Ísafold - 23.04.1902, Blaðsíða 3

Ísafold - 23.04.1902, Blaðsíða 3
87 Verzlun W. FISCHER’S í Reykjavík. Nýkomnar vörur með skipinu „Dannebrog". Matvara, mjög miklar birgðir, meðal annars : Maismjöl, — Mais — kurlaður — Mat- baunir, beilar og klofnar — Bygg — Hafrar o. a. frv. (jóðar danskar kartöflur. Meieriostur — Margarine. Nýlenduvörur: Kaffi og Sykur alls konar — Síróp — Rúsínur — Sveskjur — Fíkjur — Kórennur — Kirsebær — Chocolade, þar á meðal COHSU.111 frá Galle&Jess- en — Macaroni — Pickles — Sennep og alls konar kryddvörur o. s. frv. Hindbærsaft — Kirsebærsaft — VínfÖUg. T ö b a k: Rjól — Rulla — Reyktóbak og Vindlar, margar teg. Vefnaðarvðrur: t. d. Cheviot, svart — Kvenslifsi — Sjöl, ullar- og Cachemire — Herðasjöl — Ullarbolir — Stumpasirz — Léreft o. s. frv. Járnvörur, svo sem: Saumavélar — Brauðhnífar — Járnpottar — Pönnur — Pottar emaill. — Vatnsfötur — Skolpfötur — |>vottabretti — Kolakörfur o. s. frv. Til útgerðar: Færi — Kaðlar — Segldúkur — Sjóföt — Koltjara — Stálbik — Black Varnish — Hrátjara o. m. fl. Bygflingarefni: Borðviður — Trjáviður — Plankar — Eik — Spfrur — Cement — Leirrör— Hverfisteinar — Saumur alls konar — - Fernisolía — Blýhvíta — Zinkhvfta — Terpentina — Farfi í dósura, ýmsir litir. Leirvörur ýmis konar og margt fleira, sem oflangt yrði upp að telja. Allar vörurnar sérlega góðar og ódýrar gegn peningum. Steens ráðaneytið í Kristjaníu hefir nu loks beiðst lausnar. Steen er orð- inn fjörgamall og farinn, og sessu- nautar hans litlir atkvæðamenn flestir. f>óttu því setið hafa öllu lengur en sætt var. 03car konungur í heilsu- bótarferðalagi suður við Miðjarðarhaf, en Gustav konungsefni í hans stað á meðan og var staddur í Kristjaníu, til að ráða fram úr ráðaneytisskiftunum. Talað var, að hann mundi helzt hall- ast að Berner stórþingisforseta, stór- eignamanni og þingmanni frá Björg- vinaramti syðra. f>að líkar vinstri- mönnum vel, því að Berner er og hef- ir lengi verið einhver mestur skörung ur í þeirra liði. Eigi var enn lokið sölunni á Vest- Urheimseyjunum dönsku. Málið í nefnd í landsþinginu, og andvígismeno söl- unnar ekki vonlausir um, að meiri hluti mundi verða þar á þeirra máli, í landsþinginu. Hollandsdrotning hin unga veik til tuuna. Strokinn botnvörpnngur. f>ess var getið síðast, að hersk. Hekla var þá nýkomin hingað inn með sekan botnvörpung. Hann var ekki enskur, heldur hollenzkur, og hafði tekinn verið samkvæmt vitnaskýrslu frá Vestmanneyjum og mæling her- skipsins eftir á, er sýndi, að mið það, sem hann hafði verið að veiði á með botnvörpu, var í landhelgi. Samkvæmt þeim gögnum var hann síðan dæmdur af bæjarfógeta laugardagskveldið er var í 1100 kr. sekt og upptæk gerð veiðarfæri og afli. Sama kvöld yfirgaf herskipið hann hér á höfninni og fór suður í Hafnarfjörð. f>að var botn- vörpungur óseinn að nota sér. Lög- regluþjóni þeim héðan, er hafa skyldi skipiðí haldi (S. P.), var látið skiljaat, að honum yrði varpað fyrir borð, ef hann hefði sig eigi til lands tafarlaust, og þorði hann ekki annað en gera það. Að því búnu léttir botnvörpungur akk- erum og lætur í haf. Sent var þeg- ar talsímaskeyti til Haf^arfjarðar og brá herskipið jafnskjótt við að elta sökudólg; en hann var löngu kominn í hvarf. Aukaskipi kvað vera von á núna frá »Samein- aða félaginu«, með vörur þær, er Laura komst ekki með, og átti að leggja á 8tað 17. þ. m. Kemur hér líklega samtímis. Auma afmánin, að uota ©kki slíkt til póstferðafjölgunar. KennarastyrktarsjóOur. Árið 1899, þegar kvennaskólinn i Reykjavík hafði stað- >ð í 25 ár og frú Þóra Melsteð hafði ver- ið forstöðukona hans alla þá tíð, gáfu bæði þáverandi og fyrverandi kennarar hans (konur sem karlar) henni dálitla heiðurs- gjöf, er hún skyldi verja á hvern þann hátt, sem henni bezt likaði. Pessi fjárhæð var sett i sparisjóð og í byrjun aprilm. þ. á. var hún orðinn 205 kr. Nú hefur frú Þóra Melsteð sett þetta fé í Söfnunarsjóð islands og mælt svo fyrir i gjafabréfi sinu sinu frá 5, april þ. á., að þetta fé skuli standa þar á vöxtum um 100 ára tímabil °g vextirnir að leggjast ár hvert við köfuðstólinn alla þá tið. En þegar þar er komið timanum og þetta er orðin álit- fjárhæð, þá skal verja vöxtunum — þó nldrei nema ’/4; einn fjórði skal ávalt lagð- ,,r við höfuðstólinn — til styrktar þeim, sem hafa veið kennarar, hvort heldur ar'ar eða konur, að minsta kosti 10 árvið nefndan skólan. Alt eftir nánari reglum, sem settar eru í gjafabréfinu. Guðsþjónusta i dómkirkjunni d föstu- aagmn kemur, 25. apríl, kl. 5 síðd. Friðrik Friðrikssun. Ýmislegt utan úr heimi. Töluvert er orð á gert í enskum blöðum og norskum ískyggilegum við- búnaði af R ú s s a hálfu til að færa út kvíarnar uorður á bóginn og vest- ur um Finnmörk í Noregi. f>á hefir lengi munað í íslausar hafnir þar. peirra eiga þeir engan kost ella fyr en suður við Svartahaf eða þá austur við Kyrrahaf. Við Eystrasalt eru all- ar hafnir í þeirra ríki að jafnaði ís- teptar frá hausti til vors. Svo segja fróðir menn um hagi og háttu Rússa8tjórnar, að því hafi hún gengið á helg særi keisarans við Finna og steypt landvarnarliði þeirra saman við meginherinn rússneska, með rúss- neskum höfðingjum yfir, að hún vildi eiga kost á að hafa sjálf herból fast við landamæri Svíþjóðar og Noregs, en láta eigi Finnlendjnga, frændur Svía og vini, geta tekið af skellinn, ef svo vildi verkast, með þarlendum her og þeim undirgefnum. Enskt blað hefir það eftir ferða- manni, er leið hafi átt nýlega af Fmn- landi norðanverðu til Trumbs (Tromsö) í Fiunmörk, að hann hafi séð Rússa vera í óðaönn að gera sér hermanna skýli mjög nærri landamærum Noregs þar, eigi færri en 28, skemur en mílu frá merkjum og handa 680 hermanna hvert. Að þessum skýlum var unnið nótt sem nýtan dag. Um sömu mund- ir varð víða vart við um Noreg fjölda rússneskra njósnarmanna. Norðurjaðar Finnlands (Rússa) gengur eins og fleygur norður í Finn- mörk hina norsku og er þar örskamt til sjávar. f>að þykir nú heldur ólík- legt, að Rússar muni láta sér í aug- um vaxa til lengdar að slíta ekki breiðara haít en það, þeir, sem hafa þanið ríki sitt óraveg suður og austur um síðustu 20—30 ár, hvað sem hver hefir sagt, og gera það enn, ár frá ári. Vesturríkin, England og Frakkland, hafa að vísu fyrmeir tekið ábyrgð á þvf, að Svía konungur og Norðmanna haldi ríki sínu óskertu fyrir Rússum. f>að var í notum þess, að hann var þeim hliðhollur í ófriðinum við Rússa 1854—56, þeim er kendur er við Krim. En þess kyns sáttmálar þykja oft vilja vera haldlitlir, er á skal herða, enda eru þau miklu umskifti orðin nú, að annað vesturríkjanna, Frakkland, er komið í traust og einskorðað banda- lag við Rússaveldi. Teygi nú Rússar hramminn yfir þetta örmjóa haft, eru þeir komnir þar sem er auður sjór fyrir fótum þeim alla tfma árs, og geta haft þar rúmgott herskipalægi bæði norður í Senju og vestur í flóa þeim, er skerst inn milli Lófóts og meginlands. f>etta er raunar norður f íshafi, en eigi kald- ara þó en svo, að meðalhiti þar er um hávetur 0. Og hafís kemur þar al- drei nærri. En þaðan eiga þeir greiða götu og eigi ýkjalanga suður að Eng- landsströndum norðanverðum, ef þá fýsti að koma þar í opna skjöldu kunningjum sfnum Bretum. f>ar hafa þeir landvarnir litlar sem engar, og tala því nú um allþungar búsifjar, er von eigi þeir þar af Rússa hálfu, ef svo fer, sem hér er ráð fyrir gert. f>etta er orðið Bretum allmikið á- hyggjuefni. Og fyrir Norðmönnum (og Svíum) lægju þá lík forlög eins og Pólverjar háfa sætt af Rússa hálfu, og kunnug eru. Duglegar saumastúlkur við jakkasaum geta fengið vinna strax á saumastofunni í 14 Bankastræti 14. Steinolíuvélar stórt úrval, sem seljast mjög ödýrt, nýkomnar í verzl. THE NORTH BRITISH ROPEWORK C o m p a n y Kirkcaldy á Skotlandi Contractors to H. M. Governmeut búa til rússneskar og ítalskar fiskllínur og f*ri, Manilla-og rússneska kaðla, alt sérlega vandað og ódýrt eftir gæðum. Einkaumboðsmaður fyrir Daumörk, ís- lan og Færeyar. Jakob Gunnlögsson. Kabenhavn K. >SAMEININGIN<, mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi Islendinga, gefiö út af hinu ev.-lút. kirkjufjelagi i Vesturheimi og prentað i Winnipeg. Ritstjóri Jón Bjarna- son. Verð i Vesturheimi 1 doll. árg., áls- landi nærri þvi helmingi lægra: 2 kr. Mjög vandað að prentun og allri útgerð. Fjórt- ándi árg. hyrjaði i marz 1902. Fæst i bók- verzl. Sigurðar Kristjánssonar i Reykjavik og hjá ýmsum bóksölum víðsvegar um land alt. lltsáðskartötlur eru nú komnar í verzl. „NÝHÖFN“ f>eir sem ekki þegar hafa pantað ættu að koma sem fyrst. keldur Musikfélagið næst- komandi sunnudagskvöld kl. 8% í Iðnaðarmannaluis- inu. Passíusálmar til sölu í bókverzlun ísafoldarprentsm. (Austurstr. 8): Skrautprent. og í skrautb. . 2 kr. í skrautbandi.........i1/* — i einf. bandi......... i — Ny isl. Lyrik, io Sange komponerede for dyb Mezzosopran eller Baryton af F r e d e- r i k R u n g. Fæst í bókverzlun ísafoldarprentsmiðju. Frk. Jensens Kogebog. 25000 prentað á einu ári. Komin aftur í bókverzlun ísafoldar, bundin og ó- bundin. Verð 4,50 og 3 kr. CRAWFORDS ljúffenga BISCUITS (smákökur) tilbúið af CRAWFORDS & Son Edinborg og London Stofnað 1813. Einkasali fyrir Island og Færeyjar F. Hjorth & Co. Kjöbenhavn.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.