Ísafold - 24.05.1902, Page 1
Kemur út ýmist einu einni eða
tvÍBV. i viku Verð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
l‘/» doll.; borgist fyrir miðjan
júli (erlendis fyrir fram.)
ISAFOLD.
Upp8Ögn (skrifleg) bnndin við
áramót, ógild nema komin sé til
átgefanda fyrir 1. október.
Afgreiðslustofa blaðsins er
Austurstrœti 8.
XXIX. ár??.
Reykjavík laugardaginn 24. maí 1902.
31. blað.
Biðjið ætíð um
OTTO M0NSTED S
DANSKA SMJ0RLIKI, sem er alveg eins notadrjúgt og bragðgott eins og
smjör. Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í Danmörku, og býr til óefað
hina beztu vöru og ódýrustu í samanburði við gæðin.
Fæst hjá kaupmönnum.
I. 0. 0 F. 845309. I. II .__________
Forngripasafn opið md., mvd. og ld.
11—12.
Landsbókasafn opið bvern virkan dag
kj. 12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3)
nud., mvd. og ld. tij útlána.
Okeypis lækning á spítals.num á þriðjud.
og föstud. kl. 11 —1.
Ókeypis augnlækning á spitalanum
fyrsta og þriðja þriðjud. hvers mánaðar
kl. 11—1.
Ókeypis tannlækning i húsi Jóns Sveins-
sonar hjá kirkjunni 1. og 3. mánud. hvers
mán. kl. 11—1.
Landsbankinn opinn hvern virkan dag
kl. 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1.
Landakotskirkja. Guðsþjónusta kl. 9
«g kl. 6 á hverjum helgum degi.
Skiftir nm, hver á heldur.
Fútt leggja kjósendur í béruðum
meiri áherzlu á, þeir sem annars ekki
láta stjórnast af tómum kunningsskap
▼ið þingmannaefnin eða kunningja
þeirra, en að fulltrúinn sé kunnugur
þörfum og óskum héraðsbúa, og er af
þvl sprottin meðfram hin mikla um-
hugsun um að láta kjörið lenda á ÍDn-
anhéraðsmanni, en fara ekki út fyrir
héraðið í þingmannaleit, nema þeir
séu þá að minsta kosti upprunnir í
héraðinu. f>eir eru færri, þótt til
kunni að vera, sem það vakir einnig
fyrir, að láta ekki þingfararkaupið
lenda utan héraðs.
þetta er engan veginn ámælisvert
að öðru jöfnu.
En það átti nú alls ekki að vera
umtalsefnið hér, heldur hitt, hve kjós-
endum hættir við að Iíta of skamt,
þegar þeir eru að bera fyrir brjósti
hóraðshagsmunina.
|>eim hættir við að líta eingöngu á
það, að þingmannsefninu séu kunnar
þarfir og óskir héraðsbúa og að þeir
hafi vilja á að fá þeim framgengt. Og
því skyldu þeir ekki v i 1 j a það? f>að
er vandalítil dygð. f>að er ekki ann-
að en að hafa vilja á að halda hylli
'kjósenda. f>að er sama sem að vilja
sjálfum sér vel, — vilja halda þing-
sætinu.
f>eir líta sjaldnar á hitt, kjósendur,
hvort þingmaðurinn eða þingmanns-
efnið hefir m á 11 til að koma fram
vilja sínum héraðinu til hagsmuna, að
því leyti, sem þeir ríða ekki ranglát-
-lega bág við bagsmuni almennings,
þjóðarinnar í heild BÍnni; lengra á
hvorki vilji né máttur nokkurs þing-
manns að ná.
f>eir líta minna á það, hvort mað-
urinn á svo mikið undir sér á þingi,
er svo mikils metinn þar og vel lát-
inn, — hvort hann lætur svo mikið
til sín taka og að sér kveða, að sann-
gjarnar kröfur hans fái nægilegt fylgi.
Hvert það kjördæmi, sem ant er um
að sjá sínum hagsmunum borgið, hlyt-
ur að láta sér mest um það hugað,
að fulltrúi þess sé vel metinn og at-
kvæðamikill á þingi, en ekki t. d. hand-
ónýtur skjalari, sem þar er smáður og
lítilsvirtur, ef eigi hafður beint að háði
fyrir afkárahátterni, lítilmensku og
amlóðaskap.
f>að er lítill vafi á því, til dæmis
að taka, að Árnesingar hefðu haft
drjúgum meira fylgi fyrir sínum sér-
staklegu héraðsmálum á síðasta þingi,
ef þeir hefðu haft samvalda og sam-
henta atkvæðamenn fyrir fulltrúa þá,
en ekki jafnlítilsmetinn liðlétting og
ólaginn til nýtilegs erindareksturs
eins og þeir slysuðuBt þá til að senda
á þing frá sér sem nr. 1, sem sé hinn
alkunna f>jðlfsmann.
Sogsbrúarmálinu hefði að Hkindum
reitt öðru vísi af með öðrum flutn-
ingsmanni. Hann bar það ekki upp
á þinginu fyrir en við 7. umræðufjár-
laganDa, 2 dögum virkum fyrir þing-
lok, — hafði áður að eins skrifað um
það fjárlaganefnd, en látið málið eftir
það eiga sig, er hún vildi ekki sinna
því. Manni, sem nokkuð hefði að
kveðið og verið nokkurs metinn, mundi
naumast hafa orðið mikið fyrir að
mæla svo fyrir því máli og fylgja því
svo eftir, að það hefðist fram, jafn-
góðan málstað sem þar var að verja.
En það er nú svo á þinginu, að góð-
ur málstaðut er ekki einhlítur til sig-
urs nema stundum; hann þarf m a n n
til að skýra hann og afla honum
fylgis.
Annað héraðsmál, sem maður þessi
(H. f>.) ætlaði að afla sér á frægðar
og frama, var frumvarpið um að létta
af héraðsbúum kostnaði af gæzlu og
viðhaldi brúnna á f>jórsá og Olfusá.
HanD gerði sig að aðalflutningsmanni
þess; en ekki var þinggengið meira en
það, að samt kerast hann ekki í nefnd
þá, er þingdeildin kaus í málið, reiðist
því og fer að reyna að skeyta skapi
sínu á samflutningsmönnum sínum, í
stað þess að hugsa mest um framgang
mál8in8, fær fyrir það ómjúka ofaní-
gjöf og æpir þá allfreklega á vernd
forseta, — kallar á mömmu sína, og
segir að þeir séu slæmir við sig, hinir
strákarnir! — en fær enga áheyrn,
heldur hálfgildings-snuprur, sem þing-
heimur gerir að góðan róm. Málið
síðan felt. En þá ætlar hann að
gerast e n n meiri maður en áður og
arkar nú á stað einn saman með nýtt
frumvarp málinu til viðréttingar: um
uppgjöf á helming lánsins til annarar
brúarinnar, þeirrar, sem Símon situr
við. En ekki lifði það nema örfáar
mínútur; þá var þ a ð komið í sömu
gröfina sem hitt.
Laxveiðafrumvarp var hann enn-
fiemur að burðast með, er kjósendum
hans mörgum var mikið áhugamál; en
alt fór það í mola, eins og hin. Eina
héraðsmálið, er byr hlaut á þinginu,
var fjárveitingin til Stokkseyrarskipa-
lægisins. En hverju var það að
þakka nema því, að það var þing-
mönnum Bangvellinga engu minna á-
hugamál, nema fremur væri, með því,
að þeim kemur Stokkseyri í enn meiri
þarfir? Að öðrum kosti er mjög hætt
við, að eins hefði farið fyrir því máli
og hinum.
Ekki er til neins að kenna því um,
að þingmaður þessi var í minni hluta i
aðalflokksmáli þingsins—raunar könn-
uðust nú ekki flokksmenn hans við
minnihluta-stöðu sína —. f>ví nefna
má fjölda dæma fyrir því, að menn
úr þeim flokki, minni hl. í stjórnbót-
armálinu, komu sínu fram á þingi
engu síður en hinir, bæði fjárveiting-
um og öðru. Og einhvern veginn hef-
ir á því staðið.
Orsökin er auðvitað sú, að »skiftir
um hver á heldur«.
Hvað þeir hugsa sór.
Ekki er það mikill vottur um ein-
lægni og trúleik afturhaldsliðsins við
stjórnbótarfrumvarpið fyrirhugaða frá
ráðgjafanum, ef marka má það sem
einn skrafmikill postuli þess, Kvenna-
brekkukennimaðurinn, prédikar í aftur-
haldsmálgagninu hér fyrir skemstu, 16.
þ. m.
Það er hvorki meira né minna en
mjög áleitin tilraun til að gylla upp
tíumanna-óskapnaðinn alræmda og sýna
fram á yfirburði þess frumvarps fram
yfir það, sem oss stendur nú til boða !
Vór sleppum nú heimskuþvælunni
um, að ráðgjafabúsetan, sem nú er í
boði, sé einmitt það, sem fram á var
farið í 10-m.frv. Þetta blað hefir skýrt
það mál svo rækilega hvað eftir annað,
að varla er neinu barni með opin aug-
un ætlandi að geta vilst á því framar.
Þá væri gyltur eir sama sem gull, éf
fals-búsetan alræmda þeirra tímenning-
anna með undirtylluráðgjafann væri
sama sem hin káklausa búseta, sem
nú er í boði. Þá væri svart hvítt.
Sama er að segja um það, móti betri
vitund framflutt, að það sé »ekki Val-
týingum að þakka, að málið horfir nú
svona vænlega við«. Með öðrum orð-
um: e k k i þeim að þakka, sem hafa
viljað semja og samið hafa svo viðstjórn-
ina, að samningar komust á, heldur hin-
um, andvaltýingum, sem hafa fordœmt
samningstilraunirnar og barist gegn
þeim; heimastjórn ekki þeim að þakka,
sem báru fram formlega varakröfu um
hana (ávarpið), heldur þeim, sem enga
formlega kröfu báru fram um hana nó
neina stjórnarbót!
Sama er ennfremur að segja um þau
marghröktu ósannindi, að Valtýingar
hafi gert það nauðugir og tilknúðir, að
nefna heimastjórn á nafn. Deilan í
neðri deild í þinglokin í fyrra var um
þingsályktun eða ávarp. Þingsályktun-
in (frá andvaltýingum) var feld af því,
að húti var sjóðvitlaust hneyksli: áskor-
uh til stjórnarinnar um að taka ekkert
mark á nýsamþyktu stjórnarbótarfrum-
varpi þingsins! En ávarp, samhljóða
því frá efri deild, með eindregnum heima-
stjórnaróskum, það fengu andvaltýing-
ar felt í neðri deild.
Því næst kemur höf. enn með hauga-
vitleysuna þá, að búsetan só höfuðat-
riðið í stjórnarbótinni, en e k k i þing-
ræði og þjóðræði og hrein og óskift
meðalganga milli þings og konungs.
Eftir þeirra kenningu œttu Finnlend-
ingar nú að vera stjórnfrjáls þjóð, með
því að þeir »hafa æðsta mann fram-
kvæmdarvaldsins í landinu sjálfu«, þ.e.
landstjórann rússneska; þar er því eftir
kenningu Kvennabrekkuspámannsins
stjórnarástandið ágætt að aðalatriðinu
til, búsetunni. Það er að eins aukaat-
riðin þingræði og þjóðræði, sem Finna
skortir. Hið óþolandi gjörræðis- og
harðstjórnarböl, sem Finnar eiga undir
að búa, — það er harla lítils um vert
að dómi Kvennabrekkuspámannsins. —
Það er því að kenna, að þá skortir
þessi auka-atriði, þjóðræði og þingræði.
Búsetuna hafa þeir, aðalatriðið, og þá
er þeim borgið! Heimskurella af þeim
að gera sig ekki harðánægða með það.
Svona er háttað stjórnspeki vitrings-
ins þess, Dalaspámannsins, scm kunn-
ugt er um að er önnur hönd þingskör-
ungsins á Sauðafelli í öllum hans stjórn-
málabollaleggingum.
Viðsjárverðara er þó alt hið mikla fleyga-
kerfi, sem höf. er með og dregið er út
og samsett með samanburði á frum-
vörpunum (10-m. og stjórnarflokksins) í
einstökum greinum þeirra, og verið að
benda á stórvægilega yfirburði tímenn-
ingafóstursins fram yfir hitt. Það er
eitt »yfirburða« barnalegt stórglapræði,
nema annað verra búi undir en barna-
skapurinn tómur.
Til dæmis það, að gera innlendan
»landsdóm« að skilyrði fyrir því, að
stjórnartilboðinu só tekið. Það segir höf.
að só eitt stóratriði.
Eða. hitt með fjárlaga-fleyginn, ofan
á þá öflugu tryggingu, sem felst í
breytingunni á 28. og 36. gr., og svo
það, að vór höfum sameinað þing.
Það er með öðrum orðum, að þó að
þingræðið sé fyllilega trygt á þennan
hátt, þá er samt betra — viðfeldnara —
að tryggja það með alt annari, nýrri
aðferð, og sjálfsagt að láta ekki undan
með það, þó að málið geti alt oltið um
það!
Og svo á þessu næst hið sjónvitlausa
orðalag tímenninganna um, að ef þingið
»hafi ekki g e t a ð komið sór saman um
fjárlögin« (þrátt fyrir sameinað þing!)
o. s. frv., það á að takast fram yfir liitt,
sem vit er í og eðlilegt í alla staði] og
lesa má í miðl.frv. frá 1889.
Ekki kastar samt tólfunum fyrir höf.