Ísafold - 28.03.1903, Side 2
58
unina. En skrítið verður það þó alla
tíð, að vera að skifta sér af því, er
málshöfðun þykir þurfa að fyrirskipa,
hvers sinnis sá embættismaður er,
sem fyrir móðgun hefir orðið. f>að
lag g e t u r orðið til þess, að um þess
kyns málshöfðanir fari eftir því, hvort
embættismaðurinn treystir sér til að
hreinsa sig eða hann treystir sér ekki
til þe88.
það, sem hr. Kr. J. gekk til að
hírða ekki um málshöfðunarskipun, er
ímugustur hans á venju þeirri, er ráð-
ið hefir téðum málshöfðunarskipunum
og þarmeð fylgjandi gjafsóknarveit-
ingum. Hann vildi fara alveg sinna
ferða í þessu efni og enga gjafsókn
hafa, þótt hann færi í mál.
Þilskipaflotinn.
Nú hefir spurst til allra skipanna
héðan eftir austanrokið 8. þ. mán., og
hefir þá, sem betur fer, ekki meira orðið
um slys þar en áður er frá skýrt.
Tvö skip hafa komið inn þessa vik-
una með afla, og hann ágætan, 14j/2
þús. hvort af vænsta fiski, Swift
(Hjalti Jónsson) og Björn ÓlafsBon
(B. Ó.)
Fiskiganga sögð óvenjugóð og mikil
á svæðinu milli Vestmanneyja og
Beykjaness, — torfur í miðjum sjó og
ofar.
F.járkláða
hafði hr. O. Myklestad fundið meiri
og minni nýlega í skoðunarferð um
þingeyjarsýslu í öllum hreppum suð-
ursýslunnar og Kelduneshreppi og Ax-
arfjarðar í Norður-þingeyjarsýslu.
Uppgjðf landsréttinda.
Svo heitir nýr stjórnarmálsbækling-
ur, eftir Jón Jensson yfirdómara, rúm-
ar 3 arkir, þess efnis, að sýna og
sanna, að samþykt síðasta alþingis
um, að Islandsráðherrann sitji »í ríkis-
ráði«, sé slík uppgjöf. Miklu skýrast
eru þar rök að því leidd alls þess, er
sést hefir um það ritað frá því í fyrra.
En ekki raskar það þeim grundvelli,
sem flokkasamþyktirnar frá síðasta
þingi voru á bygðar, en hann var sú
sannfæring, að þó að svo ólíklega
færi, að vér fengjum framgengt þeim
vilja vorum, að ekki stæði neitt í
stjórnarskrá vorri um ríkisráðssetu
ráðherra vors, þá mundi hann þó ekki
einungÍB verða látinn sitja þar eftir
sem áður, heldur og þau verða mála-
lok, ef til verulegrar misklíðar drægi
fyr eða síðar út úr ágreiningi vorum
við Dani um það mál, að þá yrði það
þ e i r r a skoðun, en e k k i vor, sem
yrði látin ráða, fyrir ríkismunar sakir,
þótt ekki væri annars, svo sem dæm-
in gerast um þess kyns viðureign
þjóða í milli; og því væri ekki ráð að
tefla stjórnarbótinni í tvísýnu með
nýrri baráttu um margnefnt atriði.
Strand Eitt fiskiþilskipið héðan,
Castor, eign Brydesverzlunar ogÓlafs fakt-
ors Amundasonar, bar upp á sker við
Býjaskerseyri aðfaranótt 19. þ. m., í dimm-
viðrisfjúki, en hsegviðri þó, og brotn-
aði svo, að óhaffært er.
Það er annað strandið meðal þilskipa-
flotans héðan, siðan er hann lagði út i
upphafi þ. m., og kemur á þilskipaábyrgð-
arsjóðinn hér; hitt er Litla-Rósa frá Oseyri;
og kvað ábyrgðin nema fyrir bæði skipin
11—12 þús. kr. — Sturla var óvátrygður,
sá er sökk inni í Sundum.
Póstgul'uskipið Vesta (Gottfredsen)
kom hingað í gærkveldi fyrstu ferðina þ.
á. kringum land; fór frá Khiifn 1. þ. m.
Hún kom á ailar áætlunarhafnir, nema ekki
Stykkishólm, sakir ofviðris á Breiðafirði;
misti frá sér akkeri í Flatey og varð að hrökl-
ast þaðan að óloknu erindi; ætlar þangað
aftur í Kveld og þvi næst í Stykkishólm.
Samson kaupmaður Eyólfsson var farþegi
með henni hingað.
Gufusklp Perwie kom ..ftur afYest-
fjörðum í fyrra dag til Hafnarfjarðar og
hingað í gærmorgun; lagði siðan á stað á-
leiðis til Khafnar í gær siðdegis. Hingað
kom með henni vestan að P. J. Thorsteins-
son kanpm. á Bildudal og Sveinbj. Sveins-
son verzlunarm. á Patreksfirði. Til Khafn-
ar sigldi með henni Gunnar Einarsson
kaupmaður.
Lausn frá prestskap hefir iandshöfð-
ingi veitt 18. þ. mán. sira Jósef Kr.
Hjörleifssyni á Breiðabólsstað á Skógar-
strönd frá næstu fardögum sakir heilsubrests
og með lögmæltum eftirlaunum.
Þingeyrar-læknishórað hafði lands-
höfðingi veitt 19. þ. mán. settum lækni
þar, Andrési Féldsteð.
Óveitt prestakall. Breiðabólsstaður á
Skógarströnd (Breiðabólstaðar og Narfeyrar
sóknir); mat kr. 1184,83.
Prestsekkja er i brauðinu frá 1882, sem
nýtur */i2 »f föstum tekjum þess. Bygging-
arlán úr landssjóði hvilir á þvi, upprunalega
2000 kr., tekið 1897, sem afborgast með 1/28 á
ári (Stj.tið. 1897, B. bls. 13).
Leyfi til að taka 500 kr. lán til jarða-
bóta, er endurborgist með V.5 4 ári, var
veitt með lhbr. 25. júni 1900, en mun ekki
hafa verið notað (Stj.tíð B. bls. 79).
Veitist frá fardögum 1903. Augl. 21.
marz. Umsóknarfrestur til 8. maí.
Slðdegisguðsþjónusta verður engin
á morgun i dómkirkjunni.
Botnyörpungar
á
Ólafsvíkurmiðum
Margt hefir verið ritað um aðfarir
enskra fiskimanna hér við land, eink-
um Suðurland; sá landsfjórðungur hef-
ur einnig eflaust orðið fyrir þyngstum
búsifjum af þeirra völdum.
En nú á síðustu tveim árum eru
þessir vogestir teknir að heimsækja
fiskimið vor Ólafsvíkurbúa, og má með
sanni segja, að þeir láti hér greipar
sópa um eignir smábænda.
það er segin saga, að þar sem ó-
heillagestir þessir fara yfir með veiði-
aðferð sína, þar er eyðing vís um
lengri eða skemmri tíma.
Fyrir því 6r næsta ískyggilegt, ef
Ólafsvík skyldi líka verða fyrir öðru
eins, sem lifir nær eingöngu af bát-
fiskiveiðum og heita má að sé ungur
og uppvaxandi bær, og að mörgu
leyti efnilegur; þetta er því i-
skyggilegra, sem kauptún þetta stend-
ur lakara að vígi en önnur um að
koma sér upp þilskipum og hafagagn
af þeim, vegna þess, hve höfnin er
slæm, og vegna bryggjuleysis, svo að
jafnvel er vandséð, hvort þilskipastóll
mundi svara hér kostnaði fyrir aðra
en kaupmenn, nema þegar fiskverð er
mjög hátt.
Hér er fjölmenni saman komið, um
600 manns, mest fátækt fólk, sem
hænst hefir að hinum fiskisælu mið-
um Ólafsvíkur og allri þeirri atvinnu,
sem af fiskiafla stafar; allir lifa hér
mestmegnis á bátfiski, beinlínis eða
óbeinlínis; alt stendur og fellur hér
með því. Auðsætt er því, hvílíkur voði
yfir Ólafsvík vofir, ef botnvörpungar
fá »að bafa hér í fullu tré«, sem kall-
að er, eins og við hefir gengist tvö
árin síðustu.
En nú hagar svo til hér, að öll
beztu fiskimið Ólafsvíkur liggja utan
landhelgi og geta því botnvörpungar
skafið botninn í næði á vorum beztu
miðum, án þess að verða sektaðir,
enda þótt varðskipið kæmi hér; en
þó mundi vera mikið gagn að því, ef
það liti hér eftir; því svo mikinn beyg
hafa botnvörpungar af því, að þeir
hverfa gjörsamlega, þegar það lætur
sjá sig; það sýndi sig bezt -í fyrra vor,
það eina skiftí^ sem Hekla kom hér;
þá voru hér á dýpstu miðum og fyrir
framan þau margir botnvörpungar,
langt fyrir utan landhelgi ; en jafn-
skjótt sem Hekla kom fyrir Brimnes,
voru þeir allir óðara þotnir á braut
og létu eigi sjá sig langan tíma á
eftir. En því miður kom Hekla hér
aldrei eftir þetta.
það er sannarlega hörmulegt, að
fiskisælir firðir landsins skuli ekki
fást friðaðir fyrir ófögnuði þeim, er
hér um ræðir. f>að stoðar t. d. nauða-
lítið fyrir oss Ólafsvíkurbúa, þótt botn-
vörpungum sé bannað að fiska nær en
®/4 úr mílu frá nesjum, þegar beztu
fiskimið vor liggja dýpra og varðskip-
ið lætur aldrei sjá sig hér.
f>að er því tvent sem bráðnauðsyn-
lega þarf að gera þegar á komanda
sumri, ef einu meðal fjölmennustu
kauptúnum landsins á ekki að vera
sýnilegur háski búinn, og það er:
1. stjórnin þarf að hlutast til um,
að varðskipið hafi hér iðulegar gætur
á botnvörpungum; og
2. alþingi þarf að taka enn í sumar
botnvörpulögin til ítarlegrar endurskoð-
unar.
Vér skulum og geta þess, að fleiri
geta beðið tjón af yfirgangi botnvörp-
unga hér en íbúar Ólafsvíkur; hann
getur og haft slæmar afleiðingar fyrir
þilskipaútveg margra fjær og nær; því
þegar líður á sumar eru þilskip oft
tugum saman hér í kringum Nesið,
beggja megin við Alinn, og inn eftir
öllum Breiðafirði alt inn fyrir Selsker;
munu botnvörpungar fara fljótt með
allar þessar góðu fiskistöðvar, ef þair
fá að vaða hér uppi tálmunarlaust.
Vér viljum að endingu láta þá ósk
vora og von í , ljósi, að alþingi og
stjórn leggist nú á eitt í sumar og
taki mál þetta til ítarlegra athugunar
og karlmannlegra framkvæmda; í
stuttu máli: að þingið semji og stjórn-
ín samþykki ný lög gegn botnvörp-
ungum, svo yfirgripsmikil og svo ströng,
sem framast er unt.
22. febr. 1903.
Nokkrir Ólafsvíkurbúar.
V eðurathufranir
í Keykjavík, eftir aðjnnkt Björn Jensson
ffi a> œ 3 C7
1903 o ’Zf. c-i’ c-t >- <rr- cx <■*. B B. -s — ~ >-• 0
marz 3 1 ac P cr 0 OX & ?S 5 3 • p r-i
Ld.21.8 733.1 -0,2 E 1 7 0,4 -4,2
2 737,2 2,7 E 1 5
9 731,6 -1,4 NNE 2 4
Sd. 22.8 734,2 -1,2. N 1 7 -4,1
2 739,7 1,2 N 1 6
9 742,1 -4,0 E 1 4
Md 23.8 741,5 -2,1 E 2 10 -5,6
2 742,7 -0,4| E 2 10
9 742,6 —1,5 E 2 10 •
!>d. 24.8 741,5 -1,3 E 2 5 1,5 -3,1
2 743,1 1,4 E 1 6
9 741,8 -0,2: E 1 10
Mv25.8 735,0 -0,2; N 1 7 -2,1
2 729,2 0,2. N 2 9
9 723,1 0,9 N 2 9
Fd.26.8 719,2 -0,7; N 3 8 -1,6
2 720,3 0,6 N 3 7
9 720,6 -0,2 N 3 6
Fsd27.8 723,7 1,7 SE 1 8 0,7 -1,6
2 727,3 0,8] SE 1 10
9 728,9 0,4 SE 1 10
■ f erfiðis menn geta fengið góða
matvinnu á næstkomandi vori við
jarðyrkjuvinnu, og tveir til
fiskiróðra hjá undirrituðum
Geirseyri 24.marz 1903. M. Snœbjörnsson.
Til íeigu óskast
frá 20. apríl i miðjum bænum, fyrir ein-
hleypan, 2samanliggjandi kerbergi (ekki
á lofti). Ritstj. visar á.
Sá, sem fekk lánaða hjá mér lykla að
Good-templarahúsinu í Reykjavik i vikunni
sem leið, skili mér þeim sem fyrst.
Rvik 28. marz 1903.
Árni Eiríksson.
Samkoma í Báruhúsinu kl. B*/2 annað
kvöld. Frk. Ólafía Jóhannsdóttir talar.
Til leigu frá 14. maí eru 2 herbergi
við Spítalastíg í Jónshúsi.
K P [I jj A morgun kl. 6 síðd. fundur
. f ■ U. II. fyríi* yngri deild (sira Fr.
Friðriksson talar); kl. Ö/Za síðd. fyrir eldri
deild (lektor Þórhaliur Bjarnarson talar).
Af skipinu »Stjernö« héðan úr bæn-
um fanst skipsakkeri með 15—20
faðma keðju 25. maí f. á. á Patreks-
firði. Akkeri þetta, sem er flutt hing-
að, virðist vera af gufuskipi, en eng-
inn einkenni eru á því.
Hér með er því skorað á eiganda
þess og keðjunnar, að segja til sín
innan árs og dags frá síðustu birtingu
þessarar auglýsingar, og sanna fyrir
amtmanni heimildir sínar til þessara
muna, og taka við þeim, að frádregn-
um bjarglaunum og öllum kostnaði.
Suður- og Vesturamtið 17. marz 1903.
J. Havsteen.
SKANDIN AVISK
Exportkaffi-Surrogat
Kjobeuhavn. — F- Hjorth & Co..
frá
C. V STEENSTRUP
Kaupmannahöfn K. Knabrostræde 12.
Frá 1. janúar þ. á. hefi eg tekið
við hljóðfæra-stórsöludeild verzlunar-
hússins Petersen & Steenstrup, þann-
ig, að sala til útsölumanna, sem fyr-
nefnt verzlunarhús annaðist áður, fer
eftirleiðis eingöngu fram frá stórverzl-
un minni. Eg leyfi mér því að ráða
kaupmönnum, úrsmiðum, bóksölum
og öðrum verzlunarmönnum, sem kynnu
að vilja kaupa harmoníkur, munn-
harmoníkur, fiólín, guitara, zithera,
strengi og annað því um líkt, að fá
sér það hjá mér, þegar svo ber undir,
með því að eg get kept við hvaða
verzlun sem er í þessari grein, með
því eg hefi fengist eingöngu við kaup
og sölu á hljóðfærum kringum 30 ár,
enda mun eg fylgja sömu meginreglum
og verzlunarhúsið Petersen & Steen-
strup hefir fylgt og kaupa og selja
eingöngu fyrir peninga út í hönd.
þeir herrar Björn IÁristjáusson í
Reykjavík og Jakob Gunnlögsson í
Kaupmannahöfn taka á móti pöntun-
um frá mér, ef vill.
Virðingarfylst
C. V. Steenstrup
Proclama.
Með því að Guðmundur bóndi Jóns-
son i Fagradal í Vopnafjarðarhreppi
hér í sýslu hefir framselt bú sitt til
gjaldþrotaskifta, er hér með samkvæmt
lögum 12 apríl 1878 og opnu bréfi
4. janúar 1861 skorað á alla þá, er til
skulda telja hjá honum, að lýsa kröf-
um sínum og færa sönnur á þær fyr-
ir skiftaráðandanum hér í sýslu áður
en liðnir eru 6 mánuðir frá birtingu
þessarar innköllunar.
Skrifst.Norður Múlasýslu 10. febr. 1903.
Jóh. Jóhiinneí!».soii.
8 anra!
gefur undirskrifaður fyrir pundið al
góðum ullartuskum. EinDÍg kaupi eg
ullarhnak, tog og fl.
Valdemar Ottesen.
auglýsist hér með, að við
undirritaðir frá þessum
degi höfum slitið samfélagi okkar, og
með því að Kr. Kr. hefir tekið að sér
allar þær skuldir, sem á félaginu hvíla,
og ber ábyrgð á þeim gegn 3. manni,.
þá eru menn beðnir að snúa sér til
hans með kröfur sínar á félagið; sömu-
leiðis borgist allar útistandandi skuld-
ir félagsÍDS til hans.
Reykjavík 23. marz 1903.
Kr. Kristjánsson. Sigurj. Ólafsson.