þar fórst það. Fyrir meira en
20 árum, 1875 fekk frakkneskt félag
auðugtleyfi til að royna að ná í þessa
gullkistu, en tókst eklci. f>að náði
nokkrum öðrum skipum upp, en réð
ekki við gullskipið. Nú hefir rúss-
neskur auðmaður, Plastunoff sótc um
sams konar leyfi og fengið það,
hvernig sem honum kann nú að ganga.
Uppboðsaugiýsing.
Að undangeuginni fjárnámsgjörð
verður eftir kröfu landsbankans þriðju-
dagnna hinn 14. og 28. júní og 12. júlí
kl. 1 e. hádegi við opinbei t uppboð
seldur i hluti úr Stóruvogum (Garð-
hús) með tilheyrandi hjálegum til lúkn-
ingar veðskuld að upphæð kr. 760 með
ógniddum vöxtuni og dráttarvöxtum
frá 11. júní 1896.
Hin tvö fyrstu uppboðin fara fram
hér á skrifstofunni, en hið þriðja á
eigninni. Söluskilmálar verða til sýnis
daginn fyrir hið 1. uppboð.
Skrifst. Kjósar-og Gullbringusýslu
hinn 23. maí 1898.
Franz Siemsen.
HEYEIÐ! SJÁIÐ!
NÝ JÁRNSMIÐJA.
Frá því í dag höfum við undirritað-
ir komið okkur saman um að vinna
saman að járnsmíði og bjóðum heiðr-
uðum almenninai að leysa af hendi
fljótt og vel alt, sem að iðn okkar
lýtur. Smiðja okkar er í
AÐALSTRÆTI 6.
Reykjavík 31. maí 1898.
Guðjón «Tónsson. Sigurður
Sigurðsson.
Samúe! Oiafsson
söðlasmiður,
er nú FLUTTUR inst á Laugaveg og
selur sem að undanförnu
alls konar ný.jan reiðskap
selur ýmislegt efni til söðlasmíðis,
selur brúkuð reiðtygi
mjög ódýr.
Sá eini í Reykjavík
sem leigir brúkaðan reiðskap umlengri
og styttri tíma.
Pantar NAFNSTIMPLA afallskon-
ar gerð.
LAXASTANtillt til sölu. Menn semji
við B j ö r n lió s c n k r a n z. Hafnarst.TZ
Enn ]>á fást KOMYIODl’R, skrifborð og
rúmstæði í Vesturgiitu 44.
Saltkjöt
vel verkað
Fischers-verzlun.
Frá ö. júni kostar 1 bolli af KAFFI á
Kolviðarhól (borgaður út í hönd) 12 a.;
annars 15 a.
Tapast het'ir einn kvenn reimaskór á leið-
inni frá Hólmi niður i Reykjavik. Finn-
andi’jskili 1 afgreiðsln isafoldar mót fund-
arlaunntn.
Áerzlanir
W. FISCHERS
1
Reykjavík, Hafnarfirði og
Keflavík
hafa fengið og fá ntiklar birgðir af allri
nauðsynjayöru
sem, eins og að undanförnu, verður seld
með svo lágu verði, sem kringumstæður
leyfa, bæði móti vörum og peningum.
ISLKN/.K AI! VflRUR verða borgaðar
með svo háu verði, sent unt verður.
BflrðíiBnr
og tjáviður af mörgum tegundum fæst
þessa dagana frá kutter Palmen.
I. (1, fi. I. stókan „Wll" Ir 3.
heldur fundi sína á hverju þriðjudags-
kvöldi kl. 8^ til 31. ágúst.
Koral-armband
hefir týnst á veginum inn að Laugar-
nesi. — Finnandi er vinsamlnga beð-
inn að skila því í Félagsprentsmiðj-
una gegn fundarlaunum.
Leiðarvisir lii lífsábyrgðar fæst ókeyp-
is bjá ritstjórunum og hjá dr. med. J. Jón-
assen, sem einnig gefnr þeim, sem vilja
tryggja lif sitt, allar npplýsingar.