Ísafold - 13.02.1904, Blaðsíða 3

Ísafold - 13.02.1904, Blaðsíða 3
2? af sonum þeirra eru Jón og Þorsteinn í Kvík og Þorkell fyrir vestan, allir smiðir. Guðmundur sál. fluttist 1897 með tengda- syni sínum og dóttur frá Brekkum að Kirkjulandi og dvaldi hjá þeim til dauðadags. Hinn framliðni var hinn heiðvirðasti alla tíð, sérlega guðrækinn og vandaður maður, jafnframt þvi, sem hann var hreinskilinn og hispurslaus. Miklum og góðum hæfileg- leikum var hann gæddur hæði tii lifs og sálar. Hann var þjóðhagasmiður og fór öll smíði, sem hann bar við, einkar vel úr hendi. Að byggingu 6 kirkna vann hann. Skemtinn var hann, er hann naut sin, fróður um margt, tryggur og vinfastur. Hann var merkur maður fyrir margra hluta sak- ir, stiltur i framgöngu og samvizkusamur, stakur iðju og ráðdeildarmaður svo og ræktarfullur eiginmaður og faðir. Hann var vel metinn og virtur fyrir mannkosta sakir hæði af ástvinum og oðrum, sem af honum höfðu kynningu. »Erfiði réttlátra er til lífsins® (Orðskv. 10, 16.) M. Þ. Sjoiuannaguðsþjónusta á morgun í dómkirkjunni síðdegis; síra Fr. Fr. prédikar. í hádegismessu prédikar kand. Sigurbjörn Á Gíslason. Altaris- ganga; skriftir kl. 12. Haraldur trésm. Möllor hefir selt Sveini kaupm. Sigfússyni lóð sína við Austurstræti (milli þess og Vallarstr.) fyrir 13000 kr. Lóðin er að stærð tæpar 1200 ferálnir. Húsið, sem á lóðinni stendur, er und- anskilið sölunni. Póstskipið Laura fór héðan, eftir áætlun, 10. þ. m. og með henni fjöldi farþega, þar á með- al: ráðherrann og frú hans, frú Kirstín Pétursdóttir, konsúll D. Thomsen, kaupmennirnir: B. H. Bjarnason, Gunnar Einarsson, W. O. Breiðfjörð, Helgi Zoega, Ben. 8. f>órarinsson og Vald. Ottesen, stud. med. Eiríkur Kjerúlf, slökkviliðsstj. Matthías Matt- íasson, verzlunarm. Jón Bjarnason, Guðm. Sigurðsson klæðskeri, Jónatan |>orsteins8on söðlari o. fl. Utanbæjar: sýslumaður Gísli ísleifsson, síra Ólaf- ur Helgason á Stóra-Hrauni og kaup- mennirnir: Einar Markússon í Ólafsvík, Guðm. Jónasson í Skarðsstöð, Ólafur Árnason á Stokkseyri, Ingólfur Jóns- aon faktor í St.hólmi, Gestur Einars- 8on, kaupfélagsstjóri frá Hæli, Ólafur Benjamínsson verzlm. á fúngeyri o. fl. Ennfremur fóru með skipinu 60—.70 Skaftfellingar og Rangæiugar til sjó- róðra í Vestmanneyjum og 12—15 einhleypir menn héðan úr bænum til Vesturheims. Síra Jóu Magnússon á Ríp sækir um lausn frá prestskap frá næstu fardögum vegna bilunar í radd- færunum. — Um Mýrdalsþingln hafa sótt: síra f>orsteinn Benedikts- son í Bjarnanesi, síra JeB A. Gíslason í Eyvindurhólum og kand. Jón Brands- son. Manualát. Ráðherrahjónin urðu nýlega fyrir því þunga mótlæti að missa elztu dóttur sína, Kristjönu, mjög efnilega ,stúlku, nál. 12 ára gamla. Nýlega er og dáinn húsfrú G u ð- rún Frímannsdóttir á Miðhópi í Húnavatnssýslu, fyrirmyndar kona. Jónas Jónsson, hreppstjóri á Kjarna í Eyjafirði, andaðist 14. jan. f Halldör Guðmuiidsson, • fyr kenuari við lærða skólann, andað- ist í morgun hér í bænum. Hann var fæddur 3. febr. 1826, útskrifaður úr lærða skólanum 1851. Kennari við skólann 1862 —1885, er hann fekk lausn frá embætti. Pórn Abrahams. > (Frh ) Hann lá grafkyr eina svipstund, lit- aðist gætilega um og þóttist sjá, að enginn gæfi honum gaurn framar. Hann héit nú áfram leið sína skríð- andi á fjórum fótum, þangað til eftir voru að garðinum að eins nokkur hundruð metrar. En þá óx nú hættan. Kúlurnar þutu eigi að eins yfir gerðisveggina heldur langt út yfir sléttuna. Alt var undir atkvikum komið; leitaði hann afdreps gegn kúl- um úr eiuni átt, komu þær úr annari; þær stefndu sitt á hvað og því var enginn vegur til að forðast þær. Al- staðar umhverfis hann þyrluðust upp rauðar moldgusurnar, þar sem kúlurn- ar komu niður. f>að skrjáfaði í sí- fellu í viðarrunnunum, er greinar og blöð féllu eins og regnskúr til jarðar hringinn í kringum hann. Zimmer vissi mjög vel, að hann var í mikilli hættu staddur, en það breytti í engu áformi hans; hann ætlaði sér áfram og hélt áfram. Alt í einu tók hann eftir því, að ó- trúlega langt var farið að líða milli skotanna í gerðinu. Honum fór ekki að verða um sel og herti nú á sór. Ilann reyndi að nota hverja mishæð til að hlífa sér og skreið svo áfram, en bjóst við því á hverju augnabliki, að einhver kúlan mundi hæfa hann. Hann varð að kasta sér niður til að hvíla sig; en enga eirð hafði hann í sér til að liggja þarna hreyfingarlaus eins og lamaður fugl og hlusta; þar sem bann nix var staddur, þutu kúl- urnar hvíldarlaust í kross yfir hann frá dátunum úti á sléttunni. Hann var alls eigi óhultur þó hann lægi þarna flatur á jörðunni og því skreið hann enn áfram 10 skref og velti sér þar ofan í laut. Alt var undir því komið, að hann gæti haldið áfram. Dauðinn hvein um eyrun á honum hvað lítið sem hann bærði á sér, og blóðið fossaði í æðunum. Að snúa aftur var engu hættuminna en að liggja kyr; eina undanfærið var að halda áfram. Hann lét aftur augun til þess að sjá ekki hvar kúlurnar kæmu niður en þá heyrði hann því glöggar hvininn í þeim; hjartað í hon- um barðist ótt og títt og tungan loddi þrútin við gómipn. Ekki fanst hon um hann vera hræddur, það var eitt- hvað miklu meira; hann sárverkjaði í alla limi og hélt áfram; hann vissi að sér mundi batna ef hann kæmist alla leið. Hann var hættur að geta hugs- að og skreið nú áfram í einhverju óráði; honum fanst stundum eins og heilinn í sér væri orðinn lamaður. Fimtán föðmum framar kom hann að breiðum hrygg og við það mótlæti rankaði hann við sér. Hann skignd- ist um til beggja handa, eins og ekk- ert væri um að vera, og varð þess vísari, að hryggurinn lá frá norðri til suður8 svo langt sem augað eygði. Að skríða fyrir endann á honum gat þvi ekki komið til rnála; yfir hann varð hann að fara. Hann lagðist nú fiatur niður og mjakaði sér áfram á olnbogunum og hnjánum. joegar hann var kominn upp á háhrygginn, fanst honum eins og kéyrishögg riði i höfuðið á sér. Hann lét aftur augun hnipraði sig samaD, velti sér eins og hnoða ofan af hryggn- um og leati í lítilli laut upp við við- arrunna. Hattinn hafði hann mist og byssunni hafði hann slept; og þegar haun loksins þorði að þukía um höf- uðið, þar sem kúlan hafði hæft hann, fann hann að eins viðkvæma þrútna rák um þvert höfuðið. f>að létti af honum þungum steini; hann stundi þungan og hélt svo skríðandi áfram. Eftir þetta kom ekkert fyrir hann og þótti honum það furðu gegna. Hann var kominn alla leið og skreið nú inn um glufu á veggnum. Hann var útataður af rauðum leir, fötin öll í tætlum og ekki þur þráður á honum af svita. Svona til reika hné hann máttvana niður við hliðina á merkis- valdinum. Hann kom ekki einni sek- úndu of fljótt og var ekki all lítið glaður af því, að hafa lagt líf sitt í sölurnar. Gagnið af sendiförinni jafn- aðist fyllilega á við hættuna. Veðurathugranir í Reykjavík, eftir aðjunkt Björn Jensson. 1904 1 3 n o a gt- Þ>- 05 o* p œ pr H 2 <3 P. -t — pr febr. . ct- b g CTQ Q ct- l-í cr 8 ox 3 JD °s 3 3 * 2* '-s Ld 6.8 753,1 -4,4 0 0 -9,0 2 754,4 -3,3 E 1 2 9 753,7 -1,3 N 1 5 Sd. 7.8 753,6 -2,0 E 2 9 -4,0 2 755,5 -2,3 E 1 5 9 754,3 -4,0 E 1 3 Md 8.8 751,3 -6,3 0 1 -9,0 2 750,3 -3,6 E 1 2 9 747,7 -3,2 NNE 2 2 í>d. 9.8 741,8 -2,2 N 2 8 -5,0 2 741,2 -1,4 NE 1 5 9 739,7 -0,9 E 1 10 MdlO.8 738,1 -1,4 N 1 10 -2,0 2 739,6 0,3 NE 1 9 9 739,1 -1,2 E 1 3 * Fdll.8 740,4 -2,2 E 1 6 -5,0 2 740,2 1,6 E 2 8 9 741,1 2,0 E 2 6 Fd 12.8 741,7 1,2 E 2 o O 2 740,1 1,4 E 3 5 9 740,3 -3,0 E 3 3 Tll leigu frá 14 maí næstk. snotnr steinbær við Laugaveg. Semja má við Árna Einarsson verzlunarm. Fjármark Guðna Magnússonar á Haga i Grimsnesi er: sneitt framan hægra, hiti framan og sneiðrifað aftan vinstra, hiti framan. Þrifin góðlynd og guðhrœdd stúlka óskast í vist á góðu heimili bér i hwnum fra 14. maí. Ritstj. ávísar. Uppboösauglýsiiig. Miðvikud. 17. þ. mán. kl. 11 f. hád. verður opínbert uppboð haldið á verzl- unarlóð Geirs Zoega hér í bænum, og þar selt töluvert af skipsblökkum og fleiru, er til þilskipaútgerðar heyrir. Enn fremur verða seldir tveir hest- ar, rúmstæði, fatnaður, borð, hús- gögn o. fl. Söluskilmálar verða birtir á upp- boðsstaðnum. Bæjarfógetinn i Reykjavík 13. febr. 1904. Halldór Daníelsson- Gjöldum til dómkirkjunnar er veitt VÍð- taka kl. 9—10 árd. og 5—6 síðd virka daga í Aðalstræti 18. Reikningar til H o 1 d s v e i k r a- spítalans í Laugarnesi eru útborgaðir á sama stað og tíma. jþeir, sem ena þá eiga ógreidd gjöld til dómkirkjunnar, ættu nú- þegar að greiða þau, svo að eigi þurfi að beita lögtaki. Þorkell Þorláksson. Leikfél. Rvíkur. Annað kvöld (sunnud.) verður leikið sjónleikur í 4 þáttum, eftir Herm. . Sudermann. Ungur reglumaður óskar atvinnu við eitthvað, sem lýtnr að skrift eða reikningi. Ritstj. visar á. 2 kjallarastofur með eldhúsi til leign 14. mai i Ansturstræti 18. Lóð til 8ölu á ágætum stað í hænum. Ritst.j. vísar á. Óskilafénadiu' seldnr í Garðahreppi haustið 1903. 1. Hvitt geldingslamb, mark: sneiðr. a. h., hlaðstýft fr. v. 2. Hvitur iamhhrútur, mark: hvatt h., hálftaf fr. v. 3. Hvítt gimburlamb, mark: stýft h. 4. Rauðnösótt hryssa, veturgl. mark: st.fj. fr. vinstra. Réttir eigendur geta fengið andvirðið, að frádregnum kostnaði, til næstu fardaga hjá undirrituðum. Garðahreppi 6. febr. 1904. Einar Þorgilsson. Taðkyarnir. Tannhjól í taðkvarnir af nýrri og mjög heppilegri gerð, (mylja vagnhlass á 5 mínútum), fást hjá Helga Magnússyni járnsmið, Bankastræti 6, Rvík. Zeoiinblekiö góða er nú aftnr komið i afgreðslu Isafoldar. Bátar Og fyrirdráttarnet. 2 bátar fjórrónir, með seglum, árum og öllurn veiðarfærum, a 11 n ý 1 e g t, fæst hjá undirrituðum; einnig 2 á- gætar fyrirdráttarvörpur (slöngur). Sauðárkrók í janúar 1904. V. Claessen. Tll IeÍgU 14. mai kjallarinn i Læbj- argötu 10. Mjög bentugur fyrir skósmíða- varkstofu o. ra. fl. Stórt uppboð verður haldið á fiskverkunarlóð miuni (við Móakot) næstk. föstudag 19. þ. m. kl. 11 árd. og þar selt mikið af nýju timbri, vatustunnur, járnvír o. fl. Ennfr. verður selt við fúngholtsstr. 1, ef viðunanlegt boð fæst: stór og vand- aður eikarbátur, eirseimdur (c.ll1/^ al. lengd 372 br. og 21/., al. dýpt) hentugur til flutninga; skemtivagn með tilheyr- andi 3 nikkeleruðum aktýgjum, hest- vagn, handvagn, ungur og traustur vaguhestur, og ef til vill eitthvað af búðarvarniugi o. fl. Reykjavík, 13. febr. 1904. Jón Þórðarson. 2 kvígur 8em / ganga með fyrstu kálfa, fást keyptar nú þegar í f>ing- holtsstræti 1. Greftranir. Herra Magnús Jónsson í Pálmahúsi við Framnesveg, hefir nú í fjarveru minni, eins og að undanförnu, aðalum sjón með líkvagni mínum og sér að öllu leyti um greftranir, ef þess er ósk- að. Heiðraðir bæjarbúar eru því vin- samlega beðnir um að suúa sér til hans. Virðingarfylst Matth. Matthíasson.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.