Ísafold - 12.12.1900, Blaðsíða 3
Meiri »vísindamenska«.
Nú er kornin önnur glepsan frá
rektor út af Stafsetningarorðbókinni,
í málgagninu hans 7. þ. m., og mun
vera ekki stórum veigameiri en hin
fyrsta, sem nefnd var um daginn —
þar sem hann meðal annars lét ís ta ð
vera sama og s t í g v é 1! Eins og vér
ráðgerðum þá, látum vér frekari afskifti
af þessum peðringi vísindastórmeistar-
ans bíða að sinni, þangað til ef hann
kemst einhvern tíma dálítið áleiðis
með »vísdóminn«.
Vér minnumst í þetta sinn að eins
á eitt atriði, rétt til gamans.
J>að er hinn mikli rembingur í
manninum út af því, að í orðabókinni
stendur f ó e r 1 a, en ekki f ó e 11 a, og
lætur hann það vera sprottið af ó-
dæma fákænsku höf. í dýrafræði; hann
viti sýnilega ekki, að maríuerla heyri
til spörfuglakyninu, en fóerla anda-
kyni, og því hljóti að vera rangt að
rita þessi tvö fuglsheiti eins, — þ. e.
síðari hluta orðsins.
|>að er heldur en ekki sannfæraudi,
þetta!
|>að er sem sé bygt á þrí, að allir
þeir, er gefið hafa fuglum eða öðrum
dýrum alþýðleg heiti, alt frá Adam til
vorra tíma, hafi verið náttúrufræðingar,
og því aldrei látið sér detta í hug, að
velja skyld heiti nema skyldum fugl-
um eður dýrum, — a 11 i r verið nátt-
úrufræðingar, þótt auðvitað eigi hon-
um jafnsnjallir, yfir-fræðingnum í öll-
um vísindagreinum.
Já, það stendur ljómandi vel heima,
þetta.
Keldusvínið heitir því nafni af því,
að það er af svínakyninu (sus)!
þórshaninn heitir hani af því, að
hann er af hænsnakyninu (gallus)!
Torfgrafarálftin ber það nafn af því,
að hún er af álftakyninu (cygnus)!
Hámeri er'vitanlega af hestakyniuu
(equus), úr því hún heitir meri, óska-
björn af bjarndýrakyninu (ursida), kol-
krabbi af krabbakyninu (crustacea),
fiæðarmús af músakyninu (murida), og
sænaut (sirenia) og jötunuxi af nauta-
kyninu (bos)!
f>ví eru ekki náttúrufræðiskennar-
arnir látnir kaupa sér aukatilsögn hjá
rektor í dýrafræði, til þess að verða
sór ekki til minkunar fyrir lærisvein-
um sínum. f>að er alveg áreiðanlegt,
að þ e 11 a vita þeir (kennararnir)
ekki.
Ekkert framhald af »vísindamensk-
unni« í gær í rektorsmálgagninu, svo
miklu þunnmeti sem það hafði þó
kastað á svanginn hjá sér. Er þvf
náunginn farinn að gizka á, að hann
(rektor) muni hafa tekið »ketlinginn«
sinn (»stígvélaða köttinn«) heim aftur
úr fóstrinu hjá félaga sínum, f>jóðólfs-
manninum, til þess að karra hann bet-
nr — hann langi ekki í annan eins
snoppung aftur og þann um daginn
fyrir í s t a ð i ð, sem hann hélt vera
s t í g'v é 1. f>exr vita þá, hverju þeir
eiga von á næstu vikurnar, hinir
heldri kunningjar hans: látlausri »æf-
inga«-rás heim til þeirra til þess að
sía betur »vísdóminn«, þ. e. framhaldið,
áður en það fer á prent.
Síra Bjarni J?orsteinsson
hiður þá, er keypt hafa hinn nýja »ís-
lenzka hátiðasöng« hans, að leiðrétta
tvær prentvillur, sem slæðst hafa inn í há-
tiðasönginn: Önnur er á hls. 24 í l.takti
i neðstu linu; þar eru í vinstri hendi nót-
urnar cis — e, en á að vera A — cis. Hin
er á hls. 35. Þar er fyrsta nótan í hass-
anum við svarið: »0g með þinum anda«
fis, en á að vera a.
Niðurjöfnunin.
Er það rétt, sem skýrt er frá í næstsíð-
asta thl. Isafoldar, að einn í niðurjöfnunar-
nefnd Reykjavikur (E. F.) hafi gengið úr
nefndinni? Og i öðru lagi, er ekki niður-
jöfnunin fyrir næstkomandi ár ógild,þeg-
ar að eins 6 menn hafa um' hana fjallað?
í tilskipun um bæjarstjórn í Reykjavik,
dags 20. apríl 1872, 20 gr. er það skýrt
tekið fram, að tala nefndarmanna i niður-
jöfnunarnefndinni »skal standa á stöku«.
Hefir enginn ábyrgð á, að þess sé gætt,
eða er þetta iagaákvæði úr lögum numið?
Og i þriðja lagi, hefir nokkur slík nefnd,
sem niðurjöfnunarnefnd (eða formaður henn-
ar) vald til að vikja einum af meðlimum
sinum burtu? Þarf ekki til þess úrskurð
eða skipun æðra valds?
Reykjavik 3. des 1900
B. M
Sjöuudi nefndarmaðurinn, sá er hér um
ræðir, segist ekki hafa úr nefudinni geng-
ið, heldur kveður sig aldrei hafa kvaddan
verið á fundi nefndarinnar í þetta sinn;
aðrir segja það munu hafa verið samkomu-
lag rnilli hans og formanns nefndarinnar.
En ógild getur niðurjöfnunin alls eigi verið
fyrir það, með því lögin gera ebki ráð
fyrir varanefndarmönnum, en því að eins
væri auðið að afstýra þvi, að nokkurn tíma
ynnu i nefndinni færri en 7 menn, með því
að ávalt getur einhver forfallast, vegna
veikinda eða annars, en nefndinni skipað
að hafa starfi sínu lokið á tilteknum tima.
Það er sama um bæjarstjórnina. Þar á og
tala fulltrúanna að standa á stöku, en jafn-
gildar ern allar gjörðir hennar fyrir þvi, þótt
svo sé eigi — Þriðju spurningunni þarf
því að eins að svara, að sannað sé,
að nefndin sjálf hafi vikið manni úr sinum
hóp. Bitstj.
Víssvitandi ósannindi.
í »f>jóðólfi« stóð 7. þ. m. grein með
fyrirsögninni: »VölBkurnar ....
Höf. ritar auðsjáanlega í þeim til-
gangi, að gefa lesendum í skyn, að eg
í »Nýju Öldinni« III, 3—4 aé að fær-
ast undan þvf, að vera »meðhöfundur«
að stafBetningarorðbókinni nýju eftir
hr. Björn Jónsson, og orsökin er ætl-
ast til að lesendur hugai sé sú, að eg
álíti bókina svo lélega, að eg telji
mér vansa að því, að vera »meðhöf-
undur« að henni. Auðvitað er þessi
grein ætluð þeim, sem ekki lesa »Nýju
Öldina«; því að úr því greinin er »að-
send«, má ætla höf. það skyn, að
hann, eins og hver meðalskýr maður,
skynji, að þetta er ósatt mál, sem
hann fer með.
Eg þurfti ekki að bera af mér, að
eg væri »meðhöfundur« bókinnar, því
að enginn hefir haldið því fram; höf.
orðbókarinnar segir í formálanum ná-
kvœmlega rétt frá þvi litla, sem eg
lagði til bókarinnar (»að lagfæra ým-
ielegt í próförk«). Ástæða mín til, að
taka það skýrt fram í »N. 0«, að
þátcur eá, sem eg ætti í bókínni, væri
lítill, og að eg þyr/ti ekki á óðru á-
byrgð að bera en bendingum mínum,
var bú, að sýna, að eg væri svo lítið
við bókina riðinn, að eg gæti talað al-
veg óhlutdragt um hana fyrir þá sök.
f>etta gerði eg af því, að eg lauk lofs-
orði á bókina, og þó reyndar minnu
en hún á skilið, því að eg vildi ekki
draga úr gildi orða minna með neinu
akjalli. En úr því að tilraun er gerð
til að leggja orð mín út alveg gagn-
stætt tilgangi þeirra, skal eg segja
það, og reyna að standa við það, að
bókin er betur samin en bækur flestar
geraat. Villur þær, sem eg hefi var
yið orðið, eru tiltölulega örfáar í sam-
anburði við orðafjöldann (líkl. um
10,000 orð). f>ótt takast mætti, að
tína til svo sem 2—3 villur (að prent-
villum meðtöldum) í hverjum þúaund
orðum, þá tel eg það furðu-lítið í
frumsmíð, og munu íáar sams konar
bækur í öðrum málum gallafærri í 1.
útgáfu. f>eir, sem á slíkri bók þurfa
að halda, munu örejaldan leita árang-
urslaust 1 þessari bók að vandstöfuðu
orði, nema því fátíðara bó í riti, og í
997—999 tilfellum af 1000 mun þeim
óhætt að reiða sig á svarið.
Keykjavík 10. des. 1900.
Jón Olaýsson.
TIL VERZLUNAR
eru nýkomnar neðantaldar vörur:
Kaffi — Export — Hvítasykur — Strausykur — Púðursykur ■— Grjón
— Bankabygg — Baunir */i og ]/2 — Sago — Flormjöl — Kartöflumjöl
— Byggmjöl — Haframjöl — Overheadmjöl — Hænsnabygg — Kartöflur
— Laukur — Epli — Korsör-inargarine —■ Rúsínur — Sveskjur —
Kirsiber — Gráfíkjur — Kúrennur — Möndlur — Citronolia — Makaroni
— Syltetöj •— Marmelade -— Eggjapúlver — Gerpúlver — allsk. Krydd —
Colm. Mustard — Sucat — Borðsalt — Fuglafræ — Chocolade — Cocoa
— Konfekt — Brjóstsykur — Mejeriostur — Goudaostur — Mysuostur —•
Ejdammerostur Niðursoðið — Humrar — Lax — Sardínur — Mackrel
— Kjöt — Leverpostej — Pickles — Ananas—Perur — Grænar ertur
(fínt merki)
20 mismunandi teg. af KafFi'brauði og Tekexi, hvergi eins ó-
dýrt. — Tvíbökur — Kringlur — Skonrok — Alls konar Tóbak ogf 12
teg. hollenzkir vindlar. Ymiskonar vín. Saft.
Ymislegar jólavörur, þar á meðal margir munir hentugir til jólagjafa
handa fullorðnum og börnum — Jólakerti — alinkerti —• Dekorationskerti
— Ljósaklemmur — ýmisl. góðgæti til að hengja á jólatré — Gratulations-
kort — Spil o. fl.
Mikið af allskonar járnvörum ogemail. Eldhúsgögnum. Fyrir kr. 600
alls konar Slipsi og Hálslín — Brjósthlífar — Hattar — Húfur o. m. fl.,
sem hér yrði of langt upp að telja.
Uppboösauglýsing.
Eftir kröfu kaupmauna og kaupfé-
lagsstjóra Skúla Thoroddsen á Isafirði
og að undangengnu fjárnámi verður
húseign Guðmundar skipasmiðs Guð-
mundssonar, virðingarnr. 68 hér í
kaupstaðnum, boðin upp við 3 opinber
uppboð, er haldin verða laugardagana
22. desbr. þ. á. og 12. og 26. janúar 1901
til lúkningar dómsskuld, að upphæð
2953 kr. 21 eyri, og áföllnum kostnaði;
tvö hin fyrstu uppboð verða haldin
á skrifstofu bæjarfógeta, enhið 3. við
húseignina. A þriðja uppboðinu verða
ennfremur seldar nokkrar útistandandi
skuldir, ýms stofugögn og aðrir munir.
Á húseigninni hvíla þessar þinglesn-
ar, óaflýstar veðskuldir :
með öðrum veðrétti til Guðm. Árna-
sonar á Nauteyri kr. 135,
með 1. veðrétti til Vilhjálms Pálsson-
ar frá Hnífsdal kr. 700,
með 2. veðrétti til Jóns Jónssonar á
Hrauni kr. 800
og verður húseignin því að eins seld,
að hærra boð fáist en veðskuldum
nemur.
Uppboðin byrja kl. 11 f. h.ogverða
söluskilmálar lagðir fram á skrifstofu
bæjarfógeta degi fyrir hið fyrsta upp-
boð.
Bæjarfógetinn á ísafirði, 7. nóv. 1900.
H- Hafstein-
SILKIPAPPÍR alla vega litur fæst
í afgreiðslu ísafoldar.
Rauðgrár foli 2 vetra mark: biti aft. hægra,
var seldur í Seltjarnarne»hreppi 3. desember
þ. á. Réttur eigandi getur fengið hann út-
leystan, ef hann gefnr sig fram fyrirö. jan-
úar 1901 og borgar áfallinn kostnað; eftir
þann tima andvirðið, að frádregnum kostn-
aði, fyrir nsestu fardaga.
Lambaitöðum, 8. des. 1900.
Ingjaldur Sigurðsson.
Uppboðsauglýsing.
Hér með 'auglýsist, samkvæmt á-
kvæði skiftafundar í þrotabúi Sigurð-
ar bónda Sigurðssonar frá Rauðamel
ytrn, að jarðir búsins: Rauðimelur
ytri 37,1 hndr., Hausthús 10,6 hndr.,
og Hömluholt 10 hndr., allar í Eyja-
hreppi innan Hnappadalssýslu, verða
seldar á 3 opinberum uppboðum, er
verða haldin laugardagana 20. apríl,
4. og 18. maí 1901. Tvö fyrstu upp-
boðin verða haldin á skrifstofu sýsl-
unnar í Stykkishólmi, en hið síðasta
á eignunum ejálfum. Uppboðin byrja
öll kl. 10 f. h.
Söluskilmálar verða til sýDÍs á skrif-
stofu sýslunnar nokkru fyrir fyrsta
uppboðið.
Sýslumaðurinn í Snæfellsness-og
Hnappadalssýslu, staddur í Reykjavík
9. nóv. 1900.
Lárus H. Bjarnason.
Finir skimihanzkar
fást hvergi eins ódýrir og í verzlun
JÓNS ÞÓRÐARSONAR.
Flestum er í fersku minni hið mikla
manntjón, sem varð á Arnarfirði í ofsaveðr-
inu 20. sept. í haust, þar sem 18 menn
druknuðu frá 7 ekkjum og 16 börnum á
unga aldri.
Til þess að rétta hjálparhönd og dálitið
reyna að iétta þessum munaðarleysingjum
neyðina og sorgina, ætlar »Utgerðarmanna-
félagið við Faxaflóa* og skipstjórafélagið
«Aldan« að stofna til samskota og Tom*
bólu, sem haldin verður i Handiðnamanna-
húsinu laugardaginn 15. og sunnudaginn
16. þ. m. kl. 5—10 báða dagana.
Nokkur hluti þess, er inn kemur, gengur
einnig til fátækustu ekknanna eftir menn
þá er druknuðu næstliðið vor á skipinu
»Fálkanum«.
Undirtektir hafa verið mjög góðar að
styðja þetta fyrirtæki, enda er þörfin mikil
þeirra sem þéssa eiga að njóta, svo búast
má við, að talsvert verði gefið, og má
senda það til vor undirskrifaðra, sem tök-
um á móti þvi með þakklæti.
Björn Guðmundsson. Jðhannes Jósefsson.
Bjarni Jónsson. Páll Hafliðason.
Finnur Finnsson. Stefán Pálsson.
Hannes Hafliðason. Tr. Gunnarsson.
Helgi Helgason. Þorsteinn Þorsteinsson.
Pétur Sigurðsson. Jóhannes Hjartarson.
Reykt kjöt
Kœfu
Smjör nýttog*
Rjúpur
kaupir verzl. Jóns pórðarsonar.
Rvik
Epli — Appelsínur — Vínber—Lauk-
ur og Kartöflur f verzl.
, N Ý H Ö F N
ZSS- Hjá H0ST bóksala í
Khöfn fást þessar bækur frá bók-
verzlun ísafoldarprentsmiðju:
Dönsk orðabók innb. kr. 6,oo
Stafsetningarorðbók — o,8o
Fornsöguþættir I—III
,innb., hvert bindi á. . . — i,oo
Páls-kvæði
_______ bundin eða
óbundin — Jón Ólafsson.
Falleg jólagjöf
T a p a s t á veginum aðElliðaám b 1 e i k-
r a n 11 herðasjal. Finnandi skili að Lága-
felli.
skrautútgáfa
í skraut-
bandi, fæst
í bókverzlun Isafoldarprentsmiðju á
2 lcr,; ódýrri útg. á i kr. og D/skr*