Ísafold - 12.08.1903, Page 4
803
Frá alþingi
Lös.
20. Um viðauka við lög 8. nóv. 1895
um hagfræðisskýrslur. 011 vátrygg-
ingarfélög (lífsábyrgðarfélög, sjúkrasjóð-
ir, brunabótafélög o. 8. frv.) eru skyld-
uð til að seada landshöfðingja árlega
ágrip af reikningum sínum og skýrslu
nm allar ábyrgðir, er þau hafa tekið
að sér hér á landi. Erfingjar eða
skiftaráðandi í dánarbúum og þrota-
búum skulu og senda landshöfðingja
skýrslu um lífsábyrgðir og slysaábyrgð-
ir, er koma fram við*skiftin.
21. Um breyting á lögum nr. 8 um
vegi frá 13. apríl 1894. — Sýslunefnd-
um veitist vald til þess, að áskildu
samþykki amtsráðs, að hækka fyrir
eitt ár í senn sýsluvegagjaldið úr 1
kr. 25 aur. upp í alt að 2 kr. 25 aur.
fyrir hvern verkfæran mann. Hrepps-
nefndum veitist satna vald, að áskildu
samþykki sýslunefndar, að því er
snertir hækkun á hreppavegagjaldi.
22. Um kosningar til alþingis
(heimullega atkvæöagreiðslu og kjör-
stað í hverjum hreppi).
23. Um vörumerkí.
24. Um eftirlit með mannflutninE-
um til útlanda. — Ekkert skip, sem
flytur farþega frá íslandi til útlanda,
má taka við tarþegum á »óæðra« far
rúm fyr en lögreglustjóri á þeim stað,
sem skipið kemur fyrst á til að taka
slíka farþega, hefir gefið skriflegt leyfi
til þess, og skal í leyfinu tiltekið, hve
marga farþega megi taka á farrúmið.
Á síðustu höfn, sem skipið leggur frá
til útlanda, skal lögreglustjóri sann-
prófa, að ekki fari á óæðra farrúmi
fleiri en leyft var á fyrstu höfn að
taka mætti á skipið. — Óæðra er far-
rúmið, ef það er lakara en 2. farþega-
rúm á millilandaskipum þeim, er lands-
Stjórnin notar.
25. Um ráðstafanir til útrýmingar
fjárkláðanum.
1. gr. Landsstjérninni veit.ist heimild til
að gera ráðstafanir til algerðrar útrýming-
ar fjárkláða og ráða til þess starfa einn
framkvæmdarstjóra fyrir land alt. En hann
tekur sér aðstoðarmenn ettir þörfum.
'd. gr. Eftir tillögum framkvæmdarstjór-
ans semur landstjórnin reglugjörð nm fram-
kvæmd verksins, og má þar ákveða sektir
fyrir brot á reglngjörðinni.
3. gr. Baðlyf þau og baðpottar, er með
þarf i hvern hrepp, skal flutt þangað frá
næstu kauptúnum á kostnað fjáreiganda í
hreppnum. Hreppsnefndin annast um flutn-
inginn og jafnar flutningskostnaðinum niður
á fjáreigendur eftir fjártölu og innheimtir
hann. Gjald það má taka lögtaki. Hús-
bóndi hver leggur ókeypis til baðker, nægi-
lega aðstoð við böðun og skoðun fjár á
heimili hans, og flutning baðlyfja og böð-
unaráhalda til næsta hæjar.
Allui annar kostnaður við ráðstafanir til
útrýmingar fjárkláðanum greiðist úr lands-
sjóði.
4. gr. Framkvæmd tilskipunar 5. jan.
1866, tilskip. 4. marz 1871 og laga 8. nóv.
1901 skal frestað að því leyti, sem tilskip-
anir þær og lög samrýmast ekki lögum
þessum.
5. gr. Lög þe?8i öðlast gildi þann dag,
er það tölublað af B-deild Stjórnartiðind-
anna kemnr út, sem skýrir frá staðfesting
þeirra.
26. Um frestun á framkvæmd laga
25. október 1895 um leigu eða kaup á
eimskipi og útgerð þess á kostnað
landssjóðs. — Framkvæmd þeirra
frestað fyrst um sinn. •
27. Um löggilding verzlunarstaðar
á Ökrum í Hraunbreppi f Mýrasýslu.
28. Um heilbrigðissamþyktir fyrir
bæjar- og sveitarfélög. — Fyrir kaup-
staðina semur bæjarstjórn með ráði
héraðslaeknis frumvarp til samþyktar
og sendir það landshöfðingja til stað-
festingar, en hann ber það undir
landlækni. í Bveitum gerir hrepps-
nefnd tillögu um samþyktina, en
sýslunefnd semur frumvarpið með ráði
héraðslæknis og sendir það amtmanni,
er ber það undir landlækni og leggur
það 8Íðan fyrir amtsráð til staðfest-
ingar- í heilbrigðisnefDd sitja í kaup-
stöðum bæjarfógeti (form.), héraðs
læknir og einn bæjarfulltrúi, sem bæj-
arstjórn kýs til þess, og í hreppum
hreppstjóri eða sýslumaður (form.),
einn maður kosinn af hreppsnefnd og
annar af sýslunefnd.
Þingmaiinafrumvörp.
59. Um lífsábyrgð fyrir sjómenn,
er stunda fiskiveiðar á þilBkipum.
Bigurður Jensson flytur frumvarp um
það, að eftirleiðis skuli allir sjómeDn
á þilskipum skyldir að greiða í vá-
tryggingarsjóð, er stendur undir yfir-
umsjón landsstjórnarinnar, 15 aura á
viku um vetrarvertíð og 10 au. á viku
um vorvertíð og sumarvertíð, raeðan
þeir eru á skipinu; auk þess greiðir
útgerðarmaður frá sjálfum sér helming
móts við gjald skipverjanna allra.
Deyi Bjómaður af slysförum á því
tímabili, er hann er vátrygður fyrir,
greiðir vátryggingarsjóður eftirlátnum
vandamönnum haDS 100 kr. á ári um
næstu 4 ár.
60. Um viðauka við lög um stofn
un landsbanka 18. sept. 1885 — um
að stofna sérstaka deild við lands-
bankann í Eeykjavlk, ef eigi verður af
stofnun hlutafélagsbankans fyrir-
hugaða, og má deildin gefa út alt að
einni miljón kr. í seðlum, er greiðist
handhafa með gullmynt, ef krafist er.
En hafa verður deiidin í vörzlum sín-
um málmforða, er eigi nemi minna
verði en helmingi af seðlaupphæð
þeirri, sem í útlánum er, og auk þess
vissa og auðselda eign til tryggingar
þeim hluta seðlafúlgunnar, sem ekki er
trygður með málmforðanum. Flm.
Tryggvi Gunnarsson, Lárus H. Bjarna-
son, Hannes Hafstein, Hannes þor-
steinsson.
61. Um löggilding verzlunarstaðar
við Heiði á Langanesi í Norður-þing-
eyjarsýslu. Flm. Árni Jónsson.
62. Um heimild til að kaupa lönd
til skógarfriðunar og skógargræðslu —
um að veita stjórnÍDDÍ heimild til að
kaupa í þessu augnamiði jörðina Hall-
ormsstað í Suður-Múlasýslu með hjá-
leigum, svo og ítak hins fyrverandi
þingmúlaprestakalls í Hallormsstaðar-
skógi, jörðina Vagli í Fnjóskadal og
Hálsskóg. (Fjárlaganefndin).
63. Um viðauka við lög nr. 6, 12.
jan. 1900 um fjölgun og viðhald þjóð-
vega. Vegamálanefndin í efri deild
flytur frumv. um það, að landsstjóm-
in megi krefjast þess, að sýslusjóðir
kosti að hálfu viðhald flutningabrauta,
sem verða lagðir hér eítir, ef brautin
er aðallega lögð í þarfir sýslufélagsins,
og það er álitið hafa efni og ástæður
til að bera kostnaðinn.
64. Um breyting á 1. gr. í lögum
nr, 24, frá 2. okt. 1891. Árslaun
bókarans við landsbankann ákveðin
3500 kr. frá 1. jan. 1904 (Banka-
nefndin).
65. Um landBdóm, Flm. Hannes
Hafstein, Lárus H. Bjarnason, Her-
mann Jónasson.
66. Um dánarkýrslur. — Líkskoð-
unarnefndin í neðri deild breytti lík-
skoðunarfrumvarpinu, er efri deild
samþykti, í frumvarp til laga um dán-
arskýrslur, er mælir svo fyrir, að
prestur skuli, auk venjulegra atriða,
innfæra í kirkjubækurnar dauðamein
þeirra, er hann jarðsetur, eftir þeim
upplýsingum, er hann getur beztar
fengið, og senda síðan sýslumanni og
héraðslækni sitt eintakið hvorum af
dánarskýrslunum. í kaupstöðum og
verzlunarstöðum, sem læknir býr í,
má ekkert lík jarðsetja fyr en læknir
hefir gefið dánarvottorð.
67. Um heimild til lántöku fyrir
landssjóð, — að landsstjórnin megi
taka alt að 500 þús. kr. bráðabirgða-
lán handa landssjóði, gegn tryggingu í
eignum eða tekjum hans. (Fjárlaga-
nefndin).
Fallln frumvörp.
11. Um líkskoðun (Dd.).
12. Um breyting á 6. gr. laga um
vegi 13. apríl 1894 (ed.).
13. Um að undirbúa nýtt jarða-
mat (nd.).
Falliu þing-sályktunartiUaga.
3. Um lestrarbók handa alþýðu-
skólum (ed.).
i>ingsályktunartillögur.
15. Um kensluí lærða skólanum í
Reykjavík. — Mentamálanefndin í efri
deild leggur til, að alþingi skori á
stjórnina að láta semja sem fyrst og
löggilda nýja reglugjörð fyrir skólann,
er fari í þá átt, að afnumiu verði
grÍ8kukensla og latneskur stíll við próf,
kenslustundum fækkað að mun í
latínu en aukin kensla í móðurmálinu,
nýju málunum og eðlisfræði.
I>inguefndir.
Bankamúl: Björn Kristjánss., Guðl.
Guðm., Hannes þorst., Lárus H.
Bjarnas., Tryggvi Gunnarsson.
Fjárlaganefnd í efri deild: Eirfkur
Briem, Guðjón Guðl., Jón Jak., Kristj-
án Jónsson, Valtýr Guðmundsson.
Ljósmæðraefni
Y fi r 1 ý s i n g.
Oftar en einu sinui (sbr. Fjallk. í maf
1894 ogÞjóðólf 2. apr. 1900) hefi eg minst
á, aö vanda þyrfti val ljósmæðraefna bet-
ur en oft á sór stað. Þessu virðist mér
enn jafn-ábótavant, og aS nokkrar, er hing-
aS koma til náms, séu altannaðen efni-
legar til þess starfa.
Eins og að undanförnu ermérljúftað
vera til aöstoðar um námstímann efnileg-
um, siðprúðum og heilbrigðum ljósmæðra-
efnum, eu sem skilyrði fyrir því, aðþær
geti notið verklegra œfinga með mér, tek
eg það fram, að þær verða að geta sýnt
heilbrigðisvottorö frá hóraðslækni, og vott-
orð um gott maunorð og siðprýði frá
sóknarpresti.
Reykjavík 29. júlf 1903.
pórunn Á. Bji/rnsdóttir.
(ljósmóðir).
Póstgufuskipid Ceres lagði á stað
9. þ. m. f hringferð sína kring um land-
Með því fór til Eskifjarðar sýslumaður
Axel Tulinius með konu sinni, Jón kaupm.
Norðmann frá Akureyri, Magnúg Sæbjörns-
son læknir með konu sinni, eand. Halldór
Gunnlaugsson, myndasýningamennirnir Hall-
seth og Fernander áleiðis til útlanda, og
ýmsir fleiri.
Nýdáin er hér i bænum S i g r í ð-
ur Ásmundsdóttir, ekkja Torfa
heitins prentara þorgrímssonar, mesta
dugnaðar og sómakoua.
Erlendur gullBmiður M a g n ú s-
Bon og Halldóra Henriks-
d ó 11 i r (Hansen) héldu silfurbrúð-
kaup sitt 8. þ. m.
Biðjið aetið um
Parkers gullpenna (sjálfblek-
unga) því þeir eru mjög góðir.
8ig. Gnðmundsson.
Zeoliublekið góða
•r nú aftur komið i afgreiðslu Isafoldar.
mmmmammmmmmmmmtmm
Öllum þeim, sem lieiðruðu útför kon-
unnar minnar sálugu með návist sinni,
eða á annan hátt sýndu hluttekning í
sorg okkar, votta eg hér með innilegt
þakklæti, bæði fyrir hönd min sjálfs og
annarra eftirlifandi ættingja og ástvina
hinnar látnu.
Valtýr Guðmundsson.
MH—■■
Kenslukona óskast.
Kenslukona við barnaskóla á Vest-
urlandi frá 15. október þ. á. til 14.
maí næsta ár óskast. Kaup 250—300
krónur, Ieigulaus bústaður og ljós og
hiti kauplaust. Kvenmaðnrinn þarf,
auk kenslu í skrift, reikningi, bóklestri
og kristindómi, að geta kent söng
með orgelspili.
Kvenmaðurinn þarf að hafa með-
mæli frá einhverjum valinkunnum
þektum manni.
Lysthafendur snúi sér til barna-
kennara Friðriks Guðjónssonar í Tröð
í Álftafirði í ísafjarðarsýslu fyrir 15.
sept. þ. á.
Hin viðurkenda
góða, Roch-Light steinolía
fæst fyrir
26 kr.
pr. 40 gallon og í stærri kaupum ó-
dýrari.
Komið og semjið um það sem fyrst
við verzlunina
Godthaab.
ljúffenga BISCUITS (smákökur) tilbúið
af CRAWFORDS £ Son
Edinborg og London
Stofnað 1813.
Einkasali fyrir ísland og Færeyjar
F. Hjorth & Co.
Kjöbenhavn.
Bezta tegund af
fæst hjá
Th. Thorsteinsson.
og aðra kristin-
dómsvini pantar
undirritaður út-
lendar kristilegar bækur og
borgar undir þær burðargjald með
strandferðaBkipum.
Öllum fyrirspurnum um þess háttar
bækur svarað ókeypis. Bókaskrár og
nokkrar bækur til sýnis.
S. Á. Gríslason.
cand. theol.
þingholtsstræti 3. Reykjavlk.
Útgefandi Björn Jónsson.
Ábm. Olafur Bósenkranz.
iBafoldarprentsmiÖja.