Ísafold - 25.04.1900, Síða 2

Ísafold - 25.04.1900, Síða 2
91 armiklu auðæfa ógrynni, sem saman eru komin í veraldarinnar auðugustu borg, eru ekki nema tæpir 18/- eða rúmlega V6 hluti borgarbúa, sem talinn verður til meðalstéttanna og æðri stéttanna. í 37 borgarhverfum, sem öll höfðu meira en 30,000 íbúa hvert, en sam- tals 1,179,000 manna, eru öreigarnir hvergi færri en 40y°, og sumstaðar 60"/°. — Hér um bil sama er að segja um aðrar stórborgir bæði í Norður- álfunni og Vesturheimi. J3é litið skynsemdaraugum að eins á málið frá sjónarmiði múgsins, virðist það liggja í augum uppi, að þessi skipun mannfélagsins nái engri átt. Múgurinn hlýtur þá að stefna að því markmiði, að fá bundinn enda á kappleikinn meðal einstaklinganna í mannfélaginu, koma skipulagi jafnaðarmanna á fram- leiðsluna og framar öllu öðru að tak marka sro mannfjölgunina, að hún verði ekki meiri en svo, að ávalt séu nóg efni fyrir höndum. Með öðrum orðum: múgurinn hlý*ur, svo framar- lega sem skynsemin ein fáí að ráða, að stefna að því markmiði, að binda enda á þau skilyrði, sem mannkynið getur ekki án verið nú á tímum, ef það á að geta tekið framförum — skilyrði, sem ekki að eins mann- félagið hefir háð verið frá öndyerðu, heldur og alt líf á jörðunni. Kenningar jafnaðarmanna eru þann- ig ekki ringlaðir draumórar eða vit- leysu-heilaspuni; þær eru hrein og tær skynsemi. Og vér getum ekki einu sinni numið staðar við þær kenning- ar. það liggur í augum uppi, að engin mannfélagsskipan, þar sem menn- irnir eru á einhvern hátt látnir njóta mannkosta sinna og áskapaðra hæfi- leika, getur verið skynsamleg frá sjónarmiði allra. Jpví að skynsemin kennir ótvíræðlega, að þar sem vér berum enga ábyrgð á hæfileikum vor- um eða hæfileikaskorti, sé það ekkert annað en blátt áfram ofbeldi, að þeir, sem lakar eru úr garði gerðir, sæti lítilmótlegri kjörum en hinir, sem meira hafa þegið frá náttúrunnar hendi. Afarörðugt mundi verða að færa skyn- semis-röksemdir gegu kenningum óstjórnarliða, sem mótmæla öllu lög- ákveðnu mannfélagsvaldi, vegna þess að það verði ávalt og undantekningar- laust að ófrelsi og kúgun fyrir mikinn hluta mannanna. Með engu móti verður hjá því kom- ist að kannast við það, að hagsmun- ir félagsheildarinnar samrýmast ekki og geta ekki með nokkuru móti samrýmst hagsmunum einstaklinganna. þess vegna geta einstaklingarnir aldrei ún- að þeim skilyrðum, sem heill félags- heildarinnar er undir komin, af skyn- semis-ástæðum einum. Parísarsýningar-munirnir íslenzku. J>eir voru hafðir til sýnis í Khöfn í vetur, í Iðnaðarfélagshöllinni þar, áð- ur en þeir vora sendir til Parísar. J>ótti allmikið til þeirra koma, ogurðu 18,000 manna, er gerðu sér erindi að skoða þá. þeirra á meðal var kon- ungur vor og hans fólk. Lét hann vel yfir og þótti sýningaruefndin ís- lenzka hafa staðið vel í sínum spor- um. Blöðin í Khöfn mintust þessarar sýningar og flest lofsamlega heldur. Binn með merkustu blaðamönnum þar, Franz v. Jessen, ritaði langa grein um hana í »Nationaltidende«. Minnist þar um leið á, hve girnilegt ísland sé fyrir skemtiferðamenn, með þyí það megi heita ónuraið land af þeim, en mjög margt merkilegt þar að sjá, bæði land og lýð. Tekur undir með dr. G. Brandes, er hann láir Dönum tómlæti þeirra við oss (sbr. Isafold 3. febr. þ.á.) og telur þeim mínkun að vera ekki búnir enn að koma hingað rit- síma. Gufuskipafélagið sameinaða hafi nú leyst sínar hendur með sæmi- legum samgöngum á sjó bæði landa í milli og umhverfis landið, inn á hverja vík og vog að kalla má. Auðvitað mikil framför í því, en seinindi meiri þó en við þyki unandi nú á tímum með siðuðum þjóðum. »Bitsíminn er hið mikla og full-nútíðarlega framfara- spor, er vér erurn Islandi um skyldir; það geta gufuskipaferðir ekki bætt upp«. Hann vill láta Dani leggja meiri rækt við landið, kynnast því betur og landslýðnum en verið hefir, og vítir þá fyrir ókunnugleik á íslenzkum nú- tíðarbókmentum, eins og Brandes. »Sýningin ber hvarvetna vott um« segir hann, »hve æfagömul er þjóð- menning landsins og að fornmenjar eru þar í hávegum hafðar«. Greinar v. Jessens eru tvær, 24. og 29. jan., og er síðari greinin aðal lega vörn gögn munnlegum aðfinningum frá íslendingum og Islandsvinum í Khöfn út af því sérstaklega, hve þess- ari íslenzku sýningu sé ábótavant. •ísland hefir nútíðar-þjóðmenning, sem þeir, er á syninguna koma (í París), hafa ekki minBtu hugmynd um, þótt þeir sjái þetta forngripadót«. þetta hefir hann ettir þeim, er við sig hafi talað. þeim þyki það mikið ilt og séu reiðir út af því. Sumir hafi þar að auki kunnað hon- um (höf.) enga þökk fyrir, að hann var að gylla landið í augum útlendra skemtiferðamanna. Mikið aðstreymi slíkra kumpána mundi hafa siðspilling í för með sér. Höf. leiðir þá rök að því, að lítill veig- ur sé í þessum aðfinningum. Nema hvað hann kannast við, enda tók það fram í fyrri grein sinni, að Islending- ar ættu heimting á, að til væri á sýn- ingunni í París sýnishorn af bókum og blöðum frá íslandi, til merkis um natíðar-þjóðmenning landsbúa. Og nú hafi kapt. Daniel Bruun, hinn óþreyt- andi og ágæti forgöngumaður sýning- arinnar íslenzku, tjáð sér, að sú bend- ing yrði til greina tekin. »|>ar með er eina rökstudda aðfinn- ingin úr sögunni«, segir hann. »|>vi úr því að nútíðar-þjóðmenning íslands, eins og hún kemur fram í daglegu lífi, er harla lík því sem gerist vor á með- al og í Norvegi eða Svíþjóð, þá er naumast nein ástæða til að vera að hafa til sýnis það, sem þess ber vott. Að íslendingar hafa á höfðinu háa silkihatta, þegar mikið skal við hafa, eða boiða á postulínsdiskum og með silfurgöflum, að þeir hafa lærðan skóla og þjóðkjörið löggjafarþing og blaða- rifrildi — það er óneitanlega alt sam- an vottur um býsnahátt menningarstig. Bn er þá nauðsynlegt að hafa silki- hatta á sýningunni fyrir það eitt, að þeir eru líka til á Islandi? Bg gizka á, að farið hafi eins fyrir öðrum eins og mér, er þeir komu á þessa sýningu: Vér höfum allir dáðst að og hugsað mest um hina frumlegu íslenzku bún- inga, áp þess að efast minstu vitund um, að silkihattar væru til á íslandi. þegar búa þarf út sýningu, er ætl- ast til, að annað eins alheimsmarg- menni oe von er á til Parísar, renni * augum yfir, og þar að auki rúmið er af mjög skornum skamti, þá má t.il að leggja aðaláherzluna á, að eitthvað verði ðérkennilegt við hana. J>ess vegna var alt það fráskilið hinni ör3máu íslenzku sýningu, sem ekki var einkennilegt fyrir ísland og eingöngu fyrir ísland. Afleiðingin hefir orðið sú, að sýn- ingin verður raunar engan veginn nein skuggsjármynd af íslandi, eins og það er nú, en aftur hsfir hún að geyma lauslega en þó greinilega mynd af þjóðmenningar-framfaraferli landsins, af einkennilegri náttúrufegurð lands- ins og frábrugðnum kjörum þeim, er þjóðin á við að búa. Til meira var ekki ætlast og meiru var ekki hægt að fá framgengt, eins og á stóð. Bn einn kost hefir sýningin, sem íslands- vinir og Islendingar virðast ekki hafa veitt eftirtekt: einmitt fyrir það, að hún.er glögg yfirlits og öll svo sér- kennileg, þá laðar hún huga þeirra, er þar koma, að þessu fjarlæga ey- landi og örfar þá til að afla sér frek- ari vitneskju um það, komast í nán- ari kynui við þjóðina. Gesturinn mun þá þegar verða það fróðari, að hannveit, að auk þe?s sem landið hefir sér til á- gætis einkennilega þjóðmenning, er sýningin skýrir frá, þá á það einnig hlutdeild í þjóðmenning Norðurlanda og er þeim jafnsnjalt í þeirri grein. Og tæki hann sig síðan til, þessi sýningargestur, og brygði sér til ís- lands, til þess að veiða þar í ánum, ganga upp á Heklu eða horfa á lág- nættissólina norðanlands — þá sann- færðist hann einmitt um.að íslending- ar eru vel mentuð þjóð. Og ekki skil eg í því, að þeir aðkomumenn muni sökkva hinu nýa skemtiferðalandi nið- ur í neina siðspillingu. |>eir munu fyrst og fremst ekki skifta mörgum hundruðum, og þá mun ekki heldur landssjóður Islands geta gert sér von um miklar tekjur af sérstökum skatti á gistihúsráðendur. Hitt skal eg fúslega játa, að þorri franskra og suðrænna sýningargesta muni líta svo á, sem Grænland, Is- land og Færeyar séu hér um bil eitt, og að íbúar þessara landa eigi við hér um bil sömu kjör að búa og hafi sömu þjóðmenningu. Bg er meira að segja, ef eg á að segja eins og er, al- veg sannfærður um, að mikill fjöldi þessara gesta heidur, að þessi litla sýning frá þessum heimskautsbaugs- löndum sé hin eiginlega Danmerkursýn- ing. En hver ráð eru við því, úr því vér getum eigi lagt þá kvöð á sýning- arfulltrúavora, að veitaþeim, sem á sýn- inguna koma, dálitla tilsögn í landa- fræði, til þess að bæta úr vafalaus- um þekkingarskorti þeirra 1 þeirri vís- indagrein?«. Vér megum satt að segja vera við búnir, að verða gerðir þar syðra aliir saman, Danir líka, að Eskimóum. Og er þá sætt sameiginlegt skipbrot. — þetta er að efni til niðurlagið hjá höf. Ónýtt samgöngubann við botnverpinga. Landsyfirréttardómur. Landsyfirréttur kvað upp í fyrra dag dóm í lögregluréttarmáli úr Borg- arfirði, þar sem tveir Akurnesingar, Sigurður Jóhannesson og Hákon Hall- dórsson, höfðu verið sýknaðir af kæru hins opinbera fyrir óleyfileg mök við botnverpinga, og staðfesti yfirréttur þann dóm að öllu leyti. Málskostn- aður skyldi eftir báðum dómum greidd- ur af almannafé. Sýslumaður Borgfirð. hafði með bréfi 9. marz 1898 tilkynt hreppstjórunum í Akraneshreppum báðum amtmanns- bann gegn því, að menn þar úr sýsl- unni »færu út í utanríkisskip, sem ekki væru búin að sýna skjöl sín einhvers- staðar hér við land í sömu fiskiferð- inni hingað frá útlöndum, eða út að þeim, þannig, að menn hefðu nokkur mök við skipverja, sem sé með því að leggja bátum sínum að skipunum, taka fisk og annað hjá skípverjum og færa þeim hitt og þetta úr landi«. Var í banni þessu frá amtmanni skírskotað til tilskipunar 12. febr. 1872 um fiski- veiðar útlendra við ísland og laga 17. desbr. 1875 um breyting á þeirri til- skipun. Bannið var að fyrirlagi sýslu- manns birt almenningi í téðum hrepp- um. Sannast hafði á báða hina ákærðu svo löguð mök við útlend fiskiskip, er amtm. hafði bannað, og eftir að það bann var birt, eða í aprílmán. 1898. Málið gegn mönnum þessum hafði eftir skipun amtmanns verið höfðað bceði fyrir brot gegn amtmanns- banninu, ásamt þar til greindum laga- fyrirmælum, og gegn tilskipun 8. febr. 1805, 39. gr. 8 o. s. frv. Fyrir hvorugt segir nú landsyfirrétt- ur hægt að dæma þá. Um tilskip- unina frá 1805 þurfi eigi að fara lengra en það, að »engin auglýsirig var þá f gildi, er þeir eiga að hafa sekir orð- ið, frá stjórnarráðinu eða landshöfð- ingja, um að fyrirmælum þeirrar til- skipunar skyldi framfylgt að því er snerti fyrnefnd skip« [Bichard og Faraday, er þeir höfðu farið út 1] »eða önnur. Og þó að svo væri álit- ið, að slíka auglýsingu þyrfti eigi nú orðið, þar sem einhverjar hættulegar og næmar sóttir gangi jafnaðarlega eða ávalt í útlöndum, þá er þess að gæta, að um afarlangan tíma hefir ekkert verið gert af yfirvaldanna hálfu til að halda upi gildi tilskipunarinnar, svo sem með skipun sóttvarnarnefnda og annara umsjónarmanna eða með auglýsingum og öðrum fyrirskipunum, er tilskípunin gerir ráð fyrir sem nauð- sýnlegum grundvelli fyrirmæla sinna. í>að er einnig svo fjarri því, að baun amtsins.sem málþetta er sprottiðaf.hafi verið út gefið til að brýna« [fyrir al- menningi] »fyrirmæli nefndrar tilskip- unar frá 1805 og því geti skoðast sem nauðsynleg viðvörun til manna um að gæta fyrirmæla þeirrar tilskip- unar, að bannið skírskotar að eins til laganna um fiskiveiðar útlendra 12. febrúar 1872 og 17. desbr. 1875, og að einmitt í því bréfi sínu, er amt- inaður skipaði sýslumanni að út gefa bannið, tekur hann það fram, að sótt- varnarlög landsins »komi vitan- lega eigi til greina, nema augiýsing stjórnarráðsins sé uppi um það, að þær hafnir, sem skipin koma frá, séu sjúkar af þeim sjúkdómum, sem sótt- varnarlögin eiga við«; en þessi um- mæli sýna ljóslega, að amtið hefir þá, þegar bannið var útgefið, eigi álitið, að eóttvarnartilskipunin 8. febr. 1805 væri þá í fullu gildi eða að henni yrði framfylgt gegn mönnum í þá átt, er hér ræðír um«. Hinum lagafyrirmælunum (frá 1872 og 1875) segir landsfiyrréttur eigi held- ur hægt að sjá að þeir hafi brotið neitt á móti, »en um sérstaka ábyrgð fyrir óhlýðni við bann amtsins getur ekki verið að ræða«. Próf yið stýrimaniiaskólann. Hið minna stýrimannapróf var haldið í styrimannaskólanum dagana 17,—21. þ. m., að báSum dögum meðtöldum. Undir prófið gengu 35 af lærisvein- um skólans og stóðust þaS, meiri hlut- inn með ágætiseinkunn, eins og sjá má af prófsk/rslunni hér á eftir. Fyrsta daginn leystu þeir úr 4 skrif- legum spurningum, er samkvæmt lög- um skólans voru samdar af st/rimanna- kensluforstjóranum í Kaupmannahöfn, en hann hafði sent landshöfðingja í inn- sigluðu umslagi og afhenti amtmaður J. Havsteen prófnefndinni spurningarnar í skólanum, þegar prófið byrjaði. Enn- fremur leystu þeir i'ir 4 munnlegum spurningum, sem prófnefndin valdi; loks

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.