Ísafold - 12.05.1902, Page 1

Ísafold - 12.05.1902, Page 1
Kemur út ýmist einu sinni eða tvisv. í viku Verð árg. (80 ark. minust) 4 kr., erlendis 5 kr. eða , 1'/» doll.; korgist fvrir miðjan júíi (erlendis fyrir fram.) Uppsögn (skrifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sé til átgefanda fyrir 1. október. Afgreiðslustofa blaðsins er Austurstræti 8. XXIX. árg. Beykjavlk mánudaginn 12. maí 1902. 28. blað. I. 0 0 F. 845l68'/g. II. (I)._______ Forngripasafn opið mvd. og ld. 11—12 Landsbókasafn opið lirern virkan dag kl. 12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3) rnd., mvd. og ld. tii útlána. Okeypis lækning á spitalsnum á þriðjud. og föstud. kl. 11 -1. Ókeypis augnlæ.kning á spitaianum fyrsta og þriðja þriðjud. hvers mánaðar %1. 11—1. Ókeypis tannlækning i húsi Jóns Sveins- sonar hjá kirkjunni 1. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1. Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1. Landakotskirkja. Gruðsþjónusta kl. 9 og kl. 6 á hverjum helgum degi. Löghlýðni yfirvalda og undirgefinna. f>að mun hafa þótt óvægilega að orði komist hér í blaðinu nýlega, þetta, að »lítið yrði úr valdsmannstigninni, ef yfirvöld þyrftu að vera jafn-lögblýð- in og sauðsvartur almúginn*. Líklega styrkir það þó heldur þá hugsun, er felst bak við fyrnefnda ■setningu, ef eftirfarandi embættisbréf verða talin vítalaus: Snæfellsness- og Hnappadalssýsla. Stykkishólrni 8. marz 1902. AmtmaSurinn yfir Vesturamtinu hefir meS brófi, dags. 31. des. f. á., fyrir skipaS sakamálshöfðun á henduryður fyrir skjalafals, út af grun um fölsun á verð- lagssk/rslunni úr Breiðavfkurhreppi haustið 1900. Fyrir þvi er yður hór með uppálagt að koma hingað til frekari yfirheyrslu og til að standa fyrir máli yðar í kring- •um 20. þ. m. Lárus H. BjarnaSon. Hreppstjóri Armann Jónsson á Saxhóli. *** Snæfellsness- og Hnappadalssýsla. Stykkishólmi 24. apríl 1902. Með skjali, dags. 8. f. m., skipaði eg yður, hr. hreppstjóri, að koma hingað um 20. s. m. til frekari yfirheyrslu til uppl/singar f sakamáli því, út af grun um skjalafölsun, er amtmaðurinn yfir Vesturamtinu hefur skipað að höfða gegn yður. Þór eruð ókominn enn, og læt eg yður nú vita, að eg læt sækja yður, svo framarlega sem þór ekki verðið kom- inn hingað mánudaginn, 5. dag næst- komandi maímánaðar. Jafnframt skora eg hór með á yður að hafa hingað með yður fæðingarvottorð yðar. Lárus H. Bjarnason. Til Ármanns Jónssonar, hreppstjóra á Saxhóli. * * * * * * * * * Að eftirrit þetta só orð fyrir orð sam- hljóða mér sýndum frumritum, vottast hér með notarialiter eftir nákvæman samanbuið. Notarius publicus í Reykjavík, 12. maf 1902. Halldór Daníelsson. ^jald 12 a. (tólf aurar). BorgaT). H. D. Það eru skrítin skjöl, þetta. Löglega aðferðin, þegar sakamálshöfð- un er fyrirskipuð, er sú, eins og flest- um mun kunnugt, að gefa út stefnu eða fyrirkall, og stefna sakborning á varnar- þing hans. S/slumaður hirðir ekkert um þau lagafyrirmæli, heldur tilkynnir að eins mauninum bróflega, seint og síðar meir, að sakamálshöfðun só skipuð af háyfir- valdinu, og þar með búið að því leyti til. En svo kemur hann með alt annað, og það synilega frá sínu brjósti, en ekki háyfirvaldsins. Það er skipun um, að »koma hingað«, þ. e. á s/slumannssetrið, ekki fyrst og fremst til að svara til sakar, heldur »til frekari yfirheyrslu«. Amtmaður hefir naumast skipað þessa »frekari yfirheyrslu«. Hefði svo verið, mundi hann að líkindum hafa látið málshöfðunarskipunina bíða, þar til er henni var lokið. Eða hvað átti »frek- ari yfirheyrsla« að þ/ða, 6. eða 7. skifti, og er amtmaður taldi sig hafa næg gögn í höndum til að skipa að höfða málið? Annað er þó enn merkilegra, og það er það, að s/slumaður slær alveg striki yfir lögmæltar varnarþingsreglur. Bústaður s/slumanns, Stykkishólmur, er hvorki heimilisvarnarþing kærða né verknaðarvarnarþingí þessu máli. Kærða er skipað að taka sór ferð á hendur, 2 daga ferð eða svo, fram hjá róttu varn- arþiugi, án þess að honum hafi verið úrskurðað varðhald. Hér virðist samt sem áður eiga að fara með hann beint sem bandingja. Skipun þessi var, eins og rótt var, virt að vettugi. Þá kemur síðari s/slumanns-pistillinn. Þar er kærða beint hótað því, að hann verði sóttur, ef hann komi nú ekki á ákveðnum fresti. Þetta »sóttur« getur naumast annað þ/tt en að það eigi að gerast m e ð v a 1 d i. Með öðrum orðum, að þá eigi beinlínis að fara með hann eins og bandingja. En enginn varðhaldsúrskurð- ur upp kveðinn alt um það, og því síð'ur tilkyntur. Hreppstjóri legst auðvitað þessa n/ju skipun undir höfuð, og bregður sór í þess stað hingaö suður til að kæra þetta hátterni fyrir yfirboðurum s/slumanns. Lengra er ekki málinu komið. Fyrir það eitt, að hreppstjóri þessi er óvenju-einurðargóður og sæmilega að sér, — fyrir það eitt vitnast þessar að- farir og komast bæði í hámæli og til eyrna réttum hlutaðeiganda. En hægt ei að fmynda sér, hvernig ganga muni ella um þessu líkt hátterni hins fræga valdsmanns, sem hér um ræðir. Blátt áfram þannig, að hlutaðeigend- ur hafa ymist ekki vit á öðru en að hl/ða eða þora ekki öðru en að hl/ða hverri lögleysu, sem honum dettur í hug. Ástandið virðist vera' það, að yfirvald þetta geri ekki einungis að undanþiggja sjálfan sig frá að hlyða lögunum, er honum ræður svo við að horfa, en láti sér í þess stað ekki nægja að heimta skilmálalausa löghlyðni af þeím, sem hann er yfir settur, heldur skapi þeim þar um fram lög frá sjálfum sór og ætlist til jafnskilyrðislausrar hlyðni við þau. Skjalafals það, er hreppstjóri þessi er sakaður um — og 2 hreppstjórar aðr- ir í sömu syslu — er fólgið í breyting ánokkrum atriðum í undirbúningssk/rslu undir verðlagsskrá haustið 1900, verð- lagsskrárverðinu til lækkunar: skafnar út tölur í nokkrum sk/rslunum. Verð- lagsskrá sy;slu þessarar varð fyrir það óvenju-lág, og kærðu nokkrir gjald- þegar eftir henni fyrnefnt brot, er þeir fengu vitneskju um það. Satt að segja höfðu þeir og látið sér detta í hug, að leiðin til að finna hinn seka eða. hina seku þyrfti ekki endilega að vera sú e i n, að þ/fga hreppstjórana, og var stungið upp á sérstaklegri ráðstöfun til rannsóknar málinu. En ekki var nærri því komandi hjá háyfirvaldinu. Hefir syslumaður verið að reka það mál síð- an og ekki lengra kominn en þetta. Hreppstjóri sá, er framanskráðir pistl- ar eru stílaðir til, tjáist hafa sannleik- anum samkvæmt l/st sig í prófunum alveg saklausan af glæp þeim, er hann er sakaður um, og veit ekki til nó get- ur hugsað sór annað en að ekki hafi fram komið neinar hinar minstu líkur í móti sér. En auðvitað hefir amtmaður eitthvað fyrir sér samt sem áður, er hann skipar sakamálshöfðun móti hon- um. Lesendum Isafoldar er fullkunnugt, að þetta er ekki í fyrsta sinni, sem yfir- vald þetta vekur eftirtekt á sér fyrir embættisrekstur sinn. Þá mun reka minni til framkomu hans á kjörfundi haustið 1900, og að það hátterni alt sannaðist á hann með vitnaleiðslu og framlögðum skjölum og skilríkjum, eins og því var 1/st hór í blaðinu (af hr. E. H. ritstjóra). Houum hafði verið skipað að hreinsa sig af þeirri miður fögru 1/singu, og veitt til þess gjafsókn, eins og lög gera ráð fyrir. Höf. greinarinnar fekk að vísu lítils háttar sekt, en að eins fyrir of harðorðan dóm um athæfi syslumanns, en ekki hitt, að neitt í 1/singunni væri ósatt. Árangurinn varð því gagnstæður því, sem til var ætlast eða 1 ö g i n ætlast til að minsta kosti; maðurinn hl/tur í allra augum að vera jafu-óhreinn eptir sem áður, — á undan hreinsunar-tilrauninni. Enda mun hann hafa fundið það sjálfur, því fast- lega ráðgerði hann áfr/jun, sem vitan- lega átti að gerast með gjafsókn; en er honum var neitað um hana, sjálfsagt af því, að gjafsóknar-veitingarvaldið hefir gengið að því vísu, hvernig fara mundi í yfirrótti, þá — lætur hann sór lítið fyrir verða og gerir sór kámið að góðu. Hann ber það ósnert enn. Þyngsta sakargiftin í hinni umstefndu grcin út af kjörfundinum í Stykkis- hólmi var um meðferð s/slumanns á dánarbúi fyrirrennara síxis, þeirri, að hann að vitni amtmanns, hafði »róið öllum árum að þvi, að búið misti 1000 kr.«. Sakargift þessi var síðan ítrekuð og rækilega 1/st öllum málavöxtum þar að lútandi í nyrri grein í ísafold 28. ágúst f. á. Hann kvað hafa viljað fá þá n/ja hreinsunarskipun og gjafsókn veitta, en verið synjað um það. —- Þá gerir maðurinn sér að góðu, að hafa alt svo búið. Og er þetta alt bæði fagur vottur um fyrirmyndar-embættis- framferði þessa yfirvalds, og eins hitt, hve vel er gegnt hreinsunarskyldunni og þar með fylgjandi gjafsóknarrétti rótt- víslega beitt og tilgangi laganna sam- kvæmt. — Það þykir einhvern tíma sögulegt, stjórnarástandið hér á landi um þessar mundir. Alþingisrímur. Alþingisrimur (1899—1901). Valdimar Ásmundsson gaf ut. Rvík 1902. 98+30 bls. Það er raunar úti sú tíð löngu nokk- uð, að rímur voru ein hin vinsælustu alþ/ðuskemtirit. Sá kveðskapur er nú' yfirleitt í mestu lægingu hafður. Eigi að síður er ekki hætt við öðru en að þ e s s a r rímur hljóti allgott gengi. Því veldur yrkisefnið. Það er svo tímabært — getur ekki tímabærra verið, nú er kosningaeldur- inn logar um alt. Og nieðferð þessa handhæga efnis mun naumast standa mikið á baki því, er bezt gerðist á hinni reglulegu rímna-öld: liðugt rímað, smellnar samlíkingar, svaða- legar 1/singar á vasklegri framgöngu og harðfenglegum vopnaviðskiftum. Keim- urinn viðlíka bragðmikill fyrir það, þótt vígaferlin, sem hér segir frá, gerist eigi með bitrum brandi, með forntíðkuðum lagvopnum ; eða höggvopnum af járni og stáli, heldur í hæsta lagi með pennum af stáli og með munntólum, sem stundum eru kend við stál. Það, sem hér segir frá, er hildarleik- ur sá, er háður er annaðhvort ár, þ‘ar sem )>stendur væn og vegleg höll, út við grænan AusturvÖll«. »Þar er stríðið þunga háð, þar eru skörungarnir; þar sjá 1/ðir þor og dáð, þar fæst tíðum biti’ af náð. Brandar gjalla góma þar, glymja’ og ymja salir, ræður snjallar, stórorðar stökkva’ af palli mælskunuar«. Yrkisefnið er sögulegustu viðburðirn- ir frá síðustu þingunum tveimur — sögulegustu frá rímnaskálds sjónarmiði — ásamt 1/sing á höfuðköppunum: »Nú skal byrja braginn á Bensa hinum gamla; mest á þingi þótti sá þjóðskörungur bramla. Hátt var ennið, bvatleg brá, harka í andlitsdráttum; gustur kaldur gaus um þá úr geysi-mörgum áttum. — — Þá segir frá því, er fylkingar sign saman til orustu á þinginu 1899: »Valt/r undir Lómsey lá, laust í rómu harða; Nellemanni fekk hann frá feykimildnn barða. Trjóna á dreka gein við grá gráðugu hildar róti;

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.