Ísafold


Ísafold - 28.02.1903, Qupperneq 2

Ísafold - 28.02.1903, Qupperneq 2
38 Sjónleiííar f>au frú StefaDÍa Guðmundadóttir og hr. Árni Eiríksson, sem ekki hafa leikið hér í vetur, en eru vitanlega langfaerustu leikendur hér, lögðu sam- an um að sýna list sína í Iðnaðar- mannahúsÍDU í fyrra kveld og gær- kveldi í 4 smáleikum, þar sem ekki eru nema 1 eða 2 persónur í hverjum, öllum þýddum úr dönsku. Eitt af þeim, Hjartsláttur Emilíu, hefir verið leikið oft áður (frú Stef anía), en hitt eigi fyr fyrir almenningi. f>að var »Umsækjandinn« (Suppli- kanten, eftir sama höf., J. L.Heiberg), «Hún vill verða leikmey« og »Hinrik og Pernilla«. |>au Edv. Jensen og hans kona, frá Khöfn, léku hér fyrir mörg- um árum eitt þeirra, á sinni tungu, Hun vil spille Komedie (eftir P.Engell). Hinrik og Pernilla er eftir Dubois. Allir eru leikir þessir fjörugir og skemti- legir, ea ekki mikið í þá spunnið. Húsfyllir var, og fram yfir það, bæði kveldin; aðgöngumiðar allir pantaðir löngu fyrir fram; — svo er mikið lát- ið af leikendum þessum, og ekki um skör fram, eftir því sem hér gerist. Enda brugðust þau ekki vonum í þetta sinn. Aldrei á að leika neitt af þessu í veturframar, að auglýst er, hvernig sem gengur að efna það. Sama aðsókn alla tíð að að Skip- inu sem sekkur. Nú er Leikfélag Eeykjavíkur að búa sig undir að leika Víkingana á Hálogalandi. Póstpoki týndur og fundinn. f>riðja í jólum Jhrepti pósturmn frá Borgum til Kirkjubæjarkl. ofveður austan við Kolgrímu. Áin var stífluð af krapi og hann varð að fara upp með henni að austan inn undir Skála- fellsfjall. f>ar var veðrið byljóttara og einn stormsvipurinn sleit koffortin af hestinum; læsta koffortið hrökk upp og flutningurinn tættist úr því, og lá við sjálft, að alt færi í ána; hestarnir fældust og pósturinn ætlaði ekki að geta við neitt ráðið; frost var og snjó- hríð nokkur. Hann gat þó að lokum týnt saman flutninginn, blaðastranga, póstpoka o. fl.; en einn pokann fann hann ekki, pokannfrá Egilsstöðum til Kirkjubæjar. Hann ieitaði og menn með honum næsta dag, en varð frá að hverfa við svo búið. En 20 dög- um eftir faDn bóndinn á Skálafelli pokann á skör rét't við ána. Leysing- ar höfðu verið í millibilinu, og má það hepni heita, að pokinn tapaðist ekki. I honum var nokkuð af peningum og meir en 20 bréf. Flutningurinn var furðulítið skemdur. (Eftir bréfi). Dalasýsla 31. jan. Héðan eru eigi miklar fréttir. Heilsufarið á mönnum er gott og skepnn- höld einnig i géðu lagi. Tíðin hefir um tima verið nokkuð úr- fellasöm og hvassviðri ott mikil, en hagar eru hér ágætir enn og útlit gott með hey- birgðir. Um landsmál er mjög litið rættt hér nú og menn víst litið farnir að hugsa fyrir næstu kosningum. Ofurlitla tilre.un hefir Guðjón frá Ljúfustöðum (Kleifum) gert í Saurbænum til að reyna að smeygja sér inn í þessu kjördæmi við næstu kosningar; en óliklegt þykir að honum verði auðið að ná hér þingmensku, því fáir munu vilja hafa bann. Björn sýslumaður og sira Jens eru taldir vissir að bjóða sig hér i vor fyrir aiþingismenn, og þykir mörgum trúleg- ast, að sírajens hafi það nú, þvi að hann er öllum vitanlega miklu meiri þingmaður heldur en hinn. En flokkaskiftingin, sem rar i fyrra og þá mátti teija eðlilega, er nú vist alveg dottin úr sögunni, enda er engin ástæða til að hún haldist lengur, þar sem mál það, sem olli henni, hefir hlotið samþykki beggja flokka í nýrri mynd. Það mun því nokkuð erfitt, að nppvekja flokkaskiftinguna aftur hér; að minsta eru það þá mennirnir eigi málefnin, sem um verður barist; en slíkt ætti hvergi að vera. Unglingaskólinn í Búðardal gengur vel í vetur; þar hafa verið 12 nemendur fyrra kenslutímabilið og þó enginn úr þremur vestustu hreppunum í sýslunni, sem er hörmulegUsinnuleysi, því skólinn er ágæt stofnun til almennrar ’alþýðufræðslu og mætti alls|eigi leggjast niður. Síðara tíma- bilið er^búist^jvið* að^enn “fleiri verði i 8kólanum.fgSkólanum. er skift í tvær deild- ir og því verða kennararnir að vera tveir. Það mun varla unt að hugsa sér svo góða mentun sem skólinn veitir, nokkurstað- ar ódýrari fyrir nemendurna. Skólinn er vist einn al þeim fáu skólum landsins (að undanteknum barnaskólum), sem er sameigin- legur fyrir pilta og stúlkur, og þó fer það vel úr hendi. Það er annars afleitt, að í öllurn stærri kaupstöðum landsins að minsta kosti og sjóþorpum skuli eigi vera til unglingaskól- ar, eða*fræðslnstofnanir, sem taki við af barnaskólunum; því bæði er barnaskóla- fræðslan í sjálfu sér ónóg og gleymist þar að auki fljótt, þegar hún fær ekkert áfram- hald eða viðhald. I stað þess að fræðast, venjast því unglingarnir á iðjuleysi og ó- reglu á vetrum, þegar atvinna er engin eða lítil. (Niðurl.). Ódrengileg- barátta. Höfundur skag- firzka fréttabréfsins, sem birt er í Þjóðólfi 5. des. f. á., þykir mér skrifa miður góð- gjarnlega um helztn mennina í Skagafirði, þar sem hann segir, að einn valtýski bur- geisinn hafi sagt í haust, þegar frétt var að stjórnarskrárfrumvarpið hefði verið samþykt, að það þyrfti ekki lengri tima til að fella pað á nœsta þingi en gengið hefði til að samþyklcja það nú. Burgeisnafnið sýnir, að bréfritarinn á hér við einhverja málsmetandi menn í sýslnnni, þvi þó bann nefni einn, þá má ráða af orðunum, að hann þykist vita af fleirum. En þar eg er viss um, að slíkir menn, sem hefðu látið sér aðra eins fjar- stæðu til hugar koma, að hægt væri að fella frumvarpið að sumri, eru hér alls ekki til, þá kom mér þessi bréfkafli mjög á óvart, þvi eg vissi ekki áður, að við ættum pólitiska stigamenn í sýslunni. Páll amtmaður Briem lýsir þeim snildar- lega í Norðurl. 20. des. f. á., og vildi eg mega biðja greinarhöfundinn að lesa þá ritgerð rækilega, og hafa síðan ráð amt- mannsins, að berjast hér eftir drengilega fyrir áhugamálum sínum. Og sjálfsagt ætti hann ekki að gera það oftar, að skrifa tilhæfulausar ófrægðarsögur um þá, sem ekki hafa að öllu verið honum sam- mála, og láta svo Þjóðólf hlaupa með þær um alt land sem nafnlans'ar sendibréfs- fréttir, þvi það er sannarlega ódrengileg harátta. 22/, 1903. 6. S. Strsindmennirnir þ/zku austan af Skeiðarársandi komu hingað fyrir hina helgina, 4 þeirra, þar á raeðal skipstjóri, og komust hóðan með gufuskipi Jadar (Thor Jensens) 24. þ. m. Þeir létu einstaklega vel af allri meðferð á sér hér. Hinir 3, félagar þeirra, liggja í sárum eystra, eftir kalið.- Þegjandi fyrirlitniug. Úr bréfi frá Guðl. sýslumanni Guð- mundssyni 31. f. m.: »Einhver pólitísk- ur vikadrengur þeirra »hinumegin« er að sveigja að mér einhverju botnleysu- þvaðri í «|>jóðólfi». |>að munu nú flestir hugsandi menn á landinu vera farnir að þekkja, hvaða mark er á slíku takandi. |>að eru skynlitlir menn, sem glepjast láta af þess háttar rógburði nafnlausra fáfræðinga ; en uóg er illkvitnin. — Slíku svara eg ekki öðru en með þegj- andi fyrirlitDÍngu*. Þilskipaflotinu hér er nú sem óðast að búa sig; ábyrgðin gengur í gildi á morgun. Toiler (G. Zoéga) reyndist hafa mjög litið skemst og talið npp á að gera megi hann jafngóðan viðstöðulaust. Trippavals. TækiíœrisljóT>, sem Árni Eiríksson syngur i leiknum, Hún vill verða leikmey. Dönsum nú milli fjöru’ og fjalls fallegan, nýjan trippavals', kveðum um bæjarkosningar, kærur og deilur isfirzkar. Kveðum um alt, sem kveða má, kveðum um landvörn, stjórnarskrá, stígum svo öll í einum svip á Indriða skip. Styrjöld er vakin nú á ný, — nóg er oss boðið oft af því; — koinu hér fram við kosningar kynlegir, nýir þjóðflokkar. Eeyndu þar með sér ryskingar Bauðhöfðar, Blámenn, Mongólar, Pistólu skutu’ og gáfu’ ei grið, er glatað var frið. Blámönnum stefndi Björn á íund, brattur á velli’ og fast’r i lund; Mongólum Tryggvi fylkti fram, fengu þar margir góðan »dramm«. Ruddust þar að sem rammefld ljón Rauðhöfðar með hann sira Jón, púðri þeir hleyptu’ af pistólum úr pappirum. Þegar svo dagur þrotinn var, þá vora fallnir Mongólar; Rauðhöfðar flúnir fjalla til, földu sig inn við Kiðagil. Eltu það lið, sem undan hljóp, æpandi Blámenn siguróp; þá var nú kátt i þeirra sveit, já, það eitt ég veit, Yestan að sögð er voðatið vofir þar yfir blóðugt strið; kallað er þar við kosningar kæmi fram isfirzkt réttarfar. Laxdal þar stóð með hjör í hönd, Hannes með reiddan lagavönd, skeyti þeir sendu’ á Skúla haus, svo skrattinn varð laus. Helgi er nefndur halur þar, hafði sá mestu virðingar, löngum hann sat við Laxdals borð, lifði við bezta frægðarorð, þangað til nú hann þaðan gekk, þegar hann Manga kauB af hrekk. Landrækur þá var lýstur hann og Laxdah í bann. »Blæs nú ei hlýtt frá Hornströndum«, heyrum vér titt á Vestfjörðum, þegar hann Kári hvin við hnjúk, hristir úr malnum þorra-fjúk. Eins er og sagt um isfirzk mál: Eldur er þar í hverri sál eitthvað ef horfir öfugt við þeim almenna sið. Rætt er og margt um Reykjavik, ráðgjafann og hans »pólitík«, Rússakóps-grey, er reika um sem rottur í norður-höfunum. Landvörn er þotin strax á stað, stefna vill brott þeim rílcis-vað, land vort sem er að lima inn í >lagarinn« sinn. Alt má nú gera’ í einum svip. Indriði liefir smíðað skip; ekki fer það um saltan sjó, sökkur á hverju kvöldi þó. Sorgmædd er þar hún Sigríður, syngur og grætur Brynhildnr. Það er oss sýnt i þessum leik, hvar þjóðin er veik. Plausor. * * * Aths. Þjóðflokkanöfnin, sem talin er upp í kvæðinu og komu upp í bæjarstjórn- arkosningar-styrjöldinni hér í vetur, í gamni, er dregin af litnum á kjörseðlunum, er þá voru notaðir. Sá flokkur hlaut Mongóla nafn, er kaus með gulum seðlum, en þeir skírðu aftur aðal-andstæðinga sina Blámenn, vegna blárra kjörseðla þeirra; Rauðhöfðar höfðu rauða seðla, fáliðuð sveit, er fyrir réð uppgjafa-kennimaður nokkur; loks var dálitið félag eða flokkur, er sig nefndi Pistólu og barðist sér. Erekari skýringa mun bragur þessi ekki við þurfa. Bæjai'nefndir. Þess var ógetið í bæj- arnefndaskránni um daginn, að ennfremur er bæjarfógeti i nefndunum öllum, nema veganefnd og skólanefnd, og hvarvetna for- maður. Svo er og dómkirkjuprestur í skólanefnd, og héraðslæknir i heilbrigðis- nefnd. Sjómannaguðsþjómista í dómkirkj- unni á morgun kl. 5 síðdegis (J. H.). Farþegar með Laura um dattinn ónefnd- ir síðast: Bjarni Jónsson trésmiður, Eggert Claesen stud. jur., Árni Sveinsson kaupm. af Isafirði. Gufuskipin Scandia og ísafold eru nú feiðbúin héðan. Veðurathuganir í Reykjavik, eftir aðjunkt Björn Jensson. 19 0 3 febr. Loftvog millim. Hiti (C.) >- err < <X> cx p -t cr 8 Q*t œ pr *-1n B flD K Urkoma millim. Minstur hiti (C.) Ld.21.8 71-8,5 -3,8 NVV 1 9 3,5 -4,8 2 728,2 -2,6 wnw 2 10 9 735,5 -3,4 wnw 1 10 Sd. 22.8 738,1 -4,2 E 2 8 1,0 -5,8 2 736,7 -3,3 K 1 10 9 733,2 -1,7 NW 1 9 Md 23.8 726,5 -1,2 ssw 1 9 0,9 -5,5 2 728,7 -2,2 E 1 9 9 726,3 -1,1 S 1 8 Þd.24.8 711,5 0,6 E 3 10 0,2 -3,1 2 705,9 2.9 E 2 8 9 701,1 3,’j E i 9 Mv25.8 703,2 0,8 ssw i 9 0,1 -0,3 2 709,9 1,0 NW i 10 9 718,7 0,5 sw 2 10 Fd.26.8 722,7 -2,2 SE 2 9 0,9 -3,8 2 724,7 -1,4 E8E 2 9 9 725,6 -2,2 E 2 10 Fsd27 8 728,3 -3,4 E 1 6 4,6 -4,2 2 734,0 0,4 0 5 9 735,9 -2,9 ; E 1 4 Öllum þeim, sem á einn eða annan hátt sýndH okkur hluttekningu í sorg okkar við fráfall míns elskaða föður, eiginmanns og tengdaföður, vottum við okkar innilegasta þakklæti. Stafholtsey 4. febr. 1903. Jón Biöndal Etín G. Blöndal Sigríður M. Blöudal. Jarpur graðfoli, 2—3 vetra, marklaus, faust dauður við Hrauusú í miðjum desbr. f. á. Skiunið var hirt, en skrokiturinn grafinn niður. Réttur eigandi snúi sér til undirskrifaðs. Eyrarbakkahreppi, 18. febr. 1903. P. Nielsen. Margrót Eiiiarsdót.tir, Einarssonar frá Laxárdal i Arnessýsln, sú, er var bjúa- árið 1895—96 vinnukona í Siðumúla, er hér með beðin að láta mig vita, livar hún er niður komin, til þess að eg geti komið til hennar ávísnn upp á 15 kr, er eg hef tekið móti fyrir hana og hvað eftir annað sent áleiðis til hennar, en fengið jafnharðan aftur, af þvi að Margrét hefir þá verið þaðan hak og burt, er eg átti hennar von. Gllsbakka 14. jan. 1903. Magnús Andrésson. Tækifœriskaup. Hjá undirrituðum geta menn fengið brúk- nð sjóstígvél fyrir mjög lágt verð. Fleiri pör úr að velja. Sömuleiðis vel vönduð ný sjóstígvél, einnig lialdgóða hversdags- og spariskó. Hagnýtið yður því þetta tilboð sem stendur að eins tii 10. marz. Björn Hrelöarson skósmiður. 8. Þingholtsstræti 8. Þann 19. febr. síðastl. tapaðist á sunnanverðum Faxaflóa sexæringur aftan úr gufuskipinu »Súlan«. Þeir sem finna skip þetta eru vinsamlega beðnir að bjarga því og láta undirritaðan eiganda þess vita gegn sanngjörnum ómakslaunum. F. G. Lárusson frá G-erðum i Garði. Tll leigu frá 14. maí 4 til 5 herbergi ásamt eldhúsi. Semja má við Helga Thordersen Þing- holtstræti 21. Gainlar peniiigauiyntir allra þjóða kaupir Luðvig Hafliðason Edinborg. Til leigu frá 14. mai þrjú loftherbergi fyrir einhleipa. Upplýsingar í Vesturg. 10. Stofa með húsgögnum til leigu nú þeg- ar, fyrir einhleypan. Inngangur frá aðalgötu. Ritstj. visar á. Peningabudda, merkt innan vert með stöfunum Þ. J., með peningum 1, hefir týnst hér í bænum. Finnandi skili í afgr. ísaf. Sjóraannasamkoma í Báruhúsinu annað kvöld kl. 8. Frk. Ólafía Jóhannsdótt- ir talar.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.