Ísafold - 12.07.1902, Page 3

Ísafold - 12.07.1902, Page 3
171 stjórnandans í hverju landi sem er hlýtur jafnan að vera aðalatriði« og •höfuðatriði stjórnartilboðsins er þetta, að vér fáum æðsta mann framkvæmd- arvaldsins«, ráðherrann, »inn í landið sjálf t«, svo að Finnlandsdæmið var enginn »útúrsnúningur« og því síður »tóm vitleysa«, og að hann réð til að breyta stjórnbótarfrumvarpi því, sem ráðherrann hefir látið og enn lætur standa oss til boða, og það í mörgum og mikilvægum atriðum, sem ekki eru nokkrar minstu líkur til, að ráðherr- ann muni aðhyllast, svo að það er engin raugfærsla, að með slíkum breyt- ingum, hvort sem þær eru kallaðar »fleygar« eða annað—nafmð hefir í því tilliti enga þýðingu —, væri stjórnar- bótinni teflt á tvær hættur, sem eru: töf málsins um óákveðinn tíma ann- ars vegar, en eyðing þess hins vegar; og stórlega vanhugsuð er sú afbötun síra Jóh., að hann »hafi tekið fram, að þótt þessar frekari umbætur sóu æskilegar, þá sé samt sjálfsagt að sleppa þeim fyrst um sinn, ef hætt sé við að þær verðí höfuðatriðinu« (sem eftir kenningu hans er búsetan) »til falls«, en í stað þess að leiða málið til lykta vilji hann »láta leita hófanna hjá ráðherranum um það, hversu langt hann vill fara«. Með því væri stjórnarbótin tafin og henni teflt í tvísýnu, og í annan stað verður breyt- ingunum, sem síra Jóh. nefnir »um- bætur«, ekki bæði slept og haldið í senn; það er ómögulegt að »sleppa þeim fyrst um sinn«, og jafnframt halda í þær fyrst um sinn, og fara að leita hófanna hjá ráðherranum um þær. í síðari hluta greinarinnar gerir síra Jóh. sér mikið far um, að láta mig kenna á vandlætingarsemi sinni. Fyrst vill hann gera einhverja ó- hœfu úr því, að eg fyrir ritstjóra ísa- foldar flutti nokkur eintök af tölublað inu með »ritdóminum« vestur í Dali. Segir hann, að eg hafi »útbýtt því á báðar hendur eins og flugriti» — En, sem betur hafi farið, hafi menní suð- urhluta sýslunnar eigi látið villa sig o. s. frv. þessi »suðurhluti sýslunnar« er prestakall síra Jóhannesar, hvorki meira né minna, og um það ferðaðist eg svo í þetta skifti, að eg heimsótti þar ekki né hitti að máli nokkurn kjósanda. En ísafoldartölublöðin skildi eg flest eftir í Búðardal, án þeBs að grenslast minstu vitund eftir, hvort þangað væri komið þjóðólfsblaðið með »Yfirburða«-grein síra Jóh.; £ mánuður var þó liðinn frá útkomu blaðsins, og 6 dagar liðnir frá því er gufubátur- inn »Reykjavík« hafði homið að sunn- an í Borgarnes; en þaðan tíðar ferðir til Balasýslu, svo að allar líkur voru til, að blaðið væri komið vestur yfir, slíkt kapp sem flokkurinn með sjálf- tekna, digurbarklega blekkingarnafn- mu »heimastjórnarmenn» lagði um þær mundir á, að breiða út flugritsín og blöð. Vaðall síra Jóhannesar um, að »Yfirburða»-grein hans hafi á þeim tíma ómögulega getað verið kom- inn vestur, er því tómt bull. þá telur síra Jóh. það ekki minni ó- hæfu af mér, að hafa slept í hendur rit- stjóra ísafoldar skjali einu undirrituðu af nálega 30 Miðdælingum ; en skjal þetta var svo opinberlega til komið, að það hafði að sögn síra Jóh. legið frammi á sjálfu prestssetrinu til undir- skrifta fyrir kjósendur í heilum hreppi, og nudirskriftunum ekki verið flýtt meir en svo, að 3 eða 4 mánuðir liðu frá dagsetningu þess til þess er mór var sent það með pósti. Annars hafði skjalið ekkert sérlegt við sig annað en að á því var verið að troða óbeðið upp á mig ráðleggingu, sem ekki fór í kurteisisáttina, og að það var ótrú- lega lúið orðið aí því að liggja ávalt á sama staðnum til undirskrifta; en um óhreinindin á því þótti mér aftur á móti ekkert tiltölumál; til þeirra get- ur sú einfalda orsök legið, að síra Jó- hannes hafi ekki ætíð haft hreint borð við höndina þessa löngu tíð, sem und- irskriftirnar voru að koma á skjalið. — Hjalið um, að eg hafi »látið» rit- stjóra Björn Jónsson kalla það »und irróðursskjal«, vita allir, sem nokkra vitund þekkja ritstjórann, að er stað- laust rugl. Loks finnur síra Jóh. hjá sér köll- un til að vandlæta um það, að eg í vetur í blaðagrein vítti hlífðarlaust opinbert blað fyrir að hafa farið með ákveðin ósannindi, — sérstaklega þann upplogna áburð á flokk Valtýinga, að hafa þegið stórfé af þeim Arntzen og Warburg í kosninga-sjóð, til að ryðja sér í þeirra erindi braut inn á þingið; en blaðið sýndi síðar fram á það, að það væri ekki sekara í þessari álygi en önnur blöð »heimastjórnarmanna,» því að hún, þessi óþokkalega mútu- lygi, hefði jafnsnemma gosið upp í þeim öllum, lagt samfímis á stað frá Reykjavík, ísafirði og Seyðisfirði út í þjóðina, — og fyrir þessum yfirnáttúr- lega samhug »heimastjórnarblaðanna» reyndi hið umrædda blað meir að segja að gjöra náttúrlega grein. — Umyrðum síra Jóhannesar um mig út af þessum þremur atriðum, sem hann f greininni »Valtýskar aðferðir« hefir tekið að sér að vanda um við mig, svara eg ekki í blöðum ; enda er það svar, sem slíkumyrði verðskulda, ákveðið, og stendur skráð í 21. kap. hinna almennu hegningarlaga frá 25. júnf 1869. Görðum 9. júlí 1902. Jens Pálsson. ----- im 9 mm i - Þilskipa-vertíðín i Reykjavík. Aflinn á þilskip úr Reykjavík varð með hæsta móti að tölunni til nýliðna vorvertíð eða frá lokum til Jónsmessu, svo sem sjá má af þessu yfirliti og samanburði á þeirri vertfð við undan- farnar vorvertíðir hinar síðustp: ár skip afli 1898 32 398,000 1899 34 438,000 1900 38 566,000 1901 45 835,000 1902 39 808,000 að auk hafa þau 6 skip, er gengið hafa af Nesinu, fengið um 140,000. En fiskurinn er ákaflega smár á sumum skipunum og því lítið að marka háa tölu þar. Einn útgerðarmaður sagði svo, að nú hefði ekki farið meira fyrir 26 þús. en 14 í fyrra. Annað dæmi er það, að meira fór fyrir í stakki 13 þús. af einu skipinu en 30 af öðru. Enginn vafi er á því talinn, að skipstjórar og fiskimenn geti miklu um það ráðið, hvort fiskurinn, sem dreginn er, er smár eða stór, og það haft til marks meðal annars, að einhver út- vegsmaður, þó ekki hér úr bæ, tók upp þá nýlundu, að greiða ekki verð- laun nema af vænum fiski, en þau vel há; en alls engin fyrir smáfisk. þá brá svo við, að varla fekst í soðið af smáfiski upp frá því. Að gera greinarmun á þorski annars vegar og smáfiski og ýsu hins vegar virðist vera alveg ómissandi og sjálf- sagt, ef nokkuð á að vera að marka aflann af tölunni. Strandbátur Hólar kom sd. 6. þ. m. og fór aftnr mvd. 9. að morgni, eins og til stóð. Farþegar ‘ekki margir. Me'ðal þeirra er komu og fóru voru Jón próf. i Stafafelli Jónsson, síra Jón Guðinundsson á Skorra- stað og Árni lireppstjóri Steinsson í BakkaJ ger'Öi i Borgarfirði. Sigling. Hingað kom 7. þ. m. seglskip Kvik (51, Gundersen) með timburfarm til B. Gruðmundssonar. Enn fremur 10. þ. mán. gnfuskip Herta (311, Th. Thjornee) frá Liverpool með salt og steicoliu m. fl. til G. Zoega og Th. Thorsteinsson. Bókmentafélagsfundur. Arsfundur var haldinn hér í deildinni 8. þ. m. Stjórn endurkosin (forseti Eiríknr Briem o. s.frv.) og ritnefnd. V eðurathuganir i Reykjavík, eftir aðjunkt Björn Jensson. 1902 júlí Loftvog | millim. i Hiti (C.) í>' <Tf ct- < <t> oj< £ æ cx œ yr g OS cfc Urkoma j millim. j |g 'Tj S- Ld. 5. 8 761,9 10,1 0 10 0.2 8,3 2 761,7 11,6 w 1 9 9 760,9 10,8 0 9 Sd. 6. 8 759,7 9,9 N 1 10 2,0 8,2 2 759,9 14,2 NW 1 6 9 761,1 11,4 NE 1 5 Md. 7. 8 762,2 10,4 NE 1 3 8,0 2 763,1 12,2 NW 1 4 9 763,3 10,7 NW 1 7 Þd. 8. 8 762,4 10,8 SE 1 9 8,4 2 761,8 11,6 NW 1 9 9 760,8 10,7 nnw 1 9; Md. 9. 8 760,1 10,0 NW 1 10 9,1 2 760,4 13,6 NNW 1 5 9 762,0 11,0 NE 1 1 Fd. 10.8 763,5 10,3 NW 1 1 5,3 2 762,9 13,0 NW 1 1 9 762,6 13,0 WNW 1 1 Fsd.11.8 761,3 10,8 NNE 1 5 5,9 2 760,5 13,6 NW 1 6 9 759,9 12,8 NW 1 6 i I heljar greipum. Frh. »Hafið þið hægt um ykkur; þá fara þeir fram hjá«, hvíslaði hersirinn. Nú var hann orðinn alveg eins og hann átti að sér, þegar mikið lá við. »Nú vildi eg að eg sæi hann Tippy Tilly«, mælti hann, *eða einhvern af félögum hans; nú er tími til kominn fyrir þá að hjálpa okkur«. Hann gaf nánari gætur að flótta- þvögunni, er þeysti fram hjá honum á úlföldunum, spriklandi og vagandi á ýmsar hliðar. En hvergi sá hann andlitið á svarta 3tórskotaliðanum egipzka. Og nú var svo að sjá, sem öll sveit- in hefði hugann svo ríkan á að kom- ast burt úr gjánni, að þeir gleymdu alveg bandingjunum. Aðalþyrpingin var horfin og ekki eftir nema fáeinar eftirlegukindur, sem skotin dundu á ofan af gjáarbarminum. Sá, sem síðastur fór þeirra allra, var ungur Baggaradáti með svart yfirskegg og hökuskegg. Hann leit upp um leið og hann reið fram hjá, og sveiflaði sverðinu örvita, en máttvana, í móti skotliðinu egipzka. þá hitti kúla úlf- aldann hans, svo hann fellur í kuð- ung og sá ekki nema á háls og lappir. Arabinn stökk af baki, þrífur í snoppu- hringinn á honum og lemur hann hamslaus með flötu sverðinu, til þess að koma honum á fætur. En það var auðséð á sloknuðum augunum á skepnunni, að hún var steindauð; og eftir öræfahernaðarháttum er hverj- um þeim manni bráður bani vís, er missir reiðskjótans. Baggaradátinn litaðist óður og ær umhverfis sig, eins og ljón í fjörbrotum. Eldur brann úr svörtum augunum undir rauðum túrbaninum. Purpura- litur blettur sást koma'fram á dökku hörundinu hér og hvar; það voru skot- sár; en það var eíns og hann vissi ekki af þeim. þá verður honum litið þangað, sem bandingjarnir sátu á úlf- öldum sínum. Hann æpir siguróp og rýkur þangað eins og örskot með sverð- ið reitt yfir höfði sér. Fröken Adams var næst honum; en þegar hún sér hann koma þarna trylt- an og hamslausan, fleygir hún sér niður af úlfaldanum hinum megin. Ar- abinn stökkur upp á stein og höggur til frú Belmont. En áður en sverðsodd- urinn náði til hennar, laut hersirinn áfram og sendi skot úr skammbyssu sinni gegnum hausinn á honum. En svo var heiftin í honum mikil og tryll- ingurinn, að hann sparkaði og barði út öllum öngum, þar sem hann lá innan um grjótið eins og fiskur f fjöru. »Látið ykkur ekki bilt við verða«, kallaði hersirinn til kvenfólksins; »eg segi ykkur satt, að hanu er steindauð- ur. Mér þykir slæmt, að eg varð að gera þetta að vkkur ásjáandi; en hann var ekki lambið að leika sér við. Hann átti líka dálítið hjá mér; það var hann, sem var nærri búinn að mölva í mér rifin með byssuskeftinu sínu. Eg vona að þér hafið ekki meiit yður, fröken Adams. Bíðið þér ofurlítið; þá skal eg koma ofan til yð- yðar«. Hún hafði ekki meitt sig minstu vitund, gamla konan. Hún hafði lent á hnúsk, nógu háum til þess, að fallið varð mjög lágt. þau fóru öll af baki við stóran stein, Sadie, frú Belmont og Cochrane hers- ir, og klifruðu svo niður þangað. þau hittu frk. Adams upp staðna, og var hún að veifa sigri hrósandi með því, sem eftir var af grænu andlits- slæðunni sinni. »Húrra, Sadie! Húrra, elskan mín Sadie! Við erum hólpin. Núerokk- ur loksins borgið*. »Já, svo er hamingjunni fyrir að þakkaa, kallaði hersirinn, ogþauhróp- uðu öll upp frá sér numin. En þessir voðalegu reynsludagar höfðu kent Sadie að hugsa meir um aðra en sjálfa sig; him lagði hendur um háls- inn á frú Belmont og kinnina við kinnina á henni. *Góði engillinn okkar«, mælti hún, •hvernig eigum við að fá af okkur að vera með fagnaðarlæti þegar þér — þegar þér —« »En eg hygg alls ekki að svo sé«, anzar frú Belmont örugg og einbeitt. »Nei, eg trúi því aldrei fyr en eg horfi á líkið af honum Jóni mínum liggja fyrir fótum mér, og sjái eg það, óska eg að eg sjái aldrei neitt framar hér á jörðu«. Nú var síðasti dervisjinn farinn sína leið. Og nú sáu þau, hvar Egiptar stóðu upp á gjáarbörmunum beggja, háir og grannir, en herðabreiðir, furðu- líkir fornmenjamyndunum upphleyptu, þar er þá bar við bláan himin. Úlf- aldarnir sáust á bak við þá, og þeir fóru að hraða sér á bak. Samstundís tóku aðrir til að ríða niður eftir úr hinum endanum á gjánni. Dökk andlitin á þeim voru glóandi og eldur brann úr augunum af sigurfögn- uði og af ákafanum að elta flóttann. þar reið í broddi fylkingar mjög grannvaxinn Englendingur, gulskeggj- aður og tómlátlegur á svip. Hann lét úlfalda sinn nen?a staðar nærri band- ingjunum og varpaði lotningarkveðju á kvenfólkið. Hann var í dökkgulum stfgvélum og hafði um sig dökkgult belti með stálsylgjum. |>að fór hon- um vel, og gerði hann prúðmannlega búinn, þrátt fyrir úlfgrá einkennisföt- in. »Hafði upp á þeim þetta skiftið — fór laglega að þeim«, mælti hann. »þykir auðvitað vænt um, að hafa get- að hjálpað ofur-lítið. Vona, að þið séuð öll ómeidd. Hérna hvað eg ætl- aði að segja — heldur sóðalegar að- farir fyrir kvenfólk«. »|>ér eruð líklega frá Halfa«, mælti hersirinn. »Nei. Við erum úr hinu heygarðs- horninu. Við erum Sarras-kolapiltarn- ir, skal eg segja yður. Við hittumst

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.