Ísafold - 09.06.1900, Page 2

Ísafold - 09.06.1900, Page 2
142 álít, að það heyri mér ekki til fyrst um sinn. l'egar eg ritaði grein mína, hafði eg enga ákveðna menn í huganum, eg hélt mér að eins við það, sem fyrir augun har, án þess að spyrja mig fyrir um, hver hefði ráðið hverju fyrir sig, með þvx það var og málinu alveg óviðkom- andi. Mér er ómögulegt að skilja það, hvernig grein mín hefir getað komið svo mörgum á stað til að svara. — Eg er mér þess ekki meðvitandi, að hafa talað óvirðulega um nokkurn mann. Það var bein skylda allra, að taka bendingum mínum með þökkum og reyna að læra af þeim; íslenzk verk- fræði stendur sannarlega ekki á svo háu stigi enn. Að svo stóddu ætla eg ekki að fara að svara neinum sérstaklega; eg skal að eins geta þessa: A austurleiðinni skoðaði eg Olfusár- brúna vxm miðjan dag í björtu veðri. Sunnudaginn riæsta skoðaði eg Þjórsár- brú. Áður en eg varð kaudídat var eg tvisvar settur »ingeniör-assistent« í Odense á Fjóni — 6 mánuði árið 1897 og 2 mánuði 1898 — og var það eftir tilboði og meðmælum frá prófessor A. Liitken, kennara í vega- og brúa- smíði við fjöllistaskólann í Kaupmanna- höfn. Síðara sumarið hafði eg 200 kr. í laun á mánuði. Þeir menn, sem hafa svarað grein minni, taka að mörgu leyti af mér ó- makið með því, að þeir svara bæði sér sjálfum og hver öðrnm — sbr. fráræslu- skurð næst Ólfusárbrú o. fl. — Þótt eg hefði aldrei farið um þessá leið og aldrei skoðað bryrnar, heldur að eins lesið greinar þessara manna, hefði eg haft ástæðu til að koma með margar af bendingum mínum (sbr. grein S. J.j. Samiðnarmaður minn hefði vel getað verið kurteisari í greinum sínum; leyfi til þess að svara á þann hátt, sem hann gjörir, hefir að eins maður, sem mikil þrekvirki liggja eftir -— annað- hvort áður en hann tók próf, eða eftir að hann byrjaði sjálfstætt starf. Að síðustu þakka eg þeim mönnum, sem hafa tekið svari mínu, mér fjarver- andi og óafvitandi. p. t. Kaupmannahöfn 20. maírn. 1900. SlGDBÐUE PliTUKSSON ingeniör. Verzlunarfréttir frá Khöfn eða öðrum löndum með síðustu ferðum helzt í þá átt, að miklu minni séu vonir um hátt fiskverð f sumar en við var búist um hríð. Vor- vertíðin Norðmanna í Finnmörk mikið góð, það sem af var þá, og virtist bæta töluvert upp hitt, hve vetrarver- tíðin brást. Spáuverjar því ófúsir að falast eftir fiskkaupum eða bjóða neitt fyrir fisk fyr en fullséð er um aflann í Norvegi. þar er og'töluvert óselt af fiski frá þvf í fyrra, úr öllum átt- um, frá Labrador, Frakklandi, Norvegi o. s. frv. og hefir gengið út dræmra en vant er þar og annarsstaðar í suð- urlöndum vegna fagnaðarársins; því fvlgir linun í kjötátsbanni um föstur m. m. Pestin í Portúgal í fyrra, nsvarti dauði«, spiiti og aðfiutningum þangað, beindi þeim annað, einkum til Genúa með smáfisk, er safnaðist fyrir þar um of og spilti sölu á vandaðri fiski og dýrari, svo sem er hinn ís- lenzki yfirleitt. Alt þetta styður að því, að mestar þykja líkur til, að fiskur vor verði því miður í töluvert lægra verði en í fyrra, en hins vegar engin ástæða til að gera sér beint slæmar vonir um hann. Alþýða smánuð. Hr. ritstjóri! Eg varð í meira lagi léttbrýnn, þegar eg sá þá ósleiti- legu hirtingu, sem pingmaður veitir afturhaldsmálgagninu í Isafold 24. marz síðastl. með greininni nAlþingi ófrœgU. Mig furðar á því einu, hve ráðningin hefir dregist lengi. Eg heyri stundum suma sveitunga mína vera að stinga saman nefjum um það, að undarlegt sé, að ísafold skuli geta fengið af sér að svara »f>jóð- ólfi« einu orði; að hún skuli ekki ganga fram hjá honum með þegjandi fyrirlitning, eins og geltandi rakka. En m i g furðar nú á hinu, hve litlu og hve sjaldan þið svarið honum. Sannast að segja gengur alveg fram af mér, að þið skulið ekki veita hon- um andlega húðstroku að minsta kosti einu sinni í mánuði. Viku eftir viku er hann að reyna, lemja það inn í þjóðina, að þið Isa- foldar-ritstjórarnir séuð hvorki meira né minna en iandráðamenn. það er engin smáræðis-ástríða fyrir ykkur, að vinna ættjörð ykkar mein, eftir því sem þjóðólfi farast óaflátanlega orð. Látlaust eigi þið að vera að berjast við það, að svíkja landið í hendur Dönum, stundum með því að greiða götu stjórnarbótarinnar, stundum með því að gera það sem í ykkar valdi stendur til þess að útvega þjóðinni öfluga peningastofnun. þá eruð þið ekki ófíknari í að setja þjóðina d höfuðið. Aldrei reynið þið svo að hrinda áfram nokkuru stórmáli þjóðar vorrar, sem þið teljið velgengni hennar að einhverju leyti undirkoma, að það sé ekki bersýnileg tilraun til að koma landsmönnum á vonarvöl! Ekki fer víst heldur fram hjá nein- um, er »f>jóðólf« les, áfergjan í ykkur í það að Jleka menn af landi burt. Ekki minnist þið svo á nokkurt úrræði til að gera land þetta byggilegt mentaðri þjóð, að þið séuð ekki með því að reyna að tæla menn til Vesturheims! Að eg ekki minnist á hina ógeðs- legu, látlausu persónulegu áreitni við ykkur, svo sem glósurnar um trúarlíf ykkar og þar fram eftir götunum. Eg veit ekki, hvort víkingsandinn eða ribbaldahátturinn er meiri í mér en alment gerist. En mig furðar á at- ferli ykkar. Eg skil engan skapaðan hlut í því, að þið skuluð geta stilt ykkur um, að fara með piltinn »líkt og þá Grettir Gisla sleit gjarðirnar dauss og strýkti hann beran«, í ólíkamlegum skilningi, eins og nærri má geta. Eg geri ráð fyrir, að þið þykist of »fínir« til þess. Nú, jæa; þið um það. þið ráðið auðvitað, hve miklu af skömmum um sjálfa ykkur þið takið með þolinmæði. þið eigið þar mest í hættunni sjálfir. En eg fæ ekki með nokkru móti séð, að alþýða manna sé skyld til að taka »þjóðólfi« með sömu þolinmæð- inni, sama meinleysinu. pingmaðurinn mótmælti ófrægingum þess blaðs fyrir alþingis hönd. Eg er ekki alþingismaður, heldur réttur og sléttur alþýðumaður. Og fyrir alþýðunnar hönd mótmæli eg þeirri smán, sem »þjóðólfur« er stöðugt að gera henni. Ekki er eg kunnugur blaðamensku meðal annara þjóða. Eg á því miður ekki kost á að lesa neitt útlent blað. En tregur væri eg á að trúa því, að nokkuri annari þjóð en oss sé boðið annað eins blað og »tjóðólfur« er; enda hefi eg ekki heyrt nokkurn mann halda því fram. það er andstygð að sjá menn flek- aða til að kaupa blað, sem ekki styð- ur nokkurt gott mál. Og því fer svo fjarri um »f>jóðólf«, að hann styður ekki nokkurt rnál, gott nó ilt, þarft né óþarft. Alt hans skak er í því fólgið, að reyna að rífa það niður, sem aðrir menn eru að leitast við að reisa. Vér þurfum sannarlega ekki á slíku blaði að halda, íslenzbir alþýðumenn. f>að er meir en nóg í okkur af deyfð og vonleysi, tortrygni við aðra og vantrausti á sjálfum oss, þótt við kaup- um það ekki dýrum dómum úr höfuð- staðnum og sannarlega verður nógu margt til þess, að spilla framfaramál- um vorum, þó að vér borgum ekki fyrir það piltum, sem hvorki hafa hæfileika né menningu til að hafa of- an af fyrir sér á annan hátt. Og þó væri þessi viðleitni við að gera oss tjón sök sér, ef henni væri ekki svo háttað, að hún verður að stöðugum löðrungi á þjóðina, sí og æ óbreyttrí auglýsing ritstjórans um, að hann telji íslenzka alþýðu skrælingja, afglapa og flón. Eg minnist sögunnar, sem stóð í ísafold í fyrra sumar, um ritstjóranD, sem kvaðst vísvitandi forðast allar röksemdir, af því að »fólkið skildi þær ekki«. Engan mann hefi eg heyrt vera í minsta vafa um, um hvaða rit- stjóra sú saga væri. Svo skilningslaus er íslenzk alþyða ekki, hvað sem »f>jóðólfur« hyggur, að hún sjái það ekki ofurvel, hver óvirð- ing henni er með því gerð, að bjóða henni látlaust þetta órökstudda stór- yrðastagl, sem í »f>jóðólfi« stendur. Að minsta kosti er hún ekki svo, þar sem eg þekki til. Hún sér ofurvel, í hverju »f>jóðólfs«- svörin eru fólgin: »Haltu kjafti! þú ert landráðamaður! þú vilt koma okkur á vonarvöl! f>ú ætlar að fleka okkur til Ameríku! f>ú ert að svíkja okkur í hendur Dönum!« þetta eigum við að gleypa! Við eigum ekki að þurfa neinar sannanir fyrir þessu, bara trúa því, af því að »f>jóðólfur« er látinn flytja það út um landið! Og svo er okkur við og við bætt ofurlítið í munni með velgjulegu smjaðri um okkur, til að fleka okkur til að kaupa sig. Kjassar okkur annað veifið og með annari hendinni, meðan hann er að fara í vasa okkar með hinni. Eg veit ekki, hvað er að skipaokk- á bekk með skrœlingjum, ef það er að láta okkur ekki kunna skil á járnbraut frá almennum vinnuvélum, eins og hann gerði í vetur og síra Stefán á Mosfelli tók ofan í lurginn á honum fyrir þá. Eg veit ekki, hvað er að gera okk- ur að afgbpum, ef það er ekki að ætl- ast til, að vér köllum það þjóðhylli, þótt hann leggi stöku heldri menn í einelti, suma landsins nýtustu menn, til þess að svala persónulegri óvild sinni eða öfund, en lætur öðrum þræði hvern höfðingjann á fætur öðrum gera sig að skósvein sínum, t. d. rektor í öllum hlutum, smáum og stórum, þar á meðal ekki sízt forntungna-áþjáninni; amtmanninn 1 botnvörpumálinu í fyrra; ennfremur kaupfélagahöfðingjann al- kunna og sveitarhöfðingja hans; sömu- leiðis í ritsímamálinu bæði Reykjavík- ur-höfðingjana suma, sem er illa við ritsímann vegna væntanlegs meira ann- ríkis hans vegna, og selstöðu-stórkaup- menn vora, sem amast við honum vegna væntanlegra örðugleika að halda oss eins einangruðum frá viðskiftalífi heimsins eins og að undanförnu; eða þá loks suma landsbankahöfðingjana, sem einir allra landsmanna hamast í móti hlutafélagsbankanum fyrirhugaða fyrir það eitt, að þeir sjá fyrir enda á lán- veitinga-einveldi sínu, ef hann kemst á». Og loks veit eg ekki, hvað er að gera oss að flónum, ef það er ekki að ætlast til, að vér kjósum heldur hið ábyrgðarlausa skrifstofu-einveldi yfir oss en almennilega, þingbundna stjórn, svo sem oss stendur til boða; því það sér þó hver beilvita alþýðumaður, að ekki þýðir það annað, alt skak hans (þjóðólfsj gegn valtýskunni; enda hefir hann lengi komið fram sem aðal-mál- tól skrifstofuvaldsins og þess þjóna, í smáu og stóru, en hygst geta dregið dul á það fyrir okkur — eskrælingj- unum, afglöpunum, flónunum«, — með því að æpa í sífellu í eyru oss orðið »stjórnarmálgagn« um annað blað, sem hefir ávalt sýnt sig jafn-óháð stjórn og þjóð, viðlátið að segja hvorumtveggja til syndanna eftir þörfum, en áu þess að hugsa um að skemta og hossa í- mynduðum skríl með því að smána einhvern höfðingja fyrir það eitt, að hann er í höfðingjatölu, og hefir auk þess stutt röggsamlega og drengilega hvern framfaravísi hjá þessari þjóð og gert sér allra blaða mest far um að efla velgengni hennar, heiður hennar og menningarþroska. Bið eg þá afturhaldsmálgagnið vel að lifa, ef það bætir ráð sitt, sem mun vera vonlaust um með þessum rit- stjóra, en — vel að sdlast að öðrum kosti, með því að eg fæ ekki betur séð en að það sé orðið að siðspillandi þjóð- armínkun. A Iþ ýðumad u r . Bökmentafélagið. Svo fór, sem líklegt var, á aðalfundi deildarinnar hér í fyrra kveld, að fé- lagsmenn mótmæltu lögleysu og gjör- ræði forseta, rektors B.M.Olsens, sem minst var í síðasta blaði, á þann hátt, er bezt áttí við og mest munaði um: höfnuðu honum sem forseta og endur- kusu Tímaritsnefndina. Hafði þó með- al annara ósporlatur undirkennari hans einn verið á erli dagana á und- an að smala handa honum atkvæðum, sérstaklega þó, að verið mun hafa, undirskriftum undir áskorun til hans um að láta svo lítið að vera formað- ur deildarinnar áfram. En hafði veiðst laklega, eða ekki svo vel, að áskorun- in þætti frambærileg á fundinum. Tek- ið hafði og forseti sinnaskifti frá því í vetur; fortók þá í alla staði, að hann vildi vera við lengur en til sumarfund- arins, en gaf nú að fyrra bragði og hiklaust kost á sér, með hinu sama karlmannlega(!) skilyrði sem fyr: að E. H. ritstj. yrði ekki í Tímaritsnefnd. Sjálfstæðum fundarmönnum og óháð- um fanst sem nærri má geta félaginu misboðið með slíku, ofan á hina ólög- legu afsetningu nefndarinnar frá í fyrra, og kusu forseta Eirik Briem presta- skólakennara með 20 atkv. (B. M. Ó. 17) og Tímaritsnefndina sömu sem áð- ur með þorra atkvæða — aðrir mest 6 eða 7 atkv. Er hún því sem fyr skip- uð þessum 4 mönnum, auk forsetans nýa: Ein. Hjörl., J. Ólafss., Kristj. Jónssyni og Stgr. Thorsteinson. Féhirðir var kjörinn í stað E. Br. Björn Jensson adjunkt; aðrir embm. endurkosnir. Flestir munu una raætavel forseta- skiftunum; vita sig nú meðal annars ekki þurfa að kvíða lögleysum, of- stopa og gjörræði af hinum nýa for- seta — það er síður en svo —, nó heldur hóti minni dugnaði af hans hendi en fyrirrennara hans.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.