Ísafold - 09.07.1898, Page 3
dýrt, ef að haldi á að koma, — ritið
að komast í nógu margra mannahend-
ur. Bók, sem danska ferðamannafé-
lagið gaf út nýlega að eins um Kaup-
mannahöfn, kostaðí félagið 11,000 kr.
En á myndunum frá Islandi frá í hitt
eð fyrra hefir félagið grætt til muna,
og nú komin ný myndaútgáfa, sem
líkur eru til að það græði einnig á.
Hins vegar hefir stjórnin stutt viðleitni
annara til að koma á gang ferðaleið-
arvísum um ísland með því að lána
þeim fallegar myndir (Clichéer) í þær.
Hafa komið út fyrir hennar tilhlutun
slíkar myndir í árbók danska ferða-
mannafélagsins, sem prentuð eru af
mörg þúsund eintök, og jafnvel byrj-
að þar einnig á greinum um IslaDd
(Touristrouter paa Island), sem félag-
ið vill þó gjarnan láta oss hlaupa und-
ir bagga með; telur það ekki svara
kostnaði fyrir sig; væri það og ef til
vill vænlegt ráð fyrir félag vort, ef það
áskildi sér þá eignarrétt að handritinu
og myndunum, og fengi svo mörg sér-
prent af þeim greinum, sem það vildi.
í>etta væri ráðið fyrir félagið til að
útvega sér smámsaman nægar birgðir
af allgóðum ferðaleiðarvísum, án þess
að því þyrfti að vera það neinn byrð-
arauki.
Mr. P. W. W. Howell, Öræfajökuls,
fari, er að semja enska ferðabók um
ísland, meðfram að undirlagi félagsins,
sem ræður nokkru um innihald henn-
ar, enda verður nafn félagsins á titil-
blaðinu. Hann er, eins og menn vita,
snjall rithöfundur og vel kunnugur hér
um land. — 1 fyrra gerði sami mað-
ur félaginu þann greiða, að sýna hér
fáséðar skuggamyndir af nokkrum
merkisstöðum hér á landi (fossum,
jöklum o. fl.), með betri tækjum en
hér hafa áður sést, til ágóða fyrir fé-
lagið.
Stórum hafa samgöngur við önnur
lönd batnað frá því í hitt eð fyrra, er
aðalfundur var síðast haldinn; ferðirn-
ar beinni og langt um tíðari en áður;
nýtt farþegaskip bætst við, með eink-
argóðum útbúnaði fyrir ferðamenn;
ferðirnar auglýstar allrækilega og ým-
islegt gert af hálfu formanns félagsins
sem farstjóra eimskipaútgerðarinnar
til þess að örva ferðamannastrauminn
hingað: skrifast á við helztu útlendar
ferðamannaskrifstofur m. m., alt félag-
inu að kostnaðarlausu.
Fyrir 2500 kr. fjárveitingu síðasta
alþingis til skýlis á þingvöllum, er að-
allega mun koma ferðamönnum að not-
um, er nú tekið til að koma því upp,
rneð hlutabréfaáskriftum að öðru leyti,
hluturinn á 250 kr. Stjórnin lagði þaðtil,
að félagið eignaðist 2—3 hlutabréf, með
því að alíkt hús kemur mjög í þarfir þess
°g styður það markmið, er það hefir
sett aér. Ætti það eigi að síður að
vera Þess megnugt, áður langt um líð-
aö st>ga næsta stigið í sömu átt, og
koma upp einhverju nýtilegu skýli við
Geysi. Til bráðabirgða hefir nú félag-
ið 2 stærstu tjöldin sín á þessum stöð-
um, frá því í fyrrai til afnota fyrir
ferðamenn.
Fundurinn samþykti að veita féiags-
stjórninni heimild til að kaupa handa
félaginu 2 hluti (á 250 kr.) f þing-
vallaskýlisfyrirtækum, með þeim kjör-
um, er um semdist.
Samþyktar voru og lítils háttar laga-
breytingar, áður upp bornar á aðal-
fundi 1896: a) Félagið nefnist »Hið
íalenzka ferðamannafclag«; b) »Stjórn-
mnier heimiltað geraútlenda ferðamenn
að gistivinum félagsins gegn 5 kr.
árstillagi,,
bramlagður endurskoðaður reikning-
Ur félagsins frá 1. júlí 1896 til 30.
, í bar með sér, að félagið átti
1 SJ°ðl (sParisjóði) rúmar 800 kr. í
pemngum, auk nokkurs í ógreiddum
i ögum, ennfremur 3 ferðamannatjöld,
m. m. Félaginu höfðu græðst rúmar
400 kr. á útgáfu Mynda frá íslandi (frá
1896), er formaður félagsins, konsúll
D. Thomsen, hafði kostað úr sjálfs
síns vasa, og vottaði fundurinn hon-
um sérstaklegar þakkir fyrir það í
einu hljóði.
Vakið var máls á lækkun á Arstil-
lagi til félagsins, úr 10 kr. niður í 5
kr., og ráðgert að undirbúa þá laga-
breytingu til löglegrar fulinaðarsam-
þyktar á næsta aðalfundi (1899).
Stjórn endurkosin í einu hljóði (D.
Thomsen, Tr. Gunnarsson, Björn Jón-
son; varamaður J. Havsten amtm.)
og endurskoðunarmenn sömuleiðis
(Halld. Jónsson og Sigliv. Bjarnasou).
Embættispróf,
kennarapróf í málfræði(fornmálunum:
grísku og latínu) tók Sigfús Lúðvígs-
son Blöndal við Khafnarháskóla í f.
mán. með 1. einkunn.
Laust brauð.
Svalbarð í þisoilsfirði, metið kr.
969,52. Ekkja í brauðinu, sem nýtur
náðarárs til fardaga 1899. Auglýst 6.
júlí. Umsóknarfrestur til 25. ágúst.
Fiskileysi
alment á Austfjörðum nú að frétta
með »Hólum«, er að austan kom
snemma í vikunni. Varla reytingur í
soðið, hvað þá meira. Enginn uggi til
verkunar eða þurks, og því enga at-
vinnu að hafa við það framar. Eitt-
hvað kom aftur af fólkí þaðan með
bátnum, til þess að fá sér kaupavinnu
hér í sveit. »Betur farið en heima
setið« eða hitt þá heldur. Horfist ekki
vel á um greið skil á kaupi fyrir það
sem eftir er eystra; getan hverfurmeð
aflavoninni.
Grasvöxtur
er orðinn allgóður alment hér um
suðurhéruð landsins, á túnum að
rninsta kosti. Sömuleiðis lítur vall-
lendi utan túns vel út, en mýrar síð-
ur. Hefði verið hlýrra í lofti síðasta
hálfan mánuð, mundi grasvöxtur hafa
orðið mjög góður; er eða verður lík-
lega í meðallagi. 1-jn óþurkar ganga
néi megnir, og hrekjast töður hér á
Beykjavíkurtúnum, sem slegin voru
fyrir meira en viku. Sláttur alment
að byrja þessa dagana, 11 vikur af; á
stöku stað, t. d. Bvanueyri, viku fyr.
ý Arni Gíslason,
fyrrum sýslumaður í Skaftafellssýslu,
andaðist að heimili sínu, Krísuvík, 26.
f. mán., hátt á áttræðisaldri, f. 4. nóv.
1820 að Vesturhópshólum ; þar var þá
faðir hans pre3tur, síra Gísli Gíslason,
er síðast var prestur á Gilsbakka
(t 1860), en kona hans, móðir Arna
heit., var Ragnheiður Vigfúsdóttir
sýslumanns f>órarinssonar a Hlíðar-
enda, systir Bjarna amtm. Thoaren-
sen. Bróðir Aima var síra Skúli heit.
Gíslason, prófastur á Breiðabólstað í
Fljótshlíð. Hann útskrifaðist úr Bessa-
staðaskóla 1844, fór á Khafnarháskóla
1848 og tók þar próf í dönskum lög-
um 1851, var settur sýslum. í Skafta-
fellssýslu sama ár og veitt hún árið
eftir, fekk lausn frá embætti 1879 og
fluttist til Krísuvíkur. Börn lifa eftir
hann 4 : þórarinn timbursmiður, og
Helga, kona Páls gullsmiðs |>orkels-
sonar (fyrri konu börn), og Skúli auka-
læknir í Ólafsvík, og Kagnheiður, kona
Péturs Jónssonar í Krísuvík, áður
verzlunarmanns í Hafnarfirði (eftir síð-
ari konuna, Elínu Arnadóttur, er lifir
mann sinn).
Pingvallaskýllð
fyrirhugaða er nú að komast í fram
kvæmd, fyrir ósérhlífni fáeinna manna,
því engar undirtektir fekk boðsbréfið
það í fyrra um 25 kr. tillög eða hluti
í hlutafélag; og kemst að líkindum upp
fyrir haustið. Verið að hlaða grunn-
inn á völlunum fyrir austan Oxará,
þar sem heita Kastalar. Húsið á að
verða 32 álna langt alls, og miðkafl-
inn 12 álna breiður, en bitt 8 álna.
Eru þær álmur (8 x 10) ætlaðar önnur
til svefnbúrs, en hin til matreiðslu
m. m. Miðkaflann er ætlast til að
nota megi bæði fyrir ferðamenn að
matast í m. m., mætti jafnvel þilja
af honum nokkuð lauslega tíl svefn-
skála, og til almennra fundarhalda, ef
nokkurn tíma þarf á að halda ; þing-
vallafundir virðast vera að detta alveg
úr sögunni, svo sem eðlilegt er, vegna
hinna miklu breytinga á samgöngufær-
um hér á landi, m. fl. En dágott
ferðamannahæli ætti þetta að geta
orðið, og að koma sór vel fyrir þá,
sem dvelja vilja langdvölum á jping-
völlum að sumrinu til sér til skemt-
unar og hressingar.
V eðuratliuga nir
iReykjavik eftir landlækni I)r. J. Jónas-
sen.
hC (A Hiti Oelsius ) jsæsi i **»*«•
ú nót-t| □ m h d. árd. sí()d. ávd. sit)d.
25. + 8 + n 754.4 759.51o d O b
26. + 8 + 12 766.: 1 754.4; S h d S h d
27. + 8 + 12 749.3 749 3 Sahv d Sv h d
28. -L 7 + 11 746.8 746.8:Sa hd Sv h d
29 4- 6 + <S .41.7 749 3 Svhvd Sv li d
30. + (i + 12 749.3 713.8 S h b S h b
1. + 6 + 8 746.8 (93-ijS h d v h h
2. + 6 + 10 756.9 7t>2.0 N h 1) o b
3. + 8 + 12 762.0 762.0|o h Sv h b
4. 8 + 9 759.5 754.4 a h d Sa h d
f). + «s + 12 754.4 751+Sv h d Sv h d
6. + 8 + 10 ,56.9 759.5 v h d v h d
7. + 8 + 12 762.0 762 0 o d o d
8. + 8 + 12 759 5 759.5! Sa hvd Sativ d
Var við útsuður fyrri vikuna með krapa-
skúrum við og við, oft kvass ogkaldur, þar
til liann gekk li. 1. til útnorðurs með hægð;
hægur og bjartnr á norðan h. 2 logn og
dijnmnr að kveldi.
Meðalliiti í jáni á nóttu -f- 7.4
á hádegi + 11.2
Oftast hægur siðari viknnar, en mikil
úrkoma og dimmviðri.
Hinn 3. var hér rart við lands-
skjálfta kl. 7+ f. h., 1 kippur.
Ritsfminn.
Svo segir í dönskum blöðum eftir
að póstskip fór frá Khöfn síðast, að
upp hafi verið borin í parlamentinu í
Lundúnum, neðri málstofunni, 24. f.
mán., fyrirspurn um, hvort stjórnin
mundi ætla sér að veita Ritsímafélag-
inu norræna í Khöfn nokkurn styrk til
ritsímalagningar til Færeyjaogíslands,
en því hafði fiskiveiðafundur í Lund-
únum, allsherjarfundur enskur um þil-
skipafiskiveiða, lýst yfir með fundar-
ályktun að æskilegt væri.
jpví var svarað svo af stjórnarinnar
hendi, »Hanbury« (mun eiga að vera
Halsbury lávarður, sem er einn í ráða-
neytinu, »kanselleri«), að stjórnin styrkti
að eins þá ritsíma, er nauðsynlegir
væri til landvarnar eða þá vegna ann-
ara stjórnarþarfa. Auk þess væri Rit-
símafélagið norræna útlent félag, og
kvaðst hann eigi þekkja neitt dæmi
þess, að útlend félög hefðu fengið
styrk úr ríkissjóði Byeta. Hins vegar
væri og engin sönnun fram komin
fyrir því, að slíkur ritsími yrði til
stuðnings enskum hagsmunum, þannig,
að nokkurt tilefni væri yfir höfuð að
hugsa til að styrkja það fyrirtæki.
Hrossakaupaskipið
þeirra Zöllners & Vidalins, Gwent,
fór aftur í fyrra dag, með um 600
hross (tók ekki meira), er gefið hafði
verið fyrir almennast 55—65 kr., á
aldrinum 4—7 vetra. Með skipinu
sigldi og Oftedal prestur aftur.
Gufuseip Waagen (109, Hoveland),
kom í fyrra dag austan af Seyðisfirði
ug með því þeir bræður Otto og Carl
Vathne, að athuga og undirbúa hús-
bygginguna á Kleppi, upp á fyrirhug-
aðan síldarútveg þar. f>eir fara aust-
ur aftur á morgun með »Hólum«, en
»Waagen« til Euglands með hesta.
Gufuskip Scandia (259, Christen-
sen) kom í fyrra dag frá Mandal með
timburfarm til B. Guðmundssonar og
að auki talsvert af kolum til sömu
verzlunar.
Bókmentafélagið.
Síðari ársfundur haldinn í Reykja-
víkurdeildinni í gærkveldi. Fimtán fé-
lagsmenn á fundi.
Hafnardeildin hafði rætt á fundi sín-
um 30. apríl þ. á. tillöguna héðan um
verðlaunafyrirheit fyrir beztu ritgerð
um sögu íslands á 19. öld ; útlit fyrir
gott samkomulag milli deildanna um
það mál, þótt ekki sé fullgert enn.
Um afnám útlendra frétta í Skírni
komin fram 172 atkvæði, 88 nei og 84
já. því hætt við það að sinni.
Samþykt var með öllum atkvæðum
að veita stjórninni heimild til að semja
við Hafnardeildina um, að nokkuð af
þeim bókum félagsius, sem óútgengi-
• legastar eru, verði sett niður í verði
um tiltekinn tíma og selt fyrir svo
lágt verð, að það svari umbúðarverði.
— Bókaleifarnar svo fyrirferðarmiklar
orðnar, að til vandræða horfir með
húsnæði (söluverð þeirra nær 62 þús.
kr.). — Stjórnin heldur samt eftir fá-
einum eintökum af hverri bók.
Stjórn endurkosin (forseti dr. Björn
M. rektor Olsen, o. s. frv.).
Næstablað Laugardag
16. þ. mán.
msr Sunnanmenn (af
Vatnsleysuströnd og úrVog-
um) vitji ísaioldar í
Fischersbúð í Hafnaríirði,
(Knudtzonsbúð, eráður var).
Stórt uppboð.
á trjávið verður haldið á mið-
vikudaginxi 13- þ. m. kl. H ár-
degis.á stakkstæðinu framundan
»EdÍnborg«, Og þar seldir, plankar
battingar og tré; einnig »panell«-pappi
og skemtivagn. Alt eftirstöðvar af
fyrverandi trjáverzlun Tobiesens &
Thorsteinssons.
P o k i með ýmsu dóti í fundinn ná-
lægt Reykjavík. Geymdur á Lækjar-
bakka.
Ég undirskrifaður bið alla þá, sem
skulda mér, að vera búnir að borga
mér skuldir sínar fyrir 20. júlí-
Reykjavík 4 júlí 1898.
Magnús Hannesson.
gullsmiður.
Tapast hefir á veginum frá Arbæ
og upp að Lækjarbotnum poki með
púlti í og fatnaði og bið ég finnanda
halda því til skila mót fundarlaunum
að Kolviðarhól.
Staddur á Ivolviðarhóli 28. júní ’98
Brynjólfur Pálsson
frá Kaldaðarnesi
3—4 herbergi með eldhúsi óskast
til leigu frá 14. október þessa árs.
Semja má við Bjarna Jónsson snikk-
ara.
»SAMEiNINGIN<, mánaðarrit til stuðnings
kirkju og kristindómi Islendinga, gefið út
af liinu ev. lút. kirkjufjelagi í Vesturheimi
og prentað í Winnipeg. Ritstjóri JónBjarna-
son. Verð i Vesturheimi 1 doll. úrg., á, ís-
landi nærri þvi helmingi lægra: 2 kr. Mjög
vandað að prentun og allri útgerð. JÞrett-
ándi árg. byrjaði í marz 1898. Fæst í hóka-
verzl. Sigurðar Kristjánssonar í Reykjavík
°g hjá ýmsum hóksölum víðsvegar um land
allt.