Ísafold - 13.07.1901, Side 2
186
til þess að rokstyðja kosti icnlendrar
stjórnar. Hún er réttur yor og sjálf-
sögð krafa, þó að menn af sérstökum
ástæðum hafi viljað slaka til á síðustu
árum.
Aðalnýmæli þessa frv. er að sameina
það tvent: innlenda stjórn og óraskað
stjórnarsamband við Danmörku. I
því akyni eiga ráðgjafarnir að vera
tveir, annar búsettur hér á landi, sem
ferðast á konungsfund, hinn búsettur
í Kaupmh., er ber málefnin fram fyr-
ir konung, þegar innlendi ráðgjafinn
er ekki viðstaddur. Báðir bera þeir
fulla ábyrgð á gjörðum sínum.
Ræðum. mintist þvf næst á helztu
fyrirmæli þessa frv., er ekki stæði í
því stjórnarskrárbr.frv., sem áður væri
komið: a ð upptalning sérmálanna
væri tekin upp úr stöðulögunum í því
skyni, að þar verði ekki breyting á
gerð án þess lögjafarvald íslands sam-
þykki; a ð bráóabirgðafjárlög megi
stjórnin ekki gefa út, nema þingið
komi sér ekki saman um fjárlög; og
a ð ákvæði frv. um að konungur geti
ekki náðað ráðgjafa eigi auðvitað ein-
göngu við stjórnmála-yfirsjónir. Að
öðru leyti séu breytingarnar frá hinu
fyrra frv. ekki annað en lítilfjörlegar
orðabreytingar.
þessu frv. fylgir ekki neitt fyrirheiti
um staðfesting. Vel getur verið, að
í því sóu fyrirmæli, sem ekki verði
^ staðfest. Bn í því á það sammerkt
við hitt frumvarpið. Ekki er senni-
legt, að það nái fremur staðfesting.
|>etta frumvarp fer ekki út af þeim
grundvelli, er afmarkaður hefir verið,
þar sem ríkissráðsetu ráðgjafans er
haldið eins og að undanförnu og ráð-
gjafinn hérlendi á að flytja mál ís-
lands fyrir konungi í ríkisráðinu.
En hve nær sem stjórnarskrárbreyt-
ing öðlast staðfesting konungs, er
mikils um þaS vert, að ekki hafi ver-
ið farið styttra í kröfunum en svo,
að þjóðin geti verið ánægð með breyt-
inguna. Kæmi til valda í Danmörku
stjórn, sem vildi verða við óskumvor-
um, þá væri það mikil ógæfa, ef ekki
hefðí verið farið fram á það, sem þjóð-
inni er gagn að. Og ræðum. vill enn
á það minna, að flutningsm. hins frv.
hafi ekki eingöngu bundið sig við það,
er þeir viti, að sé fáanlegt.
Guðl. Guðmundsson vildi ekki hella
olíu í þann eld, sem verið væri að
kveikja. En frv. væri borið upp á
óvenjulegan hátt; þess engin dæmi á
þingi, að tvö frv. kæmu um sama mál
og sömu atríði, áður en nefnd hefði
við málið fengist.
Efni frv. yfði ekki rætt við þessa
umræðu með gagngerðum rökum.
Flutningsmenn hefðu nú fallið frá
því, að heimta sérmáiin út úr ríkis-
ráðinu, og hefði þó sá flokkurinn áður
haldið því fram, að þar væri um
hyrningarsteininn að ræða, og þeir, sem
ekki hefðu viljað gera ríkisráðssetuna
að kappsmáli, hefðu verið ófrægðir
sem flón og landráðamenu. Gleðilegt
að andstæðingar okkar eru farnir að
sjá, að við erum hvorugt. Með því
hafa þeir þá lýst yfir því með okkur,
að þeir vilji ekki samþykkja neitt,
sem raskar ríkisheildinni eða dregur
okkur undan sjálfsögðu eftirliti hennar.
Allir eru þ ví að færast á sama grund-
völlinn og samkomulagi ætti að vera
unt að kom á. j?ó eru atriði i þessu
frv., sem ekki er unt að ganga að.
þetta er i fyrsta skifti á ísl. lög-
gjafarþingi, að farið er fram á að við-
urkenna stöðulögin sem réttmæt, og
þar með er þá í fyrsta sinni gerð til-
raun til þess að íá oss til að viður-
kenna, að danskt löggjafarvald hafi
rétt til að ráðstafa oss. f>etta mál
þarf ekki að rekja sundur nú. f>að
vær hreinn og beinn voði fyrir stjórn-
mál íslands í framtíðinni, ef það yrði
samþykt.
Allir viljum vér, að æðsta stjórn
vor sé hér í Iandinu, ráðgjafinn hér
búsettur. En stjórn og landshöfðingi
hafa skýrt tekið það fram, að það sé
ósamþýðanlegt ríkiseiningunni.
Elutningsmenn frv. hafa nú ætlað
að komast úr vandræðunum með tveim-
ur ráðgjöfum, — tveimur tígulkóngum
1 spilunum. Annaðhvort verður Reykja-
víkur-ráðgjafinn aðalráðgjafinn og
Kaupmannahafnar-ráðgjafinn að eins
skuggi af honum; það hlýtur að reka
sig á ríkiseininguna. Eða Hafnarráð-
gjafinn verður aðalmaðurinn, Reykja-
víkur-ráðgjafinn ekki annað en undir-
tylla hans; þá verður breytingin lítil
frá því, sem nú er, en ver stæðum vér
þá að vígi en nú, að eg ekki tali um,
hve miklu ver vér stæðum þá að vígi
en ef hitt frumvarpið yrði samþykt og
staðfest. Ræðum. metur mikils ráð-
gjafa-búsetu hér á landi. En þess-
a r i búsetu kemur honum ekki til
hugar að greiða atkvæði, því að það
væri að bjóða mönnum steina fyrir
brauð.
Ræðum. vill ekki vekja neitt kapp
um málið; en eins og þetta frumv. sé
nú, só það voði fyrir sjálfstæði vora,
óhentugt og ófáanlegt.
Hannes Haýstein hefir ekki viljað
kveikja neinn eld, heldur miklu frem-
ur slökkva eldinn í síðasta ræðumanni.
Futningsmenn þurfi enga grein fyrir
því að gera, hvers vegna' þeir beri
málið svona upp; það sé gert sam-
kvæmt þingsköpunum og með sam-
þykki forseta.
Neitar því, að þingið viðurkenni
stöðulögin með því að samþykkja
þetta frv., fremur en stjórnarskráin
og frv. dr. V. G. geri það; í þeim
báðum sé vitnað til stöðulaganna.
G. G. sagði, að ráðgjafarnir yrðu
eins og tveir tigulkóngar. Jón Sigurðs-
son vildi hafa þá tvo eða fleiri 1851,
og það gerír hvorki til né frá, hve
margir þeir eru, ef þeir vinna sitt
verk og reka sig ekkert á.
Vér stæðum ver að vígi með frv.
dr. V. G. en nú, ef vér vildum síðar
fá stjórnina inn í landið. Ráðgjafinn,
sém þar er gert ráð fyrir, mundi al-
drei samþykkja að flytja sig hingað
til Reykjavíkur.
Dr. Valtýr Guðmundsson: Okkar
frv. er bygt á samningagrundvellinum;
um þetta frv. er vonlaust. Gleðilegt,
að hinn flokkurinn skuli vera farinn
að viðurkenna, að ekki sé til neins að
heimta ráðgjafann út úr ríkisraðinu.
Sérstaklega er ánægjulegt að sjá 1.
þingmann Árnesinga sem flutnings-
mann að frumv., sem ætlar ráðgjaf-
anum að sitja í ríkisráðinu, eftir allar
hans kenningar um »lögfestinguna«
þar.
í ráðgjafabréfinu 29. maí 1899 et
greinilega lýst yfir þvf, að ekki komi
til nokkurra mála, að ráðgjafinn sé
hér búsettur; og það er ekki stjórnin
ein, sem segir þetta, heldur allir
stjórnmálamenn, sem ha|a íhugað málið
vandlega, eins og t. d. landshöfðingi.
Hann hefir í bréfi til stjórnarinnar
sagt það óhugsanlegt, að ráðgjafi sé
hér búsettur.
Flutningsmaður vísaði til Jóns Sig-
urðssonar 1851. En þá stóð alt öðru-
vísi á en nú. Krafa Jóns Sigurðsson-
ar var þá »Personalunion«, eins og
mílli Noregs og Svíþjóðar. f>á var
engin föst skipun komin á sambandið
milli landanna. Nú er svo komið, að
vér getum ekki haldið því fram, að
vér séum ríki út áf fyrir osa.
Um löggilding stöðulaganna með
stjórnarskránni er það að segja, að
vór höfðum ekkert vald yfir stjórnar-
skránni, þegar hún var sa-a*in, og
berum því enga ábyrgð á henni. í
fyrra frumvárpinu er vitnað í það eina
atriði stöðulaganna, sem alþingi hefir
samþykt. Tilvitnáh þessa nýja frv. í
stöðulögin er því annan veg farið.
Reykjavíkur-ráðgjafinn á að bera
ábyrgð eftir þessu frv. En hvernig á
hann að béra ábyrgðina á því, sem
annar ráðgjafi undirskrifar með kon-
ungi? Hafnarráðgjafinn hlyti að und-
irskrifa flest lög og stjórnarráðstafanir;
ábyrgðin hlýtur að lenda á honum,
því að hún er bundin við undirskrift-
ina. Landsdómur á að dæma ráð-
gjafann hór, en ákvæði vantar um að
setja hann á stofn. Ræðum. benti á
fleiri aukaatriði, sem væru vanhugsuð
í frv., þar á meðal um bráðabirgða-
fjárlög; af því að vér befðum sam-
einað þing, gæti það ekki fyrir komið
hér, sem svo oft hefði að höndum
borið í Danmörku, að þingið kærai
sér ekki saman um fjárlög.
Lárus H. Bjarnason taldi tillögumenn-
ina 1895 hafa hagað sér líkt og flutn-
ingsmenn þessa frv., komið með til-
lögu til þingsályktunar í stjórnar-
skrármálinu ofan í frv.
Ekkert yrði bygt á bréfum ráðgj.
og landsh. um búsetuna, því að þá
hefði ráðgjafinn átt að vera einn, en
nú tveir.
Ræðum. gerði ráð fyrir, að hvorugt
frv. fáist staðfest undir stjórn hægri-
manna, en við ráðaneytisskifti, sem
innan skamms séu í vændum, megi
ætla, að hérlendur ráðgjafi fáist. Alíir
foringjar vinstri manna hafi lýst yfir
því, eftir fregnum, sem hingað séu
komnar með mikilsvirtum íslendingi,
að búsetan verði ekki neinn ásteyt-
ingarsteinn.
Pétur Jónsson: Báðir flokkarnir
hafa nú gengið svo langt, hvor til
móts við annan, að þeir komast naum-
ast lengra. B ú s e t a n skilur þá,
Flokkur dr. V. G. hefir farið svo langt,
sem hann getur, ef hann á ekki að
sleppa voninni um, að stjórnin verði
við kröfunum, og það er eðlilegt, að
hann fari ekki lengra. Hinn flokkur-
urinn vill heldur bíða, í þeirri von,
að síðar fáist ráðgjafi, sem búsettur
sé hér á landi. Við byggjum vonir
okkar á vinstrimannastjórn. Er rétt
að sleppa þeim vonum, sem menn
geta gert sér um afleiðingar af breyttu
stjórnarástandi í Danmörku? Hvað
sem næst verður ofan á verður látið
haldast æðimörg ár til reynslu. J>ess
vegna eigum vér að líta á, hvort ekki
muni meiri stjórnarbætur í vændum
hjá nýrri stjórn.
Hannes Ila/stein kannaðist við, að
réttara hefði verið að orða ákvæðið
um bráðabirgðafjárlög í þá átt, að
því að eins mætti gefa þau út, að
þingið hefði ekki s a m þ y k t fjár-
.lög.
Guðlaugur Guðmundsson varaði
deildina að lokum við því, að byggja
atferli sitt í stjórnarmáli landsins á laus-
legum sögusögnum um ummæli manna,
sem full ástæða væri til að ætla að
ekki hefðu íhugað málið og enga á-
byrgð bæru á orðum sínurn, þar sem þeir
væru ekki víð völdin, — sögusögnum,
sem líka væru rengdar. Alveg óvíst,
að ný stjórn komi í Danmörku fyrstu
árin, og sömuleiðis óvíst, að hún verði
okkur auðveldari en sú stjórn, sem
nú er. Vér færum að elta skýjaborg-
ir með því að hlaupa eftir slíkum
sögum.
Búsetan og viiastrimenn.
Búsetan og vinstrimenn, — því
tvennu beitir nú afturhaldsliðið sem
kappsamlegasí til að fleka hugsunar-
og skilningslitlar sálir til fjágis við sig.
Búsetan annars íslandsráðgjaf-
ans hér telja þeir þeim trú um, móti
betri vitund, að enginn þröskuldur
muni verða eða þyrnir í augum
stjórnarnnar, ú r þ v í a ð hinn eigi
að vera búsettur í Khöfn.
Óllum ráðgjöfum konungs er ætlað
að sitja 1 ríkisráði Dana, samkundu,
sem heldur fundi alt af öðru hvoru
alt árið. Ráðgjöfunum er ekki ætlað
að koma þangað eftir því, hvort þeir
eiga þangað sjálfir brýnt erindi í það
og það skiftið, heldur eru þeir skyld-
ir þar að mæta, hve nær sem þeir eru
ekki forfaljaðir — alveg eins og þing-
menn mæta ekki á þingi þá að eins,
er þeir hafa eitthvert mál að flytja,
heldur að sjálfsögðu alt af og undan-
tekningarlaust, ef þeir hafa ekki brýn
forföll. þess vegna er í ráðgjafabréf-
inu 29. maí 1897 aðaláherzlan lögð á
ríkisráðssetuna, þar sem verið er að
afsegja hérlenda búsetu ráðgjafans.
Aðalástæðan þar gegn hérlendri bú-
setu ráðgjafans er sú, að hann verður
fyrir hvern mun að sitja í ríkisráðinu.
Vegna ríkisráðs3etu hans segir
stjórnin, að ekki geti komið til nokk-
urra mála að hann sé búsettur hér á
landi. Og þetta er ekki nema eðlilegt
og sjálfsagt. Alþingismenn geta ekki
dvalið norður í landi um þingtfmann,
ef þeir eíga að sitja á þingi. Alveg
eins er um ráðgjafann — hann getur
ekki verið búsettur hér í Reykjavík,
ef hann á að vera í ríkisráði Dana
úti í Kaupmaunahöfn.
Að flytja ráðgjafann hingað til lands
er því í raun og veru hið sama sem
að kippa honum út úr ríkisráðinu,
þótt svo eigi ekki að heita í orði
kveðnu. Búsetufleygurinn er ekkert
annað en ríkisráðsfleygurinn dular-
klæddur. Og hver heilvita stjórn,
hvort sem hún er skipuð hægri- eða
vinstrimönnum, áttar sig á því gerfi.
Ganga má að því alveg vísu, að
þegar þessi nýi fleygur reynist árang-
urslaus orðinn, þá verður óðara smíð-
aður annar nýr í hans stað, svo sem
t. d. um, að konungur sjálfur
skuli vera hér búsettur nokkuð af
tímanum að minsta kosti, eða þá rík-
iserfinginn, e ð a að ísland skuli vera
þjóðveldi í ríkistengslum við Dan-
mörku, eða eitthvað út í loftið, sem
þeir halda, að skynminstu kjósendum
sínum láti vel í eyrum og ginna
megi þá til að kalla »frjálslyndi« og
spana til að vilja eigi heyra aðra
nefnda til þingfarar en þá, sem slíka
vitleysu aðhyllast; hinum verði þá
erfitt um vik að kljást við kjósendur
— þeir berjist þá sýnilega á móti
heimastjórn! það er sí og æ látið við
klingja.
Vinstrimenn fullyrða þeir því næst,
að muni nú verá að eins ókonnjir til
valda í Danmörku og sé því mesta
óráð, að bíða eigi þess með stjórnar-
bótina; þá fáist hún margfalt betri.
En þeir v i t a, þessir sömu piltar, að
vinstrimenn e r u eigi hóti nær valda-
stóli nú en fyrir mörgum árum, held-
ur eru mestar líkur til, að hægrimenn
sitji kyrrir mórg ár enn, úr því að
þeir hreyfðu sig ekkert í vor, hvorki
eftir fólksþingiskosningarnar né eftir
fulltrúafund hægrimanna. Eins
v i t a þeir og hitt, að munnmælin
um ríflegri kosti hjá vinstrimönnum
oss til handa eru ekkert annað en
reykur, og að þeir, sem fyrir þeim
eru bornir, eru útvaldir samverkamenn
þeirra í viðleitninni að fleka þjóð og
þing til að hafna allri stjórnarbót og
vera enn svo mörgum árum skiftir f
sömu stjírnarógöngunum, í þágu þeirra
einna, sem sjá sér hag og hlunnindi
að því, hvað sem líður landi og lýði
sem búa á meðal annars undir þeim
óbærilega skaðræðisófriði, er stjórnar-
deilan elur.
Um hitt er þó mest vert, að hið
megnasta óráð væri fyrir íslendinga
að þiggja slíka bvlsetu, sem afturhalds-
liðið er að halda að oss, þ ó a ð hún
væri á boðstólum. þ>að væri háski
og skaðræði, að gera ráðgjafann, sem
þingið á að semja við, að undir-