Ísafold - 10.12.1904, Blaðsíða 2
•Jafnframt því að skýra yður, hr.
oddviti, frá þessu« [ueitun amtmauns
um gjafsókn í máli út af ólöglegri gift-
ingu] »til birtingar fyrir hreppsnefnd-
inni, ávíta eg yður hérmeð harðlega
fyrir þá þverúð og óhlýðni, sem þér
hafið sýnt með því að bera þessa
málaleitun og aðra til beint undir
amtmann, þótt þér hafið verið marg-
aðvaraður og víttur fyrir slíkt áður,
enda verður nú hafin sakamálsrann-
sókn gegn yður og nefndinni fyrir at-
hæfiða.
Hann hafði s j á 1 f u r orðað og bók-
að rannsóknarályktun þá, er hann
hafði látið sýslunefndina gera. £n
svo getur hann ekki notað hana, þeg-
ar til kemur, eða er þá búinn að
gleyma, hvers efnis hún var, eða þá
loks að honum þykir hún ekki nógu
mikil í munni.
f>að sem sýslunefndin hafði fundið
að, eftir sjálfs hans fyrirmælum, voru
of miklar reikningseftirstöðvar og sein-
læti að innheimta hreppsgjöld. Vita-
skuld var hvorttveggja ýmist ástæðu-
laust eða sýslumaður sjálfur orsök í
því, eftir því Bem hreppsnefndarodd-
vitinn skýrir greinilega frá í ísafold
31. ágúst þ. á.
En í stað þess að tilkynna nefnd-
inni eða oddvita hennar þá þessa
ályktun sýslunefndarinnar, þótt vitlaus
væri, þá nefnir hann þær sakir alls
ekki á nafn í tilkynningarbréfi sínu
til oddvitans, heldur kemur með alt
aðra sakargift — þann stórglæp, að
hafa borið áminsta gjafsóknarumsókn
og aðra málaleitun til beint undir
amtmann, þ. e. fram hjá Honum
S j á1f u m!
Amtmaður skipaði nú Lárusi að
hætta við þessa sakamálsrannsókn,
undir eins og hann vissi af henm —
sakborningur kærði athæfið fyrir hon-
um. H a n n hefir þó séð undir eins,
að maðurinn var saklaus — saklaus af
öllum glæpum, eins og ísafold hafði orð-
að það og verið lögsótt fyrir. En meira
gerir hann ekki, gerir hvorki að ávíta
undirmann sinn, sem svona beitir em-
bættisvaldi sínu, né heldur að láta hann
sæta lagaábyrgð fyrir.
Hann lítur þá með öðrum orðum svo
á, sem maðurinn hafi gert þetta af
heimsku eða misskilningi, en ekki öðru
verra.
Dómarinn virðist og vera þar á sama
máli. Hann segir »ekki vera fram
komna næga sönnun fyrir því, að
þetta« [sakleysi hreppsnefndaroddvit-
ans] »hafi verið stefuanda« [Lárusi]
•ljóst, þegar hann skrifaði bréfið 13.
apríU, og sektar því ísafold um 40 kr.
fyrir að hafa ekki gert ráð fyrir mann-
inum nógu einföldum til þess, heldur
haga svo orðum sem hann hefði ráð-
ist vísvitandi á saklausan mann með
sakamálsrannsókn.
En það hefði þó satt að segja verið
að gera hann e n n vitsmunatæpari en
kunnugum kemur saman um að hann
sé, — með allri oftrú sjálfs hans og þar
af leiðandi hjátrú ókunnugra á þeim.
Málin hafði stefnandi (Lárus) tvö
til þess, að gera lögsóknina matar-
meiri. En í báðum sannaðist þetta,
að hann hafði hótað og boðað saklaus-
um manni sakamálsranneókn. þess
hafði verið getið í annari hinni um-
stefndu grein, að Lárus æli hatur til
síra H. Á. og þyrfti að hefna sín á
honum. Síra H. var þá nýbúinn að
fá hann dæmdan í 80 kr. sekt m. m.
fyrir óhróður um sig í sýslufundar-
gjörð. Dómarinn skilur þá athuga-
semd svo, sem sagt sé, að sakamáls-
rannsóknin hafi stafað af hatri sýslu-
manns og hefndargirni. Hann kemst
svo að orði, að þó að áminatar sýslu-
fundargjörðir, sem Lárus þóttist styðja
sig við, er hann tilkynti sakamálsrann-
sóknina, »beri vott ura töluverðan kala
stefnanda til oddvita* (síra H. Á.),
•þá sé ekki næg heimild til að álykta
af því, að hann hafi ályktað rann-
sóknina af hatri við oddvitann og til
að ofsækja hann í hefndarskyni*. Pyr-
ir það gerir hann ísafold 50 kr. sekt,
auk málskostnaðar.
Isafold mun nú reyna, hvort æðri
dómstólar verða þar sömu skoðunar,
í báðum málunum.
Ekki af þvi, að miklu skifti um
þessar sektir. þær eru aukaatriði.
Aðalatriðið er hitt, að verknaðurinn
er sannaður, þessi sem víttur var,
— eins og aðalatriðið í þjófnaðarmáli t.
d. er það, hvort þjófnaður hefir verið
framinn eða ekki, og hver það hefir
gert, en ekki hitt, með hvaða hug
þjófurinn hefir framið hann. — Heldur
er það hitt, að því oftar sem æðri
dómstólar kveða upp úr um sannaðar
sakir, sönnuð embættisafglöp, því frem-
ur er þó dálítil von um að svonefnd
etjórn þessa lands treystist ekki til að
skella við slíku skolleyrum, og að þá
létti einhvern tíma ófögnuði þeim, sem
hér er verið að kljást við. “
það er ekki ómakslaust né kostn-
aðar fyrir blöð eða einstaka menn, að
fá sönnuð embættÍBafglöp á valdsmenn
vora. En önnur ráð til þess eru ekki
sýnileg oft og tíðum. Ekki ber lands-
stjórnin það við. Má þakka fyrir, ef
hún skiftir sér af þeim, þegar aðrir
eru búnir að sanna þau til fullnustu.
Og til þess að knýja sannanirnar fram,
fá þær lýstar fullgildar með dómi,
v e r ð a blöð eða einstakir menn að
fara um embættisafglöpin svo hörðum
orðum, að hinn seki komist ekki hjá
að fara i mál, sem þrásinnis leiðir þá
til sekcar, þ ó 11 verknaðurinn sannist
að fullu og öllu.
Svona glæsilegt er stjórnarástand
vort í þ e i r r i grein, sem fleirum
raunar!
Eitthvert raus
flytur stjórnarmálgagnið nýkeypta út
af því, sem sagt var hór í blaSinu ný-
lega af viStali Marconi viS danskan
blaSamann um ritsímann hingaS. Seg-
ir h o n u m ekki koma þaS mál neitt
viS, meS því aS hann hafi selt öll sín
réttindi til hraSskeytasambandstilrauna
félagi einu í Lundúnum, og sé þv{ þaS
eitt aS marka, sem þaS félag segir og
gerir, en Marconi sjálfan ekki hót.
Enginn veit þó til þess, nema vera
skyldi hiS alfróSa »sannsöglinnar mál-
gagn«, aS Marconi só neitt bilaSur á
vitsmunum. En því aS eins mundi
hann hafa þannig aS orSi komist viS
hinn danska blaSamann, sem hann gerSi,
svo framarlega sem hann á ekkert meS
aS skifta sór af hraSseytasambandstil-
raunum meS því lagi, sem hann hefir
látiS sér hugkvæmast og er alt af aS
fást viS aS umbæta og fullkomna.
Innbrotsþjófnaður.
Brotist var inn í Thomsens magasín
eina nótt hér um daginn og stoliS þar
miklu af smjöri, hangikjöti o. fl. Þetta
var í bezta veSri og tunglskini. Og þó
halda kaupmenn næturverSi sór til aS
gæta búSa sinna.
Hvalstöðvarbrunl.
Sunnudaginn var, 4. þ. mán., brann
íbúSarhús hvalamannanna norsku á SuS-
ureyri viS TálknafjörS, ásamt verk-
mannaskúrum þar. SkaSinn talinn um
100,000 kr., eftir ágizkun. FólagiS,
sem þá hvalstöS á, nefnist Tálkni.
Póstgufuskip Laura (Aasberg), sem
fór til Vestfjarða fyrra mánudag 28. f.
máu., kom aftur snemma i þessari viku.
Með henni brá sér til ísafjarðar og kom
aftur bankastjóri Sighv. Bjarnason, o. fl.
Eftir áætlun átti skipið að fara sólar-
hring fyr vestur, enda var þá meira en
ferðbúið. En þá kyrsetti ráðgjafinn það,
vegna þess, að mælt er, að hann þurfti að
hafa yfirmanninn á »Beskytteren« hjá sér
í veizlu þann dag, en Laura mátti ekki
vtrða á undan honum vestur, til þess að
sekum botnvörpungum þar kæmi engin
njósn með henni.
Mikið var brosað hér í höfuðstaðnum að
allri þeirri ráðsnilli ráðgjafans og ekki sizt
þeim skörungsskap, að láta póst og far-
þega vestur biða heilan sólarhring til þess
eins. að yfirmaðurinn á Beskytteren gæti
verið i veizlu hjá honnm!
Beskytteren kom vestur á undan póst-
skipinu. Hann kom aftur að fám dögum
liðnum botnvörpungalaus með öllu.
Laura fór í gær til útlanda. Farþegi
Thor Jensen kaupmaður og börn hans tvö.
Veöurathuganir
i Reykjavik, eftir Sigríði Björnsdóttur.
1904 nóvb. desbr. Loftvog millim. Hiti (C.) í>- CT ct <J ct> 0* P cr 8 c* Skýmagn Urkoma millim. Minstur hiti (C.)
Ld26. 8 756,2 3,5 sw 1 10 4,2
2 755,9 3,4 wsw 1 10
9 758,0 3,0 w 1 4
Sd27. 8 763,2 -0,1 s 1 2
2 764,2 -0,3 NNE 1 6
9 760,7 0,0 0 9
Md28.8 754,5 1,7 NB 1 0
2 753,8 2,5 W 1 10
9 753,7 1,7 0 10
M29.8 749,8 1,1 0 5 11,7
2 751,6 -0,3 sw 1 5
9 750,2 s 1 10
Md30.8 740,2 2,0 NE 2 10 0,2
2 730,5 3,1 SE 2 10
9 724,9 4,7 SSE 1 7 15,2
Fd 1. 8 719,1 1,7 SE 1 10
2 720,5 NE 2 10
9 726,5 1,0 NE 3 3
Kd 2. 8 733,6 0,2 N 2 5
2 738,0 -0,6 N 2 6
9 741,4 -1,5 0 2
Stjérnarvalda-augl. (ágrip),
Frú Sigríður Helgason í Rvík lýsir eftir
kröfum í dánarbú Tómasar læknis Helga-
sonar með C mán. fyrirvara frá 11. nóvbr.
siðastl.
Skiftaráðandinn i Barðastr.sl. lýsir eftir
kröfum i dánarbú Halldórs snikkara Hall-
dórssonar frá Vatneyri með 6 mán. fyrir-
vara frá 2. þ. m.
Skiftaráðandinn i Skagafjarðarsýslu kall-
ar eftir skuldakröfum i þrotabú Gísla
Björnssonar frá Hátúni i Seiluhreppi og í
þrotabú Þórðar Baidvinssonar frá Grafar-
ósi, hvorttveggja á 0 mán. fresti frá 9. þ.
mán.
8. uppboð á húsinu nr. 27 við Laugaveg,
eign Jóns kpm. Helgasonar, verður haldið
þar 28. þ. mán.
Eins og i fyrra
hefir Kristileg safnaðarstarfsemi í
hyggju að g 1 e ð j a nokkur fátæk
heimili og einstæðinga í nafni safuað-
arins fyrir jólin. Verður í því
skyni leitað samskota, og geta þeir
sem vilja styrkja fyrirtæki þetta með
fégjöfum, afhent þær félagsmönnum
Hem leita samskotanna eða undirskrif-
uðum dómkirkjupresti, sem mælir sem
bezt með fyrirtæki þessu. þess skal
getið, að það sem fríkjrkjumenn kynnu
að gefa í þessu skyni, verður lútið
ganga til fétækra í fríkirkjusöfnuðin-
um.
1 fyrra var útbýtt nálega hálfu
þriðja hundraði króna í peningum og
vörum, og nutu þess rúmlega 40 fátæk
heimili og einstæðingar.
Eeykjavík, 9. des. 1904.
Jóhann Þorkelsson-
eru beðnir
að vitja Isa-
foldar i af-
greiðslustofu blaðsins, Austurstræti 8,
þegar þeir eru á ferð í bænum
Magnús Magnússon
skésmifur Laugavsg 59.
Smíðar nýtt. Gerir við gamalt. Ódýr
vinna.
Skólinn í Landakoti tekur
börn frá byrjun janúar.
Einn, eða fleiri duglegir menn i
félagi
geta átt kost á að eignast
goíi þiísRip
með hægum kjörum. Skipið er ágætt,
hvort heldur er til síldar- eða fiskveiða.
Grípið tækifærið.
Ritstjóri vísar á.
Cpli og Raríöfiur
í verzlun
H. P. Duus.
Innbrot.
Aðfaranótt fimtudags hins 8. desem-
ber var brotist inn í pakkhúsin hjá
mér og stolið þar 110 pd. af smjöri,
hangikjötskrofi, V2 8ekk kaffi °-
Eg vil borga 100 kr. til þess að
komast fyrir, hverir þessir sökudólgar
hafa verið, og bið alla þá, sem geta
gefið einhverjar upplýsingar, er gætu
leitt til að koma þessu upp, að láta
mig vita sem fyrst.
|>e8s skal getið, að smjörið var f
10 punda ferstrendum mótuðum stykkj-
um.
H. Tli. A. Thomsen.
litST
góður og ódýr.
Nýkomin í verzlun
H. I*. Buus.
í v 9 r z 1 u n
Aiminda Árnasonar
Laugaveg 21
fást flestallar nauðsynjavörur, er selj-
ast nú til jóla, með svo lágu verði
sem framast er unt.
©líuíunnur
tómar verða keyptar hæsta verði í
verzluninni »Godthaah«-
SjðYöílingar
órónir eru ávalt keyptir hæsta verði f
verzluninni »Godthaab«.
T ækifæriskaup,
Af sérstökum ástæðum verður tveggja
ára gamalt hús, sem stendur við eina
af aðalgötum bæjarins og kostaði
um 7000 kr. selt fyrir 6000 kr., eða
með 1000 kr. afslætti, gegn því
að kaupandi taki að sér nál. 3000 kr.
veðskuld, sem afborgast á rúmum 20
árum, og greiði eftirstöðvarnar, 3000
kr., á þrem árum. Gott veð verður
kaupandi að láta í té, enda fást þá
máske enn rýmri borgunarskilmálar,
því betra sem veðið er tryggara.
Lysthafendur sendi nöfn sín í lokuðu
bréfi merkt: »Hús 6000«. til ritstj.
ísafoldar fyrir árslok.
Hvergi betra
að verzla á Laugavegi en í verzlun
Ámunda Árnasonar.
Ritstjóri Björn JóiiHHon
Isafoldarprentsmið a