Ísafold - 23.04.1902, Blaðsíða 2

Ísafold - 23.04.1902, Blaðsíða 2
86 góðu, smátt og stórt: tóma, ómengaða »valtýsku«, eins og eg hefi nú magnað hana að yður fornspurðum og í yðar óþökk líklegast. — Ekki getur hann að því gert, ráð- gjafinn, þótt afturhaldshöfðingjarnir ali til hennar blint hatur, »valtýskunn- ar«, af því það var og er vit í henni, og af því hún hefir orðið sigursæl. þeir, sem við þjóðmál fást, eiga að líta á það, hvað landi og lýð er fyrir beztu, en hugsa minna um að þjóna geði sínu, svala hefndarhug sínum. Ekki á hann þeim neitt gott upp að inna hvort eð er, ráðgjafinn, svo að hann þurfi að vera að hlífa þeim eða þyrma skapsmunum þeirra. þeir ætluðu að blekkja hann ókunnugan og telja honura trú um, að þeir,—þ e i r væru íslenzkir vinstrímenn, afturhalds- seggirnir, og véla hann til að ganga á öll sín heit um að efla þjóðfrelsi og þingræði. »Valtýakuna« verðið þér að aðhyllast, segir hann, eins og hún er, hvert at- riði hennar, smátt og stórt; þar er ekkert undanfæri. Annað fáið þér ekki hjá mér. Nema þessa viðbót, sem er alveg í »valtýskunnar« anda, en anda hinna og óskum svo gagnstæð, sem mest má verða. f> a ð veit hann vel. Hann veit, að þeir voru með fals-bú- setu,»heimastjórn«, sem ekki var annað en grímuklædd Hafnarstjórn og stefndi að þvf, að gera íslendinga að »þegn- um þegnanna«, með því að halda uppi yfirráðum danskra ráðgjafa og lands- höfðingja sem undirtyllu þeirra, en með ráðgjafa-nafnbót, til fordildar og blekkingar, en annars ekki. f>eir vildu efla og auka landshöfðingjavaldið, þetta óþjóðlega embætti, sem stofnað var fyrir einum mannsaldri í þvf skyni, að sýna Islendingum í tvo heimana með skrifstofu-ofurvaldi til hnekkis þjóðræði og þingfrelsi. f> e 11 a var það sem þ e i r vildu. En hvað er það, sem ráðgjafinn vill? Hvernig er háttað búsetu þeirri og heimastjórn, sem h a n n býður ? Hún fer í þveröfuga átt við það, sem þ e i r ætluðust til, í gagnstæða átt við fals-»búsetuna« f þeirra ótæka og »óhafandi« frumvarpi (10-m.frv.). Er þeim þá ekki vorkunn, þó að þeir hatist við hið fyrirhugaða stjórn- arfrumvarp, og að þeim verði á, að láta bóla á þvf hatri stundum? f>eir sjá mikið vel, að það er ekki hyggilegt, af því að þjóðin hallast eindregið að því og heimtar frið, vill nú hafa endalok baráttunnar. f>eir látast þvf yfirleitt vera á því bandi, til þess að verða síður útskúfað í vor. En sumir þeirra kunna illa að stilla skapi sínu, og slær því út í fyrir þeim stundum. Ráðgera þá »fleyga«, eða segjast vilja engan frið hafaog því um Ifkt. En e r það ekki vorkunn? Gufuskipið Patria (285, Fekr, frá Björgvin) kom hingað i fyrri nótt, eftir 6 daga frá Khöfn, með spitalann kaþólskaog ýmsar vörum til kaupmanna hér. Farþegi Gnnnar Einarson kaupm., auk dansks yfir- smiðs að spitalanum. >Bóndason> eðaHalldór? Mérþyk- ir réttara að geta þess, þótt engin áhrif hafi á aðalefni greinar þeirrar í siðasta blaði, að i stað orðanna >heldur að eins 17,500 kr.« í 2. d. 18. 1. a. n. hefði átt að standa: >heldur að eins 25,000 kr.« II. Kr. Þráðlaus rafskeyti til íslands. Khafnarblaðið Samfundet flytur 14. þ. mán. dálitla hugvekju um þráðlaus rafskeyti til íslands, ásamt Færeyjum og Grænlandi, eða rafneistaakeyti, sem þau eru kölluð öðru nafni. Blaðið lætur þess getið, að nú sé liðin nær 2 missiri síðan er Marconi tókst að koma við þráðlausum skeyt- um fullar 300 rastir, og síðar hafi lán- ast að sendast á kveðjum með sama hætti eigi skemur en 560 rastir, frá Poob á Englandi til Crookhaven á írlandi; en að ekki séu nema 400 rast- ir milli Skotlands og Eæreyja, og við- líka langt þaðan til Dyrhólaeyjar—með öðrum orðum: miklu skemmri vegur en búið er fyrir löngu að koma slík- um skeytum á Englandi. |>ví þykir mál til komið, að fara að hugsa um rafskeytatengsli milli Is- lands og annarra landa, hvað sem lfð- ur tilraunum Marconi til slíkra tengsla milli írlands og Canada, tífalt lengri veg en milli Skotlands og Færeyja eða Færeyja og íslands, 400 rastir hvort sundið það, — hvort sem lagður er trúnaður á að það takist eða ekki. (það eru nær 8 rastir í hverri mílu danskri). En um þessi rafneistatengsli um þvert Atlanzhaf, 4000 rastir, segir blaðið annars, að enginn efi geti á því leikið, að Marconi hafi áreiðanlega tekist þetta, sem hann segir, að senda rafskeytÍ8merkið fyrir stafinn S þá vegarlengd, núna skömmu fyrir jólin í vetur. Hann hafi gert það þá ekki einu sinni, heldur mörg hundruð sinn- ura í striklotu, 32 sinnum á mínútu; þar sé því ekkert um að villast. Og nú nýlega hafi hann verið á ferð vest- ur um Atlanzhaf, og tekist þá að sendast á greinilegum rafneistaskeyt- um við rafmagnsstöð sína í Cornwall þangað til komið var 2700 rastir vestur eftir Atlanzhafi, en 3700 rastir hafi skilist stafurinn S; þá sögusögn stað- festu þeir, yfirmennirnir á skipinu, sem hann fór með og heitir Phila- delphia. Fyrir því sé ekki ólíklegt, að koma megi ef vill hæglega á þráðlausum raf- skeytatengalum beina leið milli Jót- landsskaga og Færeyja, rúmar 1000 rastir, og meira að segja einnig frá Eeykjavík til Hvarfs á Grænlandi, 1100—1200 rastir. En það sé alla tíð mikilsvert ekki einungis fyrir Græn- landsbyggja, heldur og eigi síður fyrir veðurfræðinga um heim allan, og þar með fyrir siglingar um Atlanzhaf; og sömu not fylgi einnig rafneistatengslum við ísland. |>á er þess getið í greininni, að Mar- eoni hafi oftar en einu sinni verið að hugsa um, að nota einmitt leiðinaum Færeyjar, ísland og Grænland til raf neistatengslanna milli Norðurálfu og Vesturheims, vegna þess, að þótthon- um takist að komast beinu leiðina, þá sé hætt við truflun þar á nálægar rafskeytastöðvar, en þeim verði ekki til að dreifa norður hér. Loks er á það vikið, að hér sé tæki- færi fyrir danska auðmenn og fram- faramenn að hagnýta sér sem skjótast þennan merkilega töfragrip til sam- kepni við sæsímana; og mun það eiga að skiljast svo, sem blaðið ætlist til, að þeir bregði við tafarlaust og gang- ist fyrir þessum rafneistatengslum fyr- nefnda leið um Færeyjar, ísland og Grænland. Ekki væri þar leiðum að líkjast, með því að auðvaldsjötuninn Morgan í Ameríku standi fyrir nýju, stóru félagi þar til hagnýtingar á hinni nýju uppgötvun Marconi um öll Bandaríkin af enda og á. Hver veit nema hér dragi þá til meiri háttar tíðinda fyrir land vort fyr en varir? Kostningarréttarbreytingin fyrirhugaöa. þ>að eru vandræðareglur, kosningar- réttarskilyrðin sum, sem nú eru í gildi og hafa verið lengst af, síðan alþingi var eridurreist, einkum þau um þá menn í kaupstöðum, sem ekkert gras- býli hafa og hvorki eru embættismenn né kandídatar. Samkvæmt þeim hafa þeir einir utan fyrnefndra flokka kosningarrétt, sem eru annaðhvort kaupstaðarborgar- ar eða þurrabúðarmenn, og gjaldi þeir 8 eða 12 kr. til sveitar. það er sem sé fjöldi manna f kaup- stöðum, ekki sízt hér í höfuðstaðnum, er virðast eiga eftir andlegum og efna- legum þroska sínum engu síður tilka.ll til kosningarréttar en margur grasbýl- ismaður t. a. m., en verða þó hvorki taldii með kaupstaðarborgurum né þurrabúðarmönnum. þ>að eru einkum einhleypir menn, sem eru við verzlun, hafa atvinnu á sknfstofum eða við einhvern iðnað. Orðið kaupstaðar-b o r g a r i verður að merkja anuaðhvort þann, sem hefir borgarabréf til verzlunar eða iðnaðar, eða þá sama sem kaupstaðarbúi. Ef á að fara að láta það þýða eitthvað þar í milli, hlýtur að verða úr því tómur reykur og ruglingur. það er og vafalaust, að upphaflega hefir verið svo til ætlast, að orðið næði til þeirra einna, er borgarabréf hefðu, — alls ekki ætlast til, að kosningar- rétturinn væri rifari en það. þetta orðalag mun og vera úr norsku stjórnarskránni frá 1814, er hefir ann- ars heldur þröng kosningarréttarskil- yrði, og hefir verið látið haldast alla tíð, þrátt fyrir alla rýmkun á kosn- ingarréttinum að öðru leyti, annað- hvort í hugsunarleysi, eða þá af því, að þeim, sem ráðið hafa, þingi og stjórn, ekki sízt bændum á þingi, hefir þótt óþarfi að vera hleypa inn í kjósenda- hópinn alls konar kaupstaðar laus- ingjalýð, er þeir mundu svo kalla, *búðarlokum« o. s. frv. Ed þjóðin er nú löngu vaxin upp úr svo nærskornu fati. Og það hafa þeir fundið, sem lögunum hafa átt að beita, kjörstjórnir og kjörskrárnefndir, og farið því meir og minna út yfir þau endimörk, er lagastafurinn til tek- ur. En komist fyrir það vitanlega í ógöngur, og verið að reyna að fara einhverja handahófsleið, er leitt hefir til ósamkvæmni. Til dæmis að taka er eftir lögunum ekki hægt að setja á kjörskrá ein- hleypan verzlunarstjóra, sem gelduref til vill 100 kr. til sveitar, en hefir ekki borgarabréf. HaDn er hvorki borgari né þurrabúðarmaður. Lögin gera hann með öðrum orðum rétt- minni en bláfátækan þurrabúðarmann, er geldur að eins 12 kr., sem vel get- ur verið þar, sem mikil eru sveitar- þyngsli. Hér í höfuðstaðnum mun hafaverið reynt að fylgja þeirri reglu, að telja með kaupstaðarborgurum þá, sem vinna sjálfum sér hvort heldur er við iðnað eða verzlun, og þótt, ekki eigi heimili fyrir að sjá. En í þurrabúð- armannaflokki þá, sem það gera ekki, og eru þó heimilisfeður. En þó hefir ekki orðið hjá komist, að úr þessu yrði allmikið handahóf, sem sjá mun mega á kjörskrá þeirri, er nú er í gildi, og ættu þeir, sem þar telja sig verða fyrir skakkafalli og só ekki úr því bætt í hinni nýju kjörskrá, að leggjast nú ekki undir höfuð að fá það lagað, ef kostur er, meðan tími er til. En það ervikuna þessa á e n d a. Nú er von um, að hver fari að verða síða8tur fyrir þessar úreltu og óhæfu kosningarréttarreglum. f>ví að í nýju stjórnarskránni fyrir- huguðu er þessari vitlausu skiftingu í kaupstaðarborgara og þurrabúðarmenn alveg slept og lágmark sveitargjaldsins sem kosningarskilyrðis þar að auki fært niður í 4 kr. aukaútsvar. þar stendur svo: •Kosningarrétt til alþingis hafa----- Allir karlmenn í kaupstöðum og hreppum, sem ekki eru öðrum háðir sem hjú, ef þeir gjalda að minsta kosti 4 kr. á ári sem aukaútsvar«. það er munur á, hve þessi fyrirmæli eru miklu gleggri en hin. |>au eru alveg ótvíræð. Auk þess, sem þau fela í sér stórmikla rífkun kosningar- réttarins, meðal annars til lausa- mauna. f>etta er eitt af nýmælunum, sem þeir banka8tjóri og lífverðir hans (30) með *aðfengna« talsmanninum, Stykkis- hólms-séníinu, fengu á fundinum 2. apríl um 20 kjósendur aðra til að tjá sig, »a 1 g e r 1 e g a mótfallna«! Erlend tíðmdi. Aðalfréttir í póstskipinu, enn ó- komnu. En með gufuskipi, sem hingað kom í gær og fór 4 dögura síðar frá Khöfn, barst *það sögulegt, er síðau hafði við borið, til 15. þ. m. Töluverðar horfur orðnar á friðar- gerð með Búum og Bretum. |>eir höfðu sótt allir í einu fund Kitchener® lávarðar í Prætoríu, Búahöfðingj- arnir, bæði frá Transvaal og Óraníu, forsetarnir báðir, Steijn og Schalck- Burger (sem er fyrir Kriiger), og hers höfðingjarnir Louis Botha (yfirhersh.), De Wet, Delarey, Lucas Meyer o. fl. En ólíklegt þykir, að þeir hefðu gert það eða Kitchener viljað eiga tal við þá, ef ekki hefði verið búið áður að koma sér niður á frumatriðum friðar- ins. En um það er öllu leyndu hald- ið. Heima í Lundúnum mikill asi á Chamberlain, svo sem eitthvað stæði til. |>að var fyrra sunriudag, 13. þ,. m., sem skeytin komu frá Kitchener um viðtalið við Búahöfðingjana, og þurfti þá Chamberlain öæði að hafast við lengi dags á embættisskrifstofu sinni, aldrei þessu vant á helgum degi,. og finna konung að máli rækilega, en sendast auk þess á tíðum skeytum við Salisbury lávarð, er sat heima á bú- garði sínum, Hatfield. f>etta þótti alt vita á meiri háttar tíðindi, og spáðu margir því, að frið- argerðin ætti að spyrjast sviplega, ekki fyr en henni væri fulllokið, svo að ekki yrði neitt mas um eða þras út f frá. Megnar róstur í Belgíu, bæði höfuð- staðnum og ýmsum borgum öðrum,. með töluverðum vígaferlum og eigna- spjöllum; liggur við fullkon?inni stjórn- arbyltingu. það er mest út af rýmk- un kosningarréttar, eða andróðri aft- urhaldsmanna og klerkasinna gegn henni.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.