Ísafold - 24.07.1901, Side 3
; 199
varpið eftir megni, og, ef mönnum ber
eitthvað á milli, að styðja að sam-
komulagi, svo að málið geti fengið
sem heppilegastan framgang á þessu
þingi«.
Brúará brúuð
Ný brú er nú lögð á JBrúará í Bisk-
upstungum, á Steinbogagljúfrinu, svo
sem 50 föðmum fyrir neðan gömlu
brúna, ef brú skyldi kalla (á sprung-
unni í miðri ánni).
Brú þessa hina nýju, sem er úr tré,
hefir smíðað hr. kaupm. H. Helgason
í Reykjavík, og flutt hana austur og
lagt hana á ána. Hún er vel traust
og öll jámvarin, 2ð álna löng og 4J/2
al. á breidd; en 9 álna bæð frá henni
niður að vatni.
| Yfir hana fór nýlega 14 hesta lest
alklyfjuð, og var ekkert lát á.
Brúin er gerð á landssjóðs kostnað,
með því að vegurinu milli þingvalla
og Geysis er landssjóðsvegur.
Kostnaðarreikningur ófullger enn.
Hann verður mikill að tiltölu, vegna
afar örðugs flutnings. Sumstaðar urðu
menn að bera máttarviðina; hestum
varð eigi við komið. Um hesta varð
og að skifta 4 sinnum á klukkustund,
þar sem örðugast var yfirferðar; ann-
ars hefðu þeir ekk* rt enzt.
Gamla brúin litla yfir hraunsprung-
una í miðjum árfarvegnum er þar
með úr sögunni. þar var tími til
kominn. |>að var sveitin, Biskups-
tungnabreppur, er hana hafði smíða
látið. Hún var orðin 30—40 ára, og
farin að fúna, þótt í vatni lægi nær
alla tíð. Handrið var eftir henni
beggja vegna til skamms tíma, en nú
horfið fyrir nokkrum árum og því ær-
ið glæfralegt að fara hana, er áin var
mikil og alldjúpt var á brúnni. Enda
hrapaði í fyrra hestur út af henni al-
klyfjaður niður í gljúfrið og hefir ekk-
ert af hoDum sóst síðan.
Fátækramálið. Nefndin í því máli
(Guðl. G. form. og frsm., Magnús Torfas
skrif., Þ. G, Jósafat Jónat., Jóh. Jóhann-
es.) leggur tíl, að skorað sé á landstjórn-
ina að skipa 3 manna nefnd milli þinga
til þess:
a ð safna satnan i eina lieild fátækra og
syeitarstjórnarlöggjöf landsins og eudnrsemja
hana með þeim brejtingum, er þurfa þyk-
ir;
að láta uppi álit sitt um, hvort eigi verði
heppilegt, að landsjóður legði ellihrumu
alþýðufólki, sem eigi hefir þegið af sveit,
ellistyrk til móts við og í sambandi við
styrktarsjóði handa alþýðufólki;
að láta uppi tiilögur um, hvort eigi muni
ráðlegt, að landssjóður styðji að stofnun á-
byrgðarsjóðs, er veitir alþýðumönnum tæki-
færi til að tryggja sér eilistyrk.
Sérstaklega er milliþinganefndinni ætlað
að taka til íhngunar, hve langan dvalar-
tima þurfi til að vinna /sér sveit, hve stór
framfærsluumdæmi skuli vera, hvort heppi-
legt muni vfera að skifta framfærinu miili
dvalar- og framfærsluhreppsins, hvort ástæða
sé til að koma npp fátækrakælum, og þá,
hvort það skuli vera þvingunarstofnanir
eða uppeldisstofnanir fyrir ellihruma og
munaðarleysingja eða hvorttveggja, og, ef
til lcemur, sambandið milli þeirra.
Friðun lireindýra. Nefind i efri d.
(J. II, G. V., A. V. T) vill fara miklu
lengra í þvi máli en flutn.m.: friða hrein-
dýrin algerlega alla tima árs og 10 ár sam-
fleytt fyrst um sinn, og leggja 50 kr. sekt
við að drepa þau, til þess að aldrei geti
verið peningalegur vinningur að brjóta lög-
in, hvernig sem á stendur. Nefndin er
hrædd um, að dýrakyn þetta mundi að
öðrum kosti alveg upprætt úr landinu á
fám árnm.
Uandssjóðskirkjur. Þessar lands-
sjóðskirkjur vill fjárlaganefndin láta selja
söfnuðunum í hendur t.il fjárhalds og um-
sjónar:
Langholtskirkju með 3200 kr. álagi,
Þykkvabæjarklausturskirkju með 1800 kr.
álagi og fjörur þær, er kirkjunni eru tald-
ar, og Yestmanneyjakirkju með 6500 kr. á-
lagi.
Nautgripa-ábyrgðarsjóðir. Ein
þingnefndin (landbúnaðarnefnd) vill láta
veita sýslunefndum vald til að gjöra sam-
þyktir um ábyrgðarsjóði fyrir nautgripi á
þann hátt og með þeim takmörkunum
og skilyrðum, s«m sett eru með lögunum 1891
um kynbætur hesta.
Vatna-ágangur o. fl. Þeir Sig'
Sigurðson og Magnús Torfasen vilja láta
veita sýslunefndum vald til að gera sam-
þyktir til varnar skemdum af vatna-ágangi,
um vatnsveitingar og um skurði.
Bæjargjöld í Reykjavík. Þm. þess
kjördæmis flytur frv. um þá breyting á
lóðargjöldum, að bæjarstjórnin megi ráða
þeim árlega innan tiltekinna takmarka, sem
sé, að goldið sé ekki minna en 3 a. og ekki
meira en 10 a. af hverri ferh.alin undir
húsum í lögsagnarumdæminu, og J/4—I2 a.
af hverri ferh.alin óbygðrar lóðar.
Húsasundin í Rvík. Sami þm. flyt-
ur frv. um, að þau megi hverfa alveg, ef
ekki eru hafðir gluggar, dyr né önnur op
á veggjum þeim, er vita að annars manns
lóð, og sé eldtraustur gafl í milli timbur-
húsa.
Arnarhólstún vill sami þm. láta þing-
ið skora á stjórnina að undanskilja frá
embættistekjum landshöfðingja við næstu
landsh.-skifti, þ. e afnot þess, og láta þá
Reykjavíkurkaupstað túnið falt til bygg-
inga.
Kláðinn. Þingmefnd i því máli viil
auka nokkuð frv. stjórnarinnar: veita amt-
manni meðal annars heimild til einangrun-
ar á fé, þótt ekki sé fullsannaður kláði;
hafa kiáðaeftirlitsmann í hverri sýslu,
sýslumanni til aðstoðar, tilnefndan af amt-
manní eftir tillögnm sýslunefndar; sektir
renni i sýslusjóð.
Ýmislegt utan úr heimi.
Stórtíðindi engiu í viSskiftum Búa og
Breta; en síður en svo, að friður só
nærri garði. Steijn var nýlega endur-
kosinn ríkisforseti í Óraníu, þótt það
land eigi að vera á valdi Breta í orði
kveðnu, og tjáði þá Búa mundu geta
varist enn fult ár að minsta kosti. Aðr-
ir segja 3—4 ár. Járnbrautarlest sprengdu
Búar í loft upp fyrir Bretum 4. þ. mán.
nærri Pietersburg í Transvaal og fórust
þar 19 menn brezkir. Daginn eftir
brendu þeir járnbrautarstöð í öðrum bæ.
Þó er svo að heyra á brezkum hraðfrétt-
um að minsta kosti og öðrum blaða-
fregnum, sem miklu oftar fari Búar hall-
oka, í smáskærum þeim, er þeir eiga við
Bretaherinn.
Um mánaðamótin síðustu voru þeir
ofsaliitar i Bandaríkjunum í Ameríku,
að fjöldi manna beið bana, i New-York
hátt upp í 1000, þar á meðal á 3. hdr.
á 1 degi, 2. þ. mán. Hitinn var um
og yfir 30 stig á R.
Það stóð til, að Filippseyjar yrðu leyst-
ar úr herviðjum og lagðar undir borg-
aralega stjórn Bandaríkjanna þjóðhátíð-
ardag Bandamanna, 4. þ. m. Sá heitir
Taft, dómari, er þar er skipaður land-
stjóri.
Bankahrun urðu mikil á Þyzkalandi í
áliðnum f. mán. Fyrst féll mikill banki
einn gamall og voldugur í Leipzig, fyrir
fóglæfra bankastjórans, Heinrieh Exners,
og þá hver að öðrum. Þó von um, að
liríð þeirri lótti fljótt.
Dáinn er 6. þ. m. Hohenlohe fursti,
fyrrum ríkisk-anzlari Þ/zkalaudskeisara
(1894—-1900), en þar á undan sendi-
herra í París og (síðan) landstjóri í
Elsass-Lothringen. Hann hét fullu uafni
Chlodwig Hohenlohe-Schillingsfúrst og
var maður vellauðugur; hann var hálf-
áttræður, er hanti lózt. Enginn garpur
þótti hanti í stjórnmálum.
Það slys varð í Danmörku 3. þ. m.,
að skip sprakk í loft upp á leið frá
Hálsi í Limafirði til Khafnar með nafta-
farm. Tveir skipverja björguðust með
lífi, en skaðbrendir, og lézt annar degi
síðat'.
Gotsche biskup í Rípum lózt á Jóns-
messu, ogl. þ. mán. S. B. Thrige sagn-
fræðingur, fyrrum rektor í Haderslev,
kominu á níræðisaldur.
Leiðangurslið stórveldanna í Kína er
nú mestalt á heimleið snúið. Keisara-
ekkjan þorir ekki að hverfa aftur til
Peking, fyrir utanálfumönnum, og setl-
ar því að gera Kaifongfu við Hoangho-
elfi að stjórnarsetri. Sá bær er með
100,000 íbúa, og þar hagar svo til, að
nleypa má vatni yfir landið alt um-
hverfis, ef verjast þarf fjandmannaher.
Jónsmessunótt varð það slys í Virginíu
í Bandaríkjum (N. A.), að þar rofnaði
vatnsstífla og varð af voðaflóð, er grand-
aði fjölda bæja (ttm 30) og drekti nær
1000 tnanna; fjártjón 7—8 milj. kr.
Bankamennirnir. Aldrei stóð til,
að bankamennirnir, þeir Arntzen og War-
bnrg, kæmn með pessari ferð; og er þvi
gagnslítið fyrir afturhaldsmálgagnið að
hlakka yfir, að það varð ekki. Það er 6.
ágúst., sem alt af hefir 6taðið til að þeir
kæmu, og er ekki annað að heyra á þeim
i siðasta bréfi (með Laura) en að af því
verði þá.
Embættispróf í læknisfræði við
Khafnarháskóla hefir Sigurður Magnússon
frá Laufási tekið i sumar með 2 betri
aðaleinkunn.
Dáin í Khöfn ekkjufrú Arndís Fischer,
dóttir Teits heit. Finnbogasonar dýralækn-
is, móðir Fr. Fischers stórkaupmanns, göf-
ug merkiskona og vel látin.
Með póstskipinu (Laura) um daginn
komu ennfremttr: Boilleau barón á Hvitár-
völlum, Johannes v. Euch, yfirbiskup ka-
þólskra manna á Norðurlöndum, Björn
Jónsson bóndi í Argyle í Canada, bróðir
Kristjáns heit. skálds, kynnisför til frænd-
fólks sins nyrðra.
Strandb. Skálholt fór aftur í gær-
morgun vestur um land og norður, eins og
til stóð, og með honum fjöldi farþega
flestir hinir sömu og komið höfðu, m. fl.
Sigling. Sunnudagsmorgun 21. þ. mán.
gufuskip Garthdee, skipstj. James Byth,
frá Gangemouth með kolafarm og steinoliu
til kaupm. Jóns Þórðarsonar, og fer aftur
með um 309 besta, er hann hefir keypt
austur í sýslttm. — Nokkrum dögum áður,
17., kom gufuskip Progres til Bryde með
kölafarm.
Veðrátta. Með hundadögunum, þ. e.
i gær, kom loks þerririnn, langþráður
mjög, tnikill og góður.
Alþýðubókasafn mjög þarflegt og
nytsamlegt er stórkaupmaður Lefolii að
setja á stofn á Eyrarbakka á sinn kostnað,
af ritum um landbúnað og sjávarútveg, is-
lenzkum og dönskum, hinum helztu og
beztu, sem til eru, þar á meðal t. d. Land-
mandsbogen, Hedeselskabets Tidskrift, ýms
rit um mjólkurmeðferð, bækur eftir Schu-
mann, P. Feilberg o. fl.
Um skóggræðsluhorfur hér á landi
heldur Flensborg skógfræðingur fyrirlestur
í kvöld kl. 9 i Iðnaðarmannahúsinu, fyrir
alþingismönnum, búnaðarfélagsmönnum og
almenningi, það sem rúm leyfir. Yerður
óefað mjög fróðlegur fyrirl. og mikils-
verður.
Strandb. Hólar
kváðu væntanlegir hÍDgað á réttum
tíma, 3. ágúst, þrátt fyrir bilunÍDa.
»Helsing0r«, bjargráðaskipinu, hafði
tekist að gera svo við þá, að þeir
komust norður á Akureyri rétta leið
frá Djúpavogi og ætla svo þaðan fyrir-
hugaða leið hingað. »He)singör« kom
hingað aftur fyrir fúm dögum úr þeim
leiðangri.
Skarlatssótt
í Reykjavíkurhóraðl 1901.
í Reykjavík U t a n b æ j a r
Jan. 40 sjúkl. á 26 heiml . 8 sjúkl. á 5 heiml.
Febr. 14 — -11 — 11 — - 6 —
Marz 5 — -5 — 6 — - 5 —
April 11 — - 5 — 5 — - 5 —
Mai 9 — - 6 — 12 — - 3 —
Júni 12 — -11 — 0 - - 0 —
Siðan 20. mai hefir enginn tekið sóttina
utanbæjar. í Reýkjavik er lítil sem engin
von um að hún verði stöðvuð til fulls
meðan hún er uppí og allútbreidd í ýmsum
héruðum, sem eiga stöðug mök við bæinn.
17 júni 1901. G. B.
V eðurathuganir
í Reykjavik, eftir aðjunkt Björn Jensson.
3 r—1 W <3 CD œ 2 n
19 0 1 0 kr. cx c- — pr 3
júlí B 3 OQ ■p c4- B■ s 2L F °2 B 1 • p Sc 'S
Ld.20. 8 751,3 n,6 S 1 10 0,8 8,6
2 752,3 n,4 s 1 10
9 752,7 9,6 s 1 10
Sd.21. 8 755,2 n,i S 1 6 1,6 7,4
2 758,7 n,i w 1 9
9 760,4 9,2 w 1 10
Md.22.8 759,8 9,0 sw 1 10 0,2 7,1
2 759,1 11,4 sw 1 10
9 758,6 9,6 ssw 1 8
Þd.23. 8 758,8 11,2 sw 1 2 0,1 7,8
2 759,9 12,6 NNW 1 1
9 761,3 10,6 WNW 1 1
Velverkaðan æðardún, Stol-
skinn og lýsi kaupir hæsta verði
fyrst um sinn
verzlunin GODTHAAB
mót peningum út í hönd.
Thor Jensen.
á Alafossi tekur á móti ull til að
vinna úr dúka.
Halldór Jónsson.
Til leigu nú þegar 1 herbergi i miðj-
um bænum með stofugögnum. Lika fæði
ef óskað er. Ritstj. vísar á.
STÓRAN fl FSLÁTT
gef eg nú á eftirfylgjandi efnum í
Sumarföt, Sumarfrakka,
Buxur.
öll mjög E L E G A N T og af nýjustu
gerð.
Bankastræti 14.
Guðm. Sigurðsson.
Munið eftir að koma í tíma ýyrir
þjóðhátíðina.
Seltirningar
er beðnir að vitja ísafoldar í afgreiðslu
hennar Austurstræti 8-
CRAWFORDS
ljúffenga BISCUITS (smákökur) tilbúið
af CRAWFORDS & Son
Edinborg og Loiidon
StofnaS 1813.
Einkasali fyrir Island og Færeyjar
F. Hjorth & Co.
Kjöbenhavn.