Ísafold - 06.05.1905, Síða 3
99
Vitiialeiðslan
gegn
„sannsöglinnar málgagni".
Fyrir nokkrum vikum, 8. í. m., var
getið um hinar óskaplegu ófarir fyrir
•Baunsöglinnar málgagni#, öðru nafni
Beykjavík, er hlutust út af málaferl-
um við Isafold, með því að það sann
aðist með framburði 2 vitna, er unnu
eið að þeim framburði, að Isafold
hafði haft það alveg rétt eftir afgreiðslu
manni blaðsins (Reykjavíkur) í vetur,
sem hann sagði á hluthafafundi um
kaupandatölu þess, að hún væri um
eða ekki yfir 600. En sjálft hafði
blaðið sagt kaupenduma vera full 3000!
Nú stóð mikíð til um vitnaleiðslu í
móti.
Verið höfðu að sögn á téðum hlut-
hafafundi 20—30 mauns, og flestallir
á bandi með »sannsöglinnar málgagni*
auðvitað, landsins mestu höfðingjar
sumir hverir, með því að blaðið er
einnig þeirra málgagn. Hér skotti
því ekki mannvalið, er heyrt hafði,
hvað fram fór á fuudinum.
Ríflegur frestur var fenginn í málinu
til vitnaleiðslu úr þeirra hóp.
En vitnalaus kom stefnRndi á hólm-
inn að frestinum liðnum.
Ekki hafði nokkur einn ein-
a s t i af öllu því einvalaliði treyst sér
til að bera vitni í móti frásögn isa-
foldar og vitna hennar !
Greinilegri staðfesting á henni er
naumast bægt að hugsa sér frá þ e i r r a
hálfu og þá um leið á sannsögli »sann-
söglinnar málgagns* í því atriði, sem
hér um ræðir.
Málið var lagt í dóm svo búið, í
fyrra dag.
Mannalát.
Hér í bænum varð bráðkvaddur í
gær Henrik J. C. Bjerring,
verzlunarstjóri í Borgarnesi (fyrir stór-
kaupm. Johan Lange í Björgvin), á
60. aldursári, f. 23. okt. 1845, sonur
J. Bjerrings heit. kaupmanns í Reykja-
vík, er druknaði við formóðssker á
útsiglíng héðan haustið 1857, en bróð
ir Péturs Bjerrings verzlunarmanns í
Reykjavík.
Hinrik Bjerring heitinn ólst hér
upp í Reykjavík, gerðist farmaður síð-
an og fór víða um lönd, en gaf sig
því næst að verzlun, fyrst í Reykja-
vík (hjá C. Robb heitnum) og þá í
Hafnarfirði (hjá C. Zimsen). Eftir
það varð hann verzlunarstjóri á Borð-
eyri og loks í Borgarnesi á að gizka
16—17 ár. Hann var kvæntur dóttur
H. A. Linnets heit. kaupmanns í
Hafnarfirði, Elisabet, er lifir mann
sinn. J>eim varð ekki barna auðið.
H. heitinn Bjerring var gæðamaður,
ljúfur og lipur i umgengni, skemtinn
og glaðvær, og manna gestrisnastur.
Mörgum mun þykja eftirsjá í honum.
Norðan úr Skagafirði er ísafold
skrifað lát ekkjuunar Guðriinar
Jónsdóttur á Skriðulandi í Kol-
beinsdal, 74 ára að aldri. »Hún var
mesta dugnaðarkona«.
Skagafirði 26. apríl: Fénaðarsýn-
ing var haldin í Viðvik þriðja í pásknm
fyrir Hóla, Ripur og Viðvíkur hreppa.
Þar var fjöldi fólks og fénaðar; um 400
fjár, 100 hross og 20 kýr og naut. Sin 10
manna-nefndin var fyrir hvern flokk fénað-
ar, til að meta hann til verðlauna. Verð-
launaféð var alls 300 kr., sem var of litið
vegna þess, hve margt kom af fénaðinum.
Sýningiu fór ánægjulega og vel fram.
Mjög illa fellur mönnum hér sú uppástunga
landhúnaðarnefndarinnar, að flytja skól-
ann frá Hólum að kaupstað; enda er
undarlegt, hversu æðri og lægri leggjast á
eitt með það, að draga alt, sem unt er, úr
sveitinni í kaupstaðina, og að riða undir
þá miklu öldu, sem nú er uppi, að fara úr
sveitiuni að sjónum. Hvað verður um aum-
ngja ísland, þegar landbúnaðurinn er
farinn ?
Frá utlöndum
barst í morgun enskt blað frá fyrra
laugardsgi.
f>ar eru engin tíðindi. Fundum
flotanna Rússa og Japana hafði ekki
borið saman enn. Búist við bið á því
um viku eða svo. Og landorusta engin
nýlega.
Japanar segja 50,000 hafa fallið
sinna manna eða beðið bana af sárum
eða veikindum, síðan er ófriðurinn
hófst, en 200 til 300 þús. orðið óvíga
af sárum eða orðið veikir, en þó lífi
haldið.
Póstgufuskip Vesta (Gottfredsen) kom i
fyrra dag að morgni norðan um land og
vestan frá útlöndum, og með henni fjöldi
farþega af vesturhöfnunum.
Fæði
fæst á Skólavörðustíg 8
^Joro Jώres J2iv
ved Nordahl Rolfsen, þýðingar
úr Njálu, Eglu o. ti. íslendingasögum,
um 500 bls., með mörgum prýðilegum
myndura, í skrautbandi, fæst í bók-
vetzlun Isafoldarprsm.; verð 6 kr.
50 a.
Eiiikai'hentiig afruælisgjöf.
Þoir sem héðan í frá panta
Orgelhanmoníum
hjá mér frá hinni ágætu og alþektu
orgelverksmiðju K.A. Ander.sson í
Stokkhólmi og borga þau við mót-
töku, fá í kaupbæti, miðað vió verð
hljóðfæranna, ágætar nótnabæk-
u r fyrir m i n s t 3 kr. 50 aur, alt að
10 kr. með bókhlöðuverði; þar á með-
al Præludier, Marscher og
M e 1 o d i e r.
Munið, að þeesi Orgel-Harm. voru
h i n e i n u, er hlutu verðlauna-
p e n i n g ú r g u 11 i ogmesUlofs-
orðá sýningunni í Stokk-
h ó 1 m i .1 8 9 7, að engan eyri þarf
að borga fyrir fram og a ð engum
reikningum er haldið leyndum.
Áreiðanlegir kaupendur hér í bæn-
um, geta einnig fengið gjaldfrest
um lengri tíma, án verðhækk-
unar og án nokkurra vaxta.
Skrifið því til mín eða talið við mig,
áður en þér festið kaup annarstaðar,
og þér munuð samfærast um, aðbetri
og ódýrari Orgel-Harm. fáið þór eigi
annarstaðar. Yerðlistar sendir ókeyp-
is til þeirra, er þess óska.
Reykjavík 2. janúar 1905.
Jón Pálsson
organisti við Frikirkjuna i Reykjavík
Eg undirritaður á Orgel-Harmonium frá
orgelverksmiðju K. Andersons i Stockholm
og er það nú nærri tólf ára gamalt. Er
mér það sönn ánægja að votta að hljóðfæri
þetta hefir reynst rnætavel, þrátt fyrir afar-
mikla brúkun og oft slæma meðferð. Hljóð-
in í því eru enn fögur og viðfeldin, og
furðu hrein og góð enn þá. Það hefir
reynst svo sterkt og vandað, að eg hygg fá
orgel hefðu þolað annað eins og það er
lagt hefir verið á. þetta. Með góðri sam-
vizku get eg því mælt fram með orgelum
frá þessari verksmiðju fyrir þá ágætu reynd,
sem eg hef á þessu orgeli minu.
Rvik 'Y, 1905. Fr. Friðriksson
(prestur).
Jórnndarsaga
hundadagakongs fæst enn í bókverzlun
ísafoldarprentsm. Verðið er að eins
1 krónu-
RICHARD TORFASON
— 6 HVERFISGÖTU 6 «
semur bréf, umsóknir, sáttakærur, samninga o. s. frv. fuit eins áreiðanlega og vanir mála-
flutningsmenn, en niiin ódýrai a. Frágangur iniklu betri en alment gerist. — Selur einnig
hús og lóðir við beztu götur bæjarins. Uni niai-gt að v lja.
Heima kl. 9—10 f. hád. og kl. 4—5 og 8 — 9 e. hád.
Japan, Kína & Inðland
Nýkomið miklu meira úrval
en áður af alls konar fáséðum
munum i vefnaðarvörubúðina að
Herbergi til leigu handa 1 pilti ósk-
ast nú þegar. Menn snúi sér til Þorleifs
Jónssonar Bókhlöðustig nr 2.
(Stjórnarvaldaaugl. ágrip.)
Skiftaráðandinn í Rvík kallar eftir kröf-
um í þrotabú Casper Rertervigs gosdrykkja
hruggara á 12 mánaða fresti frá 14. apríl
þ. á.
Skiftaráðandinn i Mýra- og Borgarfjarð-
arsýslu i dánarbú Kristjáns Sigurðssonar
frá Hákoti á Akranesi með 6 mán. fyrir-
vara frá 24. marz þ. á.
Skiftaráðandinn í Isafjarðarsýslu i dán-
arbú Teits gullsmiðs Jónssonar frá Grund-
um í Bolungavík með 6 mán. fyrirvara frá
7. apríl þ. á.
Allir eiga að reyna
Normalbrauð-
Margarine
margar tegundir, þar á meðal
gfott margarine á 35 a. pd.
fæst að eins
Inn á
hvert
heimili meö Malt-
brauðiö.
Ekta-Kína-Lífs-
Elixír
Eg skora hér með fast-
lega á alla landsins fjár-
e i g e n d u r, að skoða alt fé sitt upp
frá þessu að minsta kosti tvisvar
á mánuði, meðan það er við hús, alt
þar til er landið er orðið alveg kláða-
laust, og, ef kláði finst í því, að fara
þá forsvaranlega með hann eftir reglu-
gerðinni — baða ekki einungis hinar
kláðugu eða grunuðu kiudur, heldur
alt fé á heimilinu, og þar að auki, ef
auðið er, það fé annað, sem komið hef-
ir saman við það nýlega. Tfu mínútur
þarf að halda hverri kind niðri í baðinu.
Þessar skoðanir m. m. gerist auk
hinna opinberu skoðana.
Hreppstjórar eru beðnir að líta vel
eftir, að þessu sé vandlega hlýtt.
Skýrsla um árangurinn sendist
sýslumanni áleiðis til stjórnarráðs ís-
lands.
Framkvæmdarstjórinu i
kláðamálinu
Reykjavík 6. maí 1905
O. Myklestad.
Góð taða til sölu, b—6 hestar, Vest-
urgötu 19.
Til leigu nmliðst 3 herbergi með eld-
húsi að auld frá byrjun ágústmán. Afgr.
visar á.
er sterkastur og magnmestur bilter,
sem til er.
Með hinum nýju vélum hefir tek-
ist að draga saman kraftinn í jurta-
seyðinu miklu betur en hingað til,
og þó að af tollhækkuninni stafi
verðhækkun á elixirnum úr x kr. 50
aurum upp í 2 kr., þá er þessi verð-
hækkun i raun og veru sama sem
engin, af þvi að nú þarf langtum
tninna af elixír en áður til þess að
fá hin sörnu og jafnvel langtum betri
áhrif
Kína-Lífs-Elixír með vörumerkinu;
Kínverji rneð glas í hendi og nafn
verksmiðjueigandans Waldemar Peter-
sen Frederikshavn — Kobenhavn á
einkennismiðanum og sömuleiðis inn-
siglið vj,p- í grænu lakki á flösku-
stútnum.
Fæst hvarvetna.
Verzlunin
Liverpool
Rvík
kaupir ávalt háu verði velverkaðan
saltfisR og gofu.
Fótbolta) :ög, dönsk, nýasta útg. í
bókverzlun ííaftþrsm. 0,25