Ísafold - 21.09.1898, Síða 2

Ísafold - 21.09.1898, Síða 2
226 því starfi — þó að hitt taki auðvitað út yfir, þegar reynt er móti betri vit- und að óvirða það í augum almenn- ings, eins og því miður er ekkí dæma- laust. I Dorðaustanverðu ríkinu Norður Dakota er stórt landflæmi, sem að miklu leyti er bygt af lslendingum. Syðri hlutanum af þeirri bygð veifir síra Friðrik J. Bergmann prestsþjón- ustu, hefir þar þrjá mannmarga söfn- uði. En nyrðri hlutanum komst hann ekki yfir að sinna nema mjög lítið. Söfnuðir höfðu myndast þar að nafn- inu, en enginn veigur í þeim orðið vegna prestsleysisins. Að örfáum mönnum undanteknum, var allur þorri manna þar annaðhvort með öllu frá- hverfur kirkju og kristindómi eða sinnulaus í þeim efnum. Tveir örlitlir söfnuðir þar höfðu samt áræði til að ráða síra Jónas, þegar hann hafði lokið námi sínu á presta- skólanum. I þeim báðum hafa frá- leitt venð meira en 300 manns, að öllum börnum meðtöldum. Síðan hafa bætst við prestakall hans 3 nýir söfnuðir, sem hann hefir sum- part stofnað, sumpart vakið úr algerðu dái. Nú eru að minnsta kosti 1300 manns í söfnuðum hans. jþegar hann varð prestur, var ein kirkja íslenzk á þessu svæði. Hún hefir síðan verið löguð og prýdd að stórum mun. Tvær kirkjur voru í smíðum, önnur mjög stutt komin. Við þær báðar hefir verið lokið. Og svo hafa 2 verið reistar algerlega frá grunni. Alt á einum fimm árum í einu prestakalli! Alt með frjálsum samskotum frá íslenzku bændafólki! Hvernig eru nú þessar kirkjur? Ekki alls fyrir löngu hefir kirkjum Vestur-íslendinga verið lýst fyrir Is- lendingum sem skemmuræflum, er kallaðir væru »kirkjur«, en væru vit- anlega með öllu óhæfileg guðsþjónustu- hús. Ætli sú lýsing sé sem allra sam- vizkusamlegust? Ég veit ekki nákvœmlega, hvað mik- ið þessar kirkjur hafa kostað með því, sem í þeim er. En aldrei munar það miklu, ef ég segi, að þær hafi kostað 7500 dollara samtals — tuttugu og sjö þúsund sjö hundruð og fimmtíu krÓDur. Að meðaltali hefir þá hver kirkja kostað 5,550 krónur. fægar menn nú hafa það hugfast, að ódýrara er að reisa timburhús vestra en hér á landi, þá vona ég að þeim skiljist það, að koma“megi upp full- myndarlegum sveitakirkjum fyrir þetta fé. Sumar af þessum kirkjum hefi ég séð. Myndir hefi ég sóð af þeim öllum. f>ær, sem lítilfjörlegastar eru af þeim, mundu hvervetna hér á landi þykja virðuleg guðshús. f>ær, sem fallegast- ar eru, taka að fegurðinni til, að minsta kosti í mínum augum, svo langt fram beztu kirkjum hér á landi, að þar kemst enginn samjöfnuður að. Vitanlega lýtur það, sem hér hefir verið á bent, að ytri hliðinni á kirkju- legu starfseminni. Um hina innri get ég auðvitað ekkert sagt. En sé því svo farið, sem margir trúmenn halda fram, að trúarlífið megi mikið markaaf altarisgöngunum, þá er það ekki ófróð- legt atriði, að í söfnu*i síra Jónasar gengu í vor hátt á fjórða hundrað manns til altaris, samkvæmt skýrsl- um í »Sameiningunni« um það efni. Auk starfseminnar heima í söfnuð- um sínum er síra Jónas A. Sigurðsson atkvæðamaður mikill í kirkjufélaginu. f>rjú síðustu árin hefir hann verið skrifari þess, og ekki þarf annað en Iesa tíðindi kirkjuþingsins til þess að sjáaðhann er einn af leiðtogunum þar. Hvað eftir annað hefir kirkjufélagið fengið hann til þess að fara trúboðs- ferðir út í prestlausa nýlendurnar. Að öllum öðrum ólöstuðum, er mér víst óbætt að fullyrða, að til þeirra hluta sé hann bezt kjörinn af vestur-íslenzku prestunum. En sitt mesta þrekvirki fyrir kirkju- félagið vann síra Jónas haustið 1896. Kunnugleika vegna þykist ég hafa nokkur skilyrði til að skilja, hvílíkt af- reksverk hann inti þá af hendi. Kyrkingur var kominn í skólamál kirkjufélagsins, ekki sízt fyrir þá sök að ágreiningur var kominn upp manna á milli um það, hvar skólinn fyrirhug- aði ætti að verða. Vitaskuld báru einstakir menn málið jafn-innilega fyr- ir brjósti eins og nokkuru sinni áður. En óhætt er að segja, að alment á- hugaleysi hafi átt sér stað og sárlítið hafði safnast um nokkurn tíma und- anfarinn. Mótstöðumenn málsins fögnuðu af því að nú væri málið að lognast út af. |>ví að þótt ótrúlegt megi virðast, þá eru til þeir Islend- ingar í Vesturheimi, sem með engu móti geta unt löndum sínum þess að koma upp mentastofnun, er verði styrk- ur fyrir lúterskan kristindóm og fs- lenzkt þjóðerni þar í landi. J>að leyndi sér ekki, að til einhverra úrræða varð að taka, annara en þeirra, er áður hafði verið beitt, ef málið átti ekki að verða í mikilli’ hættu statt. jpávarsíra Jónas fenginn til að taka sér ferð á hendur meðal íslendinga í Ganada og Bandaríkjunum ogtalafyr- ir skólamálinu. Hve vænlegt það ferða- lag þótti, má nokkuð marka af því, að safnaðarmenn hans báðu hann að fara hvergi, því að slík för mundi afla honum svo mikilla óvinsælda. En hann lét ekki letjast. Hann fór um flestar Islendingabygðirnar, þar sem söfnuðir hafa komist á fót og talaði yfir lýðnum. Hann kom aftur með rúm 2000 doll- ara í penÍDgum og trygðum loforðum! Hver vill nú verða til þess í haust að fara'út um sveitir þessa lands og og sækja til bændanna svo sem 8000 krónur til stuðnings einhverju andlegu málefni ? Ætli það vefðist ekki fyrir þeim einhverjum, sem nú leitasérvin- sælda hór á landi með því að telja mönnum trú um kotungs-og pokahátt Vestur-Í slendinga. Fáir íslenzkir menn hafa aðhafst meira síðustu árin heldur en síraJón- as A. ^Sigurðsson. I vor var hann mjög farinn að heilsu eftir alt stritið, og í sumar hefir hann verið að leita sér hvíldar og styrkingar hér á landi. Vonandi verður honum ferðin tilgóðs, eins og koma hans hingað hefir víst undantekningarlaust orðið til ánægju hverjum góðum manni, sem honum hefir kynst hér. E. H. Skoplegt er það í meira lagi, að sjá bráða- birgðaritstjóra »Nýju Aldarinnar* kveða upp fordæmingardóm yfir ræðum síra Jóns Helgasonar, manns, sem venju- lega troðfyllir kirkjuna, þegar hann prédikar — að sjá hann gera þetta í sama blaðinu sem hann sannar þjóð- inni ómótmælanlega, að hann hefir ekki neitt svipað því jafn-mikið vit á ræðum eins og skýr börn á 10 ára aldrinum. í þessu sama tölublaði »Nýju Aldarinnar« flaggar hann sem sé með ræðu, sem að vitleysunni til tekur langt fram öllu því, sem nokk- urn tíma hefir staðið í nokkuru blaði hér á landi. •Ómerk eru ómagaorðin*. Hafi sá málsháttur nokkurn tíma átt við, þá á hann við »N. 0.« undir þessarirítstjórn. Önnur eins andleg ómegð og þar hef- ir birst er meira en fágæt. Bullið í íslandi Síðasta blað »íslands« er að bulla út af greinum nokkurum, sem nýlega hafa staðið í Isafold. Út af því, sem Isafold hefir sagt um afstöðu vora við ríkismerki vort, lætur blaðið uppi þá spekingslegu sannfæringu, að jafn-mikil ástæðá só til að draga upp »fána Svía og Norð- manna, og svo allra annara þjóða, sem íslendingar eiga einhver raök við«, eins og dannebrogsfánann þegar vígt er hús, sem að allmiklu leyti er reist fyrir fé þjóðarinnar!! Ekki er að »tvíla« vitsmunina og skilninginn! Næst sýnir »ísland« vonandi fram á það, að ekki sé meiri ástæða til að láta^dannebrogsfánann blakta yfir al- þingi og íslenzkum skipum, heldur en »fána Svía og Norðmanna, og svo allra annara þjóða, sem Islendingar hafa einhver mök við«. En svo er eftir að vita, hvort því tekst nú vel að sannfæra alþingi og útgerðarmennina um þessa speki. — Svo hefir blaðið fundið sér skylt að halda uppi hlífiskildi fyrir hr. Jón Ólafsson gegn lsafold út af ummælum hennar um grein þá, er hann skrifaði í »Politiken« í sumar. J. Ó. hafði þar staðhæft, að Islendingar'vildu ekki við annari stjórnarbót líta en miðluninni frá '89. •Allir, sem kæra sig nokkuð um að vita, hvað rétt er eða rangt, vita að þetta^er satt og þýðir engum að neita«, segir blaðið. það má ekki minna kosta! Eng- inn þeirra kærir sig nokkuð um að vita, hvað rétt er eða rangt, sem ef- ast um að miðlunin frá '89 só eina stjórnarbótin, sem íslendingar vilja líta við! f>að ætti þá óneitanlega að vera auðgert fvrir »lsland« að sanna vilja íslendinga í þessu efni. Blaðið ætti fyrir hvern mun að taka sig til og gera það næst. Annars er undur hætt við, að menn líti svo á, sem það hafi ekki verið því vaxið að halda uppi vörn fyrir vin sinn, hr. Jón£Ólafsson — að því hefði verið uær að leggja ekkert til þessa máls, eða að minsta kosti fresta vörninni þangað til réttur aðili hefði verið heim kominn úr utanför sinni, og getað varað það við málæðisskerj- unum. — f>á er enn ógetið gremjuorða blaðsins út af því að ísafold sagði í sumar, að þeir sem nú fylgja fram miðluninni frá ’89 hafi gengið í banda- lag við BenediktssÍDna um að koma á fúngvallafundi í sumar. Sönnunin gegn þessari »makalausu vitleysu« Isa- foldar á að vera sú, að »Nýja Öldin« hafi ekki viljað hafa f>ingvallafund. 8é þessi sönnun að nokkuru nýt, þá leiðir af henni óhjákvæmilega, að í miðlunarflokknum frá ’89 er »Nýja Óldin« — og enginn annar. En hvað verður þá um »Austra« ræfilinn, sem veitti fúngvallafundi svo trútt og fjörugt fylgi ? Hvers vegna er »ísland« að sparka honum út úr miðlunardyrunum ? Og sé »Nýja Öldin« ein í miðlunar- flokknum, hvernig fer þá um þessa staðhæfingu Jóns Olafssonar, sem »ís- land« telur svo óyggjandi, að íslenzka þjóðin vilji ekkert annað en miðlun- ina — sé, með öðrum orðum, öll og óskift í sama flokknum eins og »Nýja Öldin« ? Oss liggur við að segja, að »allir, sem kæra sig nokkuð um að vita, hvað rótt er eða rangt«, hljóti að sjá, að það sé eitthvað veilt í þessu hjá »íslandi«. Fyrirkomnlagf bindindisfélaga. Bindindisandi er, sem betur fer, orðinn býsna-ríkur og almennur hér á landi. f>að eru mikil kynstur af heimsku, fákænsku og hleypidómum um það mál, bindindismálið, sem tek- ist hefir annaðhvort að útrýma al- gjörlega eða þá að draga svo úr mætti þeirra, að þeirra gætir mjög lítið nú- orðið í samanburði við það, sem áður var. Fáar sem engar raddir heyrast lengur bindindi andvígar. Fjandmenn þess hafa, yfirleitt, mjög hljótt um sig í orði; mótspyrnan er mest í laumi og með illri samvizku. Jafnvel sjálfir bindindisóvinirnir hafa þreifað á því eða þá að minsta kosti vinir þeirra og vandamenn, að þeir eiga margir hverjir hinni öflugu bindindishreyfingu 1 landinu óbeinlínis að þakka, að þeir eru ekki orðnir yfirkomnir óreglumenn. Hún hefir svift þá að mjög miklum mun tækifærinu til að hafa áfengið um hönd, og lagt auk þess ósýnilegt haft á viljann til þess, það haft, sem fólgið er í fyrirlitningu flestra mætra manna á áfengisnautninni, eins og hún tíðkaðist hér áður. En vitaskuld er enn ákaflega mikið til af áfengisböli í landinu, sjálfsagt nóg viófangsefni fyrir heila kynslóð. f>að eru til enn heil héruð á landinu, þar sem ríki Bakkusar er mjögmagn- að, t. d. þar, sem yfirvaldið og alt hans hús hefir um langan aldur þjónað þeim drotni margfalt dyggilegar en skapara sínum, og minniháttar héraðs- höfðingjar þótst því meiri menn, sem þeirfetuðu betur í fótspor þess, en alþýða svo þurft að tolla með í tízkunni líka. Eða söfnuðir verið svo ógæfusamir, að eiga drykkjupresta fyrir sálnahirða, jafnvel mann fram af manni. Eða þá enn aðrar orsakir gert eitt hérað eða eina sveit öðrum fremur áfengis- valdinu ofurseldar. Á öllum slíkum stöðum þarf að hefj- ast handa gegn Bakkusi með sérstak- legum samtökum, svo traustum og hyggilega stofnuðum, sem kostur er á. f>að munu allir kannast við, sem kunnugir eru starfi Good-Templarregl- unnar hér á landi, að hún beri langt af öðrum bindindissamtökum að afli og dug. Eldri tilraunir í bindindisátt voru magnlaust kák í samanburði við hana. En margir telja enn töluverða agn- úa á því að hafa G. T.-stúkur ann- arsstaðar en í kauptúnum eða þétt- býlis-þorpum. f>að eru hinn tíðu fund- arhöld og aðrar kvaðir, húsnæðisskort- ur og fleira, sem menn setja fyrir sig, og hallast því heldur að öðruvísi lög- uðum bindindisfélagsskap, almennum bindindisfélögum, sem svo eru kölluð. En reynslan hefir leitt það í ljós, að það er yfirleitt lítill máttur í þeim. |>au þjóta upp í svip og hjaðna jafn- óðum aftur eða liðast í sundur fyrir ótrúmensku við bindindisheitið og að- haldsleysi. f>að er nú ánægjulegt tímanna tákn og góðs viti, að almenn bindindisfélög í sveitum hingað og þangað eru farin að breytast í G. T.-stúkur. f>ær hafa verið stofnaðar býsna-margar til sveita síðustu missirin, ýmist upp úr eldri bindindisfólögum eða hins vegar, og er ekki annað að heyra en þeim farnist vel. f>etta er vafalaust rétt stefna, sem allir bindindisvinir ættu að styðja f orði og verki. f>að er hið trausta og haglega fyr- irkomulag á stjórn og framkvæmdum G. T.-stúkna, sem veitir þeim svo mikla yfirburði. Annað það, að þær eru greinar á gildum og öflugum stofni, með svo víðtækum rótum, að þær L

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.