Ísafold - 10.08.1904, Page 3
211
hafa dregið mjög kjark úr liðinu, Bem
von er á, veikt traust þeas á fyrirlið-
um sínum o. s. frv.
Svo segir einn merkur tíðindaritari
Eússa sjálfra:
Getur vel verið, að handbyssur vor-
ar séu góðar, en hinna eru betri; vor
ar draga rúmlega 4000 álnir, en Jap
ana meira en 4ð00. |>að munar um
það töluvert.
Vér höfum injög lítið af fjalla-fall-
byssum. En Japanar mesta sæg, og
flytja þær til eins og þeir ætla sér og
hvar sem þeim sýnist. J>eim tekst
og snildarlaga að villa fyrir oss sjónir
um hvert þeir stefna. Vér vitum aldrei
hvar þeir ætla sér að ráða að oss.
Riddaralið þeirra, sem vér hædd-
umst að framan af leiðangrinum, þac.
þýtur nú um alt.
Björnsons-fyrirlostrarnir.
Hinn fyrsti þeirra 4 alls, umBjöm
8on sem skáld, flutti hr. O. P. M o n-
r a d prestur í gærkveldi í Iðnaðar-
mannahúsinu fyrir allmörgum áheyr-
endum; hefðu þó átt að vera miklu
fleiri.
Fyrirlesturinn var skörulegurog prýði
lega vel saminn, með glöggum, skarp-
legum og hugnæmum skilningi á hinni
miklu skáldsnild Björnsons, hve mjög
hann ber höfuð og herðar bæði yfir
fyrirrennara sína og samtíðarmenn alla
aðra en Hinrik Ibsen, er hlotið hefir
enn meiri heimsfrægð og er þó ekki
m e i r a skáld. Björnson miklu þjóð-
legri, allra manna norskastur að öllu
eðli, eins í skáldment sinni. Fyrir því
mundi engin aunarleg þjóð eiga hægra
með að skilja hann en Islendingar,
vegna skyldleikans við Norðmenn. Hið
eínkennilega, snjalla og kjarnyrta orð-
færi, er gera einkum alþýðusögur hans
svo einkar-hugnæmar og mjög þótti
nýstárlegt fyrst er þær komu á gang,
það hefði hann numið af Snorra Sturlu-
syni, er hann hefði snemma haft mestu
mætur á; enga bók hefði honum þótt
vænna um á uppvaxtarárum sínum en
Heimskringlu, og hefði hann setið við
að lesa hana öllum stundum. —
Hinir fyrirlestrarnir 3, sem eftir eru,
verða um afskifti B. B. af stjórnmál
um (á rnorgun), um afskifti hans af
almennum mannfélagamálum (laugar-
dagskveld), og um lífsskoðanir hans og
framferði (sunnudagskveld).
Hér veitist íbúum höfuðstaðarins
kostur á að heyra einu hinu mesta
mikilmenni í andana heimi, sem nú
er uppi, lýst mjög rækilega af miklum
kunnugleik og með miklum yfirburðum
að skilning og skörulegri framsetning.
Að slíku er mjög fágæt og eftir því
staðgóð andleg næring og hressing, ó-
líku saman að jafna við léttmeti það,
er haft er tíðast á boðstólum við al-
mennar skemtanir.
Titlar og krossar. Háyfirdómari L.
E. Sveinbjörnsson er orðinn kommander af
dannebr. II, en dannebrogsriddarar þeir
Halldór Danielsson bæjarfógetiog Geir Zoega
kanpm. (áðnr dannebrogsmaðnr). Loks hef-
ir Sighv. Bjarnason bankastjóri verið gerð-
ur justizráð.
Norskur ínálfraeðiugiir
ungur, frá Kristjaníu-háskóla,
Torleiv Hannass að nafni, er
hér á ferð, nýlega hingað kominn til
bæjarins norðan af Akureyri landveg;
fór það einn síns liðs og fylgdarlaus
öðru hvoru; hann fleytir sér það vel
í íslenzku. Erindi hans hingað til
lands er að læra hana sem bezt. —
Hann kann hana býsna-vel undir á
bók, auk þess sem hann er mætavel
að sér í fornmálinu. Hann er og ó-
venjufróður um íslenzka menn og
málefni.
Sainsöugur
var hér haldinn í Báruhúsi tvö kveld,
um helgina, laugardag og sunnudag,
fyrir allraiklu fjölmenni síðara kveldið
einkum, og stýrðu honum þeir Brynj
ólfur þorláksson og Sigfús Einarsson,
en með þeim sungu um 40 ungra
manna, karla og kvenna. f>ar voru
meðal annars sungin 3 ný lög íslenzk,
eitt eftir Jón Laxdal og hin tvö eftir
Sigfús Einarsson, auk þess sem hann
hafði raddsett þjóðlagið við Bára blá,
mjög fagrar vísur eftir Magnús Grímsson.
Hin lögin voru: annað við Sjáið hvar
sólin hún hnígur eftir Steingr. Thor-
steinsson, og hitt nefnt Lofgjörð, úr
Davíðssáimum; til þess þótti mikið
koma, og mesta unun að laginu við
Bára blá. Frk. Kristrún Hallgrímsson
lék undir á fortepiano, þegar sungið var.
Hr. O. P. Monrad, presturinn norski,
lék nokkur norsk þjóðlög á knéfiðlu,
og þóttu þau einkar-hugnæm.
Samsöngurinn allur einhver hinn
bezti, er hér hefir heyrst.
Yms tiðindi erlend.
Maðurinn, sem myrti v. Plehve
ráðgjafa í Pétursborg 27. f. m., hafði
meiðst sjálfur svo í kviðinn, að það
dró hann til dauða að fám dögum liðn-
um. Hann var rænulaus eftir lengst-
af, og fengust engar sagnir af honum.
Hann hafði á sér aðra sprengikúlu, er
haun var handsamaður. Hann á að
hafa sagt þá, að meiri tíðindi mundu
á eftir fara. Eagin deili fengust á
honum. Haldið helzt, að hann væri
pólskur, eftir útliti.
Plehve ráðgjafi var orðlagður grimd-
arseggur, drotnunargjarn mjög og ráð-
ríkur. Hann bolaði öllum frá og réð
einn öllu við keisara síðari árin.
Meira en 1000 manna höfðu verið
handteknir i Pétursborg eftir ráðgjafa-
morðið eða út af því.
Flöskubréf eftir Andrée norðurfara
hafði fundist nýlega í einni af nyrztu
eyjunum við Spitsbergen, frá því
skömmu eftir það er hann lagði á
stað. Að öðru leyti ókunnugt enn,
hvað í því var.
það er nú fullráðið, að samveldis-
menn í Bandaríkjunum halda fraui
Roosevelt forseta til forsetakosningar
næst, til 4 ára. Forsetaefni sérveldis-
manna heitir Parker og er dómari.
Fullur fjandskapur er orðinn með
páfa og stjórn Frakka. Hafa erind-
rekar þeirra hvors um sig verið heim
kvaddir.
Bretum sækist áleiðis í Tibet. Eiga
nú skamt eftir til höfuðstaðarins,
Lhassa.
Skipnfregn. Hér kom 1. þ. m. segl-
skip Kapreren (71, H. Larsen) frá Bergen
með saltfarm til H. P. Duus.
Ennfremur s. d. seglskip Island (li>0,
Aavik) frá Dysart með kolafarm til B.
Guðmundssonar.
Ennfremur 3. þ. mán. gufuskip Seandia
(259, Gundersen) frá Grangemoutb með
kolafarm til Bj. Guðmundssonar.
Sömul., 6. þ. mán. gufnskip Breidfond
(252, Bellesen) frá Leith með ymsar vörur
til verzl. Edinborg.
Sömul. 9. þ. m. (i gær) gufuskip Brage
(297, P. Andersen) frá Liverpool með kol
og salt til G. Zoega og Th. Thorsteinsson.
Póstskipið Ceros (skipstj. de Cunha)
kom frá útlöndum þ. 6. þ. mán. Farþegar:
frk. Þórunn Kristjánsdóttir (yfirdómara),
Sigurður Sigurðsson kennaraefni, Davið
Dstlund ritstjóri og margir Englendingar,
þeirra á meðal frú Disney Leith, er verið
hefir hér á ferð margsinnis áður.
Pö.stskipið V’estii (skipstj.Gottfredsen)
kom i dag um hádegi frá útlöndum til
Austfjarða og siðan kriugura land. Far-
þegar: Benedikt próf. Kristjánssou frá
Grenjaðarstað, Stefán Guðjohnsen faktor á
Húsavík með frú sinni, amtmannsfrú Álf-
heiðnr Briem frá Akureyri ineð börn þeirra
öll alkomin hingað, Júlins Sigurðsson amts-
SKiifari, Halldór Gunulögsson kaupm.,
Finnur Jónsson prófessor með frú og syni
(frá Stykkish), Jes Zimsen kaupm., Þór B.
Þorláksson málari, Yald. Steffensen stúd.
(frá ísafirði) o. fi.
Hið alþekta, góða köku-
efni
„Bak bekvem^
er selt í verzlun
P J Thorsteinsson & Co.
í Hafnarfirði.
2. ágúst dó á spitalanum í Reykjavik
Anna Þóra Pétursdóttir, f. 13. juní 1862 á
Hríshóli i Reykhólasveit.
2 hestar hafa tspast frá Þingvöllum,
rauður með mark: tvistýft aft. vinstra? og
brúnn mark: sýlt vinstra? Báðir vakrir.
Finnandi vinsam). beðinn að skila þeim
að þingvöllum eða til Ángeim kapm. Sig-
urdssonar í Reykjavik, gegn hirðingar-
launum.
liiir
MARG eftirspurðu skírn-
arkjólar ern aftur komnir,
einnig dömuflihbar, sem
aldrei hafa fluzt hingað
fyr, vasaklútar með myndum af japanska
striðinn, o. in. fl. í
Veltusund 1.
Kristín Jónsdóttir.
Stofa og litið kamers óskast til leigu 1
okth. Ritstj. visar á.
LÓð til SOlu við nýja götu i aust-
urbænum, með mjög vægu verði. Upplýs-
ingar gefnar i afgr. Isaf.
utan húss og innan er langbezt
og ódýrust í verzlua
P. J. Thorsteinsson & Co.
í Hafnarfirði.
Neíaffarn sérlega gott’
luna^um bæði fran8kt og
írskt — fæst í haust, hvergi eins
ódýrt og í verzl. GODTHAAB-
Útvegsbændur rnunu óefað fá beztu
kaup á öllu til neta í verzluninni
Godthaab
VORULL
hvít og mislit, vel þvegin, er keypt
hæstu verði í verzlun
P. J. Thorsteinsson & Co.
í Hafnai-flrði.
Alls konar
Kornvörur
eru áréiðanlega ódýrast-
a r eftir g æ ð u m í verzlun
P. J. Thorsteinsson & Co
i Hafnarfirði.
Ritstjóri Bjfti-u JóiiNNOti.
Isafoidarpreutsmiðja
Hið stærsta úrval af
er 1 verzlun
P. J. Thorsteinsson & Co.
i Hafnarfirði.
Neíakúlur,
hentugar og
mjög ódýrar,
fást í verzun GODTHAAB.
Sumarskór
dökkir á lit, mjög léttir og liðlegir,
2 kr- 10 aur. parið.
í
Aðalstræti 10.
margar tegundir, í stærri og smærri
skömtum, er nú komið, og fæst mjög
ódýrt í verzl.
Godthaab
Nibmrsodnir ávextiR
margskouar, sömuleiðis sauða- og
nauta-tungur niðursoðnar, einnig
grænar baunir og Pickles fæst
í verzluninni
GODTHAAB.
Tilboð.
J>eir af meðlimum Hlutafélagsins
Völundur, sem vilja gjöra tilboð í
byggingu á timburgeymsluskúr félags-
ins á Klapparlóð, verða að hafa sent
tilboð 8Ín til stjórnar félagsins fyrir
15. þ. m.
Stjórnin.
Kúabeit.
Beit fyrir nokkrar kýr, á afgirtum
svæðum, fæst hjá undirrituðum.
Reykjavík 10. ágúst 1904.
Einar Helgason.
Hús er til sðlu
við miðjan Laugaveginn að norðanverðu
(tramhlið móti sól), einkarhentug fyrir at-
vinanrekendnr; húsið má lengja nm nær
helming og stór lóð fylgir. Upplýsingar
gefnar á Langarveg 49
2 hestar 3—4 vetra eru i óskilum i
Skarði i Gnúpverjahreppi, er annar móa-
lóttur og G klipt á lendina, hinn rauður
með eyrnamark: gagnbitað hægra. Eig-
andi gefi sig fram sem fyrst og borgi aug-
lýsingu þessa og hirðingu á hestunum.
Skarði e/8 1904.
Jón Jónsson.
Fyrir hálfum mánuði tapaðist úr Reyk-
javik, lítill nngur, magur, brúnn hestur,
mark: heilhamrað hægra. Hver sem hittir
téðan hest, er vinsaml. beðinn að gera
Tómasi Jónssyni, Lindargötu 16 viðvart.
Fundist hefir 3. þ. m. rauðglófext
hryssa, með ölluna reiðtýgjum, mark: 1 biti
aft. v. Réttnr eigandi vitji hryssu þessarar
að Hvassahrauni og borgi áfallinn kostnað.
6. ágúst 1904.
Guðmundur Stefdnsson.