Ísafold - 02.04.1904, Blaðsíða 1

Ísafold - 02.04.1904, Blaðsíða 1
ISAFOLD. Reykjavík langardaginn 2. apríl 1904 Kemur nt ýmist einu sinni eÖa tvisv. i viku. Yerð árg. (80 ark. minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eÖa 1 */, doll.; borgist fyrir miðjan -úli (erlendis fyrir fram). XXXI. árg. Júióstadá jfta/ujaAíiv I 0. 0. F. 85425‘/2. L Augnlcekning ókeypis 1. og 8. þrd. á hverjum mán. kl. 11—1 í gpitalanum. Forngripaxafn opið mvd. og ld 11 —12. Frilcekning á gamla spitalanum (lækna- •kólanum) á þriðjudögum og föstndögnm kl. 11 — 12. K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa op- in á hverium degi kl. 8 árd. til kl. 10 siðd. Almennir fundir á hverju föstudags- og sunnudagskveldi kl. 8'/s siðd. Landakotskirkja. G-uðsþjónnsta ki. 9 og kl. 8 á hverjum helgum degi. Landakotsspítali opinn fyrir sjúkravitj- endur kl. 10'/»—12 og 4—(i. Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl 11—2. Bankastjörn við kl. 12—1. Bankastjóri við kl. 11—2. Landsbókasafn opið hvern virkan dag kl. 12-3 og kl. 6-8. Landsskjalasafnið opið á þrd., fimtud, og ld. kl 12—1. Ndttúrugripasafn, i Vesturgötu 10, opið á sd. kl. 2—3. Tannlœkning ókeypisiPósthússtræti 14b 1. og 3. mánnd. hvers mán. kl. 11—1. „Leikfélag Reykjavikur“ leikur á annan páskadag Hneyklsið, sjónleik í fjórum þáttum eftir lAlfred Benzon. Að eins leikið þetta eina skifti. Af ófriöinum. 18,—24. marz. Það ná fréttirnar síðustu, En tíðindi hafa nauðalítil orðið þá vikuna. Nema að Japanar gengu á þing, lög- gjafarþingið í Tokio, og var svo mikið viðhaft, að keisari setti það sjálfur, í fyrsta skifti. Hann flutti stutta hásætisræðu og gagnorða. Því var veitt sérstakieg eftirtekt, að ekki var þar vikið einu orði að sigursæld Jap- ana það sem af er ófriðinum. Ekkert raupsyrði eða neitt í þá átt. Þann veg sagt frá upptökum ófriðarins, að Japan- ar hafi neyðst til að taka til vopna fyr- ir sakir óeinlægni Rússa. En nú stoð- aði ekki að létta fyr en því væri fram- gengt orðið, er fyrir væri barist. Og skorað á þjóðina að vinna vel saman að því, að auka frægð og frama Japans- ríkis. Gerður var mikill rómur að máli keisarans. Enginn flokkarígur á þingi að svo 8töddu; allir eins hugar um að bjarga landinu úr voða, undan klóm Hússa. Engin orusta orðin enn á landi. Jap- -anar eru að feta sig norður eftir Kór- eu, úr ýmsum áttum; og vita menn út í frá ógjörla mjög, hvað þeim líður. Þeir kunna manna bezt að leyna því, sem þeir hafa fyrir stafni, snögtum betur en Rússum. Stjórnin í Kóreu befir skipað hóraðsvaldsmönnum, að greiða sem bezt ferð Japana, gera við vegi og liðsinna yfirleitt her Japanskeisara. Borg heitir Ping-Yang, í Kóreu norö- anverðri, miðja vegu milli Söul, höfuð- borgarinnar, og Yalu-elfar eða útnorður- landamæra Kóreu. Hana kváðu Japan- ar nú hafa á sínu valdi og hafa búið þar um sig vel til frekari framsóknar. Það er um 20 mílur danskar norðurfrá Söul og viðlíka langt frá Yalu-elfi. En miðja vegu milli hennar og Ping-Yang er önnur borg, er nefnist An-ju. Þang- að áttu Rússar að hafa verið komnir fyrir nokkru, en hörfað aftur norður fyrir landamæri, er þeir urðu Japana varir á næstu grösum. Kvartað um vetrarríki mikið í Kóreu norðanverðri. Það þola Japanar lakara en Rússar. Nú taka og við vorleysing- ar, og verður þá mjög ilt yfirferðar, með því og að land er fjöllótt og tor- sótt; vegleysur og ógöngur. Helzt bú- ist við, að höfuðorustur verði engar fyr en sumrar. Seinfarið fyrir Japönum, en Rússar fegnir hverri vikunni, er undan dregur, til þess að auka liðsafnað sinn austur þar. Uppvíst varð nýlega um liðsforingja einn í höfuðforustusveit Rússa, er nú mun vera í Mukden í Mandsjúríu (sjá hernaðarsvæðisuppdráttinn í ísafold 19. f. m.), að hann hafi gert tilraun til að selja Japönum nákvæma leyniráðagerð um liðssafnað Rússa og viðbúnað allan. Aðfaranótt þriðjudags i fyiri viku, 22. marz, eigá Japanar að hafa gert ítrekaðar tundurbáta-atlögur að Port Arthur. Og er morgnaði, kom megin- floti Japaúa í ljósmál og tók að skjóta á borgarvirkin. Rússar tjá sig hafa lagt sinui flota- deild við Port Arthur út í móti þeim. Hvort þar hefir orðið nokkuð tíðinda, vita menn ekki að svo stöddu, með því að þetta er frásögn Rússa, og var sög- unni eigi lengra komið hjá þeim. Qagnfrœðaskólinn norðanlands, á Akureyri, er nú í und- irbúningi, þ. e. skólahús. Landsstjórnin hafði sent í vetur norður uppdrátt af húsinu, eins og hún ætlast til að það verði haft, eftir Sigtr. Jónsson, og segir »Norðurl.« að komið hafi þrjú tilboð um að reisa húsið eftir honum, eitt fyr- ir 62 þús. kr., annað fyrir 57 þús. og hið þriðja fyrir 55 þús. Hæsta tilboð- ið er frá Sigtr. þessum JónsByni, mið- tilboðið frá Snorra Jónssyni og hið lægsta frá Sigtryggi Jóhannessyni og Jónasi Gunnarssyni. En svo hefir Snorri Jónsson gert enn nýjan uppdrátt, er sendur verður landsstjóininni, og segir Nl., að ef skólahiísið yrði gert honum samkvæmt, mundi það samsvara miklu betur því, sem til er ætlast með lögunum, rúmið meira og tilhögun hent- ugri, einkum til heimavistanna. Þá mundi húsið kosta 59 þús. Það munu flestir hygnir menn og framsýnir taka undir með Nl., að ekki só landsstjórninni annað ætlandi en að hún taki hentugasta uppdráttinn, þótt örlitlu muni í kostnaði. Það væri hó- gómi, að láta það lítilræði standa fyrir því, að húsið verði svo gott og hentugt, sem á verður kosið eftir atvikum. Snorri þessi Jónsson er orðlagður fyrir ódýra húsagerð og þó góða. Taugaveikin í Eeykjavík. Kafli úr skýrslu héraðslæknis Guðm. Björnssonar til landlæknis um árið 1903. Eg hefi margsinnis áður í skýrslum mínum vikið að því, að það er óhugs* andi, að taugaveikinni verði útrýmt hóð- an úr bænum, meðan þrifnaðarástand- ið er eins bágborið og það nú er. Fólkinu fjölgar ár frá ári, húsakynni fátæks fólks fara fremur versnandi en batnandi, vatnsskorturinn er að verða æ tilfinnanlegri og jarðvegurinn fyllist æ meir og meir af óhreinindum, því að mikill hluti bæjarins er alveg ræsalaus, og þar sem ræsi eru að nafninu til, þá má heita, að þau séu víðast sama sem gagnslaus, aí því að þau eru ekki lagarheld. það er því engin furða, þó að hér beri talsvert á taugaveiki, og það má telja víst, að hún muni óðum fara í vöxt, ef ekkert er gert til að bæta bæjarþrifnaðinn. 1897 voru skrásett 24 tilfelli 1898 — 10 — 1899 — — 11 — 1900 — — 14 — 1901 — — 16 — 1902 — — 21 — 1903 — — 35 — Sóttvarnarlögin gengu í gildi 1. júlí 1896. Fyrir þann tíma hafa læknar átt mjög erfitt með að gera nokkuð að gagni til varnar gegn útbreiðslu næmra sjúkdóraa. þar af leiddi aftur, að þegar þessi lög komu í gildi, var alþýða manna óvön öllum sóttvörnum og kunni ekki að meta þær; læknarnir líka óvanir því, að gera sóttvarnarráðstafanir. Svo var það um mig og mitt hérað, og svo mun það hafa verið víðast, eða alstaðar annarsstaðar á landinu. Hér var því meðal annars talsvert mikið um taugaveiki fyrstu embættis* ár mín (1896—1897); 1897 hefi eg skrásett 24 sjúkiinga. En þetta hefir alt breyzt, og nú er svo komið, að al- þýða manna hér í bæ hefir meiri beyg af taugaveiki en flestum öðrum sótt- um; mi eru flestir sjúblingarnir fluttir í sjúkrahúsið og heimilin ávalt sótt- hreinsuð. Og þó fer veikin stöðugt í vöxt. Orsökin er sú, sem eg áður hefi nefnt: vatnsskortur, ræsaleysi og þar af leiðandi óþrifnaður. Ekki er unt að segja, hversu miklu meiri útbreiðsla veikinnar hefði orðið, ef engum vörnum hefði verið beitt; en vafalaust er munurinn mikill; það sann- ar skýrsla sú, sem hér fer á eftir. Alkunnugt er, að komi taugaveiki á sveitaheimili, takur hún nær því á- valt flesta heimamenn, þá er ekki hafa haft hana áður, af því að þar er ekki unt að sóttkvía fyrsta sjúklinginn eða þá ekkert utn það hirt. Hér í bænum mundi alt fara á sömu leið, ef engum sóttvörnum væri beitt; þá mundu margir að jafnaði sýkjast á hverju heimili, þar sem veikin kæmi, og þá mundi líka útbreiðsla veikinnar hús úr húsi verða miklu meiri. Árið 1903 kom taugaveikin á 26 heimlli hér í bænum. Uppsögn (skrifleg) bnndin viÖ áramót, ógild nema komin sé til ntgefanda fyrir 1. október. AfgreiÖslnstofa blaðsins er Austurstrœti 8, 18. blað. a) á 1 heimili veiktust 2 manneskjur b) - 1 — — 2 — c) - 1 — — 3 — d) - 1 — — 6 — e) -22 — — 1 — þessar tölur sýna berlega, hversu mikiis er vert um sóttvarnir. Ef sá er tekinn burtu af heimilinu í tíma, er fyrst veikist, fluttur á sjúkra- húsið, en heimilið sótthreinsað, þá ber varla við að fleiri sýkist. þetta hefir tekist 22 sinnum (e); tvisvar mistekist (a og b) að því leyti, að ein manneskjan veiktist í viðbót, en svo ekki meir; á einu heimili veikt- ust þrjár manneskjur með svo litlu millibili (ekki viku), að ekki gátu þær hafa veikst hver af annari, heldur hljóta þær allar að hafa fengið í sig sótt- kveikjuna utan að (vatn? mjólk?). En á einu heimili (d) veiktust 6 manneskjur, og þar var orsökin sú, að þá er fyrsti sjúklingurinn lagðist, vitjaði fólkið skottulæknis; hann sagði, að sjúklingurinn hefði heilabólgu og stundaði hann meðan hann lá — auð- vitað var svo engin varúð höfð; þeg- ar þessi sjúklingur var að komast á fætur, eftir þriggja vikna legu, veiktist annar, og þá var mín loks vitjað. Síð- an veiktist hver af öðrum á örstuttum tíma. þetta dæmi sýnir ljóslega, hvernig taugaveikin mundi haga sér á fátækt- arheimilum bæjarins, ef hún væri lát* in afskiftalaus. Annars eru þessar nauðsynlegu varn- ir gegn taugaveikinni afarþung byrði á alþýðu manna; hún ber þessa byrði — legukostnað sjúklinganna á spítala — með þögn og þolinmæði, af því að öllum er Ijóst, hversu áríðandi er, að sjúklingarnir séu ekki hafðir í heima- hÚ8um; en í raun og veru er það mjög ranglátt, að láta véibindaheimilin bera allan kostnaðinn; það er augljóslega í þarfir alls bæjarfélagsins, að sjúkling- arnir eru fluttir á spítala — það ver því, að veikin berist á ö n n u r beim- ili —, og þess vegna ætti bæjarfélagið að bera megnið af kostnaðinum. Mörg útlend bæjarfélög veita sjúk- lingum, er hafa næma farsótt, alveg ó k e y p i s spítalavist. það má telja lán í óláni, að tauga- veikin hefir undanfarin ár yfirleitt ver- ið væg. Hversu fáir hafa dáið, er þó meðfram því að þakka, að sjúk- lingarnir hafa flestir fengið hjúkrun f sjúkrahúsinu, miklu betri en unt hefði verið að veita þeim í heimahúsum. Járnbraut væntanleg, Enskt félag eða skozkt kvað hafa leigt Þeystareykjarnániur til brennisteinsnáms og hugsa til að leggja þangaS járnbraut frá Húsavík, um 4 mílur vegar, segir Norðurl. Námurnar eru á afrótt Reyk- dælahrepps og eru eign Grenjaðarstað- prestakalls. Aflabrögð. Hæstur hlutur í Keflavík 130, í Njarðvíkum 100, í Garði og Leiru hærri hlutir; alt netafiskur. Mjög lítill afli á Miðnesi og í Höfnum; í Grindavlk aflalaust, enda mjög stirð- ar gæftir. I Þorlákshöfn var farið að fiskast þegar síðast fréttist, en gafekki að róa nema einstöku sinnum.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.