Ísafold - 30.08.1902, Blaðsíða 2

Ísafold - 30.08.1902, Blaðsíða 2
222 að hafast við í björtum, loftgóðum og hlýjum húsakynnum, eins er því fanð um kýrnar. |>ví meir sem ætlast er til að þær mjólki, þess nauðsynlegra er að hafa gott loft í fjósinu, svo að þær þrífist betur og fái slétt háralag. Ef vel er látið fara um þær, og fái þær að njóta frjálsræðis, þá óhreink- ast þær síður. því er það, að kýr líta betur út að sumrinu, þegar þær eru úti, en að vetrinum, er þær standa bundnar inni marga mánuði, í loftlitlum og lélegum fjósum. þær hafa þá naumast rúm til að sieikja sig, og mega jafnvel til að leggjast að meira eða minna leyti ofan í saurinn, 1 staðinn fyrir að geta valið sér bæli, enda er þá eigi að furða, þótt þær verði óhreinar. Hvað hver kýr þarf stórt rúm, verð- ur eigi sagt fyrir um alment, og eigi heldur, hvað stórir eða margir glugg- arnir þurfa að vera. En því má halda fram, að því bjartari og loftbetri, sem fjósin eru, þess betur líður kúnum. —■ Eftir því sem veggirnir eru þykkari, þess hærra þarf að vera undir loft, eða því rismeira á fjósið að vera, og þess stærri gluggar, svo að birta og sólskin geti skinið um alt fjósið. |>að þarf að vera svo bjart í hverju skoti, að vel sjáist til að hreinsa öll saur- indi burtu. Sólarljósið hefir eiunig þau áhrif, að það verkar á gerlana, og dreg- ur úr lífsmagni þeirra. Loftið verður þurrara og betra, og stuðlar það ásamt birtunni að heilbrigði kúnna og vellíð- an þeirra. Allan við í fjósinu ætti að kalka, að minsta kosti einu sinni á ári. Básarnir þurfa að vera svo stórir, að allar kýrnar geti legið í einu. Ivýrnar þurfa að vera bundnar svo, að þær teðji ekkí undir sig, og leggist svo ofan í saurinn. Básarnir eiga að vera jafnir, með J þumlungs halla aftur að flórnum. Flórinn ætti að vera 6—8 þumlungar á dýpt og 18—20 þuml. á breidd, og halla til annars endans. |>að á ætíð að halda þurru loftinuí fjósinu. Gluggarnir þurfa að vera á hjörum, svo að hægt sé að opna þá eftirveðri og vindstöðu. Hitinn ætti helzt að vera ekki meiri en 15° C. Ekki er gott að fjósin leki ofan á kýrnar; en litlu betra er hitt, að þær standi sveittar af hita. Sé nokkur gangstétt í fjósinu, á hún að vera jöfn og slétt, svo að hægt sé að halda henni þurri og hreinni. Gluggar og strompar þurfa að vera svo útbúnir, að þeir verði opnaðir, til þess að hleypa inn nýju lofti; en þó má eigi vera súgur á kúnum gegnum dyr eða op. Kaldur súgur á eftir bað- hita getur orsakað júgurbólgu og önn- ur veikindi. En alt af þarf þó loftið að vera gott í fjósinu, því það er kúnum holt og stuðlar að því, að fóður þeirra not- ast betur, og að þær mjólka meira. Fjósið skal moka og hreinsa tvisvar á dag'á sama tíma; en það má eigi gjöra meðan á mjöltum stendur eða rétt á undan þeim. fpegar kýrnar hafa étið, en áður en þær Ieggjast, skal hreinsa allan saur fram úr básunum, og bera undir þær, svo básarnir verði sem mýkstir að liggja á. Ef lítið er um góðan undirburð, er gott að bera í flórinn þurra mold; það þurkar upp alla bleytu, gjörir loftið í fjósinu betra og bætir áburðinn. Bezt er að bursta kýrnar með stíf- um hárbursta til þess að halda húðinni hreinni. j?að á helzt að gjöra á hverj- um degi, og aldrei sjaldnar en tvisvar í viku. Alt rusl og laus hár skal sópa af kúnum með burstanum. Tannleysi og þingseta. Það tvent virðist að vísu harla óskylt í fljótu bragði. Nerna ef einhverjum kynni að detta sú skýring i hug, að þingmenn þurfi og eigi að vera tannbvassir, og þá komi tannleysi sér iila; eða að enginn geti verið góður þingmaður, nema hann hafi góðar tönnur og óskemdar. En ef skýringin væri sú, að einmitt tannleysi gæti verið skilyrði fyrir þing- setu, eða réttara sagt fyrir þingfararleyfi? Kynlegt mun það þykja, og er þó koll- gátan, svo sem sjá má því, er hér segir frá. Hér var staddur í vor um tíma ferða- langur einn úr Austur-Skaftafellssýslu, af heldra tægi að nafni til, um það leyti er hingað fréttist um þingmensku Þorgrims læknis á Borgum. Ferðalangnr sá var og er mikill fylgifiskur »hinna« eða andstæð- ingur Framsóknarflokksins, sem hann og aðrir vissu vel, að Þorgr. læknir mundi fylla; og hafði hann nú ofan af fyrir sér marga daga, ef ekki vikur, á því, að herma það bæjarmönnum, hverjum sem heyra vildi, af samtali sinu við yfirmenn læknisins hér, þrjá landsins mestu stórhöfðingja, að læknirinn fengi alls ekki þingfararleyfi; þar væri eilift afhögg, Svo stóð á, að kunnugt var um það, að læknir þessi mundi alls engan kost eiga á að fá nokkurn fuligildan mann til að þjóna fyrir sig embættinu um þingtímann. Hann var enginn til þá. Ekki hægt að gera frekara en að fá nágrannalækni til að þjóna því með, sem hefir raunar tiðkast áður og gilt tekið. TJt af þessu var mikili fögnuður í her- búðum »hinna«. Þarna fækkaði um einn mótstöðumann þeirra á þingi! En nú bar svo til, að við sjálft lá, að sú bogalist mundi bregðast. Frá lækninum kemur sem sé með fyrstu ferð eftir þetta — ekki umsókn um þingfarar- leyfi, sem við bafði verið húist og fyrir fram ráðið að synja þverlega, heldur beiðni um fararleyfi til Eeykjavikur til að leita sér lækninga hjá tannlækni, og fylgdi vott- orð frá næsta lækni um, að þess væri hrýn þörf. Og svo hlálega var tirninn valinn í umsókninni til þeirrar ferðar, að hann har einmitt upp á þingtimann. Hér þurfti sýnilega að koma krókur í móti bragði, enda stóð ekki á því. Amtmaður gerir sér lítið fyrir og þver- neitar um leyfið. Hann var þó, sem liklegt mun þykja, ekki einn í ráðupi um þetta, heldur har fyrir sig hréflegar tillögur landlæknis um málið, þess efnis, að ekki muni neinanauð- syn til hera þessarar tannlækningaferðar fyrnefnds héraðslæknis og nýkjörins þing- manns, — vissi það hetur hér en nágranna- læknirinn þar eystra, Ólafur Thorlacius, er skoðað hafði sjúklinginn. Það lét og landlæknir fylgja, að ekki væri það nærri fullnægjandi, að Ólafur þjónaði fyrir hann (Þorg.) meðan hann skryppi áuður, og að enginn yrði gildur tekinn til þess nema embættispróf hefði i læknisfræði frá há- skólanum, eða þá læknaskólanum með því móti, að hann hefði þar að auki fullnsegt til hlítar fyrirmælum um missirisdvöl i Kaupmannahöfn við spítala þar og fæðing- arstofnun, að afloknu prófi hér. Hann vissi það, sem fyr segir, að slík- ur maður var enginn til á lausum kili. Einn var að vísu á leiðinni erlendis og von á honum hingað ef til vildi svo snemma, að fá mætti hann tii að þjóna héraði Þor- gríms læknis um þingtimann. Hann gat raunar ekki komið fyr en síðar, í septbr., ef vera skyldi alveg fult missiri í Khöfn, og hafði því skilyrði alls eigi verið fylgt stranglega áður. En nú var sett undir þann leka með ströngum skilaboðum frá »hærri stöðum«, að ekki þyrfti sá hinn sami að hugsa til að fá embætti, ef hann kæmi hóti fyr en lög mæla fyrir frekast. Þá var og i annan stað ekki ýkjalangt síðan er hérað Þorgr. læknis hafði verið partur af öðru læknishéraði, og virtist þvi engin fjarstæða, að svo yrði það nú haft aftur fáeinar vikur um hásumar, er engar sóttir gengu. En mælt er, að Ólafur Thor- lacius hafi fengið snuprur hjá landlækni fyrir að ljá máls á að þjóna því með fyr- ir Þorgr. lækm. Nú líður að þingtíma, og þá k e m u r Þorgr. læknir leyfislaust snöggva ferð, og hýst sjálfsagt hálft í hvoru við að verða rekinn heim aftur. Enda leyndi það sér ekki, að sú var fyr- irætlunin. Landlæknir sat enn blýfastur við sinn keip. Og ekki stoðaði það hót i hans aug- um, þótt Þorgr. lækni kæmi með nýtt vott- orð og mjög ákveðið frá héraðslækni Guðm. Björnssyni, um að honum væri lifsnauðsyn- legt að vera hér um tíma, nokkrar vikur, hjá tannlækni. Landlæknir vildi ólmur fá hann rekinn heim aftur, og að hann — kæmi þá heldur siðar. Amtmaður, sem leyfið skyldi veita og hefir sjálfsagt fult vald til að veita það að land- læknir fornspurðum, — hann var allur af vilja gerður til þess (hve nær er ekki sá maður allur af vilja gerður!), en tjáði sig ómögnlega geta það í móti tillögum land- læknis. Nú fer að vandast ráðið, og lauk svo, að Þorgr. læknir kvaðst neyðast til að segja af sér embætti, ef sér yrði meinað að leita sér hráðnauðrynlegrar heilsubótar. Hann kvaðst neyðast til að meta heils- una meir en emhættið. Gat varla nærst á öðru en vökvun vegna algerðs tannleysis. Þess má geta, til fróðlegs samanhurðar, að i sama mund var hér staddur með fyr- irstöðulausu mánaðar-heimanleyfi eingöngu til að skemtunar sér héraðslæknirinn á Yopnafirði, sem þjónar með næsta héraði fyrir norðan; og eiga flestir hans héraðs- húar lengra til næsta læknis en þorri íbú- anna í héraði Þorgr. læknis. — Hverft varð landlækni við þetta nokkuð svo. En karlmannlega veitti hann viðnám enn og þeir amtmaður báðir. Lakast mun það hafa þótt, að sýnilegt var, að málið kæmist »út fyrir pollinn«, efalvarayrði úr lausnarheiðninni. Loks kemst málið fyrir landshöfðingja, og hann úrskurðar þá, að taka beri til fullra greina læknisvottorð öuðm. héraðsl. Björns- sonar, og mun að sögn hafa bent þeim landlækni og amtmanni á þá gáleysisyfir- sjón þeirra, er í sér fæli megna ósamkvæmni, að þeir höfðu veitt nú öðrum héraðslækni þingfararleyfi með því móti, að hann setti fyr- ir sig hálflærðan læknaskólamann, en synj- að hinum (Þorgr.) um að nota annan mann alveg á sama reki, — með fyrri hluta prófs frá í vor. Þann veg lank þá máli þessu svo, að ekki gat orðið af heimrekstrinum, til mik- illar skapraunar ónefndum þjóðskörungum. Mælt er, að alþingism. og héraðslæknir Þorgrimur Þórðarson hafi síðan gert prýði- lega hreint fyrir sínum dyrum, áður en hann lagði á stað heimleiðis eftir þinglok, með því að sýna hlutaðeigandi hávelborn- um valdsmönnum hverjum fyrir sig spón- nýjar tönnur og gallalausar, er tannlæknir hafði hjálpað honum um. Fullyrt er hér, að róggrein sú gegn dr. Valtý Guð- mundssyni, er hann mótmælti í síð- ustu ísafold og nú kvað birt vera á íslenzku í þar nefndu blaði, eins og hann gekk að vísu fyrirfram, sé samin hér í bænum og hafi send verið til Khafnar í því skyni, að henni væri komið annaðhvort í »Politiken« eða »Danne- brog«, en muni hafa verið úthýst af þeim blöðum báðum, og lent loks í »Socialdemokraten«, sem mun vera flestum blöðum ómatvandara og enga hugmynd hafði þar að auki um, hvort nokkurt vit eða sannleikur væri í grein þessari eða ekki. En kostmeti mun hún þykja hingað komin aftur og færð í sinn frumlegan dularbúning. Valtýlngar og E. B. »f>að er lygi«, kvað hr. Einar Bene- diktsson á almennum málfundi þeim, er hann hélt hér í bænum um þing- tímann út af ríkisráðssetu íslandsráð- gjafans,—um aðdróttunina um, að hann væri gerður útaf Valtýingum meðþað *mál. |>að er hverjum manni kunnugt, sem nokkuð þekkir til, að freklegri ó- sannindi og ólíklegri er naumast hægt að hugsa sér. Enginn lifandi maður, sem satt vill segja og er með óbrjál- aðri skynsemi, getur verið þar í nein- um vafa. Eigi að síður kvað aðdrótt- un þessari vera haldið enn á lofti á prenti mjög rækilega og afdráttarlaust. Og er þess getið hér' til fróðleiks, en ekki í þeirri veru, að skifta sér af slíku frekara. Hér mun vera viS að eiga alveg ólæknandi veiki, — ólæknandi rógburðar-ástríðu. Mótmæli flerra ritstjóri! Mér hefir verið bent á grein eina í 46. tölublaði »ísa- foldar« þ. á. með fyrirsögn »Brosleg réttarranusókn«, þar sem hr. Skúli Thoroddsen ber á mig ýmsar getsakir út af kærum þeim, sem fram eru komnar gegn honum um fégjafir til kjörfylgis sér við síðustu alþingis- kosníngar. Osannindi þau, sem blað yðar þannig hefir um mig flutt, hafa síðan verið tekin upp og ítrekuð af öðrum blöðum. Eg ætla mér ekki að eyða tíma til að svara árásum þessum orði til orðs, en læt mér nægja, að mótmæla þeim í heild sinni sem á- stæðulausum og ósönnum. ]?að eru að eins þrjú atriði í ofannefndri Isa- foldargrein, sem eg finn ástæðu til að nefna sérstaklega. 1. |>að er ranghermi, að |>orbergur Jónsson hafi verið fenginn til þess í ölæði, að rita undir kæruna gegn Skúla Thoroddsen. Kæran var a 11 s e k k i undirskrifuð af jporbergi, heldur af hlutaðeigandi hreppstjóra, Brynjólfi |>orsteins8yni á Sléttu, og öðrum máls- metandi manni í Sléttuhreppi. |>að er ósatt, að eg hafi átt nokkurn þátt í því, að kæra þessi kom fram, eða vitað af henni fyr en hún kom til mín í Grunnavík, og enginn, sem til þekkir ferðalaga þar nyrðra, mun geta láð mér, að eg íór ekki vestur yfir Isafjarðardjúp fyr en eg var búinn að lúka frumprófi því í málinu, er kæran knúði mig til, og skýlaus skylda mín var að halda yfir þeim, sem nafngreindir eru í kærunni. 2. f>að er ósatt, að grein sú í blaðinu »Vestri«, er skýrir frá prófum þessum, só rituð að tilhlutun minni eða með mínum vilja og samþykki. Eg hafði enga vitneskju uru grein þessa fyr en eftir að blaðið er hrein- prentað og borið út á ísafirði, og mundi ekki hafa veitt samþykki til þess, að skýrt væri þá þegar frá ár- angri rannsóknarinnar. Eg á því alls engan þátt í því, að rannsókn þessi var gjörð að blaðamáli. 3. Umrnæli greinarinnar um, að það hafi verið mál manna í ísafjarð- arsýslu — er greinarhöfundurinn telur naumast sönnu fjarri —, að eg hafi varið hátt á annað þúsund krónum til kosningaundirbúnings í vor, er tilbún- ingur ein og vitleysa. Enginn slíkur orðrómur hefir gengið þar, að því er mér frekast er kunnugt, enda væri enginn flugufótur fyrir slíkum orðrómi, og hann gseti ekki náð neinni tiltrú í því bygðarlagi, sem hlut á að máli. |>eir tveir skipaeigendur, sem veittu kjósendum mínum ókeypis far á kjör- fund með skipum sínum, gjörðu þetta af eigin hvöt og rammleik, án nokk- urrar borgunar frá neinum, og eg hefi hvorki borgað eða borga látið neitt fé í þóknunarskyni til kjósenda eður til kjörfylgis mér. Allar aðdróttanir og dylgjur hr. Skúla Thoroddsens og annara óvildarmanna minna í þessa átt eru helber ósannindi og annað ekki. f>essa leiðrétting krefst eg samkvæmt prentfrelsislögunum, að þér, herra rit- stjóri, takið upp í blað yðar, *ísafold«. H. Haýstein. Þjóðhátiðarsamkomu héldu menn úr uppsveitum Árnes- sýslu við Geysi sunnud. 10. þ. m. Var þar allmargt manna saman komið og skemtu menn sér við ræðuhöld, söng, glímur, kapphlaup o. fl. Bæður héldu síra Magnús Helgason á Torfastöðum og Guðm. Magnússon; og kvæði var

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.