Ísafold - 20.04.1901, Blaðsíða 3
91
útihúsi við hús Ásg. Sigurðssonar við
Suðurg. 2040 kr.
í’ormaður tilkynti, að hann væri
búinn að byggja Klopp f>orbirni Finns-
eyní frá Víðimýri.
Beiðni frá Sturlu Jónssyni um við-
bót við erfðafestuland hans við Fúlu-
tjarnarlæk frestað til skoðunar á
staðnum.
Kosin nefnd til að íhuga Tjarnar-
málið (sbr. síðasta bl.): Jón Jensson,
Sig. Thoroddsen, |>órh. Bjarnarson.
Austur-Sbaftafellss. 19. marz:
Héðan er fátt nýtt að frétta.
Veðrdtta hefir mátt heita hin æskileg-
asta í allan vetur. Að hvassviðrnm þeim,
sem blöðin geta um, að valdið hafi skaða,
hefir ekki orðið tjón að nnin hér nálægt.
I útsynningsroki, sem gjörði 21. janúar,
tapaði öísli Þorvaroi rson í Papey bezta
bátnnm sinum á sjó út.
Ekkert er enn farið að lifna við sjó hér
eystra, en mikið er af botnvörpungum hér
úti fyrir, og hefir verið við og við í allan
vetnr.
Skepnuhöld ern alstaðar góð, og heil-
brigði manna almenn.
Kaupmaður Otto Tulinius i Höfn við
Hornafjörð ætlar að kaupa verzlun Krist-
jáns Jonassonar á Akureyri, og flytja sig
þangað norður með fólk sitt í vor, en hefir
hér i seli. Við verzlunarmenn hans sjáum
eftir að missa bann, þvi hann er vænn og
áreiðanlegur maður. Þau hjónin hafa
komið góðu orði á sig, og verður þeirra
þvi saknað.
Jarðarför Brynj. Kuld fer fram mánu-
dag 22. þ. m. kl. 2 frá likhúsinu.
Lögfræðislegur leiðarvísir.
1597. Maður flytur fyrir mig mál,
skuldamál, og ekki um neins mikils háttar
fjárhæð; en ósamið er fyrir fram um þókn-
un fyrir ómak hans, og er mér sagt af
kunnugum mönnum lögfróðum, að viðlika
málsfærsla þyki annars fullborguð með '40
—50 kr. En nú setur hann upp 400 kr.,
og ber fyrir sig, að eg hafi ekki samið við
sig fyrir fram og því megi hann setja upp
eins og honum sýnist. Er þetta rétt?
Sv: Nei. Það er tóm vitleysa. Spyrj-
anda er óhætt að láta lögsækja sig um
málfærslulaunin, og má treysta þvi örugg-
ur, að dómari tekur alls eigi til greina
jafn-hóflausa kröfu, heldur metur þóknun-
ina eftir sanngirni og venju á þeim stað,
sem þeir eiga heiina, spyrjandi og mál-
flytjandi. Eða imyndar spyrjandi sér, að
hann kæmist ekki hjá að borga, þótt sett-
ar hefðu verið upp 4000 kr. eða 40,000 kr ?
1598. Eg missi hlut, sem eg gruna
mann nm aðhafatekið á laun i heimildar-
leysi og ábataskyni — þ. e. stolið honum,
og kæri eg það fyrir sýslumanni, en vil
taka aftur kæruna jafnskjótt sem eg kemst
á þá skoðun, að maðurinn muni vera sak-
laus, og áður en farið er að prófa málið.
Er það rétt, sem maður segir mér, sem
það ætti að vitá — lagamaður —, að eg
megi ekki taka kæruna aftur, enda varði
við lög hvort, sem er, að hafa kært aak-
lausan mann?
Sv.: Nei. Þetta er hin mesta fjarstæða
og vitleysa. Það segir sig sjálft, að taka
má og taka á kæru aftur, er kserandi
sannfærist um, að maðurinn sé saldaus,
enda varðar hins vegar kæra gegn saklaus-
um inanni alls eigi við lög, ef ekki sann-
ast að hún hafi gerð verið mót betri vit-
und. Að öðrum kosti væri og loku skotið
fyrir, að kæra mætti rnann um nokkurt
brot, nema kæraudi hefði fulla sönnun
fyrir því, og v®ri þá öll sakamálarann-
sókn yfirvalda þarfleysa og keiniska. Ogsé
það yfirvald hlutaðeigenda, t. d. sýslu-
maður, þessi lagamaður, sem spyrjandi
ber fyrir sig, og hann hafi gert það til að
haida þeim öðrum hvorum eða báðum
hræddnm (sem gefið er í skyn jafnhliða
fyrirspurninni) og gera þá þar með upp
.frá þvi að þrælsóttafullum skósveinum sín-
um, þá er það svo vitavert athæfi, að sá
hinn sami mundi óðara sviftur embætti, ef
það kæmist upp.
Veðurathuganir
í Reykjavik, eftir aðjunkt Björn Jensson.
Apríl Loftvog millim. Hiti (C.) í>- crt- ct- <1 ct> 0* e p*. B 0* u:■ 7? g 9= JQ Urkoma míllim. Minstur hiti (C.)
Mvl7. 8 750,9 3,9 E 1 10 3,6 2,0
2 748,4 6,6 ESE 1 10
9 752,4 2,9 0 6
Fd.18. 8 755,1 2,4 0 6 2,1 -0,4
2 752,9 5,4 E8E 1 9
9 746,6 5,8 E 1 9
Fsd 19.8 742,0 5,7 E 2 4 1,5 1,6
2 746,2 6,5 EísE 2 5
9 750,7 2,8 E 1 7
Ðruknun.
Erm drukuuðu 2 menn hér, 17 þ.
rri., á heimleið úr fiskiróðri á Skerja-
firði, J ó n Einarsson, er lengi bjó i
bkildinganesi, faðir Sigurðar skipstjóra
í Görðunum, maður um sjötugt, og
Guðmundur Guðmundsson,
búandi maður á Brúarenda, miðaldra.
Líkin voru slædd upp í fyrra dag, ör-
skamt frá landi.
Sitt af hverju.
S am 1 ag n i n ga r vé lhefir amerískur hng-
vitsmaður, er Burrough hét og nú er
dáinn, hugsað npp og smiða. látið fyrir
nokkurum árum. Hún er á borð við rit-
vél og henni svipuð að somu leyti, en
miklu margbrotnari. Hún leggur saman
tölur alt upp að 1000 miljónum, með feikna-
hraða og svo áreiðanlega, að aldrei skeikar.
Hún er nýlega komin til Danmerkur og
nota bankarnir hana í Khöfn margir; Land-
mandshankinn hefir tvær. Þær eru dýrar,
kosta 18—1400 kr., en vinna á við marga
m,enn, þar sem nóg er handa þeim'aðgera.
Póststjórnin þýzka kvað hafa fengið sér
250 og landshagsskrifstofan í Berlin hefir
15. Burrough var 15 ár að hugsa upp
þessa töfravél, sem hefir það fram yfir
flest eða öll vinnutól, sem dæmi eru til
hingað til, að hún vinnur það, er ella er
talið eiugöngu kleift heila mannsins.
Dýr hók. Maður i Ameriku, Hubert
Banoroft, er að semja bók, sem verður hin
viðhafnarmesta og lang-dýrasta bók í heimi.
Hún á að heita Auðœfabókin (The Book
of Wealth). Það verða æfisögur m estu
auðmanna í heimi og um gagn það, er auð-
sefin hafa unnið mannkyninu Þó kvað
höf. eigi binda sig við veraldleg auðæfi
eingöngu, heldur hefir orðið i miklu víð-
tækari merkingu. Ekki á að prenta af
henni nema 400 eintök, og á að vanda mest
150'af þeim að pappír, myndum og prentun
og öðrum frágangi, enda eiga þau að kosta
9000 kr. hvert. Hin 250 eiga ekki að kosta
nema 'Pþ þús. kr. hvert Bókverzlun ein
j Chicago kostar kverið. Höfundurinn hef-
ir ferðast víða um lönd til að safna til
ritsins.
Agætur barnavagn til sölu. Ritstj.
visar á seljandann.
Fimdíst hefir vasaúr. Ritstj. vísar á.
Eg undiiritaður tek að mér að mála
hús og húsgögn og alt sem að málaraiðn
lýtnr, og skal alt leyst svo fljótt og vel af
hendi sem hægt er.
Kirkjustræti 4.
Jón Re/ykdal málari.
Sigríöur Metúsalemsdóttir
2 Kirkjustræti 2.
Hefir nú fengið margskonar efni i líkkranza.
Pálma og margskonar blöð.
Murtublómstur og margskouar önnur
hlómstur. — Getur því selt kranza, hverníg
lielzt sem óskað er eftir.
Öllum þeim mörgu, sem sýndu hluttekn-
ingu og heiðruðu jarðarför okkar elskulegu
konu og dóttir Önnu sálugu Guðmuudsdóttir,
vottum við okkar innilegasta þakklæti.
Reykjavík 20. apríl 1901.
Síg:. l»órólfsson.
Kristín Árnad. Guðm. Ólafsson.
Stjórn búnaðarfjelags íslands hefir
kveðið svo á, að engin kennsla í með-
ferð mjólkur fari fram á Hvanneyri í
ágústmánuði og septembermánuði
þetta ár. En kennarinn verður látinn
fara milli mjólkurbúa þeirra, sem eru
þá þegar stofnuð og óska þess, og
ef til vill til annarra, sem óska leið-
beiningar hans, að svo miklu leyti
sem tími verður til þess. Kennslan
byrjar aptur á Hvanneyri i. dag októ-
bermánaðar í haust og er kennslutím-
inn fyrir hvern nemanda 3 mánuðir.
Reýkjavík, 12. dag aprílmán. 1901.
H. Kr. Friðriksson.
Samkvæmt ákvæðum búnaðarþings-
ins 1900 verður aðalfundur búnaðar-
fjelags Islands haldinn hjer í Reykja-
vík 2. dag júlímánaðar þ. á. Verður
þar skýrt frá framkvæmdum fjelagsins
frá því í júlítnánuði 1899, og rædd
búnaðarmálefni, er fundarmenn kunna
fram að bera. Enn fremur skuln þá
kosnir 2 fuiltrúar til búnaðarþingsins,
2 yfirskoðunarmenn og tveir úrskurð-
armenn til næstu 4 ára.
Reykjavík 12. dag aprílmán. 1901.
H. Kr. Friðriksson
forseti.
Munið eftir að koma sem
fyrst með ullarsendingar, sem eiga að
fara með næstu ferð Lauru.
Nýkomið er mjög mikið af
s ý n i s h o r 11 u m, sem hægt er að
panta eftir.
Virðingarf.
Vald. Ottesen
Uppboðsaujdýsing.
A opinberu uppboði, sem byrjar
miðvikndaginn 1. maí næstkomandi
kl. 11 f. hád. í Aðalstræti nr. 12,
verða seld ýms húsgögn tilheyrandi
dánarbúi kaupm. M. Johannessen, svo
sem: sofi, legnbekknr, mahogniborð,
stólar, speglar, hornskápur með spegli,
spilaborð, blómsturborð, skrifborð,
servant, bókaskápnr og hilla, komm-
óða, niðursuðupottur, þvottamaskína,
vindingamaskína, tanrnlla, kúffort,
rokkur, lampar, klukkur, barnaruggur,
saumavjel, glasabakkar, þvottabalar, o.
m. fl. Ennfremur verða seldar á
sama stað ýmsar fræði- og skemti-
bækur tilheyrandi ofangreindu dánar-
búi, svo og dánarbúi Steingr. kaupm.
Johnsens.
Loks verður uppboðinu haldið á-
fram í Kirkjnstræti nr. 6 og þar seld
ýms húsgögn, svo sem: legubekkur,
skrifborð með stól, dragkista, stólar,
kommóða, bókaskápur, vasaúr, forte-
píano með stól, rúmfatnaður og rúm-
stæði, íverufatnaður, spegill, púlt, ser-
vant, spilaborð, myndir o. m. fl.
Listi yfir ofannefndar bækur verð-
ur til sýnis hjer á skrifstofunni áður
en uppboðið byrjar.
Sölnskilmálar verða birtir á upp-
boðsstaðnum.
Bæjarfógetinn í Rvík 19. apríl 1900.
Halldór Danlelsson.
Málfundur
í kennarafélaginu
laugardaginn 20. þ. m.*kl. 8 e. h. í
stóra salnum í Iðnaðarmannahúsinu.
Einar Hjörleifsson ritstjóri
heldur fyririestur um
alþýðumentun liér á landi.
Stjórn Kennarafélagsins segir vel-
komna á fundinn alla kennendnr, al-
þingismenn og ritstjóra, er til geta
náð, svo og aðra þá, er mentun al-
þýðunnar er áhugamál, til að hlýða á
fyrirlesturinn og taka þátt i umræð-
unum um málið.
Jón Dórarinsson
p. t. forseti.
Öllum þeim hinurn mörgu, er sýndu mér
velvild og hjálpsemi við hina miklu og
ströngu sjúkdómslegu og jarðarför míns
elskulega eiginmanns Guðmundar Ásmunds-
sonar, er andaðist 6. þ. m., votta eg mitt
innilegasta þakklæti, og bið guð að launa
þeim
Reykjavík 19. apríl 1901.
Guðbjörg Gísladóttlr.
Ritstjórar: Björn Jónssoii(útg.og- ábm.)og
Kinar Hjörleifsson.
Isafoldarprentsmiðja
Samkvæmt skýrslu sýslumannsins
i Árnessýsln rak 20. nóvbr. f. á. á
Skipafjöru í Stokkseyrarhreppi tunnu
með steinolíu; tunna þessi hafði ver-
ið merkt'á botninum með blýanti, og
er merkið orðið mjög máð og lítt
læsilegt, en virðist hafa verið þannig:
X P R
§ 115
Hér með er skorað á eiganda vog-
reks þessa, að segja til sín innan árs
og dags frá síðustu birtingu auglýs-
ingar þessarar, og sanna fyrir undir-
rituðum amtmanni heimildir sínar til
þess, og taka við andvirði þess, að
frádregnum öllum kostnaði og björg-
nnarlannnm.
Skrifstofu Suður- og Vesturamtanna,
Reykjavik 11. apríl 1901.
J. Havsteen.
Niðursett verð.
Til að rýma fyrir vörum þeim er
eg hefi nú að nýju sjálfur valið er-
lendis handi heiðruðum skiftavinum
mínum á Islandi, verða flestar þær
vörur, sem fyrir eru í búð minni, seld-
ar með niðursettu verði til 14. maí
n. k. gegn peningaborgun.
Hinar nýju vörur mínar hefi eg
keypt í Edinborg, Glasgow, Kaup-
mannahöfn, Hamborg, Berlín og víð-
ar, og vona að mér hafi tekist að
velja þær svo hvað verð, gæði og út-
lit snertir, að þær megi teljast:
útgengilegar vörur.
p. t. Kanpmannahöfn 3. apríl 1901.
______Pétttr Hjaltesteð._______
Heimkominn frá Kaup-
mannahöfn hefi eg sezt að sem prakí-
serandi læknir hér í Reykjavík. A
heimili mínu við Laufásveg í
húsi hr. Einars Gunnarssonar við Barna-
skólann tek eg daglega á móti sjúk-
Jingum frá
kl. 2-4
(sama tíma á helgum dögum).
Christian Schierbeek.
Jörð tit sölu osr ábúðar.
HeimajörSin StÓru-Vogar í Gull-
bringusýslu með hjáleigunni GarðhÚS-
Um er til sölu nú þegar, og fæst til á-
búðar í fardögum 1902. Væutsteinhús
fylgir jörðunui, 14 ál. langt og 10 ál.
breitt. I meðalári fást af túninu 3 kýr-
fóður, útheyslægjur eru litlar, en land-
kostir góðir, svo útbeit fyrir sauðfé er í
bezta lagi bæði í fjöru og heiðarlandi.
Flesta vetur gengur sauðfó þar af gjaf-
arlaust. Við Vogastapa var árlega til
skamms tíma bezta veiðistöS við Faxa-
flóa. Verðið er lágt og borgunarskil-
málar góðir.
Lystbafendur snúi sór til stjórnar Lands-
bankans.
Um leið og eq læt mína gömlu skifta-
vini á íslandi vita, að eg hef slitið
félagsskap við verzlunarhusið L. Zöllner
í Newcastle- on- Tyne og er ekki
lengur meðeigandi í nefndu verzlunar-
húsi, skal eg hér með tilkynna, að eg
hefi sjálfur byrjað umboðsverzlun fyrir
eigin reikning, og tek að mér að ann-
ast innkaup á erlendum vörum og sölu
á íslenzkum vörum í útlöndum.
Eg þakka mínum margra ára skifta-
vimim á lslandi fyrir þá tiltrú, sem
þeir hafa sýnt mér í fyrnefndu félagi,
og vona að eg haldi sömu tilirú þeirra
framvegis.
Að forfallalausu verður mig að hitta
á hinum ýmsu viðkomustöðum s/s
» Vestao, er fer héðan 11. mai n. k
Þá er eg er ékki heima, annast herra
etazráð J. P. T. Bryde, Strandgade 34,
Köbenhavn C., um öll umboðsstörf fyr-
ir rnína hönd.
Kaupmannahöfn 9. marz 1901.
Gothersgade 135*.
Jón Vídalín.