Ísafold - 17.12.1904, Blaðsíða 2
814
Vera má, að þeasu verði svarað svo,
að þetta séu smámunir, og að allir
viti vel, hver er afstaða þessara ríkis-
hluta. En hví á þá í fyrsta lagi að
vera yfir höfuð að nota orð, sem á alls
ekki við, og hví á í annan stað að
vera að hafa orð, sem vekur auðveld
lega óvild, af því að það rifjar upp
fyrri tíma ástand, sem var alveg ó-
frjálst og sfður en eigi ánægjulegt?
Svona kemst prófessor E. Holm að
orði, gamall hægrimaður þó.
Ýms tíðindi erlend.
það þykja mikil tíðindi frá E ú s s-
1 a n d i, að þar áttu nýlega meiri hátt-
ar sveitarstjórnarfulltrúar, viðlíka og
amtsráðsmenn hér, frá öllu Bússlandi
sjálfu, 127 að tölu, nokkurs konar ráð-
gjafarþing með sér í Pétursborg, með
vitorði keisara og ráðgjafa hans, til
þess að íhuga og ræða stjórnarbót
handa Bússum.
þeir lögðu það til, meiri hlutinn,
100 af 127, að keisaravaldið sé gert
þingbundið, og kosningarrétt til lög-
gjafarþingsins hafi allir rússneskir
þegnar, 21 árs og þaðan af eldri,
nema hermenn og lögreglumenn.
fúngið sé tvískift, efri málstofa og
neðri. Efri málstofan kýs ríkiskanzl-
arann. Innanríkisráðgjafinn birtir lög
frá þinginn, en keisari staðfestir þau.
Auk þess krafðist þjóðfulltrúafundur
þessi prentfrelsis og félagafrelsis, og
að allir útlagar séu heim kvaddir.
Semstwo er hið rússneska heiti
yfirsveitarstjórnarnefnda þeirra, er hér
er átt við. þær eru hið eina þjóð-
fulltrúaþing, sem til er á Bússlandi,
hver í sínu umdæmi. Alexander keis-
ari II stofnsetti þær fyrir 40 árum.
það var skömmu eftir afnám bænda-
ánauðarinnar. Hann var frjálslyndur
í þann tíð, keisarinn, fyrri ríkisstjórn-
arár sín. En það fór af. Og eftir-
menn hans hafa amast við þeim.
Nikulás II svaraði svo málaleitun af
þeirra hendi um áheyrn, er ræða
skyldi landsins gagn og nauðsynjar,
að hann kallaði það heimskuhjal. Svo
hafði honum kent verið. þetta var
þegar hann var nýkominn til ríkis.
það er að þakka innanríkisráðgjaf-
anum nýja, Sviatopolsk-Mirski fursta,
að nú fá þær aðrar undirtektir. En
vitaskuld kann afturhaldsliðið því
mjög illa og vildi koma ráðgjafanum
fyrir kattarnef út af því.
þessi sem8two-fulltrúar eru engir ó
merkir þjóðmálaskúmar, heldur aðals
raenn og stóreignamenn flestir. það
er haft eftir einhverjum þeirra, að
þingstjórnarfrelsi sé nú eina ráðið til
þess að komast hjá gagngerðri stjórnar-
bylting.
Síðustu vikuna í f. mán. varallmik-
ill hópur þingmanna frá Norðurlönd-
nm, Danmörk, 8víþ]óð og Norvegi, á
ferð suður á Frakklandi, eftir heim-
boði frá þingmönnum þar, sérstaklega
þeim, er berjast fyrir afnámi hernað-
ar. þeim var tekið þar (í París) með
hinum mestu virktum, af forseta og
öðru stórmenni. þar var og í för
Georg Brandes.
Megnar róstur urðu nýlega í Bio
Janeiro í Brasilíu út af því, að þar
er verið að leiða í lög bólusetning.
Borgin var lýst í hervörzlum.
Síðdegísmessa á morgun i dómkirk-
juani kl. 5: Sigurbj. Á. Gíslason.
Keypta máltólinu afneitað.
það er mikið talað þeesa dagana
um svonefnda nýja kaupmenn
í höfuðstaðnum, sbr. síðasta
blað, — spurst fyrir um, hvar sé búðin
þeirra hvers um sig, hvað þeir verzli
með, hvers vegna þeir auglýsi ekki
varning sinn, eins og keppinautar
þeirra geri nú orðið flestir, og þar
fram eftir götunum.
Annars vegar virðast þeir ekki vera
neitt hrifnir af því að vera settir á
prent sem eigendur hlutabréfa í ný-
keypta blaðinu, Beykjavíkinni.
Frá einum hefir ísafold fengið svo-
látandi pistil:
Reykjavik 15. desember 1904.
Herra ritstjóri! Þar sem þér,
herra ritstjóri, hafið í síðasta tölublaði
ísafoldar (í gær) frætt lesendur blaðsins
um, að »Magnús nokkur Stephensen« hafi
fengið hjá Tryggva bankastjóri Gunnars-
syni 5 hlutabréf í blaðinu Reykjavík, og
eg þykist vita, að lesendur Isafcldar muni
skilja þetta svo, sem þessi Magnús Steph-
ensen sé eg, þó það séu fleiri hundar svart-
ir en hundurinn prestsins og fleiri Magnús-
ar Stephensen hér í bænum en eg, þá væri
mér þökk á, að þér vilduð skýra frá þvi
i næsta blaði Isafoldar, að sá Magnús
Stephensen, sem hefir eignast 5 hlutahréf i
blaðinu Reykjavík, sé ekki eg, því eg hefi
aldrei eignast og á ekkert hlutabréf í þessu
hlaði.
Yirðingaríylst
Magnvs Stephensen
fyrv. landshöfðingi.
Engino ætlar jafnmætum manni og
Stórmerkum sem bréfritaranum, að
hann sé að segja ósatt og afneita mót
betri vitund allri hlutdeild í áminstu
blaði. Vitaskuld láir honum enginn,
þótt haun kjósi sér annað fremur en
að vera við það bendlaður frammi
fyrir almenningi, hvort heldur er sem
meðeigandi eða öðru vísi.
En að hann fari að skrökva neinu
þar um, því trúir enginn maður.
Enginn vafi er á, að þ a ð vill hann
ekki vinna til.
Hann e r það þó, og enginn annar,
— enginn annar en fyrv. landshöfð-
ingi Magnús Stephensen, sem átt er
við í hlutabréfaskránni í síðasta blaði.
En sú skrá er samhljóða því, sem
ritað er í gjörðabók Beykjavíkurhluta-
félagsins.
Stjórn félagsins hefir út
gefið og undirskrifað 5 hluta-
bréf, hljóðandi upp á nafn
Magnúsar Stephensen, fyrr-
um landshöfðingja.
Bitstjóri ísafoldar getur meira að
segja tilgreint númerin á þessum
hlutabréfum.
Og borguð voru þau að fullu, þegar
þau voru út gefin, með 25 kr. hvert,
eða 125 kr. alls.
það er stundum sagt um menn, að
þeir viti ekki aura sinna tal.
Og þótt svo sé ekki, þá á margur
maður, sem nokkuð hefir umleikis,
margt það í eigu sinni, sem hann
veit ekki um sjálfur, hefir gleymt, eða
ráðsmaður hans hefir keypt í búið að
honum fornspurðum, eða þar fram
eftir götum.
En naumast getur svo staðið á um
jafn-nafnkenda kjörgripi sem hlutabréf
í Beykjavíkinni (blaðinu), sízt er eng-
inn getur eignast þau öðru vísi en með
allmiklu umstangi, samþykki hlutafé-
lagsstjórnarinnar, skrásetning í gjörða-
bók hennar, o. s. frv. Og alt þetta
nýlega um garð gengið með þessi 5
bréf m. fl.
Hvernig þessu víkur þá við.
þar er naumast nema um tvent að
teða.
það mun hafa verið Landsbankastjór-
inn þjóðkunni, stjórnarfulltrúi (sbr.
konungsfulltrúi) og ráðgjafa ráðgjafi
Tr. G., sem gekk í milli um hlutabréfa-
söluna, þeirra 48, er hann hafði látið
veita sér forkaupsrétt að á hluthafa-
fundinum nafnkenda, sem bylti alveg við
hlutafélaginu,—að 4 fráskildum, er hann
hélt eftir sjálfur. Hann þurfti, sem
nærri má geta, að sjá um, að þau
kæmust í »réttar« hendur. Ella var alt
ónýtt. Hann greiddi andvirði þeirra
í einu lagi í sjálfum Landshankanum,
1200 kr. í peningum, og skýrði frá,
hverir ættu að eignast þau; og handa
þeim öllum gaf félagSBtjórnin út hluta-
bréf, með áletruðum nöfnum þeirra.
En þar stóð M. Stephensen landshöfð-
ingi á 5 þeirra.
Annaðhvort hafa honum þá
verið ætluð þessi 5 hlutabréf, sjálfsagt
fornspurðum, úr því að hann kannast
ekki við að hafa keypt þau eða eign-
ast, e ð a þá að bankastjórinn hefir
aldrei ætlast til að hann eignaðist
þau, né ef til vill sumir hinna, sem
hann tilnefndi svo sem kaupendur að
hinum hlutabréfunum, heldur hefir
hann hugsað sér að búa sér til dálitla
t i n s o 1 d á t a-s v e i t, með álímdum
nöfnum ýmissa þjóðkunnra merkis-
manna, og fylkja þeim fyrir sig við
atkvæðagreiðslur í félaginu. það er
þó a 11 r a-öruggasta ráðið til að hafa
þar einn tögl og hagldir, — meðan hann
týnir þeim ekki. f>að getur þó alt
af dottið í lifandi dáta að óhlýðnast
hershöfðingja sínum í einhverju, smáu
eða stóru, nærri því hvaða mikilmenni
sem hann er og þar eftir ástsæll.
Hitt efast og enginn um, sem banka-
stjórann þekkir og alla hans umönn-
un fyrir vinum sínum, að hann hefði
vel getað látið sér hugkvæmast að
kaupa áminst hlutabréf handa lands-
höfðingjanum að honum fornspurðum,
og jafnvel g e f a honum þau meira að
segja, ef svo vildi verkast, — ef landsh.
t. d. hefði ekki viljað láta sér segjast,
að það væri skýlaus skylda hans sem
góðs flokksmanns, að kaupa þau og
Btyrkja þar með hið nýja, dýru verði
keypta flokksmálgagn.
Hver verða muni nú forlög þessara
5 hlutabréfa, er óvíst að svo stöddu.
Og þó ekki óvíst. f>au hljóta að ó-
nýtast og ný að koma í þeirra stað.
Landshöfðingjans eign eru þau ekki
og verða naumast nokkurn tíma úr
þessu. f>eim verður væntanlega miðl-
að einhverju því barninu, sem betur
tekur við. Eða þá að þeir skifta
þeim milli sín, bankastjórinn og
•Hannes frændia, í viðbót við þau,
sem þeir hafa áður. f>au eru auðvit-
að hvergi betur komin, — hvergi örugg-
ari vissa fyrir, að atkvæðisréttur sá,
er þeim fylgír, verði jafnan hár-rétt
notaður.
Laus brauð. Sauðanes í Norður-
Þingeyjarprófastsdœmi (Sauðaness sókn).
Mat kr. 1506,74. Landssjóðslán hvilir 4
prestakallinn, til að byggja ibúðarhús úr
steini, samkv. lhbr. 16. sept. 1881 (Stj.tíð.
B., bls. 79), að upphæð 4090 kr., sem af-
borgast og ávaxtaet með 6°/0 á 28 árum
frá 17. marz 1883.
yeitist frá næstu fardögum.
Auglýst 16. des. 1904.
Umsóknarfrestur til 31. janúar 1905.
Hruni í Árnessprófastsdœmi (Hruna-
og Tungufellssóknir). Mat kr. 1294,27.
Prestsekkja er í brauðinu, sem næsta ár
nýtur náðarárs af þvi og þar eftir i eftir-
ltun kr. 94,27.
Lán úr landssjóði til ibúðarhússbygging-
ar hvilir á brauðinu að upphafi 2800 kr.
samkv. lhbr. 21. okt. 1897, sem afborgast
með 100 kr. árlega á 28 árum (Stj.tið.
1897, B. bls. 247).
Veitist frá næstu fardögum-
Auglýst 16. desbr. 1904.
Umsóknarfrestur til 31. janúar 1905-
Páll Briem
amtmaður
er dáinn. Hann sálaðist í d.ig;
laust eftir hádegi, eftir 5 daga
legu í lungnabólgu.
Misllngar
eru nú alstaðar hættir og horfnir-
hér, nema í 2—3 manneskjum á ísa-
firði.
Svo hefir frézt nú með póstum.
V eðurathuganir
1 Reykjavik, eftir Sigriði Björnsdóttur.
1904 desbr. Loftvog millim. Hiti (C.) í»- trt- c■+■ <! 0 c* ff H D“ 8 ð\ Skymagn Úrkoma millim. Minstur hiti (C.)
Ldl0.8 755,9 -8,6 N 1 0
2 754,6 -7,0 E 1 1
9 753,3 -4,6 N 1 8
Sdll.8 751,9 -5,4 E 1 6
2 752,1 -8,5 E 1 3
9 753,1 -0,1 NE 1 0
Mdl2.8 752,9 -11,4 0 1
2 753,0 -9,9 E 1 3
9 751,3 -8,8 NE 1 0
I>dl3. 8 742,5 -8,9 NE 1 10
2 735,1 1,6 NE 2 10
9 733,6 3,1 NE 2 9
Mdl4.8 729,5 1,9 NE 1 10 0,7
2 732,5 3,6 0 9
9 734,4 2,7 0 10
Fd 15.8 735,7 -1,2 NE 1 8 1,8
2 737,2 1,4 0 4
9 735,8 -0,2 N 1 0
Fd 16.8 728,5 1,6 NE 1 2
2, 728,2 1,6 NE 1 2
9l 728,1 2,7 NE 1 6
Til jólanna
og altaf er heppilegast að kaupa hálslín
þar sem er fullkomið úrval til dæmis af:
manchettskyrtum,
brjóstum,
flibbum,
manchettum,
hálsbindum,
einlitum og misl.
hnýttum og óhriýttum,
axlaböndum.
Vetrarhanzkar,
hvftir, svartir og mislitir, skinnhanzkar,
vaskaskiuns og hjartarskinnshanzkar o. fl.
vasaklútum,
göngustöfum,
hálsklútum úr silki og ull,
manchettuhnöppum,
brjósthnöppum,
regnkápum, regnhiífum
o. fl. hjá
ÚC. cfínéarsan & Sön.
16 Aðalstræti 16.
Sfíoðié Rúsgögnin
h j á
‘Ben. S. Þórarinssyni,
áður en þið festið kaup annarsstaðar.
í
/