Ísafold - 13.07.1901, Síða 1
Kemur út ýrnist einn sinni eða
tvísv. í viku. Yerð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. ,eða
1 >/* doll.; borgist fyrir miðjan
júlí (erlendis fyrir fram)
ISAFOLD.
XXVIII. árg.
{
Reykjavík laug'ardaginn 13. júlí 1901.
Uppsögn (skrifleg) bnndin við
áramút, ógild nema komin sé til
útgefanda fyrir 1. október.
Afgreiðsliistofa blaðsins er
Austurstrœti 8. .
47. bSað.
I. 0 0. F. 837199
Forngripas. opið md., mvd. og ld. 11—12
Lanasbókasafn opið hvern virkan dag
ki.12—2 og einni stundn lengur (til kl. 3)
Ejd., mvd. og ld. tii útlána.
Okeypis lækning á spítalrnnm á þriðjnd.
og föstnd. kl. 11 —1.
Okeypis augnlækning á spitalannm
fyrsta 07, þriðja þriðjud, livers mánaðar
k. 11—1
Ókeypis tannlækning i húsi Jóns Sveins-
sonar bjá kirkjunni 1. og 3. mánud. hvers
mán. ki. 11—1.
Landsbankinn opinn, hvern virkan dag
kl 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1.
Xýr Pyrrhusar-sigur
embættisvaldsins.
Hreinsuu Snæfellinga-yflr-
valdsins mistekst.
Allar sakargiftir
sannaðar.
Hann er af nákvæmlega sama tægi,
sigurinn, sem sýslumaður Snæfellinga
hefir unnið ( máli sínu gegn Einari
ritstjóra Hjörleifssyni, eins og aðrar
sigurvinningar embættisvaldsins nú
upp á síðkastið.
Allar ávirðingar embættismannsins,
sem víttar bafa verið, sannaðar,
en ritstj. sektaður fyrir að fara um
þær of hörðum orðum — eða, eins og
dómarinn orðar það, hin átöidu um-
mæli virðast »ekki vera n æ g i 1 e g a
réttlætt*.
Dómarinn lýsir það því s a n n a ð, að
E. H. bafi í öllu verulegu skýrt rétt
frá því, er fram fór á kjörfundinum.
Dómarinn lýsir það s a n n a ð, að
embættismaður þessi hafi í kjörstjóra-
ræðu sinni — þegar hann var að tala
í embættisnafni — lýst þingmálafiokk-
unum hér á landi á þann veg, að
annar vildi eyða landið, vildi sólunda
fé landsins f glæfrafyrírtæki og bit-
linga og vildi tæla menn af landi
burt með Vesturheims-gmningum, en
hinn flokkurinn vildi vinna landinu
alt það gagn, sem bonum væri unt.
Dómarinn lýsir það s a n n a ð, að
embættisnlaðurinn hafi bannað einu
þingmannsefniuu að mótmæla þessu.
Dómarinn lýsir það s a n n a ð, að
embættismaðurinn hafi stöðugt verið
að taka fram f fyrir þingmannsefninu,
ýmist til þess í embættisnafni að á-
minna hann um að vera stuttorðan,
ýmist til þess að gera athugasemdir
við ræðu hans og að sama atferli hafi
annar fundarmaður haft, án þess að
embættismaðurinn gerði neina gang-
skör að því að hefta það.
Dómarinn lýsir það s a n n a ð, að
í ræðu þeirri, er L. H. B. flutti sem
þingmannsefni hafi hann haldið því
fram, a ð eftir tilboði stjórnarinnar í
stjórnarskrármálinu 1897 væri ráð-
gjafanum e k k i ætlað að vera íslend-
ingur og ekki ætlað að koma á þing,
a ð ráðgjafanum væri heimilt eftir
stjórnarskránni að sitja á alþingi, að
með veðdeildinni hefðu peningar Lands-
bankans þegar aukist um 1,200,000
kr., og að einkenni slíkra banka sem
íslandsbankans fyrirhugaða væri að
lána gegn 4”/» vöxtum um mánuðinn.
Dómarinn lýsir það s a n n a ð, að
L. H. B. hafi sem kjörstjórnarodd-
viti, þrátt fyrir mótmæli, sem fram
komu á fundinum, verið ófáanlegur
til anDars en láta sína meðmælendur
taka til máls á e f t i r meðmælendum
síra Sigurðar Gunnarssonar, sem var
skýlaust lagabrot.
Dómarinn lýsir það enn fremur
sannað, að L. H. B. hafi sótt það
allfast, að fá keypta húseign tilheyr-
andi dánarbúi, er hann hafði til skifta-
meðferðar, fyrir minna verð en boðið
var í eignina af öSrum, og að amt-
manni hafi þótt aðferð hans í því
máli aðfinningarverð. Ummæli amt-
manns í skjali, sem lagt var fram í
réttinum, eru meðal annars þessi:
»það er merkilegt, að L. B. skuli
ekki finna til þess, að hann sem
skiftaráðandi á fyrst og fremst að líta
á hagsmuni bús þess, sem hann hefir
til meðferðar, í stað þess rær hann
öllum árum að því, að búið missi
1000 kr. . . .; hann gæti búist við,
að hann fengi að vita, að honum væri
frjálst að fara algerlega, eða losast
við sín embættisstörf yfir höfuð«.
Alt er þetta sannað, og fleira,
sumpart með framburði fjölda eiðfestra
vitua, sumpart með ómótmælanlegum
skjölum og skilríkjum. Engin yfir-
sjón, sem E. H. hefir borið embættis-
’manni þessum á brýn, er ósönnuð.
Samt er E. H. sektaður.
þrátt íyrir alt þetta, sem sannast
hefir, var saknæmt fyrir hann a ð
segjast ekki hafa gert sér sérlega há-
fleygar hugmyndir fyrirfram um óhlut-
drægni og prúðmensku L. H. B.,
að viðhafa þau ummæli, að sú þjóð
sé sannarlega vesöl, sem hlíta verður
slíkri leiðsögn og slíkum yfirvöldum,
hvort sem vitleysan stafar af fáfræði,
hsimsku éða hrekkvísi (þ. e. uppgerð),
a ð segja, að L. H. B. hafi leitast við
að fremja annað lagabrot en það ský-
lausa lagabrot, sem hann framdi, og
að segjast ætla að geta eins dæmis
að endingu um kurteisi þessa prúð-
mennis, sem er yfirvald Snæfellinga.
f>essi ummælieru ekki tncegilega
réttlætt« með því sem sannast hefir,
segir dómarinn.
Mikið má það vera, ef fögnuðurinn
er verulega innilegur í hugskoti L.
H. B. og vina hans út af þessum
dómi.
Manninum er skipað aS hreinsa sig
af áburði ísafoldar. Hreinsunin tekst
svo, að alt, sem á hann hefir verið
borið, s a n n a s t.
Vitaskuld vórður andstæðingur hans
fyrir dálitlum fjárútlátum, ekki sízc,
ef dómurinn verður staðfestur af æðri
dómstólum. En er til þess vinnandi
á þann hátt, að fá allar þessar á-
virðingar staðfestar með dómi?
ísafold er fyrir sitt leyti ekki óá-
nægð. Eftir undanfarinni málaferla-
reynslu hér á landi gat hún ekki við
betra búist en að henni tækist að
sanna sérhverja þá ávirðing embættis-
mannsins, sem hún hefir vítt. Og
þar sem annað eins mál og þettahlýt-
ur að koma hverjum heilvita manni á
landinu í skilning um það, hve þver-
öfugt við alla heilbrigða skynsemi það
er, að vera að halda áfram að veita'
embættismönnum gjafsóknir til þess
að fá sannanir fyrir öllum ávirðingum,
sem þeim eru bornar á brýn, og hve
spillandi það er öllutn embættisheiðri
og allri. réttlætismeðvitund í landinu,
að embættismenn sleppí óvíttir, þeg-
ar yfirsjónirnar sannast fyrir dómstól-
um, en hinir séu sekfaðir með aðstoð
stjórnarvaldanna, sem að þeim yfir-
sjónum finna — þá virðist oss ekki
til einskis barist.
það var í fyrra dag, sem dómur var
upp kveðinn í hér umræddu máli
fyrir bæjarþingsrétti Beykjavfkur, út
af greininni *Kosningaferð« í Isafold 29.
sept. f. á., sem Snæfellingayfirvald-
ið hafði útvegað sér skipun til að
höfða sér til »hreinsunar« og fengið
3vo sem að sjálfsögðu bæði gjafsókn
og talsmann skipaðan ókeypis. Dóms-
niðurstaðan varð sii, að stefndi, E. H.
ritstjóri, er greinina hafði ritað og
sett nafn sitt undir, var dæmdur í
60 kr. sekt og 25 kr. málskostnað.
Að öðru leyti eru hór meginatriði
dómsástæðnanna orðrétt:
»1 grein þeirri, sem mál þetta er risið af,
er skýrt frá kjörfundi í Stykkishólmi 22.
sept. f. á., en þar gáfn málsaðilar háðir
kost á sér til þingmensku fyrir Snæfells-
ness- og Hnappadalssýslu. Aðalefni þess-
arar fundarskýrslu er það, að finna að
framkomu stefnanda sem kjörstjóra og þing-
mannsefnis og sýna fram 4, að hún hafi að
ýmsn leyti verið vítaverð. Ummaeli þau í
skýrslu þessari, sem sérstaklega ern átalin,
eru svo látandi: »Eg get ekki sagt, að eg
hafi gert mér sérlega háfleygar hugmyndir
fyrirfram um óhlutdrægni og prúðmensku
kjörstjórnaroddvitans, því að eg þekti hann
nokkuð af afspnrn«. »Yesöl er sú þjóð sann.
arlega, sem hlíta verður slíkri leiðsögn og
slikum yfirvöldum, hvort svo sem vitleysan
stafar af fáfræði, heimsku eða hrekkvísi (þ. e.
uppgerð).« »Annað lagahrot leitaðist kjör-
stjóri við að fremja á fundinum, en hætti
við það fyrir fortölur mínar — sboraði
á menn að ganga til kosninga án þess að
gefa kjósendum færi á að leggja spnrning-
arfyrir þingmannaefnin*. »Eins dseinis skal
eg þó geta að endingu um kurteisi þessa
prúðmennis, sem er yfirvald Snæfell-
inga«. I fundarskýrslunni ern þessi um-
mæli um stefnanda rökstudd með þvi, a ð
hann hafi í kjörstjóra-ræðu sinni lýst þing-
málaflokkunum hér á landi á þann veg, að
annar vildi eyða landið, vildi sólunda fé
landsins í glæfrafyrirtæki og hitlinga og
vildi tæla menn af landi burtu með Yest-
urheimsginningum, en hinn flokkurinn vildi
vinna landinu alt það gagn sem honum
væri unt; a ð stefnandi hafi hannað stefnda
að mótmæla þessu, mcð því að stefnandi
hefði sem kjörstjórnaroddviti leyfi til að
lýsa þingmálaflokkunum á þá leið, sem
hann hafði gjört; að stefnandi hafi sífelt
verið að taka fram í fyrir stefnda meðan
hann var að tala, ýmist til þess í
embættisnafni að áminna stefnda um að
vera fáorður, ýmist til þess að gjöra at-
hugasemdir við ræðu hans, og sama atferli
hafi annar fundarmaður haft, án þess að
stefnandi gjörði neina gangskör til að hefta
það; a ð stefnandi hafi í ræðu sinni sem
þingmannsefni haldið fram ýmsnm skoðun-
um um 2 aðalmál landsins, sem að áliti
stefnda hafi verið eintóm rangfærsla og
blekking, eins og ræða hans öll, frá upp-
hafi til enda; að stefnandi hafi bannað sér
að reykja í fnndarsalnum, jafnvel þótt hann
léti einn af kjörstjórunum reykja þar óá-
talið. — — —
Með framburði allmargra vitna, sem við-
stödd voru á kjörfundinum, verður að telja
það sannað, að í öllu verulegu sé rétt
skýrt frá þvi, sem þar fór fram i hinni
nmstefndu blaðgrein. Enn fremur hefir
stefDdi til réttlætingar áhurði sinum 4
stefnanda um hlutdrægni lagt fram nokkur
skjöi, er sýna, að stefndi fyrir nokkrnm
árum sótti það allfast, að fá keypta hús-
eign tilheyrandi dánarhúi nokkru er hann
hafði til skiftameðferðar, fyrir minna verð
en boðið var í eignina' af öðrum, og að
hlutaðeigandi amtmanni hafi þótt aðferð
stefnanda í þvi máli aðfinningarverð.
En með þessnm vitnisburðum og skjöl-
um virðast þó hin átöldn ummæli og að-
dróttanir nm stefnanda, að hann liafi sýnt
skort á óhlutdrægni, prúðmensku og kurt-
eisi i embættisfærslu sinni, að hann hafi
talið kjósendum sinum trú um ýmsa vitleysu
af fáfræði, heimsku eða hrekkvísi (þ. e.
uppgerð), og að hann hafi leitast við að
fremja lagahrot á kjörfundinum, ekki vera
nægilega réttlætt, og her þess sérstaklega
að geta, að þótt stefnanda kunni i einhverju
atriði að hafa yfirsést að fylgja fyrirmæl-
um kosningarlaganna, veitir slikt eigi heim-
ild til að bera honum á hrýn, að hann hafi
leitast við að fremja lagabrot*.
Stjórnarskrárfrumvarp
afturhaldsliðsins.
UMEÆÐUÁGEIP.
Umræðurnar um það fóru fram 9.
þ. m., og ágrip af þeim komst ekki
að í síðustu Isafold fyrir þrengslum.
þingm, Snæfellinga var sýnilega ætl-
aður flutningur frumvarpsins á þingi,
þegar það var prentað (stóð fyrstur
flutningsmanna). En svo hefur flokk-
urinn vikið honum úr þeirri virðingar-
stöðu, áður en málið kom til umræðu,
að líkindum ekki talið sem hyggilegast
að beita þeim þingmanni fyrir sig, eða
líklegt til að afla málinu vinsælda.
f>ví að Hannes Hafstein kvað fallið
hafa í sitt hlutskifti, að gera grein fyr-
ir frumvarpinu.
Hér fer á eftir ágrip af umræðun-
um.
Hannes Hafstein: þeim, sem verið
hafa mótfallnir stjórnarfrv. því, er
flutt hefir verið á síðustu þingum, hefir
verið borið á brýu, að þeir væru ní-
hilistar, hefðu ekkert »prógramm«. Nú
þykjumst vér hafa rekið af oss slindru-
orðið. Að VÍ8U er annað frv. kornið í
þessu máli, og vér hefðum getað, reynt
að fá þvl breytt. En líkindi eru til, að
þá hefðu þær breytingar fremur verið
skoðaðar sem fleygar. þess vegna
hefir þótt réttara að flytja sjálfstætt
frv., og ræðum. vonaði, að nefndin
þyrfti ekki að klofna á því.
Aðalatriðið er það, að æðsta valdið
só í landinu sjálfu. J>að hefir verið
mergurinn málsins í öllum kröfum vor-
um þangað til á síðustu árum. Ekki
eru nema 6 ár síðau er gengið var
miklu lengra í stjórnarbótarkröfum
hér á þingi. Og ekki þarf mörg orð