Ísafold - 19.11.1898, Síða 3
283
oversatte af <lr. theol Krogh Tonning.
Christj. 1883 hls. 141—42)
Skoðun Jústinusar á sahhati Clyðing-
anna er auðsæ af þessum orðum hans úr
ritinu »samtal við Trýfon (Gyðing^« Dia-
logus cum Tryphonev): »Vér hyggjum
traust vort á sama guði sem þér [Gyðingar],
en vér hyggjum ekki þetta traust vort á
Mosesi og lögmálinu, annars mundum vér
gera hið sama sem þér gerið. Kg hefi
þar á móti lesið um fullkomið lögmál
[°: kærleikshoðorðið] og sáttmála, sem hef-
ir æðra gildi en allir aðrir sáttmálar. T>ví
þennan sáttmála [a: hinn nýja sáttmála]
eiga allir menn að halda, sem öðlast vilja
arfleifð gnðs. Hið nýja lögmál heimtar,
að vér sífeldlega höldum drotni kvíldar-
dag, en þér álitið, að þér séuð guðhrædd-
lr> ef þér haldið yður frá vinnu einn
og skiljið ekki hvers vegna þetta hoð-
orð var gefið yður. (Hialogus c. Tr. eap
II. Tilvitnunin tekin úr Fr. Nielsen Haand-
bog i Kirkens Historie I).
4- í riti einu »um páskakátíðina« (De
I’ascha) kemst írenœus hiskup í Lyon
(f 202 e. Kr.), lærisveinn Polykarps hisk-
ups í Smyrna, er aftur var lærisveinn Jó-
hannesar postula, svo að orði : »eigi skal
beygja kné á drottins degi, sem er tákn
upprisunnar, því að með henni erum vér
fyrir nað Krists frelsaðir bæði frá syndinni
og dauðanum, sem deyddur var með honum«.
Og ennfremur segir hann: »Kn þetta er
venja siðan á dögum postulanna« Dessi
orð varpa óneitanlega ljósi yfir orðin i
Jóh. opinb. 1,10: »Eg var i anda kdrott-
ins degii — seni |ir, ()_ útskýrir á þá leið
að þar sé átt við hvildardaginn af því að
2 Mós. 20. 10 standi: »sjöundi dagurinn er
hvíldardagur drottins«{\\\) (gott dæmi upp
a bifliuskýringaraðferð hr. Ö.). — Þegar
þess er gætt, að Irenæus var lærisveinn
oiykarps, og Polykarpus aftur lærisveinn
Jóhannesar postula, virðist ekki ólíklegt,
þessi postullega venja, sem Irenæus tal-
ar um, sé einmitt til hans komin gegnum
Polykarp frá Jóhannesi postula (sbr. »Erag-
menta deperditorum opernm S. Irenæi« i
»Patrologiæ eursus completus, series græcæ.
Tom. YII, Paris 1858, bls 1234.
5. I hinu fræga trúvarnarriti sínu gegn
beiðingjunum (*Apologeticus adversus
gentes«) segir Týrtúllían frá Kartago
(f 220);
‘eíjar vér höldum s ú l a r
heilagan til gleði, gjörum vér þí
' 6^mn af þvi að vér temjum oss s<
Un ^sbr' Tatrologiæ cursus complet
PUma, lom. X (Tertullian bls.
• rn 1'*t' (Liber de corona, cap.
f ier_tullian: »yér álítum það Ó1
as a a Drottins degi, eða biðji
allandi á kné. Þessa hins sami
njótum vér með gleði frá pásknm
sunnu«. (Patrol. curs. compl. Toir
79—80). í þriðja ritinu (»Z>e
persecntione« cap. XIV) segir T
hvern hatt getum vér komið
segir þú, á livern hátt haldið
drottinsdegi? Að minsta kosti
það á sama hátt og postula,
gjörðu það öruggir fyrir trú sína,
auðæfi; mundi ekki sú trú, er fly
Seta nægt einum hermanni?« (Pat
Tom II- bls. 119).
]dva® v'Övíkur skoðun Terti
»a ^yÖinganna, þá er hún g
framsett i ritinu; J móti
Adversus Judœos*), 4. kap. I
iiot* frSiTYi q -V.
r a að eins og umskurnar
, a eins haft gildi um stunda:
ri fyrirmynd hinnar andlegu ur
Pan“g bafi sabbatsboðorðið að.
um stundarsakir og fyrirmyndi h
ilVlld 1 Gnðl> hiö himneska sa
þessu til stuðnings bendir han
lnernig enginn feðranna á unda
'afi haldið sabbatið og þó no'
'elþóknunar, og 2) jafnvei eptir i
aesar hafi fastheldnin við boðor'
verið meiri en svo, að sjálfur Jó
er hann sat um Jerikó, ekkert s
sabhatið, er hann á hinum sjöui
' ff-)> lét prestana h
a söikina, sjö sinnum kringum bor
vrft MattatiaB hafi ekki kyn<
2, 41) (Pat^ á.Sahbatsdegi(8br-1
bls. 605—606ý^læ °Ursus comPietns
l.rótt'fv ntiUm Órigenesar hefir
yrn unar »óondanlegu mör
legu villur« árætt að tilfæra no!
um það, »hvernig kristnum manni beri að
halda sahhatsdaginn« og vill hann auðsjá-
anlega gefa mönnum i skyn með þvi, að
Origenes hafi ekki viðurkent sunnudaginn
oghelgihans. En því miðurliefir hr. Ö ekki
lesið rit Origenesar ofan i kjölinn, þvi ég
skil ekki íöðru en að liasn þá hefði komist
að annari niðurstöðu. Eg vil benda hon-
um á »7w Exodum, homilia VII« í ritum
Origenesar. Þar segir svo meðal annars:
»Ég ætla þá að rannsaka, á hvaða degi
»manna« hafi fyrst verið gefið frá himnum
og um leið vil ég bera saman drottins dag
vorn og sabbat Gyöinganna, — þar sem
nú þetta er samkvæmt ritningunni óhrekj-
anlegt, að guð lét »manna« rigna frá himni
á drottinsdegi, en þar á móti alls ekki á
sabbatsdeginum, munu einnig Gyðingar
geta skilið, að vor drottins dagur er
tekinn fram yfir Gyðingasabbatið. — A
drottins degi vorum lætur guð ávalt rigna
»manna« [guös orði] frá himnum«. (Patrol.
græcæ cursus completus Tom. XII. bls
345—47).
7. I fornritinu >Didaclie tou apostolou«
(kenning liinna tólf postula), sem fanst fyr-
ir rúmum 20 árum og öllum helztn forn-
ritafræðingum nútimans (t. a. m. Próf. Ad.
Harnach í Berlin) kemur saman um að sé
skrifað um miðja aðra öld, er svo að orði
komist: »A hverjum drottins degi ber
yður að koma saman og brjóta brauðið og
gjöra þakkir eptir að hafa játað syndir
yðar« (sbr. »De tolv Apostles Lærdom«
oversat af C. Varming, Khavn. 1884, bls.
30).
8. Úr bréfi Díónýsíusar biskups i Kor-
intuborg (f á seinni hluta 2. aldar)
til Sóters biskups í Bómaborg, tilfærir
Evsebius kirkjusöguhöfundur (f 338) þessi
orð: I dag höfum vér þá haldið heiiag-
an drottins dag og á honum lesið bréfið
frá yður, sem vér ávalt munum nota til
upplestrar [nfl. við guðsþjónnstusamkom-
urnar], eins og líka fyrra bréfið, sem Klem-
ens hefir ritað« (sbr. Euseh. Hist. Eccles.
liher IV. 23.) — Og i sama riti getur
Eusebius þess, að Melitó frá Sardes (f 170),
einn af helztu mönnum kirkjunnar á 2.
öld, liafi jafnvel samið sérstakt rit um
sunnudaginn, svo að ætla má, að ekki hafi
Melitó verið ókunnugt um helgihald hans
á 2. öld.
En þessar tilraunir vona ég að nægi
til þess að sýna mönnum, hvað stendur á
bak við hinn »lofsverða« áhuga hr. Ö. á
því að telja oss Islendingum trú um, að
rit kirkjufeðranna séu svo full af »óendan-
lega mörgum háskalegum villum« að »sann-
arlega sé hœttulegt að byggja of mikið á
þeim«. En á hinn bóginn ættu þær einn-
ig að geta sannfært sérhvern nokkurn-
veginn skynsaman mann um, að það er
ekkert annað en einber söguleg vitleysa,
sem hr. Ö. er að berja fram, að sunnudag-
urinn sé innkominn i kirkjuna með pápisk-
unni, — álíka mögnuð vitleysa eins og
þegar hr. Ö. á öðrum stað í fyrirlestri
sínum kemur með þá kenningu, að kirkjan
hafi verið stofnuð á skírdag eða fyrir
þann tíma. Hr Ö. virðist ómögulega
geta skilið, að kristnir menn hafi getað
haldið snnnudag heilagan til minningar um
upprisu Krists, nema eitthvert »boðorð«
heimilaði slikt, og nú finnur hann ekkert
slikt boðorð fyr en Konstantinus keisari
gefur út sunnudags-tilskipun sina, og af þvi
ályktar hann svo, að þá fyrst hafi menn
byrjað að halda sunnndaginn heilagan.
En slíkt er ekkert annað en einfaldur mis-
skilningur hr. Ö.
Jón Helgason.
Aftakaveður
mikið, eitthvert hið mesta, er hér
kemur, var hér aðfaranótt mánudags
14. þ. mán. Skemdir urðu á nokkr-
um hósum, hálffauk af þak eðaskekt-
ust; eitt fór alveg, hús Oddfellowa við
Tjörnina austanverða, fauk af þakið
og annar veggurinn; var og veiga-
minna en alment gerist, nokkurs kon-
ar tjaldbóð með sömu gerð og efni
eins og algengt er orðið á hermanna-
skálum á víðavangi, bráðabirgða,-
sjókrahósum og sumarhíbýlum, þann-
ig, að taka má allt í sundur í fleka
og flytja hvert sem vill; eru þó þétt,
og hlý á vetrum að sögn. Hirzlur í
hósinu allar óbrotnar og skemdir litlar
sem engar að öðru leyti; enda mun
vel mega setja hósið satnan aftur.
Good-Templar-reglan
er í mesta uppgangi þetta ár, bæði
ót um land og hér í höfuðstaðnum.
Hefir fjölgað hér í stókunum (4)í hau3t
um framundir 300 fullorðinna manna.
Af þeim gengu inn fyrstu 2 vikurnar
af þessum mánuði 130 nýir félagsmenn,
en 95 þessa viku, þar af 53 í »Eining-
nna« á einu kveldi, 17. þ. mán. Er
nó tala félagsmanna í henni 334, og
er það miklu meira en dæmi eru til um
nokkura stóku hér á landi áður. »Verð-
andi« hefir um 200, »Hlín« um 280 og
»Bifröst« (hin yngsta) um 110. Alls eru
nó fullorðnir félagsmenn í G.-T.-reglunni
hér í bæ töluvert|á 10. hundrað. þar við
bætast um 120 í unglingastóku. Er því
meira en 5. hver maður í höfuðstaðn-
um í G.-T.-reglunni. Auk þess þó
nokkrir bindindismenn hér í bænum
utan reglunnar.
Yfirmaður reglunnar hér á landi (stór-
templar), Indriði Einarsson revisor,
leggur á stað á morgun austur í Fljóts-
hlíð í því skyni að stofna þar nýja
stóku, og ætlar um leið að líta eftir
hinum stókunum þar austur um sveit-
irnar, í Hvolhreppi, á Eyrarbakka, í
Olfusi o. s. frv.
Fiskisainþyktirnar
báðar fyrir sunnanverðan Eaxaflóa,
um takmörkun netalagna og tíma-
bundna notkun ýsulóðar, voru ór gildi
numdar af sýslunefnd Kjósar- og Gull-
bringus. ásamt fulltróum ór bæjarstjórn
Reykjavíkur á sýslufundi í Hafnarfirði
14. þ. mán. En ekki er só ályktun
gild fyr en héraðsfundur samþykkir
hana, þ. e. almennur fundur kosninga-
bærra manna í því héraði, er samþykt-
irnar ná yfir, og mun hann eiga að
halda einhverntíma um miðjan vetur.
Alyktun sýslufundarins varð gerð með
6:5 atkv.
Botnvörpuáþjánin.
jpessi sami sýslufundur í Hafnarfirði
samþykti að reyna að fara þess á leit
við stjórnina, að hón sendi hingað eftir
leiðis lítinn fallbyssubát, svo sem hr.
kaupm. |>. Egilsson lagði til síðasta
blaði.
Bardagann við aðventistann
var og er Isafold fjarri skapi að láta
nema hlutlausan; fær ekki skilið, að
á miklu geti staðið, hver vikudagur í
röðinni sé hafður fyrir hvíldardag og
heilagur haldinn, hvort heldur hinn
fyrsti eða síðasti, eða þá hvern daginn
af 7 vikan er látin byrja eða enda;
ætlar slíkt og þvílikt með engu móti
geta talist með sáluhjálparatriðum, og
kátleg firra, að gera afbrigði frá fornri
og fastri venju í því efni að mikils
háttar tróaratriði.---— |>að er fyrir
sérstaklegt atvik og ástæður, að í þetta
sinn (að eins) birtist hér í blaðinu grein
um það mál, frá prestaskólakennara
síra Jóni Helgasyni.
V e ð u r atli n g a n ir
í Keykjavik eftir landlækni Dr. J. Jónas-
sen.
> *o Hiti (á Celsius) Loftvog (millimet.) Y eðurátt.
á nóttjum hd. árd. síód. árd. siðd.
12. 0 0 739.1 739.1 Sv h d Sv h d
13. — 4 +1 736.6 711.2 a hv d Sa hv d
14. — 3 + 2 726.4 741.7 Sv hv d Svhvd
15. + 1 + 2 741.7 734.1 S hv d S hv d
16. + 3 + 1 726 4 736.6 Svhv d Svhvd
17. • 2 + 1 754.4 762.0 Yhd o d
18. 0 + 4 736.6 Nahvd Svhvd
Hinn 12. var hér hægnr útsynningnr
með éljum; 13. austan-landnorðan að morgni,
hvass með blindbyl, fór að rigna síðari
part dags og kominn í útsuðrið og orðin
nokknð hvass og aftakarok aðfaranótt h.
14. Hvass á útsunnan 15. og 16., lygnari
h. 17. og komið logn siðari part dags; 18.
landnorðan, hvass að morgni og með regni
og loftvog óðnm að falla; eftir miðjan dag
orðinn hvass á iits. með rigningu.
Það kemur varla nokknrt ár, að hér
komi ekki einhverntima ársins ofsarok likt
og nú átti sér stað aðfaranótt h. 14.
Að morgni h. 13. var hér austanbylur, og
eftir vanda mátti búast við því, að hann
gengi til landsuðurs (Sa) og svo til útsuð-
nrs (Sv), og svo varð og nú. Eftir því er
á leið daginn, lækkaði meira og meira í
loftvoginni og kl. 11 um kveldið var hún
komin óvenjulangt ofau á við (711.2 millim.),
en veður þó hægt, og um miðnætti var
hér rétt logn, en er leið á nóttina tók fljótt
til að hvessa af útsuðri og varð úr ofsa-
veður, svo hús skulfu og skemdust, og var
veðrið ákafast kl. 4—5 um morguninn;
gekk sjór þá hátt með miklu hafróti.
Þessi voðaveður eru hér lang-oftast af
útsuðri. Eyrir nokkrum árum kom hér likt
veður og nú, og var það 26. des. 1888 (út-
synningur) og komst þá loftvogin talsvert
lægra en nú nefnil. 693.4 millim. Þá kom
einnig þetta voðaveður upp úr austanátt,
og það alt í einu. Sama átti sér stað 1892,
20. jan. (loftv. 711.3); 1894, 13. nóv. (lv.
711.2) og 1896, 19. febr. (lv. 711.2).
Biðjið œtið um
Fineste Skandinavisk Export-Kaffe Surrogat,
billegasta og bezta kaffibæti.
F. HJORTH & Co. Kjöbenhavn K.
Jörðin Oseyri við Hafnarfjörð fæst
til kaups og ábóðar um næstu fardaga
1899. íbóðarhós ór timbri, vel vandað,
fylgir jörðinni og óthýsi góð og mikil.
•Törðin fóðrar tvær kýr hverju með-
alári. Gott verð og góðir borgunar-
skilmálar.
Semja má við eigandann.
H- Möller, á Óseyri.
BRUNABÓTAFÉLAG fyrir hús, varning og
aðra lausafjármuni, búpening og hey o.s.frv.
stofnað 1798 i Kaupmannahöfn, — fyrir
það tekur undirskrifaður við brunaábyrgð-
arbeiðnum úr Isafjarðarsýslu, Barðastrand-
arsýslu, Dalasýslu, Snæfellsness-og Hnappa-
dalssýslu og veitir vitneskju um iðgjöld o
s. frv. Bæir eru einnig teknir í ábyrgð.
N. Chr. Gram.
Fineste Skandinavisk Export-Kaffe Surrogat
óefað hið bezta og ódýrasta Export-Kaffi,
sem er til. F. HJORTH & Co.
Kjöbenhavn K.
Fineste Skandinavisk Export-Kaffe Surrogat.
F. HJORTH & Co.Kjöbenliavn K.
Crawfords
Ijúffenga BISCUITS (smákökur) tilbúið af
Crawford & Son,
Edinburg og London
Stofnað 1813.
Einkasali fyrir Island og Fœreyjar :
F. HJORTH & Co. Kjöbenhavn. K.
Prédikun í Breiðfjörðshúsi ó
sunnudögum kl. 6J síðdðgis og á mið-
vikudögum kl. 8 síðdegis.
Undirrituð tekur að sér að prjóna
alls konar fatnað fyrir minna verð en
aðrar.
Laugaveg 11, Vilborg Jónsdóttir.
W. Ohristensens verzlnn
selur margar vörutegundir með niður-
settu verði.
Útsalan í norður-pakkhúsinu frá 4—
6 e. m. á hverjum degi.
Girðing.
þeir, sem vílja taka að sér að girða
leikvöll á Melunutn, fyrir sunnan
GlímuvöllÍDn, 50x70 faðma, með se-
menteruðum steinstöplum og gaddavír,
semji við undirritaðan, sem er að hitta
á hverjum virkum degi kl. 8—12 árd.
á skrifst. Isafoldar.
Ó. Rósenkranz.
»Úr helju heimtur«. Enn hefir
hæzt við samskotin handa Kristni Eyfirðing:
Frú Anna St. 2 kr.; Helgi kaupm. Helga-
son: árangur af kveldskemtnn 6. þ. mán.
306 kr. 56 a.; Ditl. Thomsen konsúll 10
kr. (áður5); L’homherparti 2 kr.; Jóhannes
Olsen 2 kr.; Guðjón Sigurðsson 3 kr.; S.
Þ. (Ah.) 5 kr.; Bjarni J. skósm. 1 kr.;
Þ. Bj. 1 kr.; N. N. (2) 2 kr.
Samtals . . . 334,56
Áður meðtekið og auglýst . . . 277,10
Alls kr. 611,66
Rvík 19/n '98. Björn Jónsson.