Ísafold - 09.07.1898, Page 2
174
inni. Er þar meðal annars all-merki-
leg hvalabyssa (frá 17. öld), sem hefir
verið skotið með ör eða skutli. Báta-
lag þeirra hefir breytst mjög, og eru
þeir fiskibátar, sem nú eru brúkaðir,
mjög þesslegir, að vera góðir í sjó að
leggja. Loftþétt hólf er í þeim, og
geta þeir því ekki sokkið; og af kjöl
fara þeir trauðlega. I búðinni sjálfri
eru tvö herbergi; hið fremra er til þess
haft að geyma í veiðarfæri, salta fisk
o. s. frv., en í hinu innra sitja jprænd-
ur og matreiða. f>ar eru öll vinnuá-
höld þéirra og matreiðsluáhöld. |>ar
eru tréskálar, alveg eins og þær, sem
í ungdæmi mínu voru búnar til á
Ströndum, og eru það þeirra graut-
arskálar. Herbergið er um 6 álnir í
hvern veg, og er ætlað 8 manns. Uppi
á loftinu eru 4 kassar; það eru rúm-
stæði þeirra og sofa tveir í rúmi.
Hér er að vísu fátt fróttnæmt sagt
af svo fyrirferðarmikilli og fjölskrúð-
ugri sýningu, sem Björgvinjarsýningin
er. En þann tíma, sem ég hef dvalið
hér, hef ég verið svo önnum kafinn,
að ég hef ekki haft mikinn tíma til
að skrifa. Mörgum manni hef jeg
kynst hér nú í fyrsta sinni, og hef
undantekningarlaust fengið hinar beztu
viðtökur hjá öllum. Alúðargestrisni
í té látin hvervetna, og sýnilegur fögn-
uðuryfir því, að hitta íslending. Kakl
Jóhann Ásláksson, sem er búfræðing-
ur frá Stend, og mörgum Islendingum,
að góðu kunnur, stýrir skrifstofu á
sýningunni, sem veitir blaða-fregnrit-
um leiðbeiningar og ýmsa aðstoð. Isa-
fold á að bera kunningjum hans á ís-
landi kveðju frá honum. Mér tók
hann tveim höndum, og veitti mér öll
róttindi blaðafregnrita; og kann ég
honum beztu þakkir fyrir.
J. þ.
Búnaðarfélag
Suðuramtsins. Síðari ársfundur þess
var haldinn hér 5. þ. m. Lagður fram
og samþyktur endurskoðaður reikning-
ur félagsins um árið 1897.
Forseti, H. Kr. Friðriksson, gat þess,
að tala félagsmanna mundi nú vera
319.
Hann skýrði og frá störfum búfræð-
inga í vor og í sumar í þjónustu fé-
lagsins. Sveinbjörn Olafsson í Vestur-
Skaftafellssýslu í 1J mánuð, Hjörtur
Hansson í Borgarfjarðarsýslu 1| mánuð
og Gísli þorbjarnarson í Arnessýslu 1
mánuð.
Enn fremur hafði stjórnin samkvæmt
fundarályktun í vetur ráðið garðyrkju-
fræðing Einar Helgason í þjónustu fé-
lagsins frá 1. apríl þ. á. fyrir 800 kr.
um árið sem ráðanaut þess, og skyldi
hann jafnframt gefa félagsmönnum kost
á leiðbeiningu sinni, en ferðalag í þeim
erindum skyldu hlutaðeigendur kosta.
Eftir tillögu félagsstjórnarinnar sam-
þykti fundurinn að veita Sigurði Sig-
urðssyni búfræðing (frá Langholti) 200
kr. til að fara á sýninguna í Björgvin.
Jakob Jónssyni á Varmalæk var
veittur 100 kr. styrkur til að ljúka við
engjabrú og fá sér kerru.
Forstöðukonur matreiðslu- og hús-
stjórnarskólans höfðu sótt um styrk
til félagsins, og í annan stað, að þegar
það væri orðið að eínu allsherjarfólagi
fyrir alt landið, þá tæki það að sér
yfirumsjón skólans. Styrksins var
synjað.
Málinu um stofnun eins allsherjar-
búnaðarfélags fyrir landið var frestað
vegna þess, að undirtektir amtsráðanna
voru eigi samrýmanlegar.
Stjórnin leyfði að styrkjaGarðyrkju-
félagið til verkfærakaupa iheð alt að
30 kr.
Stjórn endurkosin : H. Kr. Friðriks-
son forseti; Eiríkur Briem skrifari;
Geir Zoega féhirðir. Yaramenn sömu-
leiðis (Tr. Gunnarsson, Jón Jensson,
fórh, Bjarnarson).
Arntsráðsfundur
Suðuramtsins var haldinn dagana
30. f. mán. til 2. þ. mán., að við-
stöddum öllum hinum reglulegu amts-
ráðsmönnum : sýslumanni Guðlaugi
Guðmundssyni fyrir Vestur-Skaftafells-
sýslu, síra Skúla Gíslasyni í Odda
fyrir Bangárvallasýslu, síra Vald. próf.
Briem fyrir Árnessýslu, Jóni verzlun-
arstjóra Gunnarssyni í Keflavik fyrir
Kjósar- og 'Gullbringusýslu, og síra
Guðm. próf. Helgasyni fyrir Borgar-
fjarðarsýslu.
|>ar voru um 30 mál á dagskrá, og
skal hér minst nokkurra hinna helztu
þeirra.
Um fjákkláðann hafði amtmaður
sömu skýrslu fram að bera sem á fund-
inum í Vesturamtinu, og skoraði því
næst ráðið á hann, að láta fjárskoð-
anir og fjárbaðanir fara fram á kom-
anda hausti með sama hætti sem í
fyrra í Borgarfjarðarsýslu, Kjósar- og
Gullbringusýslu og Árnessýslu; þó
skyldi eigi vera skylt að baða á svæð-
inu millí Hvítár eystri og þjórsár nema
kláði fyndist þar. Böðunum skyldi
lokið fyrir jól og skýrslur um heil-
brigði fjárins koma til amtmanns fyrir
lok febrúarmánaðar. Enn fremur
skorað á amtmann, að gjöra nauðsyn-
legar ráðstafanir til þess að hefta fjár-
samgöngur við Bangárvallasýslu, svo
sem með því að banna flutning lifandi
fjár yfir þjórsá, ef svo færi, að horfur
spiltust verulega í Árnessýslu milli
þ>jórsár og Hvítár.
Um heilbrigðiseftiklit manna á
meðal bar amtmaður upp frumvarp til
reglugjörðar fyrir hreppsnefndir, hið
sama og á vesturamtsfundinum, en
amtsráðið var því gjrki meðmælt, held-
ur vildi láta biðja landlækni að semja
leiðbemandi reglur og ráðleggingar um
almenna heilbrigði og hreinlæti manna
á meðal, að fengnu áður áliti hins
væntanlega læknafundar í sumar, og
skyldu reglur þessar síðan prentaðar á
kostnað jafnaðarsjóðs og þá útbýtt
meðal almennings.
L m yfikvofandi hallæki í Vatns-
leysustrandarhreppi hafði hreppsnefnd-
in þar skrifað amtsráðinu 20. f. m. og
beiðst ásjár. Segir aðal-orsök bágind-
anna vera langvint aflaleysi; hafi vetr-
arvertíðarafli í þetta skifti brugðist til-
finnanlega, og svo hafi og verið und-
anfarnar fjórar vertíðir ; nú á síðast-
liðnu vori hafi gjörsamlega brugðist
síldarafli og grásleppuveiði og yfir höf-
uð allur afli. Afleiðingin sé sú, að al-
menningur af vinnandi fólki hafi flúið
úr hreppnum til annara bjargvænlegri
héraða til þess að leita sór atvinnu,
en skilið eftir heimilin bjargarlaus.
Lánstraust í kaupstöðum gjörsamlega
þrotið. Onnur orsök til bágindanna
er talin sú, að á hreppinn hafi hlað-
ist svo margir ósjálfbjarga ómagar
þetca síðastliðið ár, að hreppurinn geti
ekki risið undir þeim gjaldþunga, sem
af því leiði. |>eir fáu gjaldendur, sem
útsvör eigi að greiða úr búum sínum,
fái ekki björg banda skylduliði sínu,
en hinir, sem efnaðri eru, haldi ómaga,
sem vinni sveitargjöldin upp hjá þeim.
Ástandið talið verra en nokkurn tíma
áður á þessari öld. Hreppsnefndin
hafði leitað hjálpar til sýslunefndar-
innar í apríl í vor og beðið um 2000
kr. lán handa hreppnum, en sýslunefnd-
in neitaði; þar á móti gaf hún beiðni
hreppsins um 2000 kr. lán til búnað-
arframfara meðmæli sín og hafði sam-
þykt þá tillögu frá sýslunefndarmanni
Vatnsleysustrandarhrepps, að sýslu-
nefndin nú þegar aðvari amtsráðið um,
að vegna hins langvinna aflaleysis í
suðurhluta sýslunuar geti að því rekið,
að amtsráðið verði á næsta hausti að
taka lán úpp á amtið til þess að af-
stýra hallæri í 5 hreppum sýslunnar
af 12, því sýslunefndin sjái sér ekki
fært að ráða fram úr þeim vandræð-
um, ef að beri.
Út af þessu kemst amtsráðið þann-
ig að orði: »Sýslunefndin hefir sýnt
með þessari ályktun sinni, að hún
annaðhvort ekki hefir aðgæ.tt sveitar-
stjórnarlög vor eða ekki vill hafa fyrir,
að uppfylla skyldur þær, sem á henni
hvíla samkv. 39. gr. tilskipunar 4.
maí 1872 um sveitastjórn á íslandi.
|>ar segir skýlaust, að sýslunefnd skuli
gjöra sérstakar ráðstafanir til þess að
afstýra hallæri. Lán til þess að af-
stýra bágindum í einum hreppi eða
fleirum verður að endurborgast af sýslu-
félaginu í heild sinni, og slíku hallæns-
láni á að jafna niður á alla hreppa
sýslunnar sem sýslusjóðsgjaldi.«
Amtsráðíð ályktaði 'því að skipa,
sýslunefndinni að gjöra þegar þær ráð-
stafanir, sem þörf væri á, til þess að
afstýra hallæri bæði í Vatnsleysustrand-
arhreppi og öðrum hreppum í suður-
hluta sýslunnar, ef þess virtist þörf,
eftir að utanhreppsmenn, tilkvaddir af
sýslumanni, hefðu rannsakað ástandið.
Misskilningur hjá sýslunefndinni, að S.
liður 39. greinar í tilskipun 4. maí
1872 um skyldu sýslunefnda til að af-
stýra hallæri í sýslum eigi að eins við
þegar hallæri sé í < llum hreppum sýsl-
unnar, og því lögleysa hjá henni að
heimta nú fjárframlög úr amtssjóði.
Um nýja kláðalöggjöf hafði þetta
amtsráð líka skoðun og hitt í Vestur-
amtinu: að ekki mundi að svo stöddu
þörf á annari breytingu á gildandi lög-
um en að amtmanni væri veitt heim-
ild til að fyrirskipa almennar skoðanir
og baðanir á fé og sótthreinsun húsa
hvenær sem honum virtist þörf á því,
en að því við bættu, að niðurskurður
sá yrði leyfður, sem ræðir um í 3.
gr. frumvarpsins frá síðasta þingi (frá
róttum til jólaföstu). Svo taldi og
ráðið ekki hyggilegt að amtsráðin gæfu
út reglugerðir um framkvæmd á fyrir-
skipuðum kláðavarnarráðstöfunum (4.
gr. frv.), með því að misjaínlega hátt-
aði hirðingu og geymslu fjár í ýmsum
héruðum.
Díkalæknibinn sunnan og vestan
hafði landshöfðingi úrskurðað 17. ágúst
f. á. að skyldi hafa aðsetu í Beykja-
vík.
Kvennaskólanum í Beykjavík veittur
100 kr. styrkur, sem áður, úr jafnað-
arsjóði. ----
Til B.törgvinjakfekðak veitt 200
kr. viðbót við 500 kr. styrk úr lands-
sjóði handa Hirti skólastjóra Snorra-
syni á Hvanneyri.
Bkáðasóttarbólusetning vilja Ar-
nesingar fá dýralækninn til að kenna
hjá sér í haust í sem flestum hreppum
sýslunnar, og að hann hefði með sér
nægilegt bóluefni. Amtsráðið félst á,
að dýralæknirinn bólusetti fé hjá þeim
og kendi bólusetningar þessar, ef hon-
um þætti það tiltækilegt ; en útvegun
bóluefnis yrði sýslufélagið að kosta.
Borgfirðingar vildu að amtsráðið
hlutaðist til um, að þórður Stefánsson
frá Varmalæk fengi bóluefni, sem
nægði í 8000 fjár, og hét amtmaður
að reyna að fá dýralækni til að útvega
það.
AlÞýdustyrktarsjóðsgjald höfðu
sumir breppstjórar staðið í vanskilum
með, þar á meðal einn borgfirzkur
fyrir 4 ár yfir 200 kr., og skyldi sæta
hegningarlagaábyrgð, ef eigi yrði úr
bætt.
Brúarstæði vildu Arnesingar enn
fá meðmæli til landshöfðingja um að
hæfur maður skoðaði og gjörði kostn-
aðaráætlun um brúargerð þar á þess-
um ám : á Soginu hjá Alviðru, á Brú-
ará milli Miklaholts og Spóastaða; á
Tungufljóti á Vatnsleysugljúfn, og á
Hvítá á Brúarhlöðum.
Afhending holdsveikisspítalans frá
gefendunum, Oddfellow-félaginu danska,
er búist við að fari fram að hálfum
mánuði liðnum, og er von á yfirmanni
félagsins, Dr. P. Beyer, með næstu ferð
póstskipsins, ásamt 4—5 öðrum mik.
ils háttar mönnum úr reglunni. Til
þess að taka sæmilega á móti þeim
veitti amtsráðið 500 kr.
Hvanneykarskólann hafði amtsráðið
til athugunar að vanda, endurskoðaði
reikninga hans, samdi áætlun um tekj-
ur og gjöld iians þetta fardagaár, m. m.
HaDn fær 2500 kr. úr landssjóði, nál.
2600 úr jafnaðarsjóði og 1660 kr.
úr búnaðarskólasjóði. þar af fara
rúml. 2200 kr. til að greiða vexti og
afborganir af lánurn, rúmar 1500 kr.
til að greiða aðrar skuldir, 1000 kr í
laun handa skólastjóra, 200 kr. til að-
stoðarkennara, 100 kr. til smíðakenslu,
1400 kr. í hjúakaup, verkalaun, mat-
vælakaup o. fl. Til að byggja nýja
hlöðu og fjárhús í sumar tekur skól-
inn 5000 kr. lán.
Virtar voru eigur skólans í vor sem.
hér segir :
Jörðin Hvanneyri með hlunn-
indum og ítökum (án kirkj-
unnar) .....................16,000kr.
Kirkjan....................... 3,800 -
Onnur hús (sem ekki eru jarð-
arhús)...................... 17,000
Lifandí peningur.............. 4,355 -
Jarðyrkjutól og heyskapará-
höld ........................ 1,219 -
Bækur og kensluáhöld.......... 223 -
Smíðatól m. m.................. 198 -
Skip og laxveiðiáhöld 329 -
Heyfyrningar og búsafieifar... 2,772 -
Annað lausafó................. 2,022 —
Útistandandi skuldir............ 367 -
Alls......48,285kr.
Skuldirnar eru nál. 33,800 kr., og
afgangur af skuldum, eða skuldlaus
eign, því nál. 14,500 kr.
Sísluveguk (í Arnessýslu) ákvað
amfesráðið að vera skyldi vegurinn frá
Alviðruferjustað á Sogínu fram með
Ingólfsfjalli að þjóðveginum frá (ilfus-
árbrú upp að fjallinu, og sömuleiðis
vegur út af Eyrarbakkaflutningabraut-
inni, sem nú er verið að leggja, fyrir
ofan Hraunshveríi urðu að Hraunsás-
brú og þaðau til Stokkseyrar.
Synodus.
Hún stóð 2 daga, 28.—29. f. m., og
fór mestallur tíminn til að ræða hand-
bókarfrumvarpið, sem nú mun vera
fullbúið hér um bil til konungsstaðfest*
ingar, að þvi leyti sem ekki kemur til
lagabreytinga, sem bíða verða auðvit-
að næsta þings (t. d. fækkun lýsinga
m. m.):
Styrk var að vanda útbýtt handa
uppgjafaprestum og prestaekkjum, alls
um 3800 kr.
Vakið var máls á af biskupi nýju
fyrirkomulagi á Synodus, en ekki tími
til að ræða það mál: fulltrúasamkoma
úr öllum prófastsdæmum landsins, einn
maðurúrhinum fámennari, en tveir úr
hinum fjölmennari, kosnir af héraðs
fundunum, að svo miklu leyti sem pró-
fastarteldust eigi sjálfkjörnir. Samkoma
þessi ætti að hafa frumkvæðisrétt og
sumpart ráðgefandi álitsrétt í öllum
kirkjulegum málum.
Synodus hófst að vanda með guðs-
þjónustugerð í dómkirkjunni; sté síra
Skúli Skúlason í Odda í stólinn og
lagði út af II. Pét. 3, 18.
Ferðamannafélagið.
Aðalfundur haldinn í »Ferðamanna-
félaginu í Beykjavík« í fyrra kveld.
Tólf félagsmenn á fundi, af um 40 alls
í félaginu.
Fundarfall í fyrra, vegna fjarveru
formanns. Enda eftir skoðun félags-
stjórnarinnar lítið um að hugsa fyrir
félagið fyrstu árin annað en að reyna
að safna dálitlum sjóði, áður en tekið
sé til verulegra framkvæmda, sem og
hefir nú tekist vonum framar. T. d.
ofvaxið að svo stöddu að gefa út bók
um Island með myndum, leiðarvísi fvr-
ir útlenda ferðamenn. Slíkt er afar*