Ísafold - 17.09.1904, Page 3
243
Yms tíðindi erlend.
Bretar komust alla leið til hinuar
helgu borgar Lhassa, höíuðstaðarins í
Tibet, Bnemma í f. mán., með allmikla
sveit manna, er fyrir ræður Young-
husband hersir og verið hefir fult ár í
þeim leiðacgri eða kringum það, unn-
ið margar minni háttar orustur af
landsbúum og stökt þeim undan sér.
Bíkishöfðiuginn, Dalai Lama, var flú-
inn þaðan áður. Hann er og æð3ti
prestur landsbúa, helgur maður og
goðum líkur í þeirra augum. f>ar
hafa Bretar skákað á Bússa og hag-
nýtt sér kröggur þeirra. Bússar voru
komnir áður í eitthvert makk við
Dalai Lama og stjórn hans. Aldrei
hefir útlendur hcr komið til Lhassa
fyr en þetta, nema ef það eru Kín-
verjar einhvern tíma í fyrndinni. þeir
kallast vera Iýðskyldir Kínverjakeis-
ara, Tibetsbúar, en ríkið sjálfu sér
ráð^ndi að öðru leyti. Líf hefir legið
við hverjum útlending, er dirfðist að
stíga fæti í hina helgu borg. Hún
stendur svo hátt, í Asíu miðri, að
nema mundi 2 Oræfajöklum. Bretar
vilja eiga sér erindreka í Lhassa eftir-
leiðis og hafa einhverja hönd í bagga
um etjórn þar. Um það er nú þing-
að þar í Lhassa. Bússar kunna þessu
öllu illa, en fá ekki að gert.
Keisaraefni þjóðverja, Friðrik Vil-
hjálmur (Vilhjálmsson keisara II.), hefir
fastnað sér systur hertogans í Meckl-
enburg-Schwerin og Alexandrínu drotn-
ingarefnis í Danmörku, konu Kristjáns
prinz Friðrik8sonár. Hún heitir Sess
elja, mær 18 vetra. Hertoginn, bróð-
ir hennar, á eina dótturdóttur Krist-
jáns konungs níunda, dóttur þyri og
hertogans af Cumberland. Keisara-
efnið er 22 ára.
það hafði reynst missögn, að bana-
maður Plehve ráðgjafa í Pétursborg
hefði látist af meiðslum. Hann heitir
Sasonoff og var hafður í dýflissu í Pét-
ursborg. f>ar komu nýlega 2 menn í
einkennisbúningi lögregluhermanna,
með skjöl og skilríki fyrir því til
fangavarðar, að þeir ættu að vitja
morðingjans til yfirheyrslu. f>eir fóru
með hann, en hafa ekki sést síðan né
morðinginn.
|>að bar til í Khöfn fyrra sunnu-
dag, 4. þ. m., að leikritahöfundunnn
Gustav Esmann fanst myrtur heima
hjá sér, skotinn í hnakkann, og í
næsta herbergi ung stúlka skotin til
ólífís, og lá marghleypa hjá henni.
Haldið er, að hún hafi banað Esmann
fyrst og skotið sjálfa sig síðan.
Talað var, að Bússakeisari hefði
heitið á þegna sína, að veita þeim
stjórnarbót, ef honum fæddist sonur.
En ekki heyrist neitt um það nefnt
síðan. En bannað hefir hann hýðing
ar á hermönnum og bændum, gefið
fátækum mönnum upp ógoldnar skuldir
til almenningsþarfa og minni háttar
yfirsjónir saklitlum mönnum m. m.
Sveinninn nýfæddi var skírður 25.
í. mán. (Alexis). f>au voru guðfeðgin
að honum, Kristján Danakonungur
langafi hans, Dagmar keisaraekkja
amma haDS, Játvarður konungur
ömmubróðir hans, Vilhjálmur þýzka-
landskeisari og margt stórmenni fleira.
Víkingaskip afarfornt og mikið hefir
fundist í sumar í gömlum haug skarat
frá Túnsbergi í Norvegi. f>að er meira
en 10 faðma langt og 3^/g fðm. á
breidd. Mjög er skipíð sjálft fúið, en
farviðir ófúnir að mestu, bæði árar og
stýri. Höfðafjöl með listaskurði og
borðstokkar.
Alþingiskosning á Isafiröi.
þar varð síra Sigurður Stef-
á n 8 s o n hlutskarpari. Haun fekk
77 atkv. En keppinautur hans, síra
þorvaldur prófastur Jónsson, 73.
Tuttugu kjörseðlar höfðu orðið. ó-
gildir.
f>ar af átti síra Sigurður 12, og hinn
6, en á 2 var merkt við þá báða eða
hvorugan.
Síra Sigurður hefir því fengið 89
atkvæði alls og hinn 79, að meðtöld-
um ógildu seðlunum.
Eiutómir mótstöðumenn síra Sigurð-
ar höfðu verið kjörnir bæði í undirkjör-
stjorn og yfirkjörstjórn, þar á meðal
síra þorvaldur próf. sjálfur í undir-
kjörstjórn og meðmælendur hans, eða
annar þeirra að minsta kosti. Auðvit-
að hefir það alls engin áhrif haft á
kosninguna, enda hafði síra Sigurður
ekkert haft við það að athuga.
Prýðilega var kjörfundur sóttur, 170
af 206 alls á kjörskrá. Af þessum 36,
sem ekki greiddu atkvæði, voru 30
fjarverandi, á þilskipum o. s. frv.
Hafa þá að eins 6 setið heima. En
af þeim höfðu 3 verið farlama. Hægð
er þar mikil á að sækja kjörfund,
bygðin öll á lítilli eyri. En vel er
þetta gert þó, og fyrirmynd öðrum
kjördæmum.
-----1 >
Þýzkur íiáttúrufraeðingur,
sunnan frá Vín, dr. Victor Pietsch-
mann, hefir verið hér á ferð í sum-
ar. Hann kom hingað undir land
fyrir fám vikum á þýzku fiskigufu-
skipi, þar sem hann hafði með hönd-
um rannsókn á sjávardýrum, gerður út
af stjórninni í Vín, nýorðinn dr. f
náttúrufræði, lítið yfir tvítugt. Hann
fýsti svo mjög að kynnast landinu, er
hann sá það af skipsfjöl, að hann lét
skjóta sér á land á Skeiðarársandi,
skamt frá Ingólfshöfða; tókst það ekki
fyr en við aðra tilraun, vegna brims.
Hann kunni ekkert f dönsku, og ís-
lenzku því síður,en ferðamenn hitti hann
brátt á sandinum, og komst með þeim
til bæja. Málleysinu komst hann
fram úr með bendiogaleik, þar til er
hann komst að Hörgsdal til Bjarna
læknis Jenssonar; hann gat talað við
hann þýzku. Svo komBt hann suður
hingað klaklaust, skrapp til f>ing-
valla og þá vestur á Dýrafjörð með
Tryggva konungi um daginn að skoða
loftstein geysistóran, er hann frétti til
þar ueðan við Glámu. f>að lánaðist
vel. Hann segir steininn vera um
6000 pd. Hann tók með sér stykki
úr honum til rannsóknar. Hann fer
heimleiðis á morgun með Tryggva kongi.
Prestvígðir voru af hiskupi landsins
sunnudag 11. þ. m. prestaskólakandídat-
arnir Böðvar Eyólfs.son aðstoðarprestur
að Árnesi og Jón Brandsson sóknarprest-
ur að Felli í Strandasýslu.
Með Tryggva kongi (Em. Nielsen),
gufuskipi Thorefélags, komu i gærmorgun af
Vestfjörðum umlOO farþega, mest kaupafólk,
en auk þess frá ísafirði sýslumannsfrú Ca-
milla Torfason, prófastsfrú Þórdís Jensdótt-
ir, R. Braun kaupm. (Rvík), og Kr. H.
Jónsson prentari; frá Önundarfirði Kristján
Torfason verzlunarstjóri; frá Bíldudal Gunn-
ar Egilsson verzlm; frá Patreksfirði Sig-
urður lækni Magnússon og hans fru, Björn
Olsen kaupmaður, Jón M. Snæhjörnsson
verzlunarstjóri o. fl.
Skipafregn. Hér kom t>. þ. m. segl-
skip Kvik (51, Gundersen) með timhurfarm
frá Mandal til Bj. Guðmundssonar.
Ennfremur 8. þ. m. seglskip Union (127,
Mortensen) fra Dysart með kolafarm til
Thomsens magazins.
Sörnul. s. d. gufuskip Stabil (;;2ö, P.
Lindtner) frá Glasgow með kolafarm til
Thomsens magazins.
Ennfremur s. d. seglskip Mysterious (67,
J. G. Eriksen) frá Mandal með timbur-
farm til lausasölu.
Loks 13. þ. m. gufuskip Saga (260, G.
Aamundsen) frá Leith með ýmsar vörur til
Asgeirs Sigurðssonar.
Lárus sýslumaður Bjarnason vill láta
Isatold birta geysilangt skjal eftir sig, er
hann kallar leiðrétting við greinina: Önn-
ur valdsmannsfyrirmynd, 11. júní þ. á. En
það er mim.t af henni leiðrétting, heldur
ýmsar þarflausar upprifjanir og málaleng-
ingar, með margs konar góðgæti. Leið-
réttingaratriðin eru: að sýslunefndin, en
hann ekki (L. B.) hafi ákveðið réttarrann-
sókn gegn síra Helga Árnasyni, að hann
hafi ekki gert það I hefndarskyni, og að
sira H. Á. hafi ekki einu sinni, heldur 5
sinnum »þverskaltast við að hlýða skipun
atntmanns um það, hvertjig hann setti að
bera fram málaleitanir sínar«. En unt það
hefir síra H. Á. birt greinilega skýrslu i
Isafold 31. f. m., sem lesa þarf því í sam-
bandi við þessa leiðrétting.
Þilskipaeigendur
eru aðvaraðir um það, að á höfninni í
Hafnarfirði er ekki pláss fyrir fleiri
skip í vetrarlegu en Hafnarfjarðarskip-
in.
Sýslumaðurinn í Gullbr. og Kjósarsýslu
16/9 1904.
Páll Einarsson.
Notið tækifærið.
Samkvæmt leyfi hr. bankastjóra Tr.
Gunnarssonar verður fataeflli frá
klæðaverksmiðjunni í Silkeborg seld
gegn vinnulaunum og öðrum kostnaði.
Laugaveg 24. Gísli Jónsson.
Þeir, sem þurfa
að fá sér
föt
fyrir haustið og veturinn
ættu að athuga
fataefnin hjá undirrituðum, sömuleiðis
Iláisl íu
og fleira þar að lútandi.
cJC. cJlnÓQrsen & Sön.
Verzlunarmaður
Lipur maður, duglegur og áreiðan-
legur, sem vanist hefir verzlunarstörf-
um um lengri tíma, getur fengið at-
vinnu viðverzlun Th. Thorsteins-
sons hér í bænum frá næstkomandi
nýári, eða jafnvel fyr.
Menn gefi sig fram sem fyrst.
Bezt kaup
Skófatnaði
í
Aðalstræti 10.
Syltetau, Crem-sjókolade,
er ódýrast í verzlun
Gísla Jónssonar
Lagaveg 24.
Tombóla.
Að fengnu leyfi stjórnarráðsins hefir
Hið ísl. prentarafélag ákveðið að halda
tombólu í næstkomandi októbermánuði
til ágóða fyrir sjúkrasjóð sinn.
f>eir sem vilja etyðja þetta fyrir-
tæki með gjöfum, eru vinsamloga beðn-
ir að afhenda þær einhverjum af und-
irrituðum.
Reykjavík 17. sept. 1904.
Aðalbjörn Stefdnsson, Agúst Sigurðs-
son, E. W. Sandholt, Einar Her-
mannsson, Einar Kr. Auðunsson,
Einar Sigurðsson, Friðf. Guðjónsson,
Guðjón Einarsson, Guðm. Gunn-
laugsson, Guðm. Magnússon, Guðm.
Þorsteinsson, Gunnl. O. Bjarnason,
Hallgr. Benediktsson, Jón Arnason,
Jón Helgason, Jón E. Jónsson, Magn-
ús Magnvsson, Sigurður Grimsson,
Vilhj'ílmur Sveinsson, Þórður Sigurðs-
son, Þorv. Þorvarðsson.
Skrúfboltar,
rær, og slúttskífur, alt mjög ódýrt í
verzlun G. Finnssonar.
Agætt
lamba- og dilka-kjöt úr HvítársíSu og
Borgarfirði fæst í alt haust í kjötverzl-
un kaupmanns Benedikts Stefánssonar
Laugaveg nr. 27, og verður það selt
með því lægsta verði, sem gerist hér í
Reyk j avík arbæ.
£nginn
selur Karbólineum jafn-
ódýrt og verzlun
Gísla Finnssonar.
Teikniskóli.
Þeir sern hugsa sór að ganga á teikni-
skóla minn í vetur, eru vinsamlega
þeðnir að koma til mín í Grjótagötu
nr. 4 og innskrifa sig mánudag og
þriðjudag þ. 19. og 20. þ. mán., frá 6
—8 e. m. báða dagana. Inntökugjald,
fyrir allan veturinn 8 kr., borgast við
áskrift.
Grjótagötu nr. 4.
Stefán Eiriksson.
BÚNAÐARFÉLAGISLANDS.
1 geymsluskála Gróðrarstöðvarinnar eru
ýms landbúnaðaráhöld til sýnis hvern
virkan dag, nú fyrst um sinn, frá kl}
9—11 f. h.
Agætt Benzin
afar-ódýrt fæst Í verzlun
G. Finnssonar.
Kensla.
Undirrituð kennir ungum stúlkum
næsta vetur ymsar hannyrðir, svo sem
kunstbroderi, hedebosyning, rósabanda-
saum og alls konar hvítan saum; enn
fremur dönsku. Kensla er einnig veitb
á sunnudögum.
Laugaveg nr. 2.
Kristín Jónsdóttir.
dyrirlestur
um
draum Nebukadnesar
konungs
heldur D. Östlund i Bárufólags*
h ú s i n u á sunnudaginn, kl. 8 síðd.
Allir velkomnir!
Steinolíumotor-cylinderolía,
vélaolía og cylinderolía fæst i verzlun
G. Flnnssonar.