Ísafold - 01.08.1903, Blaðsíða 1

Ísafold - 01.08.1903, Blaðsíða 1
J Xemur út ýmist einn sinni eöa tvisv. i viku. Verð árg. (80 ark. minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða l'/2 doll.; borgist fyrir miðjan júli (erlendis fyrir fram). ISAFOLD Uppsögn (skrifleg) bnndin vi8 áramót, ógild nema komin sé til útgefanda fyrir 1. október. Afgreiðslnstofa blaðsins er Austurstrœti 8. XXX. árg. Reykjavik laugardaginn 1. ágúst 1903 49. blað. jfíuAÁu/ó jWaAýaAvrv I. 0. 0. F. 857249. G-jalddagi blaðsins var 15. júlí. Augnlœkning ókeypis 1. og 3.' þrd. á hverjum mán. kl. 11—1 í spltalannm. Forngripasafn opið md., mvd. og ld. 11—12. K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa op- in á hverjum degi kl. 8 árd. til kl. 10 siðd. Almennir fnndir á hverju föstudags- og sunnudagskveldi kl. 8‘/2 síðd. Landakotskirkja. Cruðsþjónusta kl. 9 og kl. 6 á hverjum helgum degi. Landakotsspítali opinn fyrir sjúkravitj- •endur kl. 10'/2—12 og 4—6. Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1. Landsbókasafn opið hvern virkan dag 41.12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3) md., mvd. og ld. til átlána. Náttúrugripasafn, i Vesturgötu 10, opið 4 sd. kl. 2—3. Tannlækning ókeypis í Pósthússtræti 14b 1, og á. mánud. hvers inán. kl. 11—1. Stjórnarskráin samþykt. StjörnarskiirfrumYarp ís- landsráðgjafans var sam- þykt i gær við 3. umræðu i efri deild með öllum at- kvæðum (nafnakalli) gegn einu (þingm. Barðstr.). Hvalveiðamálið. J>að er hvort um sig, að mjög megn mótspyrna er risin bæði norður við Eyjafjörð og austur í Múlasýslum gegn hvalveiðum hér við land, enda hefir það mál sannarlega eigi orðið útund- an á þinginu í ár. Fyrir þinginu liggur fyrst og fremst fruravarp um friðun hvala í landhelgi, alt árið, umhverfis strendur landsins, nema í fsvök sé eða fastir á grynn- angum. í öðru lagi hefir bomið fram frum- -varp um að þeir menn, sem reka hval- veiðar, skuli greiða tekjuskatt af at- -vinnu, svo sem aðrir atvinnurekendur, sem tekjuskattskyldir eru samkvæmt lögum 14. desbr. 1877. Og í þriðja lagi er farið fram á að hækka hér eftiralt útflutningsgjald af hvalafurðum, og það að miklum mun, sem sé af hverri tunnu hvallýsis úr 50 aurum í 2 kr.; af hverjum 100 pd. af hvalkjötsmjöli úr 25 aurum í 50 aura og af hverjum 100 pd. af hvalá- burði (guano) og hvalbeinamjöli úr 10 aurum í 25 aura. Um fyrsta frumvarpið er lítið að segja, það er að eins sú breyting á aldri lögum, að friða hvali(nema smá- hveli) 1 landhelgi fyrir skotum, alt ár- ið, í stað þess að áður voru þeir frið- aðir frá 1. apríl til 1. október. Slík friðun kemur, eins og eðlilegt er, að litlum notum, þar sem hvalir eru ekki skotnir hér við land frá 1. október til 1. apríl, svo vér vitum. Að því er annað frumvarpið snertir, þá verður það ekki álitið ósanngjarnt, að hvalveiðendur greiði tekjuskatt af atvinnu sinni eins og aðrir atvinnurek- endur hér á landi, ef sá skattur er sanngjarnlega og samvizkusamlega lagð- ur á, sem ekki skal dregið í efa að ó- reyndu. f>að er þá aðallega þriðja frumvarp- ið, um hækkun útflutningsgjalds af hvalafurðum, sem oss finst næsta ó- sanngjarnt, og sem hlýtur að hafa í för með sér einhverjar alvarlegar af- leiðingar, ef það verður samþykt, þar sem um jafn gífurlega hækkun er að ræða, sem hér er farið fram á, t. d. að ferfalda gjald á hvallýsi, sem er aðalútflutningsvaran af þessari at- vinnugrein. Fyr má nú rota en dauð- rota. Ef frumvarp þetta er komið fram í þeim tilgangi að friða hvalina alger- lega, sem sé að byggja öllum hval- veiðendum út með frumvarpinn, þá getur auðvitað svo farið, að þeim til- gangi verði náð að nokkru leyti, en heldur ekki meira. Sé hitt aftur á móti satt, sem full- yrt er, að tilgangurinn sé sá ainn með frumvarpinu, að auka landssjóði tekj- ur, þá eru mjög litlar líkur til, að frumvarpið komi að tilætluðum notum, og hvölunum ekki borgið að heldur. Afleiðingin yrði sem sé sú, að allir hvalveiðendur yrði flæmdir héðan burtu með þeim lögUm, og færi þá gagnstætt því, sem til er aetlast, að landssjóður misti allar tekjur frá þeirra hendi, í stað þess að fá þær auknar. Tveir af hvalveiðendum eru hér staddir, þeir Berg og Ellefsen, sem mesta útgerð hafa allra hvalveiðimanna hér við land, og segja þeir það báðir hiklaust, að verði þetta frumvarp gert að lögutn, þá neyðist þeir til að taka sig upp héðan og annaðhvort flytja alfarið burtu, t. d. til Færeyja, þar sem slíkir menn eru velkomnir, eða reka hvalveiðar utan lanahelgi, frá gufuskipum, hirða þar aflann og flytja hann burtu þaðan, án þess að leggja ueitt á land hér. Menn hugga sig ef til vill við, að þetta séu hótanir einar, er aldrei verði framkvæmdar, en að eins fram settar til að hræða þingið og komast hjá hækkuðu útflutningsgjaldi. þeir fari 6kki að flytja héðan burtu, hval- veiðamennirnir. En varlega er slíbu treystandi. Menn eins og Ellefsen, sem fyrir tveim árum tekur sig upp með alla útgerð sfna á Onundarfirði, og hún er ekkert smáræði, og flytur hana á hinn end- ann á landinu, til Austfjarða, láta sér ekki alt fyrir brjósti brenna. Verði því frumvarpið að lögum og hvalveiðamenn flytji héðan alfarið, þá er það talsverður tekjumissir fyrir landssjóð, og það svo, að skiftir tug- um þúsunda á ári hverju. Svo fer um sjóferð þá. En það er eigi að eins tekjumissir fyrir landssjóð, sem hér er um að ræða. þetta mundi og hafa f för með sér mjög mikinn tekjumissi fyrir hreppssjóðina, þar sem hvalveiðamenn eru búsettir, atvinnutjón fyrir fjölda manna og hlunnindatjón fyrir heilar sveitir, fjær og nær hvalveiðistöðuD- um. það er kunnugt að ekki gleymist að leggja útsvar á hvalveiðendur, þar sem þeir eru búsettir, eins og einnig er sjálfsagt; og eins og við má búast, dregur það hreppana drjúgt að hafa slíka gjaldendur, og það svo mjög, að um munaði, ef niður félli. Hvalveiðamenn veita fjölda manna atvinnu árlega, svo mörgum tugum skiftir, flytja þá til og frá og gjalda þeim kaup í peningum. Yerða marg- ir þeirri atvinnu fegnir, er ekki hafa þol eða þrek til að leggja á sig harða stritvinnu. Sú atvinna hyrfi algerlega ef hvalveiðamenn færu héðan. »það er drjúgt sem dr/pur«, segir máltækið og svo er um hvalkjötið, er nvalveiðendur, að minsta kosti þeir Berg og Ellefsen, hafa árlega gefið hverjum þeim, er til þeirra hefir leitað, og eru þetta þó sannast að segja engir smáskamtar. Telst þeim svo til, að um 4000 hestburði hafi þeir látið af hendi árið sem leið, án eins eyris endurgjalds. þessi og önnur hlunnindi færu menn á mis við, ef hvalveiðendur væri flæmdir héðan burtu. Til dæmÍ8 að taka um fjárgreiðslur þessara manna hér, skal þess aðeins getið, að Ellefsen e i n n mun hafa greitt árið sem leið nál. 16000 kr. í tolla og skatta hér á landi. Auðvitað verður alt þetta létt á metunum í augum þeirra manna, er fullyrða að aflaleysi stafi af hvaladráp- unum, en því höfum vér aldrei getað trúað. Oss virðist að reynslan bendi á alt annað. Sama mótspyrnan, sem nú á sér stað gegn hvalveiðendum á Norður- og Austurlandi, var þeim veitt á Vesturlandi, er þeir settust þar að fyrir 13—14 árum, og nokkur ár eftir það, af því að svo hittist á, að afla- tregt var í þeim héruðum um það leyti. En þessi mótspyrna hvarf al- gerlega, með því að reyndin hefir orð- ið sú, að ekki hefir í annan tíma afl- ast betur þar vestra en nú hin síð- ustu árin, eftir að hvalir hafa þar skotnir verið á annan áratug. Og sama mun verða reyndin eystra, þótt svo hafi nú óheppilega atvikast, að síld og fiskur hafa ekki fylt þar alla firði og víkur þessi síðustu missiri. Vér erum nú ekki betri en þetta, mennirnir. Gangi oss eitthvað á móti, þá kennum vér öðrum mönnum um það, ef nokkur tök eru á, ella náttúr- unni eða einhverju öðru. Munum vér svo langt, að margir urðu til þess hér á árunum að kenna aukinni eimskipa- umferð um fiskileysi hér við Faxaflóa. Skröltið 1 skrúfunni átti að styggja fiskinn, eimpípan að fæla hann, askan að drepa hann. Nú lætur enginn sér slíkan hégóma um munn fara. Tvennir verða tímarnir. í fornöld var það algengt, að þeir menn, er numið höfðu hér land, g á f u öðrum, er á eftir þeim komu, nægilegt land af landnámi sínu til eignar og umráða. Nú er gerð tilraun til að gera þá menn landræka, er sumir hverir hafa komið fram gagnvart þjóð vorri sem sannir höfðingjar, enda áunnið sér virðingu og hylli allra manna, er nokkur kynni hafa af þeim haft eða viðskifti við þá átt. Ágirndin er rót alls ills. Hólaskóli vill af alefli vinna að því, að bændur hér á landi geti einnig komist á þetta stig. Hólasbóli er fyrir alla þá, sem vilja stunda land- búnað, sein vilja lifa á honum og gera hann að arðsömum atvinnuvegi. þess vegna vill skólinn forðast allan dauð- an bóklegan lærdóm. f>að á að kenna með fyrirlestrum, hinu lifandi orði, og hafa við kensluna ágætar myndir, nátt- úrugripi, plöntur, dýr, beinagrindur, jarðtegundir, steina o. s. frv. f>ess vegna á að skoða búféð og búfjárhús- in á skólasetrinu til athugunar við kensluna og þess vegna á að fara skoðunarferðir ávetri til fyrirmyndar- búa í nánd við skólasetrið, því að við skoðanirnar opnast augu manna fyrir því, sem læra má af framkvæmdum annarra og lífinu í kringum þá. jpess vegna er ekkert próf, því nemendurn- ir eiga að læra vegna lífsins en ekki fyrir vitnisburði. þess vegna verður lögð sérstök rækt við að benda nem- endum á búnaðarbækur og búnaðar- blöð, sem þeir geta haft gagn af að lesa og þess vegna er haldinn bænda- skóli, til þess að þeir, sem hafa verið Hólaskóli í Hjaltadal. þess var getið í ísafold í vetur, að breyting er orðin á skólahaldinu þar. Bóblega og verklega kenslan hefir ver- ið aðskilin. Bóklega kenslan fer fram að vetrinum frá 15. okt. til 30. apríl. Verklega kenslan fer ekki fram á Hólum, heldur er nemendum komið fyrir hjá bændum, þar sem þeir geta fengið tilsögn og nauðsynlega æfingu eða þeir njóta tilsagnar í gróðrarstöð- inni á Akureyri. Enn fremur eiga þeir kost á að nema smíðar (trésmíði og járnsmíði) hjá æfðum smiðum. Bóklega fræðslan fer fram í fyrir- lestrum í þeim námsgreinum, sem hægt er að koma því við; jafnframt eru sýndar myndir og gerðar tilraunir til útskýringar efninu. Nýlega hefir ísafold verið send skýrsla um skólann síðastliðið ár. f>ar er meðal annars gerð grein fyrir til- gangi hans á þessa leið. •Búskapur manna í öllum siðuðum löndum er að verða vandasamur. Hann getur hvergi þrifist, nema því að eins að þeir, sem stunda hann, kunni að færa sér í nyt kenningar vís- indanna, hvort sem þær snerta nýjar ræktunaraðferðir, tilbúinn áburð, ný vinnuáhöld, kynbætur, hagnýting fóð- urtegundanna, o. s. frv. f>eir sem stunda búskap, þurfa að skilja nytsemi félagsskaparins og hafa þekkingu til að dæma um nýjungar, sem snerta búskap, á skynsamlegan hátt og án tortryggni og hleypidóma. Á þetta stig eru bændur i nágrannalöndum vorum að komast og á þetta stig er mikill hluti þsirra þegar kominn.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.