Ísafold - 21.03.1900, Side 4

Ísafold - 21.03.1900, Side 4
56 Eg hefi þráð það svo sárt, að mega varpa þessu frá mér og verða eins og aðrar konur. En svo finst mér annað veifið eins og hér sé um helga köllun að ræða. f>á þyrstir mig í að hitta hann, svo að eg geti gert skyldu mínalt f>að er eins og síðustu orðin séu henni innblásin — en ekki frá ríki ljóssins. Eftir stunJarkorn segir Enid : »Og það var Barnes, sem fekk þig til að skrifa mér miðann?« »Já«. •Elsku Marína mín!» Frk. Anstruth- er vefur aftur handleggina utan um hálsinn á Korsíkustúlkunni, og í þetta sinn slítur hún sig ekki af henni. •Svona vondur hefir hann verið við þig! Hann vildi ekki, að þú vaerir samvistum við konuefnið hans. En komdu nú samt og vertu brúðarmær mín, og eg skal sýna honum, að það detta ekki af mér neinir gullhringar fyrir það. Lofaðu mér þessu, bezta mín !< Eln Marína svarar skýrt og skorin- ort: »f>að er af og frá ! Eg get ekki sint minni köllun jafnframt. Unn- usti þinn hefir á réttu að standa; þú ert of 'góð við mig. En þó að eg fáí ekki að sjá þig á brúðarbekknum, þá skal mér alt af þykja vænt um þig, af því að þú varst mér svo góð, þegar eg átti engan vin. En nú legg eg á stað. Við sjáumst aldrei framar, og-------« Stúlkurnar grétu hvor í faðminum á annari. Svo hrökkva þær við, því að Maud Chartris hrópar inn um dyrnar: »Hann er kominn aftur, Enid!« »Hann! Hver?« kallar fröken An- struther og stekkur upp. Svo segir hún : »Við hittumst víst aftur á£ur en þú fer, góða!« kyssir Marínu og flýtir sér út í þeirri ímyndan, að Barnes sé af einhverjum ástæðum kominn aftur. Hún fer með Maud að dyrunum á herbergí lafði Chartris. f>ar snýr telpan sér að Enid og segir: »Hann situr aleinn þarna inni og bíður ]þess að mega faðma þig!« Frk. Anstrutber lýkur upp hurðinni. Gluggablæjurnar eru dregnar niður vegna sólarhitans og í daufu birtunni þar inni grillir hún í mann, sem snýr bakinu að henni. Hún heldur, að það sé Barnes. Hún laumast hægt að honum, legg- ur handleggina um hálsinn á honum og hvíslar í evra honum: »Burton minn góður — svo þú gazt þá ekki yfirgefið mig?« kyssir hann hjartan- lega og hrekkur svo aftur á bak; því að karlmaðurinn snýr sór við, er með sítt skegg, kyssir hana aftur á raóti ástúðlega og segir hlæjandi : »Svo »Burton minn góður« er farinn frá þér?« Enid hrópar upp yfir sig : »Bróðir minn«, fleygir sór svo um hálsinn á honum og kyssir hann hvað eftir ann- að. Liögfræðislegur leiðarvísir. Er það eftir gildandi lögum eða göml- vana, að ábnendur hinna svo nefndu stólsjarða eru lausir við jarðartíund til prest.s og kirkju?—Sv.: Skálholtsstólsjarðir eru tíundarfrjálsar vegna þess, að þegar Skálholtsstóll var lagður niður fyrir meira en 100 árum, voru jarðirnar seldar með tíundarfrelsi, en það höfðu þær haft áður að lögnm, svo sem lagðar til guðsþakka; og vegna þeirrar (eldri) reglu eru Hóla- stólsjarðir einnig látnar vera lausar við tí- und, þótt ekki væru það berum orðum til- skilið, er þær voru seldar, nema til prests og fátækra. Er ekki skylda félaga, sem stunda lik- amsæfingar, að hera kostnað af slysum, t. , d. legukostnað, sem fyrir koma við æfing-!í, ar í þarfir félagsins? — Sv.: Nei. Það eru tvær kirkjur i prestakalli; getur þá sami prestur þjónað meiri eða minni hluta af annari sókninni sem utan- þjóðkirkjuprestur og hinni sókninni sem þjóðkirkjuprestur ? Sv: Nei, engan veginn, sbr. landsh.bréf 21/» 1-95. Er eg skyldur að víkja frá jörð, sem eg flutti á í fyrra vor með munnlegri byggingu, þar eg ekki fekk byggingarbréf þratt fyrir tví-itrekaða hón bæði áðnr en eg flutti og eftir að eg var ný fluttur? Sv.: Nei. Hafa forstöðunefndir þjóðminningardaga rétt til tinsölu á þeim hátíðum?—Sv.: Nei. Eru lausakonur jafnt sem lausamenn skyldar að gjalda 60 aura gjald presti og kirkju? — Sv.: Já. Ber umhoðsmanni jarðar, sem er einstaks manns eign, að missa umhoðsþóknun sina fyrir það, að ekkert var á umboðslaun minst, er hann tók við umboðinu? — Sv.: Já, nema föst venja sé fyrir ákveðnum um- boðslaunum i því bygðarlagi og engin at- vik bendi á, að búist hafi verið við eða setlast til undanþágu frá þeirri venju, t. d. venzl eða viaáttu o. s. frv. Eg á hús i kaupstað, sem eg leigi út og geld af því húsaskatt, eins og lög skipa fyrir. Ber mér lika að borga eignartekju- skatt af húsaleigu þeirri; sem eg fæ eftir það? — Sv.: Nei. Eru lausamenn, sem ekkert tíunda, skyld- ir að greiða presti dagsverk? — Sv.: Nei. Hitt og þetta. Dýrrir málmar. Því fer fjarri, að gull sé hinn dýrasti málmur sem til er. Það kvúðu vera til ekki færri en 26 málmteg- undir, sem eru dýrari, þar á meðal ein, sem er 230 sinnum dýrari. Sá málmur heitir gallium og kostar pundið af því 290,000 kr., en af gulli ekki nema 1240 kr. Nú er farið að taka Ijósmyndir neðan sjávar. Ljósmyndarinn fer i köfunarbún- ing og hefir á hjálmi sinum rafmagnsgló- lampa með m.jög miklu ljósmegni, er auka má þó með afturkastsspegli og ljósbrjót og beina í tiltekna átt. Ljósmyndartólinu er skýlt með mjög sterku gleri og vel fáguðu Þetta er mesta þing til að rannsaka sjáv- arbotn, skipsfleka á sjávarbotni og þess háttar. Hoskinn maður ókvæntur mætir kunn- ingja sínum, sem leiðir sér við hönd krakka á þriðja ári, sem hann átti. »En hvað þetta er laglegur drengur!« segir hann. »Það finst mér ekki« anzar faðir krakk- ans. »Þetta er ekki föðurlega mælt; eða hvernig stendur á, að þú segir þetta?« svarar hinn. »Það er telpa, en ekki dreng- ur«, segir sá, sem krakkann átti. Imyndunarveikin. Læknirinn: »Það er ekki nema eitt meðal við öllum þessum kvillum, sem þér hafið talið upp fyrir mér, frú min góð«. Frúin: »Blessaður segið þér mér það, læknir góður!« Læknirinn: »Það er: veruleg veikindi!« t Hór með tilkynnist frændum og vinum mínum og vandamanna mínna, að faöir minn elskulegur Finnur Magn- Ú8 Einarsson andaðist 15. þ. m. á 73. ári, fæddur 8. febr. 1828. Hann lá síð- an síðast f septbr. f. á., oftast mjög þungt haldinn síðan í oktbr. MeSalfelli 17. marz 1900. Eggert Finnsson. Biðjið um : Skandinav. Export kaffi Surrogat Khavn K. F. Hjorth & Co. 1871 Júbilhátíð 1896. Hinn eini ekta BRABIA-LIFS-ELIXIR Meltíngarhollur borð bitter essenz. Allan þann árafjölda, sem almenningur hefir við haft bitter þenna, hefir hann áunnið sjer mest álit allra matar-lyfja og er orðinn fræg- ur um heim allan. Hann hefir hlotið hin hœstu heiðursverðlaun. þá er menn hafa neytt Brama-lífs-Elixírs, færist þróttur og liðugleiici um allan líkamann, fjör og framgirni í andann, og þeim vex kæti, hugrekki og vinnuáhugi; skilningarvitin skerpast og unaðsemda lífsins fá þeir notið með hjartanlegri áncegju. Sú hefir raunin á orðið, að enginn bitter samsvarar betur nafni sínu en Brama-l/fs-elixír; en hylli sú, er hann hefir komizt hjá almenningi, hefir valdið því, að fram hafa komið ýmsar einkis- verðar eptirstælingar, er vjer vörum við. Kaupið Brama-lífs-elixír vorn einungis hjá þeim verzlunum, er söluumboð hafa frá vorri hendi, sem á islandi eru : Akureyri: Hr. Carl Höepfner. Sauðárkrókur: Gránufjelagið. — Gránufjelagið Seyðisfjörður:--- Borgarnes: — Joban Lange. Siglufjörourr -- Þýrafjörður - - N. Chr. (iram. StykkLnólmur: N. Chr. Gram. Húsavik: —■ Örum & Wulff. Yestmannaeyjar: I. P. T. Bryde. Keflavík : — H. P. Duus verzlun Vik pr. Vestmanna- — Knudtzon’s verzlun. eyjar: Hr. Halldór Jónsson. Keykjavík: — W. Fischer. Ærlækjarsel: Hr. Sigurðr Raufarhöfn : Gránufjelagið. Gunnlaugsson. Einkennl: Blátt Ijón og gullinn hani á glasmiðanum. Mansfeld-Bullner & Lassen, hinir einn sem búa til hinn verðlaunaða Braœa-Lífs-Elixír Kaupmannahöfn, Nörregade 6. Leiðarvísir ili lifsábyrgðar fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr. med. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim sem vilja tryggja líf sitt, allar upplýsingar. Vottorð- Eg get með engu móti stilt mig um að senda yður eftirfar- andi meðmæli. Eg undirskrifuð hef um mörg ár verið mjög lasin af taugaveiklun, krampa og ýmsum kvillum, er því fylgja; og er eg hafði leitað ýmissa lækna árangurslaust, datt mér í hug aðreyna Kína-lífselixír Waldimars Pet- ersens í Friðrikshöfn og get eg með góðri samvizku vottað að hann hefir veitt mér óumræðilega linun og finn eg, að eg get aldrei án hans verið. Hafnarfirði, í raarzmán 1899. Agnes Bjarnadóttir húsmóðir. Kína-lífs elixírinn fæst hjá flest- um kaupmönnum á Islandi. Til þess að vera viss um, að fá hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupend- ur beðnir að lfta vel eftir því, að úú standi á flöskunni í grænu lakki, og eins eftir hinu skrásetta vörumerki á flöskumiðanum: Kínverji með glas í hendi, og firmanafnið Waldernar Pet- ersen, Frederikshavn, Danmark Húsnæði. f Melsteðshúsi nr. 1 við Lækjar- torg eru herbergi fyrir litla »familíu« eða einhleypa menn til leigu 14. maí næstk. Semjist við bæjargjaldkera Pétur Pétursson. Upphoðsauglýsing. Eftir fyrirlagi skiftaráðandans í Gull- bringu- og Kjósarsýslu verða við opin- bert uppboð, sem haldið verður í Hafnarfirði laugardaginn hínn 81. þ. m., seldir ýmsir lausaf jármunir tilheyr- andi dánarbúi Ragnheiðar Björnsdótt- ur yfirsetukonu, er andaðist 1 Hafnar- firði 16. f. m. Uppboðið byrjar kl. 12 á hádegi og verða söluskilmálar birtir á uppboðs- staðnum fyrir uppboðið. Garðahreppi 17. marz 1900. Einar porgilsson. Frá 14. maí þ. á. verður hús til leigu vestantil í bænum með fimm her- bergjum, ásamt með búri og eldhúsi og kjallara undir öllu húsinu, matjurta- görðum og fiskireitum, og ef óskað er fjósi, hesthúsi, heyskúr, grasbletti, alt fyrir mjög væga leigu. Ritstj. vísar á lánandann. Skandinavisk export- kaffi- surrogat, sem vér höfum búið til undanfarin ár, er nú viðurkent að hafa úgæta eiginlegleika. Köbenhavn K. F, Hjorth & Co. Steinhringur fundinn af Guðlaugi Torfasyni snikkara Uppboðsauglýsing. Við 3 opinber uppboð, sem haldin verða þriðjudagana 3. og 17. apríl og 1. maí þ. á., verður húseign dánar- bús Ragnheiðar ljósmóður Björnsdótt- ur í Hafnarfirði boðin upp til sölu og seld, ef viðunanlegt boð fæst. Uppboðin byrja kl. 12 á hádegi nefnda daga, og fara hin 2 fyrstu fram á skrifstofu sýslunnar, en hið síðasta í húsinn, sem selja á. Söluskilmálar verða til sýnis á skrif- stofu sýslunnar 2 dögnm fyrir hið 1. uppboð. Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu 14. marz 1900. Páll Einarsson. Þeir sern kynnu að hafa fengið ofsent eitt- hvað af fyrstu tbl. þessa árgangs Isafoldar, eink- um 3.—4. tbl., eru beðn- ir að endursendaþaðmeð fyrstu hentugri ferð. I. Paul Liebes Saferadavín ogf Maltextrakt með kínín og járni hefi eg nú haft tækifæri til að reyna með ágætum árangri. Lyf þessi eru engin leyndarlyf (arcana), þurfa þau því ekki að brúkast í blindni, þar sem samsetning þess- ara lyfja er ákveðin og vitanleg. Sagrada- vínið befir reynst mér ágætlega við ýms- um magasjúkdómum og taugaveiklun, og er það hið eina hægðalyf, sem eg þekki, er verkar án allra óþæginda, og er lika eitt- hvað hið óskaðlegasta lyf. Maltextraktin með kina og járni er hið bezta styrkingarlyf, eins og efnin benda á, hið bezta lyf gegn hvers konar veiklun, sem er, sérstaklega taugaveiklun, þreytu og lúa, afleiðingum af taugaveiki, þróttleysi mag- ans o. s. frv. — Lyf þessi befi eg ráðlagt mörgnm með bezta árangri og sjálfur befi eg brúkað Sagradavinið til beilsubóta, , og er mér það ómissandi lyf. Reykjavík 28. nóv. 1899. L. Pálsson. Einkasölu á I. Paul Liebes Sag- radavíni og Maltextrakt með kínín og járni fyrir Island hefir undirskrifaður. Útsölumenn eru vin- samlega beðnir að gefa sig fram. Reykjavík í nóvember 1899. Björn Kristjánsson. Ritstjórar: Björn Jón8son(útg.og ábm.) og Einar Hjörleifsson. ísafoldarprentsmiðja.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.