Ísafold - 04.11.1903, Síða 1
Xemur út ýmist einu sinni eða
tvisv. í viku. Yerð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
il'/í doll.; borgist fyrir miðjan
jáli (erlendis fyrir fram).
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bnndin við
áramót, ógild nema komin sé til
étgefanda fyrir 1. október.
Afgreiðslustofa blaðsins er
Austurstrœti 8.
XXX. árg.
Reykjavík midvikudaginn 4. nóvember. 1903
67. blað.
JíuAÁidl JftaAýaAwv
I. 0. 0. F. 852398‘/2.
Augnlækning ókeypis 1. og 3. þrd. á
hverjnm mán. kl. 11—1 i spitalanum.
. Forngripasafn opið md., mvd. og ld.
11—12.'
K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa op-
sn á hverjum degi kl. 8 árd. til kl. 10 siðd.
Almennir fundir á hverju föstudags- og
aunnudagskveldi kl. 8*/2 siðd.
Landakotskirkja. Guðsþjónusta kl. 9
og kl. 6 á hverjum helgum degi.
Landákotsspitali opinn fyrir sjákravitj-
>®ndur kl. 10*/2—12 og 4—6.
Landsbankinn opinn hvern virkan dag
kl 11—2. Bankast.jórn við kl. 12—1.
Landsbókasafn opið hvern virkan dag
'■ki. 12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3)
md., mvd. og ld. til útlána.
Náttúrugripasafn, í Vesturgötu 10, opið
4 sd. kl. 2—3.
Tannlœkning ókeypis í Póstbússtræti 14b
1. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1.
Jón Jonsson: íslenzkt þjöðerni.
'Gizur Einarsson og Jón Arason biskupar.
Frh.
Berum þá lítið eitt saman, Gizur
biskup og hinn alkunna og margum-
rædda Jón biskup Arason, sem höf.—
eins og allír(?) aðrir — hefur upp til
ekýjanna. Hvað er það, sem mest
ber á hjá Jóni Arasyni? Svar: ráð-
ríki og stórbokkaskapur, [Sbr. orðin:
iNú hefi eg undir mér alt
Island, nema hálfan annan
k o t u n g 8 s o n«], hóflaust sjálfstraust,
en jafnframt dæmafár kjarkur. f> a ð
eru hans auðsæjustu ættarmerki með
mörgum hinna fornu víkingjahöfðingja.
Hann unni t r ú sinni — það er víst
—, áleit hana þá einu réttu, alveg
eins og Gizur biskup sína, og vildi
eins og hann leggja alt í sölurnar fyr-
ir hana. f>að var ekkert. annað en
ást hans á katólsku , trúnni og vald-
girni sjálfs hans, sem kom honum til
þess að berjast og brjótast af alefli
á móti hinum nýja sið. Og gegn
konungsvaldinu varð hann að beina
mótspyrnu sinni, því að konungsvald-
ið var ótvírætt fylgjandi lúterskunni
og beittist fyrir henni. Konungsvald-
ið í Danmörku var nú einu sinni búið
að bíta sig fast í siðbótina — af
kunnum áBtæðum — og hélt sér þar
dauðahaldi; baráttan á móti siðabót-
inni hlaut því að verða barátta móti
konungsvaldinu, óviljandi ef ekki vilj-
andi. Til þ e s s a átti og Danahatur
Jóns Arasonar rót sína að rekja. En
sjálfsagt hafa margir tekið það svo,
að hann berðist því nær eingöngu fyr-
ir þjóðrétt og landslög, og því fylgt
honum og litið upp til hans, þótt
þeim undir niðri væri meinilla við hið
gengndarlausa klerkavald katólsku
kirkjunnar, og er það hér um bil á-
reiðanlegt, að svo hefir verið háttað
með eigi allfáa.
Ráðríki og stórbokkaskap Jóns Ara-
sonar sýnir það, að hann tekur sér
fyrir hendur, eftir lát Gizurar biskups,
•ð skipa einn öllum málum, ekki oin
angis kirkjunnar um land alt — og
kom honum þó að eins við hans bisk-
upsdæmi, — heldur einnig öllum
landsmálum yfirleitt. Til þess
hafði hann ekkert umboð, hvorki frá
einurn né neinum og mátti það því
kallast gripdeild ein, þvert ofan í
landslög og rétt. Aldrei sýndi Gizur
biskup af sér slíkt gerræði.
f>að þykir auðvitað sem Gizuri hafi
farist illa við Ogmund biskup, er hann
lét það viðgangast, að konungsmenn
handsömuðu hann og höfðu burt með
sér, en þess verður vel að gæta, að
hann áléit það einmitt lífsskilyrði
hinni ungu siðbót sunnanlands, að
Ögmundi væri úr vegi rutt, þar sem
hann mátti sín einna mest þar ka-
tólskra manna með fortölum sínum
og undirróðri; og víst má telja, að
Ögmundi hefði verið það ljúfast að
vita Gizur kominn veg allrar veraldar,
er hann komst að raun um, hvernig
hann snerist við kirkjumálunum, þeg-
ar hann hafði náð biskupstign. f>eir,
sem berjast fyrir stórum hugsjónum,
verða oftast nær að láta persónulega
velvild, vináttu og venzl lúta í lægra
haidi. — Eða skyldi Jón Arason hafa
hikað sér við að gera hið sama eða
líkt, til þess að koma vilja sínum og
áhugamáli áfram? Vafalaust má
svara: Nei. Eða lýsti sér nokkuð
meiri réttlætistilfinning í því, er Jón
biskup lét fara að Marteini Einarssyni,
sem biskup varð eftir Gizur, — er
ekkert hafði gert á hluta hans, nema
vera fylgjandi hinum nýja sið, — taka
hann höndum, flytja heim að Hólum
og halda honum þar í ströngu varð-
haldi vetrarlangt, — heldur en í því,
að Gizur var með því, að Ógmundur
biskup væri handBamaður? Enginn
hatði gefið Jóní biskupi vald -til þess
að taka Martein fastan, en Ögmundur
var þó tekinn eftir skipun konungs,
er hin íslenzka þjóð hafði gengið á
hendur. Og ekki var það heldur neitt
drengilegt af Jóni biskupi, er hann
hugðist að taka Skálholtsstað (1549)
og staðarmenn bjuggust til varnar, að
bann þá hótar að láta Martein biskup,
er hann hafði á valdi sínu, mæta
skotum staðarmanna. Ekki hefði það
þótt hetjuháttur meðal sannra góðra
drengja á söguöldinni að leika svo
varnarlausan mann, er þeir áttu alls
kostar við.
Eða þegar Jón biskup hafði tekið
Skálholtsstað og lætur g r a f a u p p
líkama Gizurar biskups og
dysja hann utangarðs sem
annan óbótamann — hvað vilja
menn kalla það? — f>að er reyndar
svo siðlaust og ruddalegt («barbariskt«)
— af biskupi(!) — að leitt er, að slfkt
skuli vera satt.
Gizuri biskupi verður varla láð það,
þótt hann léti lítið yfir skoðun sinni,
meðan hann var hjá Ögmundi biskupi
valdalaus, því að í fyrsta lagi hefði
honum alls ekki verið vært í Skál-
holti eða í nánd við Ogmund eftir að
hann hefði kveðið alveg upp úr, og í
öðru lagi sá hann, að það mundi mál-
stað sínum fyrir beztu að fara sér
hægt um sinn, en von um, að siðbót-
in fengi framgang, ef hann næði völd-
um, Sams konar »diplómatf« hefir að
minsta kosti verið hrósað hjá mörgum
öðrum, þótt um lítilvægara málefni
væri að ræða en siðaskiftin.
|>að er mjög óviðurkvæmilegt að
bera það á Gizur biskup, að það hafi
verið einungis konungsvaldið og kon-
ungsvináttan, sem hann barðist fyrir,
því að vitanlegt er og flestum Ijóst,
að það var eingöngu siðbótin, sem
hann bar fyrir brjósti; sýndi hann það
og greinilega, er hann tók að starfa
hér sem biskup, í því, hversu hann
lét sér ant um rétta kenningu, góða
siðu og andlega uppfræðslu lýðsins.
En hvað gerir svo Jón biskup Ara-
son þar í stað? »Sagan segir, að hann
hafi skrifað Karli 5. f>ýzkalandskeis-
ara og boðið honum yfirráð
y f i r 1 a n d i n u«, og höf. er þeirrar
skoðunar, að þessi sögusögn sé s ö n n.
Heppilegast væri, ef menn vildu »tigna«
Jón Arason, að tala sem fæst hér
um, en segjast verður það, að þetta
hefir ekkert annað nafn, en h r e i n
og bein landráð gegn sinni fóst-
urjörðu og drottinssvik gagn-
vart sínum konungi — og er hvorugt
hoiðarlegt. Sýnir þetta betur en nokk-
uð annað, að það voru e k k i lands-
réttindin, sem Jón Arason varaðberj-
ast fyrir, heldur katólska trúin og
vegur hans sjálfs. Ætli þetta geti og
að öðru leyti skoðast sem nokkuð
heillaráð og að við befðum verið bet-
ur settir andlega bundnir á kirkjunn-
ar klafa og innlimaðir í hið
katólska ríki Karlsð.? f>eir,
sem nokkuð þekkja til sögunnar munu
ekki vera í vafa um, hverju svara
skal.
f>ótt Gizur biskup hefði ekki hafið
siðbótarbaráttuna hér á landi, þá er
ekki að vita, að skiftin hefðu farið
öðrum betur úr hendi. Er enginn efi
á því, að Kristján konungur 3. — eins
og hann lét sér ant um hinn nýja sið
— hefði gert sitt til að ryðja honum
braut hér, og ef enginn maður inn-
lendur hefði tekist starfið á hendur,
þá hefði landsmönnum verið þröngvað
til að taka siðaskiftin — með herliði
og vopnum, og hefði af því leitfc mann-
dráp — hver veit hvað miki) — og
að líkindum miklu meira fjártjón fyr-
ir landið en það beið við það, að
tekjurnar af klaustragózunum runnu
í konungssjóð.
f>að þarf oft næma réttlætishönd og
sérstaka gát á tilfinningum sínum til
þess að láta þá menn njóta sannmæl-
is, er mikið hafa komið við lífið og
söguna, sér í lagi ef þeir hafa barist
fyrir einhverjum mikilvægum stefnum
f andans ríki. Kemur þá einatt til
greina skoðanamunur meðal manna.
Svona er því farið með dóma um aðra
eins menn og biskupana Gizur Ein-
arsson og Jón Arason. Báðir voru
þeir merkir menn, en a ð a 1 orsökin
til þess, að Jón Arason hefir verið
hinni íslenzku þjóð ávalt svo minnis-
stæður, er sú, að hann hafði meðal
annars til að bera frábæran
kjark, svo mikinn, að hann
lét lífið fyrir trú sína.
G. Sv.
Sálmasöngsbókin nýja.
,0/10 ’03.
Prestskosning.
Gaulverjabæjarsöfnuður hefir kosið
sér fyrir prest síra Einar Pálsson á
Hálsi f Fnjóskadal með 78 af 79
greiddum atkvæðum.
Frh.
f>á er að minnast á hin nýju lögin.
Flest eru þau góð, og sum þeirra fyr-
irtak. fíg vil strax benda á 5 lög,
sem eg fyrir mitt leyti er síra Bjarna
hjartanlega þakklátur fyrir að hafa
innleitt, og eg er sannfærður um,
að fljótt ryðja sér til rúms. f>etta eru
lögin, sem síra Bjarni^ hefir sett^við
lagboðana: »Hér er stríð og hér er
mæða«, »Rís upp mín sál og bregð nú
blundú, »Syng guði dýrð hans dýr-
keypt hjörð«, »Nýja skrúðið nýfærð í«
og »f>ú guð ert mikill«, og eru þau
hvort öðru ágætara. Enn verð eg að
benda á »Að kveðja heim sem kristn-
um ber«; þar hefir síra Bjarni hið á-
gæta lag Berggreens »Lær mig, o Skov,
at visne glad«. Að hafa fengið lagið
•Integer vitæ« (eða »Hlíðin mín fríða«)
í stað gamla lagsins við »f>ökk sé þér
góð gjörð« og vonandi einnig í stað
lagsins hjá Jónasi við »Hvað hefir þú,
minn hjartkær Jesú, brotið ?« er aldrei
nema happ. Sama er að segja um
lag Berggreens við »Sofðu vært hinn
síðsta blund«, og lag Hartmanns gamla
við trúarsálminn (»Credo«); »Vér trú-
um allir á einn guð«. f>essi síðast-
nefndi sálmur, sem eftirhugsjón sinni,
sem játning hins kristna safnaðar,
ætti að hljóma við hverja einustu
guðsþjónustu milli pistils og guðspjalls,
hefir til þessa verið sunginn alt of lítið
í kirkjum vorum, en það befir vafa-
laust meðfram verið að kenna hinu
afarþunglamalega lagi við sálminn,
sem vér höfum átt að venjast. Lag-
ið við, »0 guðs lamb synda sýkna«,
birtist hér í nokkuð annari mynd en
bæði hjá Jónasi og í Viðbæti þeirra
St. Th. og B. Kr.; væri tekið að noía
þann sálm, eins og Norðmenn gjöra,
við útdeilingu, jafnframt eða í staðinn
fyrir »f>ín minning Jesú«, þáfærimjög
vel á að nota lagið f þeirri mynd,
sem það hefir hjá síra Bjarna. Gamla
(grallara) lagið við, »Sá ljósi dagur
liðinn er«, á síra Bjarni þökk fyrir að
bafa dregið fram að nýju. Lagið und-
ir nýja lagboðanum, »Sjá nú er runn-
inn nýársdagur«, hefir mór alt afa þótt
— og þykir enn — ósálmlegt og ó-
neitanlega kysi eg heldur að syngja
sálmana undir lagboðanum »Hver sem
ljúfan guð lætur ráða« með nýja lag-
inu við »Rís upp mín sál og bregð nú
blundi*, að minsta kost sálminn »Hver
sá er góðan guð lét ráða«, ef eg færi
að sleppa gamla laginu við þann sálm,
sem eg annars býzt við að verði seint,
þrátt fyrir alla mína nýjungafíkn í
sálmasöng. Fjögur ensk lög hefir síra
Bjarni tekið upp, sem sé við lagboð-
ana »Sjá himin, jörð og hafið blátt»,
»Mín sál, þinn söngur hljómi«, »Ó veit
eg gætur gefi« og »Við freistingum gæt
þín«. Fremur finnast mér þessi lög
bragðdauf af enskum sálmalögum að
vera, en auðvitað getur þetta breyzt,
er maður fer að venjast þeim. »Við
freistingum gæt þín« vísaði Jónas til
lagboðans »í fornöld á jörðu«, sem var
mjög óheppileg ráðstöfun. Við þann
sálm hefði mátt nota lagið (Urolige
Hjerte« eftir V. Kalhauge, með því að
endurtaka tvær síðustu hendingarnar.