Ísafold - 17.11.1900, Side 4

Ísafold - 17.11.1900, Side 4
280 CRAWFORDS ljúffenga BISCUITS (smákökur) tilbúifi af CRAWFORDS & Son Edinborg og London Stofnað 1813. Einkasali fyrir Island og Fœreyjar : P. Hjortli & Co. Kjöbenhavn. Gleymið því ekki að þyrilsskilvindurnar—Kronse- paratorer — sena eru af nýustu, beztu og fullkomnustu gerð og þó ó- dýrari en allar aðrar skilvindur —, ættu að vera á hverju hsimili. Ymsir, sem hafa reynt þær, segja þær vera bezta grípinn í eígu sinni. Pantið þær sem fyrst hjá kaupmanni þeim, sem þér skiftið við eða hjá einhverjum þeirra kaupmanna, sem taldir eru í auglýs. í »Isafold« í júli og ág. þ. á. AÐALSELJENDUR: Islandsk Handels & Fiskerikompagni Kjöbenhavn C- Eg hefi mörg ár þjáðst af tauga- veiklun og slæmri meltingu, og hefi eg reynt ýms ráð við því, en ekki komið að notum. En eftir að eg hefi nú eitt ár brúkað hinn heimsfræga Kínalífsel- ixír, er hr. Waldemar Petersen í Frið- rikshöfn býr til, er mér ánægja að geta vottað, að Kínalífselixír er hið bezta og öruggasta meðal við alls kon- ar taugaveiklun og við slæmri melt- ingu, og tek eg því eftirleiðis þenna fyrirtaksbitter fram yfir alla aðra bitt- era. Reykjum. Rósa Stefdnsdóttir Kína-lifs-elixírinn fæst hjá flest- nm kaupmönnum á íslandi. Til þess að vera viss um, að fá hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupend- ur beðnir að líta vel eftir því, að standi á flöskunni í grænu lakki, og eins eftir hinu skrásetta vörumerki á flöskumiðanum: Kínverji með glas í hendi og firmanafnið Waldemar Pet- ersen, Frederikshavn, Danmark. Samkvæmt skipulagsskrá »Styrktar- sjóð3 Hanuesar Árnasonar til eflingar heimspekilegum vísindum á íslandú Btaðfestri 26. maí 1882 (Stjórnartíðindi 1882, B. bls. 115), auglýsist hér með, að styrk af nefndum sjóði verður út- býtt í fyrsta sinn 11. júní 1901. Bón- arbréf um styrk þennan, stíluð til landshöfðingja, sendist stiftsyfirvöld- unum fyrir 31. maí 1901. Styrkurinn veitist til fjögra ára, 2000 kr. hvert ár, samkvæmt skilyrð- unum í skipulagsskránni, 3. og 4. gr. Stiftsyfirvöld íslands, Rvík 3. nóv. 1900. J. Havsteen. Hallgr. Sveinsson. Proclairtíi. f>ar eð bú Benédikts Pálssonar frá Krossstekk í Mjóafjarðarhreppi hefir verið tekið til skiftameðferðar sem þrotabú sarnkvæmt lögum 13. apríl 1894, er hér með samkvæmt skifta- lögunum frá 12. apríl 1878 og opnu bréfi 4. jan. 1861 skorað á alla þá, er telja til skulda hjá nefndum Benedikt Pálssyni, að lýsa kröfum sínum og sanna þær fyrir skiftaráðanda Suður- Múlasýslu áður en 6 mánuðir eru liðn- ir frá síðustu (3.) birtingu þessarar innköllunar. Skrifstofu Suður-Múlasýslu, Eskifirði 26. oktbr. 1900. A. V. Tulinius. Proclama. f>ar eð bú Sveins snikkara Árnason- ar frá Búðum í Fáskrúðsfjarðarhreppi hefir verið tekið til skiftameðferðar sem þrotabú samkvæmt lögum 13. apríl 1894, er hér með samkvæmt skifta- lögunum frá 12. - apríl 1878 og opnu bréfi 4. jan. 1861 skorað á alla þá, er telja til skuldar hjá nefndura Sveini Árnasyni, að lýsa kröfum sínum og samia þær fyrir skiftaráðanda Suður- Múlasýslu áður en 6 mánuðir eru liðn- ir frá síðustu (3.) birtingu þessarar innköllunar. Skrifstofu Suður-Múlasýslu, Eskifirði, 26. okt. 1900. A. V. Tulinins. Proclama. Með því að bú Sigvalda Bergsteins- sonar frá Rjúkinánm í Mjóafjarðar- hreppi hefir verið tekið til skiftameð- ferðar sem þrotabú eftir kröfu hans sjálfs samkvæmt lögum 13. apríl 1894, er hér með samkvæmt skiftalögunum 12. apríl 1878 og opnu bréfi 4. jan. 1861 skorað á alla þá, er telja til skuldar hjá nefodum Sigvalda Berg- steinssyni, að lýsa kröfum sínum og sanna þær fyrir skiftaráðanda Suður- Múlasýslu áður en 6 niánuðir eru liðn- ir frá síðustu (3.) birtingu þessarar innköllunar. ' Skrifstofu Suður-Múlasýslu, Eskifirði 26. okt. 1900. Á. V. Tulinius. Proclama. Með því að bú Eyólfs E. Wium frá Búðum í Fáskrúðsfirði hefir verið tek- ið til skiftameðferðar sem þrotabú eft- ir kröfu hans sjálfs samkværat lögum 13. apríl 1894, er hér með samkvæmt skiftalögunum frá 12. april 1878 og opnu bréfi 4. jan. 1861 skorað á alla þá, er telja til skuldar hjá nefndum Eyólfi E. Wíum, að lýsa kröfum sín- um og sanna þær fyrir skiftaráðanda Suður-Múlasýslu áður en 12 mánuðir eru liðnir frá síðustu (3.) birtingu þess- arar innköllunar. Skrifstofu Suður-Múlasýslu, Eskifirði 26. okt. 1900. A. V. Tulinius. Hér með er skorað á efingja stúlk- unnar Guðrúnar Finnsdóttur, sem and- aðiat að Saurbæ á Rauðasandi 17. d. desbr.mán. f. á., að gefa sig fram við skiftaráðanda hér í sýslu áður en 6 mánuðir voru liðnir frá síðustu birt- ingu þessarar auglýsingar. Skrifstofu Barðastr.sýslu, 25. okt.1900. Halldór Bjarnason. Innköllun. Hér með er, samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og opnu bréfi 4. jan. 1861, skorað á alla þá, sem telja til skulda í dánarbúi verzlunarstjóra Eyólfs E. Jóhannssonar, sem andaðist í Flatey á Breiðafirði 23. d. aprílm. þ. á., að lýsa kröfum sínum og sanna þær fyr- ir skiftaráðandanum í Barðastrandar- sýslu áður en 6 má„u;'it ð^u nir frá síðustu birtingu þessarar nnköll- unar. Erfingjar takast ekki á hendur á- byrgð skulda. Skrifst. Barðastr.sýslu 25. okt. 1900. Halldór Bjarnason. Til sölu ýmsir fallegir og sterkir íiskiknerr- Ír (Cutters), 60—90 smál., fyrirtaks- skip til fiskiveiða með ströndum fram. Sömul. ódýrir gufubotnvörpungar guftr-síldarveiðaskip, gufusmá- bátar Og alls konar gufuskip og segl- skip. Um*nánari vitneskju og lægsta verð má snúa sér til W. A- Massey & Co. Hull, England. Símrit: Massey, Hull. Lítið íbúðarhús á Sauðárkróki, 2 ára gamalt, fæst til kaups. Lyst- hafendur snúi sér til kaupmanns V. Claessen um frekari vitnsskju. Uppboðsauglýsing’. þriðjudaginu 20. þ. m. kl. 11 f. hád. verður opinbert uppboð baldið í Aðalstræti nr. 12 og þar seldur ým- islegur búðar\%rningur tilheyrandi dán- arbúi M. Johannessen, svo sem : slipsi, hálslín, hanzkar, teppi, áteiknað klæði, dúkar, garn, granadín, Java, silki- tvinni, fjaðrir, snúrur, klútar o. m. fl. Ennfremur verður selt: vagnar, mast- ur með spriti og seglum, járngluggar, decimalvigt, lóð, reiðtýgi, þakpappi o.fl. Söluskilmálar verða birtir fyrir fram. Bæjarfógetinn í Rvík, 14. nóv. 1900. Halldói* Daníelsson. Samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og opnu brjefi 4. janúar 1861 er hjer með skorað á alla þá, er telja til skuldar í dánarbúi Árna Finnssonar frá Skálholtskoti, sem andaðist (féll útbyrðis af gufubátnum Hólum) 2. þ. m., að lýsa kröfum sínum og sanna þær fyrir skiftaráðandanum í Reykja- vík áður en 6 mánuðir eru liðnir frá síðustu birtingu þessarar auglýsingar. Bæjarfógetinn í Rvík 12. nóvbr. 1900. Halldór Daníeisson. Samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og opnu brjefi 4. janúar 1861 er hjer með skorað á alla þá, er telja til skuldar í dánarbúi þorgils Jónssonar, verzlun- armanns, er andaðist hér í bænum 31. f. m., að lýsa kröíum sínum og sanna þær fyrir skiftaráðandanum í. Reykja- vík áður en 6 mánuðir eru liðnir frá síðustu birtingu þessarar auglýsingar. Bæjarfógetinn í Rvík 12. nóvbr. 1900. Halldór Daníelsson. Hér með auglýsist, að þeir sem sækja vilja um styrk úr »StyrktarBjóði skipstjóra og stýrimanna við Faxaflóa«, verða að hafa sent bónarbréf þar að lútandi stíluð til stjórnar Oldufélagsins fyrir útgöngu þessu árs. Styrkurinn veitist einungis fólags- mönnum Oldufélagsins, ef þeir vegna heilsubrests ekki geta stundað atvinnu sína og eru hjálparþurfar, samt ekkj- um félagsmanna og eftirlátnum börn- um. Stjórnin. Á næstliðnu hausti komu fyrir þrjár kindur, tveir sauðir hvítir veturgaml- ir og eitt svart hrútlamb með mínu marki, sem er: einn biti aftan hægra. Nú skora eg á þann sem þetta mark brúkar, að gefa sig fram innan þriggja mánaða og semja við mig og borga þessa auglýsingu, en vitja andvirðis kindanna, sem eg mun vísa á. Suðurklöpp 15. nóvbr. 1900. Jósep Jónsson Reykjavík. Hálf jörðin Jófríðarstaðir við Hafnarfjörð fæst til kaups og ábúðar í næstkomandi fardögum 1901. Með- fylgjandi er: vandað og blýtt íbúðar- hús úr timbri ÍU/^ X 10 ál. að stærð; heyhús og hjallur, sömul. úr timbri; fjós og fjárhús; veggir úr torfi og og grjóti, þök og stafnar úr timbri. Oll eru húsin ógölluð og í bezta standi. Borgunarskilmálar aðgengileg- ir. Lysthafendur snúi sér hið fyrsta til undirritaðs. Jófríðarstöðum 15. nóv. 1900. Hajliði Þorvaldsson. Hálf jörðin H A G 1 í Holtahreppi er laus til ábúðar í næstk. fardögum 1901, og til sölu, ef óskað er. Jörðin gefur af sér töðu handa 4 kúm, engj- ar allgóðar með áveituskurðum og undanfæri mikið. Hagbeit góð fyrir hross og fé. Silungsveiði töluverð í Gíslaholtsvatni. Kirkjan, sem á jörð- inni stendur, er safnaðareign. Menn snúi sér til ábúanda og oiganda nefndr- ar jarðar, H a nnesar þórðar- s o n a r. Samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og opnu brjefi 4. janúar 1861 er hér með skorað á alla þá, sem telja til skuld- ar í dánarbúi M. Johannessens kaup- manns, sem andaðist hjer í bænum 30. f.m., að lýsa kröfum sínum og sanna þær fyrir skiptaráðandanum í Reykjavík áð- ur en 12 mánuðir eru liðnir frá síð- ustu birtingu þessarar auglýsingar. Bæjarfógetinn í Rvík 9. nóvbr. 1900. Halldór Daníolsson. Uppboðsauglýsing. þriðjudaginn hinn 4. des. næstk., kl. 4 e. h. verður hálft húsið Hábær í Vogum og ýmsir lausafjármunir til- heyrandi Eyleifi Jónssyni, nú í Amer- íku, seldir við opinbert uppboð, sem haldið verður í húsi því, er selja á. Söluskilmálar verða birtir á uppboðs- staðnum fyrir uppboðið. Skrifstofu Gullbringu-og Kjósarsýslu 5. nóv. 1900. Páll Einarsson. UppboðsaugJýsing. Miðvikudaginn binn 5. des. næstk., kl. 12 á hádegi verður opinbert upp- boð haldið að Tjarnarkoti í Njarðvfk- um og þar selt: £ jörðin Tjarnarkot og ennfremur ýmsir lausafjármunir til- heyrandi þórði þórðarsyni, nú í Amer- íku. Söluskilmálar verða birtir á upp- boðsstaðnum fyrir uppboðið. Skiifstofu Gullbringu-oa Kjósarsýslu , 5. nóv. 1900 Páll Einarsson. Uppboðsauglýsing. Samkvæmt kröfu landsbankans og að undangengnu fjárnámi hinn 3. f. m. verða b/6 hlutar úr jörðinni Tröð á Álftanesi boðnir upp til sölu við 3 opinber uppboð, sem haldin verða laugardagana 1., 15. og 29. desember næstkomandi. Tvö hin fyrstu uppboð- in fara fram á skrifstofu sýslunnar, en hið síðasta á jörð þeirri, er selja á, og byrja uppboðin kl. 12 á hádegi. Söluskilmálar verða til sýuia hér á skrifstofunni 2 dögum fyrir hið fyrsta uppboð. Skrifstofu Gullbringu-og Kjósarsýslu 7. nóv. 1900. Páll Einarsson. Heiöruðu húsmæður! Munið eftir, að eg tek á móti U 11 ogUllartuskum hvenær sem ykk- ur þóknast að koma með sendingarn- ar til mín, og svo sendi eg þær með fyrstu ferð sem fellur til Danmerkur til þess að láta vinna úr þeim Fata- tau, Kjólatau og Vergarn, eftir því sem þið óskið. Vinnan er fljótt af hendi leyst! Mjög væg borgun ! Virðingarfylst Valdimar Ottesen. SkauMélagið. Aðalfundur verður haldinn þriðju- daginn 20. nóv. kl. 8'Á síðdegis í Iðn- aðarmannahúsinu. Fundarefni: 1. Stjórnin skýrir frá gjörðum sínum. 2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram 3. Kosin stjórn. 4. Kosnir endurskoðendur. 5. Rædd uppástunga um endurskoðun laganna. 6. Rædd fólagsmál, ef einhver æskir. Reykjavík 12. nóv. 1900. Stjórnin. Til sölu hin alþekta Kasthúsalóð hér í bænum, nóg undir 4 hÚB. Semja mávið Helga Teitsson, Vesturgötu 51. Ritstjórar: Björn Jónsson(útg.og ábm.)og Einar Hjörleifsson. Isafol darprentsmiðja.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.