Ísafold


Ísafold - 08.04.1899, Qupperneq 3

Ísafold - 08.04.1899, Qupperneq 3
87 hans verkaliði kunni að fara með það. Enn fremur gjöri eg ráð fyrir, að þeir verkstjórarnir Skvili Guðmunds- son frá Elliðakoti og Páll Jónsson séu vanir því«. Lausleg kostnaðaráætlun fyrir hal'n- arviðgerðina: 15,000 kr. »Eg skal að endingu taka það fram, að aliir sem hlut áttu að máli, veittu mjer alla þá aðstoð við þessar rann- sóknir ókeypis, og með ljúfu geði. I þessa ferð fór eg með sýnishorn af vindu, til að draga upp skip með: hún er einkar-hentug til þess, sér- staklega þar sem brim er og margir þurfa að lenda í einu. Bezt leizt mér á að hafa hana í þorlákshöfn; það er auðvelt að koma henni þar við. |>ar er nóg til af rekatimbri, svo efnið í hana ætti ekki að kosta mikið. Svona lagaðar vindur eru notaðar í Bolungarvík, og þykja þar ómissandi. jpær kosta 30—40 krónur«. E. Z. ----iM t ■■----- Af endurskoðun biflíunnar flytur »Þjóðólfur« fréttir í gær — norðan úr Þingeyjarsvslu! Og eins og við mátti búast, eftir annað eins hring- sól, er aðalatriði fregnarinnar ramvit- laust. Hvort það er íslenzkur blaðamensku- naglaskapur, þetta! Að vilja láta blað sitt flytja frótt af verki, sem verið er að vinna hér í bænum, hafa ekki rænu á að spyrjast fyrir hjá mönnum, sem ritstjórinn sór dags-daglega, en lepja í þess stað fréttina, hringlandi vitlausa, upp úr miða norðan úr Þingeyjarsýslu. Því að hins mun síður vera tilget- andi, að »Þjóðólfur« hafi ekki kært sig sérlega mikið um að koma með fregn- ina rétta, hafi gengið fram hjá réttum lilutaðeigcndum af þvi, að þeir hefðu að sjálfsögðu sagt rótt frá, en sótt vitn- eskjuna í Þingeyinginn af því, að hann var að fara með ósannindi. Það væri vitanlega ódrengskapar-bragð við saklausa menn og nytsemdar- fyrir- tæki. Þess vegna er naglaskaparins fremur til getandi. Gufuskipið (163 smál., lcapt. B. Ericksen) kom hingað á skírdag til tírydes verzlunar með ýmsar vörur frá Englandi, fór með nokknð aí' þeim upp í Borgarnes og liélt á stað aftur í dag héðan til tíeith. Síödegisguðsþjónusta engin á morgun í dómkirkjunni. Piskigufuskipaútgerðin í Hafnarfirði, Mr. Wards, kvaö eiga að byrja um miðjan þennan mánuð. Von á gufuskipinu, sern veiðina á að stunda, um það leyti. Það er á stærð við meðalbotnverping. Fyrir því verð- ur íslenzkur skipstjóri, Guðm. Kristjáns- son hér úr Reykjavík, en Englending- irr hefir verkstjórn yfir þeim er að veiðinni vinna. Mr. Ward hefir leigt nær alla strandlengjuna í Hafnarfirði til að verka á væntanlegan afla. Kostn- aðurinn er afarmikill við svona útgerð og þarf að vera uppgripa-afli, ef vel á að fara. Út af klausunni í síðasta bl. um und- irtektir bæjarstjórnarinnar að því er snertir útveginn fyrirhugaða á Kleppi lætur formaður bæjarstjórnarinnar þess getið, að bæjarstjórnin hafi »samþykt í einu hljóði að veita svo mikið land sem þyrfti undir áminstan útveg, en um hitt hafi verið skiftar skoðanir, hvort rétt væri og nauðsynlegt að láta svo mikið land af hendi, sem farið var fram á«. Heimdalur veiðix* enn. Hann kom með 2 ensk fiskigufu- skip enu í fyrra dag snemrna, er hann hafði staðið að veiði í landhelgi, ekki þó með botnvörpum, heldur lóðum. þeir skipstjórar voru sektaðir um 18 pd. hver eða 324 kr., fyrir landhelgis- brotið. það eru önnur lög, sem þar eiga við, heldur en við botnverpingana, — miklu vægari. Meðal annars veita þau ekki heimild til að gcra veiðar- færin upptæk né veiðina. þessi skip fengu því að halda hvorutveggja. Herskipið tók þessa sökudólga skamt undan Reykjanesi á miðvikudagskveld- ið, kl. 5—6, annan 1 mílufjórðung frá landi, en hínn 1$. Skipin voru bæði frá Grimsby, og heitir annað »India« (nr. 570), en hitt »Suder0« (nr. 219). Strandasýslu sunnanv. 26. marz: Siðan góa kom hefir verið snjóatið mik- il, en oftast fremur frostasamt og stórhríða- laust. Haglaust er yfir alt og snjóþungi nokkur og illa lagður. Yeturinn hefirver- ið mjög misþungur, hér í sveitinni, og það þó ekki sé langt á milli. Sumstaðar kom- ið fram yfir meðalgjafatíma á útigangs- fénaði, en sumstaðar vart það eun. Eru sumir bændur farnir að kvarta nm lieyskort og einstaka farinn að gefast upp; stafai' það víðast af ódrjúgum keyjum sökum þerra- leysisins í sumar, er leið. Aftur eru marg- ir vel birgir, svo að ekki væri hætta á ferðutn, ef ófærðin bannaði ekki milliferðir með flutninga. Kalt er ekki í sjónum, þó veðráttan bendi á að einhver ishroði knnni að vera i nánd. Heilsufar manna er nú betra en fyrri hluta vetrar ; lungnabólgunni linti- Talsverðan landsskjálfta varð vart við siðast í f. m. 26.—28. fehr. mest 26. og var stundum timum saman, er aldrei fannst al- veg kyrt.. Yeðui*athusanir í Reykjavik eftir landlækni Dr. J. Jónas- sen. N f- OÍ Hiti fá Celsius) Loftvog (millimot.) V eðurátt. á nóttjumhd árd. siðd. árd. síðd. i. — i 0 751.8 754 4 Nahv b a hv d 2. 0 + 3 754.4 744.2 a h d a liv d 3. + 1 + ö 741.7 736 6 a h b a h b 4. -í- 1 + ö 731 ö 736.6 N h h v h b «5. 0 + 6 736 6 741.7 a h b o b 6. — 1 + S! 744.2 749.3 V h h o b 7. -Ý- ^ + 3 <49.3 754.4 h N h b Veðurhægð þessa vikuna; við og við og snjór úr lofti, en bráðnar fljótt; hér er nú alauð jörð. Lögfræðilegur leiðarvísir. 1579. Er lagaheimúd til að greiða kostn- að við fjárkláða-rannsóknir úr sveitarsjóðum? Sv.: Nei. Sýslumaður á að jafna slíkum kostnaði niður á alla fjáreigendur í hverjum hreppi og heimta hann saman á manntals- þingum, ásarnt manntalsþinggjöldum, sjá til- skipun 5 jan. 1866, 5. gr., sbr. tvo lands- höfðingjaúrskurði, 26. febr. 1886 og 23. febr. 1897. Að láta þann kostnað lenda á sveitarsjóði væri mesta ranglæti og ójöfn- uður t d. þar sem svo stendur ú, að ef til vill hæstu gjaldendur til sveitar eru sauðlausir, sem vel getur átt sér stað þar, sem kauptún er i hreppnum. 1580. Er hreppstjóri skyldur að taka til greina, þótt einhver búandi i hanshreppi lýsi þvi yfir á hreppskilaþingi, að hann geti vel bætt við tíund sína þeirri upphæð, sem hann til tekur, en að hann geri það ekki vegna þess, að hreppstjóri og fleiri í hreppn- um telji ekki sem réttast fram fénað sinn? Sv.: Já, sjálfsagt; spyrjandi hefir ekki leyfi til að svikja tíund, þó aðrir geri það. 1581. Hvað segist á þvi, að rífa upp annars manns bréf og lesa það? Sv.: Sektir, alt að 200 kr. eða einfalt fangelsi alt að 3 mánuðum. Aths. Svarið við 1576. fyrirspurn (sjá Isaf. l.rnarz), umþað, hvað verði um úrskurð- að meðlag frá harnsföður 15. og 16. ár barnsins, ef það er af allri meðgjöf, þegar það er 14 ára, hefir einhver misskilið svo, sem barnsfaðirinn ætti sjálfur um það að dærna, hvert barnið þarfnaðist meðlagsins fram yfir 14. árið eða ekki. Auðvitað er þetta óþarfur misskilningur og tilefnislaus, með því að orðin í fyrir- spurninni: »eraf allri meðgjöf« berameð sér glögt og greinilega, að spyrjandi gerir ráð fyrir fullkomnu vafaleysi um það at- riði, hvort barnið að nokkurs manns dómi, er þar á hlut að máli, þarfnist meðlags framar eða eigi. Hann gerir auðsjáanlega ráð fyrir með þeim orðum, að enginn, er að barninu stendur, hvorki móðir þess, sveit- arst.jórn eða aðrir, geri framar tilkall til nokkurs meðlags, og losnar barnsfaðirinn anðvitað því að eins við að halda áfram að greiða það til 16 ára aldnrs barnsins. Hitt segir sig sjálft, að hann á ekki sjálf- ur um það að dæma; það næði engri átt, enda er sýnilega fjarri hugsun bæði spyrj- anda og svaranda. Vendetta. Eftir ArchibaUl Clavei'ing Guuter. IX. »Ekki skal eg fortaka, að það sé siður Frakka að láta berja sig eins og hunda, en við höfum ekki vanist því, Englendingar«. Svo snýr hann sér að Korsíkumanninum. »Yður langar til að vinna á mér — og nú gefst yður líka færi á því — en nú skýt eg líka í því skyni að drepa yðurU. Paoli svarar þessu ekki beint, en segir við Belloc í harðlegum róm : »Fáið mér skammbyssuna«. Og auð- séð er, hvað honum býr í skapi, á augunum, sem hann skotrar til Eng- lendingsins. Hefði Barnes ekki fengið Englend- inginn til að lofa því að biðja afsök- unar, þá hefði ekki heldur Belloc kom- ið með þessi móðgunaryrði, sem breyttu 8Vo gagngert skapí Englendingsins, að hann langaði nú til að drepa mótstöðu- mann sinn, í stað þess sem hann hafði áður ekki ætlað sér annað að gera en verja hendur sínar. En við- leitni Barnes hefir líka á annan hátt aukið hættuna fyrir bróður Marínu; því að nú kemur Englendingurinn og segir í hálfum hljóðum : »Eg hefi efnt loforð mitt. f>ér sjáið nú sjálfur, hvern árangur það hefir borið. f>ér þurfið ekki nema heiibrigða skynserni til þess að sjá, að hitt lof- orðið get eg ekki efnt. — Mótstöðu- maður minn vill fyrir hvern mun, að hér sé um lífið teflt. Eg ætla að gera það, sem í mínu valdi stendur, til þess að hann fái vilja sínum fram- gengt. Um leið og þér kenduð mér, hvernig eg ætti að komast hjá þvi að hitta hann, kenduð þér mér jafnframt, hvernig eg gœti hitt hann. |>ér sögð- uð, að ef eg miðaði 60 sentímetrum hægra megin við hann, mundi eg hitta hann beint í hjartað — i tólf feta fjarlægð. jþakka yður kærlega fyrir, hr. Barnes«. Svo fer hann aftur þangað, sem honum hafði verið sagt að standa. Hefði Barnes ekki farið að eiga við skammbyssurnar, hefði bróður Marínu verið nokkurn veginn óhætt. Rétt á eftir segir Englendingurinn með hárri raust við de Belloc: »Eg vil ekki standa betur að vígi á neinn ósæmilegan hátt. Segið mót- stöðumanni mínum, að hr. Barnes hafi fyrir stundarkorni reynt báðar skammbyssurnar, og að á þessari fjar- lægð hafi hann hitt með þeim báðum hér um bil tveim fetum vinstra megin við depilinn, sem hann miðaði á«. Og svo tautar hann fyrir munnisér: »Móðir mín!« því að hann veit, að orð hans hafa aukið hættuna að mikl- um mun, og heima á Englandi á hann móður, sem honum dettur í hug að fái ef til vill aldrei oftar að sjá hann. Og þó er hann þess albúinn að fremja manndráp með þetta orð á vörum sér! Hér með er öllum stranglega bannað, að hafa nokkra umferð um tún undirskrifaðs við Vesturgötu hér í bænum, Reykjavík f—'99. TIi. Tliorsteinsson. 16—20 röskir drengir, bér um bil 14—18 ára gamlir, sem hafa löngun til að temja sér líkams- æfingar, letkfimi og leika, geta fengið ókeypis tilsögn ef þeir gefa sig fram í afgreiðslu Isafoldar fyrir 23. þ. mán. — Alls ekkert kemst i samanburð við Fineste Skandinavisk Export-Kaffe Surrogat. Það teknr öllum öðrum kaffi- bæti fram að ilman og bragðgæðum. Reyn- ið bann og þér mnnuð aldrei annan nota. F. Hjorth & Co. Kjöbenhavn, K. Gott íslenzkt smjör saltað, fæst á 62 aura pundið, og 60, ef mikið er keyft, hjá M. Johannesen. Uppboðsauglýsing. Miðvikudaginn 26. apríl næstkom- andi kl. 12. á hád. verður bærinn Syðstagrund í f>ingholtum, tilheyrandi dánarbúi Sigurðar Bjarnasonar, sem dó 3. janúar þ. á., seldur við opinbert uppboð, sem haldið verður þar á staðn- um. I m leið verða seldir lítilfjörleg- ir lausafjármunir tilheyrandi sama búi. Uppboðsskilmálar verða birtir á und- an uppboðinu. Bæjarfógetinn í Rvík 26. marz 1899. Halldór Daníelsson. U msóknir um styrk þann, er í fjárlögunum fyrir 1898, 13. gr. C. 31., er veittur Iðn- aðarmannafélaginu í Reykjavík »til að styrkja efuilega iðnaðarmenn til utanfarar, til að fullkomna sig í iðn sinni«, verða að vera komar til fé- lagsstjórnarinnar innan loka júlímán. næstkomandi. Umsóknarbréfunum verða að fylgja meðmæli fré þeim, sem hlutaðeigend- ur hafa lært iðn sína hjá. Yngri piltar en 18 ára geta eigi orð- íð aðnjótandi þessa styrks. Uppboðsauglýsing. Næstkomandi þriðjudag þ. 11. þ. m. kl. 11 f. hád. verður eftir beiðni banka- stjóra Tr. Gunnarssonar opinhert upp- boð haldið í Hafnarstræti nr. 11 og þar seldar tómar tunnur, kassar og fl. Ennfremur verða seldir ýmsir mun- ir, er teknir hafa verið lögtaki til lúkn- ingar ógreiddum bæjargjöldnm Skilmálar verða birtir á uppboðs- staðnum. Bæjarfógetinn í Rvík, 7. apríl 1899. Halldór Daníclsson. Hér með tilkynni eg heiðruðum við- skiftavinum mannsins míns sál. Jóhs. Haiisens, að verzlunin heldur áfram eins og áður, og undir sama nafni. Virðingarfylst Laura Hansen. Sjónleikarnir. Hermannagletíur Og Villidýrið (eftir E. Bögh) verður leikið sunnudaginn 9. apríl kl. 8 síðd. J>ar með hættir leikfélagið við sjón- leiki á þessum vetri. Hvítt millipils (skört), undirlíf og skyrta, hefir fundist í Skólavörðuholtinu; geymt í Þingholtsstræti 11. í Hafnarstræti nr. 6 éru til sölu ýmiskonar mjög vandaðir INNANSTOKSMUNIR (»Möbler«), svo sem Borð, Stólar, Sofar, Spegl- ar, o. fl., ennfremur: Borðbúnaður, Bækur, mjög góðar og í vönduðu bandi. — Munir þessir seljast fyrir mjög sanngjarnt verð.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.