Ísafold - 17.11.1900, Page 2

Ísafold - 17.11.1900, Page 2
278 ur eða ofbeldi, getur enginn haldið því fram, að úrakurðarvaldið aé bezt komið í höndum þingsins. þó er hitt, ftð því er oss virðist, enn fráleitara, að láta þingið hafa með höndum að rannsaka kjöraeðla. Til þess þarf meiri nákvæmni og óhlutdrægni en búast má við af hverjum einstökum þingmanni, og það ekki sízt, þegar úrsiitin geta staðið á miklu fyrir þing- flokkana, eins og oft getur að borið. Hér er auðsjáanlega um dómara- verk að ræða. Óhentugt væri, að vísa slíkum málum frá einum dómstóli til annars, mundi oft taka of langan tíma. I hendur sýslumannauna einna mundi þjóðin fráleitt vilja leggja þetta vald, enda gætu athafnir sjálfra þeirra verið ágreiningsefni, ef þeir væru aðal- kjörstjórar. Fvrir því virðist osa eðlilegast að leggja slík mál undir landsyfirréttinn einan. Nýr Vesturheimsa^ent. Nú er víst málgagni skriffinskunnar, þjóðólfi, ekki farið að lítast á blik- una. Binn af æðstu og mikilhæfustu em- bættismönnum landsins, Páll Briem amtmaður, orðinn Vesturheimsagent! Hvernig þá? Hann lýsir mjög afdráttarlaust yfir þeirri sannfæring sinni í síðustu ísa- fold, að ástandið hér á landi sé fjarri því að vera glæsilegt. |>að eitt, að hann skuli láta aðra eins skoðun eftir sig sjást á prenti, er nú svo sam full-ískyggilegt. En hann gerír það sem lakara er. |>ann framfaraskort, sem hann hygg- ur eiga sér stað hér á landi, setur hann í samband við Vesturheimsferð- irnar, skirrist ekki við að telja mönn- um trú um, að menn leiti héðan af landi burt vegna þess, að ástandið sé lakara hér en í öðrum löndum. •Alþýða ber hag sinn hér á landi saman við hag manna í Vesturheimi,« segir hann. »0g hún gerir þetta al- veg hlífðarlaust. Á mannfundum geta menn klappað lof í lófa yfir framför- um landsms á síðustu 25 árum; en þegar Vesturheimshugurinn kemur í þá, þá er þetta gleymt. Ef þeir ímynda sér, að þeir muni hafa betri húsa- kynni f Vesturheimi, ef þeir ímynda sér, að börnin geti átt betri kost á að mentast, eða í einu orði, að hagur þeirra verði betri f Vesturheimi, þá fer að koma los á þá. f>á stoðar ekki frftmfarahjal eða frelsisglamur. f>á stoða ekki hamlandi og heftandi laga- fyrirmæli*. f>ó er enn ótalið bað Ijótasta, sem amtmaðurinn segir. Hann dirfist að halda því fram, amt- maðurinn sjálfur, að fari menn að gera sér það ljóst, hvernig hagur ís- lenzku þjóðarinnar sé í samanburði við hag annara þjóða, reyna af alhuga að bæta hag manna hér á landi og vekja trú og traust alþýðunnar á slíkum tilraunum — þá séu «allar skaðlegar Vesturheimsferðir hættar af sjálfu sér«. f>að stendur þá ekki á öðru en þessu, að fá Vesturheimsferðunum aftrað, eftir skoðun amtmannsins. Skaðlegar Vesturheimsferðir stafa þá e k k i af mann vonzku og heimsku — mannvonzku Vestur-íslendinga, sem vilja fyrir hvern mun draga skyld- menni sfn og kunningja út f sömu hörmungarnar, sem þeir hafa sjálfir lent í, og heimsku manna hér á landi, ■em láta tælast af slfkum ginningum. f>ær Stafa, eftir þvf sem amtmaðurinn hyggur, af því e i n u, að leiðtogaruir íslenzku gera ekki nógu mikla gang- skör að því, að kynna sér hag þjóð. arinnar og samanburð á honum og hag annara þjóða og reyna ekki af alhug að bæta hag mannahérá landi. Er það þá með þessum ummælum sínum, að amtmaðurínn norðan og austan er orðinn Vesturheimsagent ? Óneitanlega! f>að er að segja — e f nokkur snef- ill af viti, samvizku eða sannleika er í brigzlum þjóðólfs til Isafoldar um það, að hún sé að stuðla að Vest- urheimsferðum. Efnið í því, sem ísafold hefir sagt um þetta mál, er nákvæmlega hið sama, sem kemur fram í ummælum amtmannsins. Svo framarlega sem ekki sé gerð gangskör að því að bæta hag þjóðar- innar, eigum vér á hættu að missa skaðlega mikinn hluta hennar í aðra heimsálfu. f>etta er mergurinn málsins í því, sem Isafold hefir sagt, og þolað fyrir hin hörðustu ámæli, brigzl og dylgj- ur um að hún sé að reyna að koma mönnum burt af landinu. f>etta er og mergurinu málsins í þvf, sem amtmaðurinn segir. Beiti afturhaldsmálgagnið við hann sömu samvizku8eminni og viS ísafold, getur ekki með nokkuru móti hjá því farið, að það dembi agentstitlinum á hann. Svo langt er sem sé frjálslyndið — að vér ekki tölum um vitsmunina — kom- ið hjá málgagui því, er heldur uppi svörum fyrir afturhaldsliðið, að só því haldið fram, að hætta vofi yfir þjóð vorri og þess krafist, að reynt sé að verjast þeirri hættu, þá er af öllu afli kappkosiað að bæla niður slíkar umræður með hinum ógeðslegustu getsökum. Skýlausari afneitun alls umræðu- frelsia er ekki unt að hugsa oér. Og þar sem það frelsi er undirstöðuatriði og skilyrði alls frelsis þjóðarinnar, þá ætti það ekki að dyljast neinum, hve þarft verk afturhaldsmálgagnið er lát- ið vinna og hve heillavænlegt það er, að það hafi áhrif á hugi manna hér á landi. Armenía. Eftir Georg Rrandes. Armenía er Svíss Litluasíu, fjall- lendi sins og Sviss, en ófrjáls, þjökuð, kvalin. Land mergðarvíganna. Fjall- ið hátignarlega, Ararat, með tindunum tveimur, gnæfir þar upp úr öllu, og fjallgarðar Mesópótamíu og Persalands mætast umhverfis það. Hvert barn hefir lært, að örkin hans Nóa hafi Strandað þar. í Armeníu er mergð af stöðuvötnum, og þrjú þeirra eru afar- stór; en meira er þar af uppsprettum en nokkuru öðru. Alstaðar koma þær upp, hreinar og tærar, alstaðar auða þær og niða. Og alstaðar eru ár og lækir, verða fyrir manni við hvert fótmál og fossa ofan eftir hverri fjalls- hlíð. þar eru engjar miklar og akrar frjóir, gnægð af eplatrjám og peru- trjám, víneplum og granateplum. Og alstaðar syngja næturgalarnir. Alstað- ar spóka sig fasanar og páfuglar; í skógarbrúnunum nemur yndisleg skóg- argeitin stað, í fjallahlíðunum ótamin steingeit; en birnir, úlfar, hýenur og sjakalar eru lfka á vakki kringum þorpin. Alt þangað til sfðasti áratugur ald- arinnar hófst, átti þjóðin, sem þar á heima, ekki á hættu að verða upp- rætt, þó að hún ætti sífeldum ofsókn- um að sæta og oft 'væri róstusamt. |>að er lítil þjóð, nokkurar miljónir manna, á tiltölulega háu menningar- stigi, ein með elztu þjóðum veraldar- innar, með sjálfsagt 4000 ára sögu, arisk þjóð, sero snemma tók kristni. Múhameðstrúar-menn drotna yfir henni, menn, sem fyrirlíta hana og hafa s'kömm á henni vegna ’trúarbragða hennar, og vegna þess að menning hennar er menningu þeirra fremri. Landið liggur milli Bússlands, Tyrkja- veldis og Persalands, og mentaðir Arm- eningar kunna tungur allra þessara landa. Altltt er, að fullorðnir menn kunni einhverja Norðurálfutunguna áuk móðurmálsins, að líkindum flestir frönsku. Fjórir fimtu hlutar þjóðar- innar eru bændur; en verzlunarvits munum ermskra kaupmanna er við brugðið og þjóðin á vfsindamenn, rit- höfunda og skáld eins og framfara- þjóðir Norðurálfunnar. Á Berlínarfundinum 1879 tóku stór- veldin að sér að vernda kristna menn í Armeníu og Gyðinga í Búmeníu, svo að loksins yrði bundinn endir á þján- ingar þeirra, og, eins og nærri má geta, lofuðu Búmeníumenn og Tyrkir bót og betrun. Auðvitað var þetta alt hræsni og yfirdrepskapur. þeir, sem heitin unnu, létu sér ekki einu sinni til bugar koma að efna þau; þeir, sem heitin þágu, létu sór ekki til hugar koma að neyða hina með hervsldi til að standa við þau. Af- leiðingin hefir orðið sú, að Gyðingar í Búmeníu hafa síðan lifað í sllku helvíti, að kvalastaður sá er Dante lýsír, er svalur og friðsæll í saman- burði við það, og að á síðustu 7 ár- unum hefir eitthvað 300,000 Armen- ingum verið slátrað með slíkum pynd- ingum, að menn hafa hingað til hald- ið, að engir nema böðlar rannsóknar- réttarins mundu beita öðru eins. Algengum oddborgurum, rithöfund- um eða blaðamönnum finst ekkertum þessar voðatölur einmitt fyrir þá sök, hve háar þær eru. J>ær hafa ekki á- hrif á hugsjónaaflið, af því að þær setja enga glögga mynd fram fyrir hugskotssjónir manna. Hver getur hugs&ð sór nokkur hundruð þúsundir af líkum, eða þær ógnir, sem svívirt- ar og hrjáðar konur urðu að þola, áð- ur en þær gáfu upp öndiua, eða hung- urkvalirnar, sem fjötraðir bandingjar liðu í St. Jean d’Acres fangelsunum, áður en þeir létust? Ungur dan8kur rithöfundur hefir jafnvel sætt lagi að sýna fyndni sína í tilefni af þessu, látið þess getið, að Armeníumenn »hefðu getað haft tíma til aö losna við lífið á kvalaminni hátt en þann, að fá böðlunum verkið í hendur«. Ekki vantar glaðlyndið hjá æskulýðnum danska! Sannleikurinn mun vera sá, að í Danmörk láta menn sór ekki um ann- að hugað en Kaupmannahöfn með undirborgum hennar, í Noregi ekki um annað en þennan utanríkisráðgjafa og þessa konsúla, sem sjálfstæðis- sómatilfinning þjóðarinnar er bundin við. Á Norðurlöndum er það dr. Hans Kaarsberg einn, sem sýnt hefir, að hann láti sér nokkuð verulega ant um Armeníumenn, en þar sem hann hefir þá skoðun, að unt sé að hjálpa þeim með blaðagreinum, þá er barns- legur trúarstyrkur hans ekki síður furðanlegur en glaðlyndið í hinum mönnunum. Nítjánda öldin verður að sjálfsögðu á ókomnum öldum talin hin mikla öld náttúrufræðilegra uppgötvana og uppfundninga, og í því efni munu menn dást að henni jafnmikið eins og menn dást að tímabilinu fyrir og eftir 1500 fyrir myndlist. En að nálegu öllu þvf, er að stjórnaratferli lýtur, mun mönnum finnast hún hafi verið hrein og bein skrælingjaöld. Naumast verð- ur sagt, að þessi öld taki lifandi vit- und fram skuggalegustu tímabilum mannkynssögunnar að því er snertir frelsisfirring, fékúgun, pyndingar og mergðarvíg. Blóðsúthellingar Nerós eru beinlíuis barnaleikur í samanburði við það, sem Abdúl Hamíd hefir að hafst, grimdarverk Nerós viðvanings- kák f samanburði við þá snilli, er Abdúl Harníd hefir sýnt í pyndingum og manndrápum. Og svo er þess gætandi, að á Nerós dögum var morð- iriginn mikli dýrið í opitiberunarbók- inni í augurn kristinna manna, þó að ekki væri unt aó láta ltann sæta hegn- ingu; en á vorutn dögum eru öll krist- in stórveldi beztu vinir Abdúl Hamíds og engum hefir orðið að vegi að leit- ast við að aftra honum minstu vitund. Jafnframt gæti menn þess, að þesBar sömu kristnu Norðurálfuþjóðir, sem ekki hafa hrært legg nó lið, þó að þær hafi vitað 300 þúsundir kristinna manna pyndaðar og líflátnar í löndum Tyrkja í Norðurálfu og Austurálfu, þær hugsa með viðkvæmum áhyggjum um vesala og hlægilega trúarboðsstarf- semi í Kína. |>á má fá mælikvarða á hyldýpi stjórnvizku-yfirdropskapar- ins og trúmálahræsninnar núna um aldamótin. |>egar öldin, sem nú er að kveðja, snerist um möndul sinn árið 1848, gerðu menn sér í hugarlund, að síð- ari helmingur hennar mundi verða notaður til að meðhöndla vandrædd- ustu málin, sem tímabær voru þá, félagsleg, stjórnfræðileg, heimspekileg, uppeldismál einstaklingsins og mann- kynsins. Hin gömlu, einföldu, stór- gerðu mál um sjálfsforræðisrótt og sjálf- stjórn þjóðanna, friðhelgi þjóðflokka og einstaklinga, prentfrelsi og frjálsa verzlun, trúarbragðafrelsi og hugsun- arfrelsi, umræðufrelsi og fundafrelsi o. s. frv. — slíkum málum hugðu menn þá til lykta ráðið fyrir fult og alt, og að enginn ætti framar að eyða neinum orðum að þeim. Og meira en 50 árum síðar eru langt fram yfir 100 miljónir ánauðugra og réttarvana manna á Bússlandi, menn, sem þar af leiðandi eru hættu- legir fyrir samvistamenn sína, menu, sem ekki mega lesa nokkura bók eða nokkurt blað, því siður rita nokk- ura bók eða nokkurt blað, nema stjórn- endur þeirra meti þann lestur eða þau ritstörf meinlaus. Ög það eitt, að meira en hundrað miljónir sætta sig við önnur eins kjör, hefir gjörspilt hinum helmingi Norðurálfunnar. Alt í kringum mann er verið að brjóta þjóðerni manna á bak aftur, alt í kringum mann eru hugsanir beztu mannanna að bisa við gömul trú- arkreddu- og þjóðernismál, sem fyrir löngu hefði átt að vera búið að ráða fram úr, mál, sem ekki er unt áð segja nokkurt nýtt eða skynsamlegt orð um framar. Enn vekja þessi mál eldlegan áhuga, gera menn að hetjum og svikurum, verða tilefni til afreks- verka, sem áttu heima hundrað árum áður í mannkynssögunni, og valda böli og skelfingum, sem hefðu átt að vera undir lok liðnar naeð miðöldunum. Að því er snertir margar, margar miljónir manna, er lífi og hugsun nú- lifandi kynslóða eytt í gersamlega úr- elt efni, er deilt hefir verið um alt það, er una þau verður deilt. Hver einstakur maður lifir að eins þessu eina lffi, og helmingur þess, sem að er hafst, er sífeldar tafir fyrir fram- förum mannkynsins. Undarlegt kann það nú að virðast og bera vitni um harðlyndi, að hafa um langan tíma verið að hugsa um meðferðina á Armeníumönnum, þekkja nokkura af hinum beztu mönn- um þeirra, körlum og konum, hafa verið vottur að því, hvílíkar þrautir mennirnir hafa þolað, hvílíka hug- prýði þeir hafa sýnt, og hverníg öllu lýkur eftir margra ára baráttu með almennum manndrápum — og binda

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.