Ísafold - 01.06.1901, Side 3
meðan eða aðrar skemtanir, stundum
á landi jafnvel.
|>ess þarf ekki að geta, að yfirleitt
á þilskipaflotinn íslenzki alls engan
þátt í þessum ósóma. Bigendur hans
eru flestailir langt hafnir yfir slíkfc og
því um líkt. Ná sem stendur eða þessa
vertíð munu það vera að eins 2 þilskip
hér við flóann, sem botnvörpungana
stunda, »Klarina« frá Guðmundi í Nesi,
og »Sæmundur«, sem Arnbjörn Ólafsson
á hlut í og ræður mest fyrir; og hafa
þeír tveir lengi steininn klappað, svo
sem alkunnugt er.
|>að eru kynstur af fi3ki, sem þess-
ir menn hafa undir höudum þannig
fenginn, og svo góð vara sem hann er,
eða hitt heldur. Og .ekki stendur á
því, að einhverir kaupmenn taki hann
og gefi vel fyrir, — þótt ganga hljóti
þeir með opin augun að því, hver á-
hrif slík vara hlýtur að hafa á mark-
aðinn. |>að er annar ósóminn frá og
skaðræðið — »hvor silkihúfan upp af
annarí«.
Ef útgerðarmenuirnir ensku sinna
kærunum fyrir óráðvendni skipstjóra
þeirra og láta þá sæta lögmæltri hegn-
ingu fyrir, svo sem maklegtværi, ekki
sízt ef svo er, sem sumir fullyrða, að
botnvörpungar eigi alls ekki annað er-
indi hér inn á miðin en að veiða þorsk
handa whisky-vinum sínumog fá svo hjá
þeim whisky og tóbak, þeir komi ekki
fyr en þeir erubúnir að ferma sig af kola
m. m. til heimferðar, — þá er ekkert
líklegra en að farið mundi fram á af
ensku stjórninni eftir kröfu útgerðar-
mannanna, að Islendingar þeir, er
skift hafa við botnverpinga, séu dregnir
fyrir lög og dóm sem þjófsnautar og
látnir sæta hylmingarhegningu samkv.
hegningarlögum vorum. |>á hefðu þeir
átt erindið í Lónið. Auðgert mundi
og, að hafa hendur í hári þeim, meðal
annars fyrir það, að kapt. Hovgaard
hefir látið taka ljósmynd af þeim sum-
um, er hann hefir staðið að óleyfileg-
um mökum við botnvörpunga.
Mjólkurskóiiim
á Hvanneyri
Ekki eru þar nema 2 nemendur nú
þennan ársfjórðung, í stað 4—5; og
sóttu þó um 20. Orsökin er sú, að
þær gera sór lítið fyrir og sitja heima
orðalaust og láta ekkert til sín heyra,
2 stúlkurnar, er skóli hafði veittur
verið í þetta sinn, norðlenzkar (skag-
firzkar), sem teknar höfðu verið fram
yfir aðra umsækjendur einmitt til að
hlynna að fjarlægum héruðum. |>að
er Ijóta tilvikið. Bægja frá fjölda
annarra og láta ekkert um það vita
nokkurn tíma, að þær ætli ekki að
koma, svo að ekki var hægt að taka
aðrar í þeirra stað. Fyr má nú vera
ókurteisi eða skaðræðishugsunarleysi,
eða þá hvorttveggja.
f>að mun vera áform Búnaðarfólags-
ins, að láta hr. Grönfeldt kenna mjalt-
ir í sumar á heimilum til sveita hing-
að og þangað, ef þess er óskað, kostn-
aðarlaust að öðru en fæði og flutning
í milli heimilanna. Er það stórmik-
ilsvert. Bókleg tilsögn kemst þar
ekki í hálfkvisti við, hversu nákvæm
sem hún er.
Brytt befir á þeirri vanþekkingarí-
myndun, að slík tilsögn skemmi skepn-
ur þær, eru notaðar eruvið kensluna.
Keynslan er sú frá aðalmjólkurskólan-
um í Danmörku, að kýrnar græða
sig, þótt hver viðvaningurinn eigi við
þær eftir annan. f>eir eru látnir hafa
frá upphafi rétta mjalta-aðferð, og er
helzt áfátt í flýti.
Erlend tíðindi
eru lítil sem engin meS Vestu umfram
það, er ísafold hefir áður flutt. Hún
hefir verið svo lengi á leiðiuni.
Nokkurar breytingar orðið á ráðaneyt-
inu prússneska. Miquel fjármálaráð-
herra, er það embætti hefir haft um 10
ár, vitur maður og skörungur mikill,
farinn frá, en við tekið Bheinbaben
innanríkisráðherra. Það er út af þras-
inu um skipaskurðinn milli Bínar og
Saxelfar, er verið hefir lengi á dagskrá
og keisara er áhugamál, en stóreigna-
menn á Prússlandi sjálfu spilla fyrir af
öllum mætti, til þess að afst/ra sam-
kepni þeirri við landvöru þeirra, er
greiðari samgöngur örva. Þeim hefir
tekist enn að fella málið og þótti keis-
ara Miquel liggja þar heldur á liði sínu.
Ekki nærri leikslokum enn með Bú-
um og Bretum, þótt nokkuð hafi Bret-
um á unnist upp á síðkastið. En satt
að 3egja þó lítið sem ekkert á
þeirra valdi enn af landi Búa utan mjór
geiri fram með járnbrautum, og stöku
borgir. Hver veit hvað hinir geta þvælst
fyrir enn.
Komin er á prent á mörgum tungu-
málum varðhaldsvistarsaga Alfr. Drey-
fuss á Púkey, eftir sjálfan hann, og mik-
ið látið með.
Síðdegisguðsþjónusta
á morgun kl. 5 (J H.)
Með gufusk. Vesta
kapt. Holm, komí fyrra dag fjöldi far-
þega, þar á meðal frá Khöfn konsúll Jón
Vídalín og kaupm. Gunnar Einarsson,
og að vestan alþingismennirnir Sig.
próf. Jensson í Flatey og Skúli Thor-
oddsen, Björn Pálsson ljósmyndari,
Stefán Bunólfsson frá ísafirði; af
Sauðárkrók síra Arni Björnsson; frá
Akureyri amtmannsfrú Alfh. Briem,
konsúlsfrú J. Havsten með syni sín-
um, Jón Sigurðsson verzlm. o. fl.
Eftirmæli,
Hinn 23. desenjber f. á. andaðist að
Greirlandi á Síðu Halla Stefánsdóttir sál.
Ólafssonar stúdents að Selkoti og konu hans
Önnu Jónsdóttur, systir Gísla kaupm. Stef-
ánssonar í Vestmanneyjum og þeirrabræðra.
Hún var á 73. aldursári. Hafði dvalið
mikinn hlnta æfi sinnar á Siðu í Skafta-
fellssýslu og stjórnað þar, nál. i 30 ár,
rausnarbúi Odds heitins Oddssonar í Mör-
tungu. Hún var mesta dugnaðarkvendi.
Gáfuð mætavel og eldfjörug og skemtin í
samræðum. Hjartagóð og hvers manns
hugljúfi, þeirra er hana þektu.
f Hún lætur ekkert harn eftir sig á lífi.
Átti talsverðar eigur og hafði, nokkurum
árum áður en hún andaðist, arfleitt frænd-
konu sina Höllu Helgadóttur — konu Vig-
fúsar borgara Jónssonar á Geirlandi — að
öllum sinum eigum, og hafði dvalið þar
hið siðasta ár æfi sinnar, þá mjög þrotin
að kröftum, eftir þreklega aflokið æfistarf. y.
Sunnudag 19. maí 1901 andaðist að Hofs-
stöðum í Álftanesbrepp í Mýrasýslu — þar
staddur í ferð — Þorsteinn Eiríksson,
bóndi í Neðranesi í Stafholtstungum, kring-
um hálffimtugur, stakur sæmdarbóndi og
sómamaður í öllum greinum, hvers manns
hugljúfí, er liann þekti. Hann varð svo að
kalla bráökvaddur. X
Veðivathuganir
í Reykjavík, eftir aðjunkt Björn Jensson.
1901 Maí 1 Loftvog I millim. Hiti (C.) C-h ct- <3 CD cx p £3- æ CK | Skjmagn Urkoma millim. Minstur hiti (C.)
Mvd29.8 760,6 11,5 0 3 8,3
2 760,0 12,5 NW 1 2
9 759,5 9,9 NW 1 3
Fd. 30. 8 756,7 8,9 0 10 7,7
2 7Í>4,9 10,4 NW 1 10
9 752,9 7,8 NW 1 10
Fsd.31.8 748,1 9,3 0 10 7,5
2 744,6 16,6 w 1 1
9 742,6 12,4 0 1
Söngskemtun
á að verða hér annað kveld kl. 8,
til ágóða fyrir Eyfellingasamskotasjóð-
inn, undir forustu hr. Brynjólfs |>or-
lákssonar, og með líku sniði og síðast,
er sungið var fyrir minnisvarðasjóð
Jónasar Halígrímssonar. Verður von-
andi vel sótt.
I heljar greipum.
Frh.
»Ef hann gerði það nú á dögum,
frk. Adams«, sagði Fardet, »þá ætti
hann í meiri ófriði en hann hefir
nokkurn tíma orðið að fást við í Mesó-
pótamíu. En alt jafnar sig með tím-
anum. Hver veit nema sá dagur
renni upp innan skamms, er konurnar
verða sýndar á myndum stórar og
sterklegar, en bændur þeirra litlir og
óverulegir«.
Cecil Brown og Headmgly höfðu
dregist aftur úr; þeim fanst eitthvað
svo hátíðlegt við þessar stöðvar, að
þeir kunnu ilia vaðlinum í túlkinum
og efnislausu, léttúðarfullu masinu í
ferðafólkinu, þeir horfðu þegjandi á
þessa skringilegu halarófu, með sól-
skinshöttum og grænum blæjum,
sem þrammaði frammeð gömlum,gráum
múrvegguum í skæru sólarljósinu.
Uppi yfir þeim voru herfuglar með
fjaðraskúfa á höfðum að flögra fram
og aftur yfir rústunum.
»Er þetta ekki vanhelgun?« sagði
Oxfordmaðurinn að lokum.
»Mér þykir vænt um, að yður skuli
finnast þetta, því að þetta finst mér
líka«, svaraði Headingly innilega. »Mér
er ekki fullljóst, hvernig menn eiga að
koma á þessar stöðvar — ef þeir
eiga annars á þær að koma —, en eg
er viss um, að einhvern veginn öðru-
vísi á það að vera. Yfirleitt tek eg
þær rústir, sem eg hef ekki séð, fram
yfir þær, sem eg hefi séð«.
Ungi stjórnarerindrekinn leituppog
brosti á þann einkennilega skoplega
hátt, sem honum var laginn; en svo
hvarf það bros helzti fljótt bak við
dauflegt kæruleysis-gerfið.
»Eg hefi uppdrátt af landinu«, sagði
Yesturheimsmaðurinn, »og hér og þar
standa á því ,rústir‘ langt úti á vatns-
lausri eyðimörkinni, eða þá .leifar af
musteri1. Til dæmis að taka er must-
eri Júppiters Ammons, einn af mestu
bautasteinum liðinna alda í öllum
heimi, mörg hundruð mílna úti á öræf-
unum. Slíkar rústir, sem staðíð hafa
einmana, óséðar, óbreyttar öldum sam-
an, fá á ímyndunaraflið. En þegar eg
sýni inngöngumiða við dyrnar og fer
inn, eins og þetta væri ein af sýning-
um Barnum8, þá er öll rómantisk
tilfinning rokin burt í sama bili«.
»Alveg satt!« sagði Cecil Brown og
leit dökkum augunum út yfir eyði-
mörkina. »Gæti manni orðið reikað
hingað aleinum — eins og rekist á
þetta af tilviljun — verið gersamlega
einn í þessari daufu musterisglætu,
með þessar kynlegu myndir alt í kring
um sig, þá yrði maður alveg frá sér
numinn. f>á léti maður fallast til
jarðar af undrun og lotningu. En þeg-
ar Belmont er að totta pípuna sína
og Stuart er að mása og blása og frk.
Sadie Adams er að hlæja —«.
»Og túlkurinn kemur með sinn vað-
al«, sagði Headingly; »mig langar alt
af til að vera kyr og hugsa, og mér
finst eg aldrei fá næði til þess. Mér
hefði verið næst skapi að vinna á ein-
hverjum, þegar eg stóð hjá pýramíd-
anum mikla og hafði engan frið, af
því að fyrir hvern mun þurfti að
drftsla mér upp á toppinn á honum.
Eg sparkaði til eins mannsins svo
hart, að hann hefði sveiflast upp á
toppinn, ef eg hefði hitt hann. Og
það er skrítið að koma alla leið frá
Vesturheimi til þess að sjá pýramíd-
ann, og geta ekkert haft þar fyrir stafni
annað en sparka til Araba fyrir fram-
an mann«.
Jarðarför Holgers kaupmanns Clausens fer
fram fimtudaginn 6. júní kl. 12 á hádegi.
Fram að 1. október ge a sjúklingar
hitt Guðxmmd Magnússon lækni
hedma kl. 10—12 f. m. á virkum dög-
um (ekkí kl. 1—2).
Eldsvoðaábyrgðarféiagið
Nederíandene
stofnað 1845
tekur að sér ábyrgð á húsum og alls
konar muuum, með sama. saxta og
önnur félög hér á landi.
Stofnfé 6,000,000 kr.
varas.ióður 2,916,149 kr.
f>etta er eitt af félögum þeim sem
Landsbankinn tekur gild.
Aðalumboðsmaður fyrir Beykjavík
og Suðurland er
Jes Zimsen.
Holleuzkir vindiar
í 7i—72 °g Ví kössum eru mjög ódýrir
hjá
C. Zimsen
Heilflöskur eru um tíma keypt-
ar á 10 aura hjá
C. Zimsen.
Reykjarpípur
laglegar hjá
C. Zimsen.
Umsóknir
um styrk þann, er í fjárlögunum 1900
—1901 er veittur Iðnaðarmannafélag-
inu í Beykjavík »til að styrkja efni-
lega iðnaðarmenn til utanfarar til að
fullkomna sig í iðn sinni«, verða að
vera komnar til félagsstjórnarinnar
fyrir 24. ágúst næstkomandi.
Umsóknarbréfunum verða að fylgja
meðmæli frá þeim, sem hlutaðeigend-
ur hafa lært iðn sína hjá.
Yngri piltar en 18 ára geta eigi
orðið aðnjótandi þessa styrks.
K vemiuskóli Reykjavíbur
f>eir, sem vilja koma ungum,
konfirmeruðum, efnilegum yngismeyj-
um í Beykjavíkur kvennaskóla, eru
beðnir að snúa sér til undirskrifaðrar
forstöðukonu skólans ekki seinna en
31. ágúst næstkomandi. 1 4. bekk
verða teknar, eins og áður, þær stúlk-
ur, sem hafa að minsta kosti verið
1 vetur í 3. bekk skólans, eða aðrar,
sem hafa lært álíka mikið og þær.
Kenslutíminn byrjar 1. okt. og þá eiga
allar námsmeyjar að vera hingað komn-
ar. Nánari upplýsingar veitir undir-
skrifuð.
Beykjavík 31. maí 1901.
Thora Melsteð-
Sundmaga borgar enginn
betur en Asgeir Sigurðsson.
GrOtu kaupir hæsta verði
Ásgeir Sigui’ðsson,
Grasfræ fæst í Vinaminni.
Kýr óskast keypt nú þegar. Bitstj.
vísar á.
í »Geysi« er til leigu stofa nú þegar.
Bæjarstjórnin i Beykjavík lætur
byggja þvottahús við laugarnar
20 ál. langt, 10 ál. breitt. Smiðinu á
að vera lokið fyrir 1. des. þ. á. Tré-
smiðir hér í Beykjavík, sem vilja taka
að sér bygginguna, geta fengið upplýs-
ingar hjá undirskrifuðum. Steinsmið-
ir eiga kost á að gera tilboð að byggja
undirstöðuna undir húsið og leggja
sementerað steingólf.
Tilboð eftir 10. júní verða ekki tek-
in til greina.
Tryggvi Gunnarsson.
Vatnsleysustrandar- og snnn-
anmenn eru beðnir að vitja ísa-
foldar í afgreiðslu hennar (Austur-
stræti 8).