Ísafold - 23.01.1904, Qupperneq 1
Kemur út ýmist ^nu tsinni eöa
tvisv. i viku. Yer? árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlíráis 5 kr. eöa
l1/, doll.; borgisl fyrir miðjan
’úlí (erlendis ýrir fram).
XXXI. árg,
JúiáÁu/óJtaA^ulúih
I. 0. 0 F. 852398/7
Augnlœkning óíeypis 1. og 3. þrd. 4
'hverjum mán. kl. Í1—1 í spltalannm.
Forngripasafn °pið tnvd. og ld. 11
—12.
Frilœkning á /amla spitalannm (lækna-
akólanum) á þrié’i()ögllln og föstudögum
kl. 11-12.
K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa op-
in á hverjum deg kl. 8 árd. til kl. 10 siðd.
Almennir fundir á hverju föstudags- og
flnnnndagskveldi kl. 8‘/a siðd.
Landakotsldikja. Guðsþjónnsta kl. 9
ng kl. 6 á hverym helgum degi.
Landákotssptali opinn fyrir sjúkravitj-
'*ndur kl. ÍO1/^—12 og 4—6.
Landsbankirn opinn hvern virkan dag
íkl 11—2. Baíkastjórn við kl. 12—1.
Bankastjóri \ÍÖ kl. 11—2.
Landsbókasifn opið hvern virkan dag
%1.12-3 og bl. 6-8.
Náttúrugrifasafn, i Yesturgötu 10, opið
-4 sd. kl. 2—3
TannlœkniHg ókeypis i Pósthússtrœti 14b
1, og 3. mánid. hvers mán. kl. 11—1.
t
Jón Þorkelsson
fyr rektoí við lærða skólann hér i
bænum, riddari af dannebrog og
dannebrogsmaður, andaðist að kvöldi
2\. þ. mln. á 82. aldursári, fæddur
5. nóvefiber 1822 á Sólheimum i
Sæmundarhlíð i Skagafirði. Hann
lærði uidir skóla hjá Sveini próf.
Níelssyri, föður Hallgrims biskups,
kom i Bessastaðaskóla 1845, en nt"
skrifaðist úr Reykjavíkurskóla 1848.
Tók embættispróf í málfræði og sögu
við háíkólann 1834 með 1. einkunn.
Sama árið, um haustið, kom hann
hingað heirn aftur og varð þá þegar
stundakennari við lærða skólann.
Fastur kennari við skólann varð hann
1802, yfirkennari 1869 og rektor
1872, við fráfall Jens rektors Sigurðs-
sonar. Hann fekk lausn frá rektors-
embættinu frá 1. október 1895. For-
seti Rvikurdeildar Bókmentafélagsins
var hann frá 1868 til 1877, heiðurs-
félagi þess frá 1885; varð meðlimur
hins kgl. danska vísindafélags 1876
meðlimur vísindaféiagsins i Kristjanm
1887. Hann var kvæntur Sigriði
Jónsdóttur, sern enn er á lífi. Eigi
varð þeim hjónum barna auðið, en jafn-
an höfðu þau hjón hjá sér eitthvað
af skyldfólki sinu, yngri eða eldri,
sem þau styrktu á ýmsan hátt og
mörgum fátækum skólapiltinum var
rétt hjálparhönd frá heimili þeirra
hjóna, bæði fýr og síðar, en þó eink-
um meðan hann gegndi rektorsem-
bættinu.
Jón rektor Þorkelsson var ágætlega
-vel að sér í öllu þvi, er að málfræði
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bundin viö
áramót, ógild nema komin sé til
útgefanda fyrir 1. október.
Afgreiðslustofa blaðsins er
Austurstrœti 8.
Reykjavík laugardaginn 23. janúar 1904
4. blað.
laut og unni hann þeim visindum af
alhug. Ohætt' er að telja hann með-
al hinna fremstu norrænufræðinga og
hefir hann unnið islenzkri málfræði
stórmikið gagn. Rektorsembættinu
gegndi hann með þeirri samvizku-
semi og mannúð, sem hvervetna var
einkenni hans. Um hans daga var
lífið i latínuskólanum í svo góðu horfi,
að eigi hefir í annan tima betra verið,
og minnist þess margur nú.
Ástríður Guðmundsdóttir
húsfrú, kona Guðmundar bóksala og
bókbindara Guðmundssonar á Eyrar-
bakka, andaðist þar 11 þ. m. eftir
langa og stranga sjúkdómslegu, ná-
lægt sextugu. Hún var ágætiskona,
prýðilega greind og vel að sér, stilt
en þó framkvæmdarsöm og hugljúfi
hver manns.
Erlend tíðindi.
Khöfn 12. jan. 1904.
Bkki er um annað tíðræddara i
blöðum og hraðskeycum en ófriðinn
þann, er í hönd fer með R ú b b u m
og Japansmönnum. Hann er
ekki byrjaður enn, þótt ótrálegt sé,
svo ófriðlega sem látið hefir verið þar
eystra all lengi, einkum frá því skömmu
fyrir áramótin. Alt af öðru hvoru
háft á orði þó, að þeir séu að jafna
sig; en annað veifið borið aftur og alt
fult af frásögum um kappsamlegan ó-
friðarviðbúnað af beggja bálfu.' 111-
viðriskrákurnar flognar á stað austur;
það eru hernaðarfregnritarar stórblað-
anna, sem svo eru nefndir.
Flestir spá .Tapansmönnum sigur,
fyrsta kastíð að minsta kosti, ef þeir
ná að berjast nú þegar eða mjög bráð-
lega. þeim er þvi illa við dráttinn
og gruna Rússa um að þeir vilji fara
undan í flæmingi og fá svigrúm til að
draga að sér liðsafla og skipa vestan
að, helzt til vors; þeir láti því líklega
um samkomulag, en þar fylgi enginn
hugur máli.
f>að ber þó flestum saman um, að
Rússakeisara sjálfum muni full alvara
að vilja stýra hjá ófriði. Honum
þykir, sem líklegt er, illa sitja á sér
að hefjast handa að fyrra bragði, þar
sem hann var frumkvöðull friðarþings-
ins miklaí Haag (1898). Auk þessveit
bæði hann og aðrir kunnugir, að ekki
þarf mikið út af að bera til þess, að
ókyrð komi á þegnana heima fyrir,
um hið afarvíðlenda ríki hans. Loks
mun grönnunum vestan megin þykja
miðlungi vel trúandi, ef þeir sæju sér
leik á borði og Rússar kæmust í
kröggur eystra.
það er sagt að Rússar hafi eigi
minna en 5 miljónir vígra manna á
að skipa, ef í harðbakka slær. En
Japanar að eins rúma V, miljón. Bn
sá er munurinn, að þeir hafa allan
sinn her til taks á næstu grösum,
en Rússar hálfu færra þar eystra. Og
vaskleik sýndu Japanarafsér frábæran
í viðureignínni við Kínverja fyrir
nokkrum árum og þar með viturleik
í herstjórn og snarræði. þeim hefir
farið heldur fram en aftur síðan, með-
al annars aukið stórum herskipaflota
Binn og landvarnir. þeir gengu þá af
Kínverjum óvígum, höfðu unnið lönd
af þeim og náð valdi á Kóreuskaga,
þrætupartinum, sem nú er milli þeirra
og Rússa. En þá skárust Norðurálfu-
stórveldin í leikinn, Rússar, Frakkar
og þjóðverjar, og þröngvuðu Japans-
mönnum til að skila aftur herfangi
sínu mestöllu — öllu neraa eynni
Formósa. J>að átti að vera gert til
þess, að ekki hallaðist á, jafnvægið
raskaðist ekki. Bnda lýstu þeir félag-
ar allir yfir því, að ekki ætluðu þeir
sér að ábatast sjálfir um eina þúfu.
En ekki leið á löngu áður en þeir
kræktu sér í Binn bitann hver frá
Kfnverjum, — Rússar í Port Arthur,
ágætt herskipalægi við flóann inu úr
Gulahafi, þar sem skemst er til sjáv-
ar frá Peking, ásamt góðri spildu af
nesinu þar upp frá, og hafa þeir nú
gert sér þar einhvern hinn öflugasta
kastala í heimi. Og nú færa Rússar
sig það upp á skaftið, að þeir vilja
hafa hönd yfir Kórea, landinu, sem
Japansmönnum var fyrirmunað að
halda í skækilinn á, er þeir höfðu
unnið, með þeim fyrirslætti, að það
yrði að vera sjálfu sér ráðandi sem
áður, fyrir jafnvægis sakir. f>að er og
hefir lengi verið keisaradæmi, með 17
miljónun. íbúa, gott land og frjósamt,
en lítt ræktað né samið að menning-
arþjóða siðum. En Japanar telja sér
standa hinn mesta háska af, ef Rúss-
ar fái vald á því. það liggur beint
andspænis Japan, vestan megin Jap-
anhafs, milli þess og Gulahafs, og
segja Japanar, að það sé þá eins og
upp dreginn bogi og örinni miðað á
sig.
Ekki voru það nema um 600 manns,
sem lífi týndu í sjálfum leikhús-
brunanum í Chicago 30. f. m. En
margir skaðbrendir aðrir. Ýmsirstjórn-
endur og starfsmenn við leikhúsið hafa
verið lögsóttir fyrir hirðuleysi og van-
ræk3lu að gera skyldu slna til varúð-
ar við brunahættu. LeikhúsiÖ var
ekki fullgert og ýmsu því áfátt að
auki þar að lútandi, og íekk lögreglu-
stjóri bæjarins mikið ámæli fyrir að
hafa leyft að nota það og fylla það
áheyrendum í því ástandi. Nokkrir
bófar voru staðnir að því að ræna lík
þeirra, erinni brunnu, morguninn eftir
brunann.
það þótti röggsemi af lögreglustjór-
anum í Chicago, að hann lét loka 19
leikhúsum í borginni eftir brunann,
er forstöðumenn þeirra vildu eigi hlýðn-
ast fyrírmælum hans til varúðar við
brunahættu.
Svo miklum ótta og óhug sló á al-
menning viða um lönd við þetta voða-
slys, að mjög dró úr aðsókn að leik-
húsum í mörgum stórborgum.
berg. Hún fæddist 1820. Hún var
systir Napóleons keisarafrænda, þess
er kom til íslands 1856 og kvæntist
síðar Klóthildi, dóttur Víktors I. Eman-
úel8, Sardiníu konungs, sem þá var,
en síðan yfir allri Ítalíu. Matthildur
þe8si, keisarafrænka, hafði verið for-
kunnarfríð á yngri árum og ljóngáfuð.
Napóleon III. keisari, sem síðar varð,
frændi hennar, hafði viljað eiga hana
en hún tók honum ekki. Hún var
gefin eftir rússneskum fursta, vellauð-
ugum, er hét Demidoff. Hann lék
hana illa, barði -hana svo á sá, og
veitti Nikulás keisari henni skilnað
eftir fá ár. Eftir það var hún fyrir
framan nokkur ár hjá Napóleoni III.,
meðan hann var ríkisforseti og þar til
er hann kvæntist Eugeníu. |>eim kom
ekki saman, mágkonunum. En nú
sátu þær við banabeð Matthildar, hún
og Klóthildur Emanuelsdóttir, einar
þess venzlaliðs. Matthildur hafði ver-
ið mjög frjálslynd og hjartagóð; mátti
ekkert aumt sjá.
Kristján konungur IX. er enn ó-
kominn heim sunnan frá Gmunden.
Hefir verið það lasinn til þessa, síðast
í fæti — verið við rúmið.
Hér var gengið á þing aftur í gær,
eftir 3 vikna jólaleyfi, með 10 kr. fæð-
ispeningum á dag. þar að auki höfðu
þingmennirnir fengið sér greidda í
jólagjöf meir en 300 kr. hver eða
54,000 kr. alls í viðbót við fæðispen-
ingana frá því í haust — lögin um
hækkun þeirra úr 6 kr. upp í 10 kr,
látin gilda fyrir sig fram. — Tala
þingmanna í báðum deildum er 180.
Nú í vikunni (14. þ. m.) halda þeir
sér sjálfir veizlu á ríkissjóðs kostnað.
þeir dr. Otto Nordenskjöld
og hans félagar eru nú heim koranir
til Svíþjóðar úr Suðurheimskautsför
sinni. þeir fengu þar miklar viðhafn-
arviðtökur. f>eir komu við hér í K.-
höfu og var haldin fagnaðarveizla. f>að
gerðu ýmsir helztu menn í 2 félögum
landfræðinga og jarðfræðinga. Dr. Otto
Nordenskjöld er bróðursonur Adolfs
Eiríks heit. Nordenskjölds hins fræga.
Póstskipið Laura,
skip8tjóri Aasberg, kom síðdegis í
dag, hafði fengið versta veður, eink-
um frá Færeyjum. Var yfir 80 tíma
þaðan til Vestmanneyja og nál. sól-
arhring frá Vestm.eyjum hingað, eða
helmingi lengur en þegar vel gengur.
Með skipinu komu: málafærslumaður
Einar Benediktsson, kaupm. Gunnar
Gunnarsson, endurskoðandi Indriði
Einarsson, kandídatarnir Jón Her-
mannsson og Jón Sveinbjörnsson,
verzlunarstjóri Nic. Bjarnesen, konsúll
Th. Thorsteinsson, kaupmaður L. A.
Snorrason á ísafirði o. fl.
I næstu viku er von á gufuskipinu
Vendsyssel. það lagði á stað frá
Khöfn 3 dögum á eftir Lauru.
Látinn er í París 2. þ. m. M a 11 -
hildur Bonaparte prinzessa,
bróðurdóttir Napóleons mikla, komin
á níræðisaldur. Hún var dóttir Hieró-
nymuss konungs í Vestfali, yngsta
bróður keisarans, og drotningar hans,
Katrínar konungsdóttur frá Wúrtem-
Útibú á ísafirði
ætlar Landsbankinn að stofna inn-
an skamms, Var Halldór bankagjald-
keri Jónsson sendur vestur í þeim er-
indum með gufuskipinu »Saga« í fyrra
I <3ag-