Ísafold - 07.02.1903, Blaðsíða 2

Ísafold - 07.02.1903, Blaðsíða 2
í eldri reglunum, frá 1891 og 1893, var ekkert tekið fram um það, hvað skoðunarmenn skylau vera margir í hverri sýslu. Sumstaðar var aðeins einn skoðunarmaður 1 sýslu, en tíðast voru þeir fleiri, og í nokkrum sýslum einn í hverju búnaðarfélagi. Nú er tiltekið, að skoðunarmenn megi eigi fleiri veta en 3 í sýslu hverrh þetta er gert til þess fyrst og fremst, að girða fyrir ósamkvæmni í skoðun- argerðinni, svo og náin kunningsskap, er kynni að geta haft áhnf á gerðir skoðunarmanna, og í öðru lagi er með þessu fengin meiri trygging fyrir, að ekki séu teknir aðrir en þeir, er taldir eru vaxnir starfinu. því færri sem menDÍrnir eru, því fremur ættu að vera tök á að útvega hæfa skoðunarmenn. Æskilegt hefði verið, að skoðuDarmenn væru aðeins einn í hverri sýslu, en það þótti eigi ráð kostnaðarins vegna að fara svo langt. Misjafnt er það nokkuð, hvernig skoðunarmenn hafa rækt starf sitt fram að þessu. jpað er kunnugt frá fyrri árum um suma þeirra, að þeir hafa farið all- mikið kringum reglurnar og beitt þeim eftir geðþótta sínum. Stundum hefir þetta verið gert í einhverju hugsunarleysi, og án þess að öðru lakara væri um að kenna, En hinu hefir og brugðið fyrir, að tilgaDgurinn raeð þessu var af lakari rótum runnin, og verður því eigi bót mælt. þess eru dæmi, að skoðunarmunn hafi tekið gildar girðingar, sem höfðu ekkiþáhæð, er reglurnartiltaka. En til að jafna þetta, og láta svo heita, að alt væri eins og það átti að vera, tóku þeir af lengd garðsins, gerðu hann styttri en hann var, og lögðu það til hæðarinnar. Vitaskuld nær þetta engri átt, og má alls ekki eiga sér stað. En í þessu dæmi hefir skoðunin verið að þræða eins konar meðalveg milii þess, sem reglurnar fyrirskipa, og vilja eða kröfu þess, er jarðabót- ina gerðí. Öðruvísi verður þetta naum- ast skiiið. Síðustu skýrslur bÚDaðarfélaganna hefir mér veizt kostur á aó sjá, og hefi eg yfirfarið flestar þeirra. Við sumar þeirra er ekkert að at- huga; en þær eru fáar að tiltölu. Hinar eru miklu fleiri, sem meira og mínna eru gallaðar; því er ver og miður. Einna minst kveður að göllunum að öllum jafnaði í skýrslunum úr Sunnlendingafjórðungi, en þó er þar víða pottur brotinn. það eru ekki nema fáeinir skoðun- armenn, er gefið hafa róttar og villu- lausar skýrslur, og man eg að nefna þá Gísla Seheving, Björn Bjarnarson og Hjört Hansson; þeir eru allir bú- fræðingar. í Vesturamtinu eru skj'rslurnar úr Mýrasýslu beztar. í Norðlendingafjórðungi eru það 3 eða 4 menn, sem skýrslurnar eru beztar frá; þar á meðal eru þeir Magnús Stefánsson og Gísli Björns- son, báðir búfræðingar. í flestum skýrslunum er meira og minna af reikningsvillum og í sumum þeirra er að kalla má engin heil brú. |>essar lökustu skýrslur virðast bera það með sér, að skoðunarmennirnir hafi naumaat kunnað einfalda sam- lagningu, auk heldur meira í reikningi. Eg ætla ekki að nefna nöfnin í þessu sambandi, og setti þau heldur ekki á mig; en sé einhver sá, er efast um að hér sé rétt frá skýrt, þá mun auð- gert fyrir þann hinn sama að fá frek- ari sannanir með því að snúa sér til landshöfðingja-skrifstofunnar. Auk reikningsvillnanna, sem margar eru afsakanlegar, þó þær á hinn bóg inn séu leiðinlegar, er annað að at- huga, sem síður er afsakanlegt, og ekki ætti að eiga sér stað. Sumar skýrslurnar bera það sem sé með sér, að ýmsar jarðabætur haía verið teknar í þær, sem fullnægja ekki því, er reglurnar ákveða. Til dæmis eru vörzluskurðir teknir athugasemda- laust, þótt ekki hafi ákveðna breidd, og garðar, sem ekki eru nógu háir eftir reglunum. Jarðabætur, sem ná ekki ákveðnu máli, og eru að öðru leyti ófullnægj- andi, eiga samkvæmt reglunum ekki að- takast í jarðabótaskýrsluna. |>ær teljast að vera ekki fullgerðar, og slíkum ófullkomnum jarðabótum byggja regluruar út, enda koma þær ekki til greina við skiftingu styrksins, þó taldar séu eða teknar í skýrsluna. það er því ekki einungis árangurs- laust til að ná í landssjóðssyrk, að taka slíkar jarðabætut til greina, heldur og óheimilt, samkvæmt bún- aðarstyrksreglunum. þetta er og mibilsvert fyrir þá, er jarðabæturnar gera. Ef skoðunar- menn fylgja þeirri reglu ávalt, að taka aldrei aðrar jarðabætur en þær, sem eru fullgerðar og ná tilgangi sín- um, þá leiðir það menn til þess að vanda betur verk sín en þeir gera nú, og útrýma smámsamau kák-jarðabót- um, sem ekki gera hálft gagn, og koma oft og einatt að engum notum. f>etta er mikilsvert atriði, og hlýtur að hafa það í för með sér, að farið verður að vanda betur en gert er all- ar jarðabætur, hverju nafni sem nefn- ast. Nú mun einhver vilja spyrja, hvað séu fullgerðar jarðabætur og e i g i fullgerðar. því svara búnaðarstyrksreglurnar sjálfar nokkurn veginn glögt og greini- lega. I skýringunum handa skoðunar- mönnunum 1. tölulið segir: »Jarðabætur, sem ekki mega fullgerð- ar teljast, eru meðal annars: Sáð- garðar, fjárbælí og hestaréttir, e f girðing er eigi komingrip- held áalla vegui (auðkent hér). f>að er og auðsætt að girðingar, um hvað sem þær eru, teljast því að eins fullgerðar, að þær fullnægi reglunum að öllum frágangi, og séu gripheld- a;r (sbr. reglurnar c.: girðingar, 1.—6. tölulið). Um sléttur er svo fyrirmælt, að taka megi bæði þaksléttur og grónar flagsléttur. Flagsléttur eru þær sléttur, 3em hafa veriðplægð- ar eða stungnar upp, en ekki þakið yfir; þær er með öðrum orðum leyfilegt að taka til greina, þegar þær eru orðnar grasi grónar, búið að gera þær að túni. Kvartað hefir verið undan því, að jarðabæturnar væru eigi æfinlega skoð- aðar eða mældar á hentugum tíma eða meðan jörð er auð og ófrosin. — »Skurðirnir hafa verið hálffullir af klaka«, segir einn, er skrifar mér um þetta efni, »þegar skoðað hefir ver- ið« o. s. frv. og telur sá hinn sami slíka skoðun eða mælingu á jarðabót- unum næsta ófullkomna og ónákvæma. Búnaðarstyrksreglurnar tiltaka ebki beinlínis, hve nær eða á hvaða tíma árs skoðunin sbal fram fara. En það er deginum ljósara og liggur í hlutar- ins eðli, að skoðanir á jarðabótunum v e r ð a að gerast meðan jörð er auð og gaddur ekki kominn; ella getur mæl- ingin ekki orðið nákvæm eða rétt. Ef vart verður vanrækslu af skoð- unarmanna bálfu í þessu efni, ættu þeir, sem fyrir henni verða, að kvarta um það til sýslunefndar, og hlýtur hún þá að láta málið til sín taka. Annaðhvort er þá fyrir sýslunefnd, að áminna skoðunarmann um að skoða á hentugum tíma, eða þá að fá annan í hans stað til að gegna starf- inu. Ný bœjarstjórnarkosning á nú fram að fara á mánudaginn, eft- ir ónýtingarúrskurð landshöfðingja frá 31. f. m. á kosningunni ð. s. m., er meðtekið hafði í síðustu forvöðum á- frýjun á úrskurði bæjarstjórnar frá 15. s. m., þar sem kosningin hafði verið dæmd gild, gegn atkvæði banka- stjórans við annan mann. Svo mörgum sem líkað hafði ekki vel kosningaraðferðin á kjörfundinum 5. f. m., þá munu þó langflestir kjós- endur hafa viljað sætta sig fúslega við úrskurð bæjarstjórnarinnar og láta kosninguna vera gilda, heldur en að þurfa að hefja nýjan kosningaleiðang- ur, ekki fyrirhafnarminni en þeir eru orðnir hér. En sá var ekki vilji bankastjórans og hans manna. Hann og þeír félag- ar þóttust hafa farið óbærilega hall- oka í kosningunni 5. f. m.: úrvalshetj- ur þeirra 3 fallið, en hærra hlut borið meun, er þeir mega sízt hugsa til að nokkur völd eða veg bljóti. Fyrir því voru til fengnir menn úr leynifélagi bankastjórans, að áfrýja úr- skurði bæjarstjórnar og fá kosninguna ónýtta af landshöfðingja; töldu sig eiga fyrir fram vísa áheyrn hjá hon- um. En draga skyldi áfrýjunina svo sem lög ieyfðu frekast og gera að öðru leyti þær tafir fyrir málinu, sem auðið væri, helzt þangað til, að and- vígir kjósendur, svo sem einkum þil- skipamenn, færu að fá frátafir. þessi var ráðagerð fyrnefnds félags, sem er nokkurs konar lífvörður banka- stjórans, boðinn og búinn til að styðja hann til allra farsællegra hluta, er hjarta hansgirnist, aðallega til kosninga t i 1 a 11 s, en þeir eru höfðingjar fyrir, rektor og þorleifur hans, Yalgarður og »þjóðólfs«-maður, en óbreyttir liðs- menn tilnefndir eftir hlýðni þeirra og auðsveipni. Að öðru leyti eru höfuð- félagsskyldurnar: a ð greiða um árið 1 kr. í félagssjóð, og a ð halda vandlega leyndu öllu sem gerist innan félags, enda vita aðrir út í frá varla nokkurn tíma hvað á fundura félagsins gerist, fyr en undir eins og félagsmenn eru gengnir af fundi út um bæ. Teknir voru höfuðkapparnir í banka- valdsliðinu að safna sér atkvæðum eða atkvæðaloforðum undir nýja bæ- jarstjórnarkosningu jafnvel nokkuð löngu áður en ónýtingarúrskurðurinn kom frá landshöfðingja, og hafa rekið það erindi síðan eigi óvasklegar en við fyrri kosninguna, með taumlausum blekkingum og sjónhverfingum, og jafnvel líkamlegu ofbeldi: handalög- máli, ef annað hrífur ekki — hrifsað- ir kjörmiðar fráþeim semkjósa viljaöðru vísi en þeim félögum líkar og troða upp á kjósendur í staðinn þeirra öðrum mið um — þeim gulu eða »mongóIsku« — með fyrir fram undirskrifuðum nöfn- um þeirra kjósenda, er þeir eiga við í hvert skifti. það segir sig sjálft, að ekki er auð- ið að reisa rönd við slíkum ófögnuði öðru vísi en með skynsamlegum, frjálsum samtökum hinna óháðu kjós- enda, sem hinir leitast þá við af öll- um mætti að fá til að svíkjast úrleik með því meðal ftnnars að telja þeim trú um, að þeir séu með slíkum sam- tökum sama sem látnir kjósa eftir skipun — með öðrum orðum: spana þá eins og óvita til að skifta um nöfn á kjörseðlum sínum »til þess að sýna, að þeir séu sjálfstæðir*. þ>eir vita þessir kumpánar, að því fleiri sem fást til þess, því fremur eru líkur til að þeírra menn — «hinir gulu« (á gulu miðunum) — verði hlutskarpari, með því að þ a r líðst engin tilbreyting; þar hlaut sjálfur landahöfðinginn að kjósa um daginn alveg óskeikult, þ. e. eftir gula miðanum óbreyttum; en hinum fáfróðari og lítilsigldari talin trú um, að gulu kjörmiðarnir væri ó- gildir, ■ ef breytt væri á þeim nokkrum staf, og meira að segja sumum sagt, að þeir mistu kosningarrétt sinn, ef þeir gerðu það ! það er fátt, sem taumlaus óskamm feilni Iætur sér ekki sæma. Maður varð úti laugardagskvöldið að var af Alftanesi. Hann var á leið heim til sín úr Hafnarfirði, og var fylgt þaðan fram á GUrðaholt. Menn sem voru á heim- leið til sín frá Bessastöðum i Hafnarfjörð, mættu honutn á réttri leið eiri mjög langt frá heimili hans; en skömmu síðar hefir hann vilst og snúið aftur, því lik hans fanst skamt frá túninu i Grörðum á öðrum degi. Ölvaður hafði hann verið, og grun- ur á, að hann hafi drukkið saftblöndu, sem nú er mjög farið að tíðka i Hafnarfirði, og hefir miður gott orð á sér; sá sem saftina selur, sterklega grunaður um að blanda saman við hana spíritus. Flaska fanst brotin hjá líkinu og var snjórinn lit- aður af saftinni úr henni. Maðurinn hét Jón Jónsson frá Lásakoti, gamall maður kvæntur; bjó þar i húsmensku. Vitskertur kvenmaður, Salgerður Marteinsdóttir, í Sviðholti á Álftanesi, stökk nakin upp úr rúmi sinu og út, aðfaranótt 4. þ. m. Henni var þegar veitt eftirför, en fanst eigi fyr en um morguninn og var þá örend. Dálagleg geðstjórn. Hr. ritstjórif Eg get eigi stilt mig um að segja yður frá ofnrlitlu at.viki, er eg var sjónarvottur að rett á undan fyrri bæjarstjórnarkosningunni: hérna, 5. f. m. Eg var á gaugi hér um hæinn og sá, hvar einn af landBÍns helztu og merkileg- ustu embættismönnum stóð við húsvegg og var að lesa eitt kosningarplakatið. Það var hið bláa, með fulltrúatilnefningu þeirri, sem kend var við ísafold og meiri hluti kjósenda aðhyltist á kjördegi að meiri hlutanum. Þar stóð ekkert annað en kurt- eisleg tilmæli til »heiðraða kjósenda« bæjar- ins um að kjósa þessa menn. Þegar eg er genginn skamt fram hjá, heyri eg eins og dálítinn smell, lit við og sé þá, að höfðingi þessi hefir verið að rifa niður auglýsinguna. Hann tætir hana því næst snndur ögn fyrir ögn og stingur í vasa sinn. Mér varð að orði með sjálfum mér, að' lítið legðist fyrir kappann, þjóðkunnugt,. óskaplegt »mikilmenni«: að kunna eigi bet- ur að stjórna geði sinu en að þurfa að skeyta því a jafn-meinlausum pappírsmiða, þó a ð hann væri sjálfur liá-»mongólskur« PdU. Aukaskipið frá Sameinaða félaginu, Arno, kom loks sunnud. 1. þ. m., eftir 10' daga ferð frá Skotlandi, vegna fádæma- stórviðra; hafði mist úthyrðis töiuvert, meðal annars 50 tunnur af steinolia af þil- fari. Það hafði fullfermi af vörum hingað til Reykjavikur eingöngu, nokkuð kol, og er þó helmingi stærra en Laura. Með þvi kom dr. Valtýr Guðmundsson háskólakennari, er fengið hafði fararleyfi frá embætti sinu til þess að vitja hingað konu sinnar veikrar. Við embættispróf I læknisfræði lauk hér 29. f. m. Þorvaldur Pálsson, með 2, einkunn. Bæjarstjórnarkosningar. Mér er sagt í dag, að einhver kosningaseðill sé á gangi með mínu nafni sem bæjarfulltrúa- efnis. Sé svo, er það án minnar vitundar eða samþykkis. 6/2 1903. Jón Ólafsson.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.