Ísafold - 04.08.1905, Page 1
Kemnr út ýmist einn sinni eða
tvisv. í vikn. Yerð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eöa
l1/s doll.; borgist fyrir miðjan
’úlí (erlendis fyrir fram).
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bnndin við
áramót, ógild nema komin sé til
útgefanda fyrir 1. október og kanp-
andi skuldlans við blaðið.
Afgreiðsla Austurstræti 8.
XXXII. árg.
Keykjavík föstudaginn
4. ágúst
1905
50. blað.
Bændafundurinn í ReykjavíL
Suðurreiöin.
|>eir vissu ógjörla, hvaðan á þá stóð veðrið, sumir meiri háttar Reykvík-
ingar, einkum stjórnarhöfðingjarnir, er það varð hljóðbært á sunnudaginn seint
nokkuð, að bændur lengst ofan úr sveit væri teknir að drífa hingað flokkum
saman.
Koma þeir s v o n a snemma á þjóðhátíðina? spurðu einhverir. Og það í
þessari tíð, frá hálfhirtum túnunum.
Hann Eyólfur í Hvammi er kominn við tólfta mann, alt Landmenn. f>eir
eru að fara af baki í portinu hjá honum Jóni þórðarsyni!
þetta var ein með fyrri fréttunum.
|>að var engin misaögn. |>eir voru þar komnir, helztu bændurnir af Land-
inu, 12 af rúmum 30 alls í hreppnum, með tvo til reiðar hver. J>eir höfðu riðið
heiman samdægurs, á sunnudagsmorguninn. J>að er 24 stunda ferð lestagang.
J>eir höfðu riðið það á 9—10 stundum eða þar um bil. J>ar var og í hóp
Ófeigur prestur í Fellsmúla, Ólafur hreppstjóri í Austvaðsholti o. s. frv.
Nei, þ a ð gerir ekki Eyólfur eða þeir Landmenn aðrir, að fleygja frá sér
orfinu og ríða suður í Reykjavík í þjóðhátíðarskemtunar-erindum, og það meira
að segja 2—3 dögum fyrir þjóðhátíðina! — sögðu menn þá.
f>eir fóru að renna í grun um, að hér mundi vera eitthvað annað á seiði,
eitthvað meira og alvarlegra.
Síðar um kveldið komu Holtamenn og Áshreppingar, fram undir 20, þar
á meðal þeir J>órður f. alþrn. í Hala, Runólfur hreppstjóri á Rauðalæk, Sigurður
í Helli, Páll í Ási, Bjarni í Moldartungu, Ingimundur í Kaldárholti o. fl. o. fl.
Ólafur prestur Finnsson í Kálfholti var áður kominn.
Snemma morguns á mánudaginn komu þeir bræður Grímur og J>orsteinn
Thorarensen og fleiri Rangvellingar.
Svörin voru lík eins og hin, um þá Landmenn.
Nóttina þá og daginn eftir drifu að Árnesingar, Borgfirðingar og nokkrir
Mýramenn úr efri hreppunum. Af Niður-Mýrunum komu 10—12 bændur sjóveg
á áttæring um kveldið, þar á meðal Ásgeir í Knarranesi, þéir bræður Hall-
grímur og Sveinn Níelssynir, Pétur í Hjörsey o. fl. J>á komu og Strandarmenn
og fleiri sunnanmenn, þar á meðal þeir nafnar Guðmundarnir frá Landakoti
og Auðnum, síra Árni á Kálfatjörn, Ágúst í Höskuldarkoti. En lengra að
sunnan komu flestir ekki fyr en morguninn eftir, á stórum mótorbát.
Kjósarmenn og Kjalnesingar fjölmentu og mjög, og loks Hafnfirðingar og
Á.lftnesingar fundardagsmorguninn.
J>egar hér var komið, duldist fáum, að merkistíðindi væri í vændum, ef
ekki stórtíðindi.
Og tíðindi voru það. Suðurreiðin sjálf, þessi liðssafnaður til höfuðstaðarins,
mikið á 3. hundrað manns, eru tíðindi, sem aldrei hafa gerst fyr í sögu landsins
•— þetta ferðalag um háslátt í þeim einum erindum, að láta sjá sig í höfuð-
staðnum og skifta sér af landsmálum lítils háttar eða reyna að hafa áhrif á
þau, þau áhrif, að landið frelsaðist frá þeim voða, sem stjórn og þing (meiri
hlutinn) virðist þess albúinn að steypa því í.
Sumum fór sannast að segja ekki að verða um sel. ístöðulitlar sálir, í
karla líkamshreysum eigi síður en kvenna, prvxðbúnum og borðalögðum eigi
síður en lélega klæddum, tóku til að sjá ískyggilegar ofsjónir, meðal annars
gilda bændur og vasklega á velli vinda sér inn í þingsalinn og snara löggjöf-
unum út þaðan, meira að segja taka suma þeirra og binda upp á mótrunvu
og hafa heim með sér í nokkurs konar gæzluvarðhald, að þeir gerðu eigi skaða
af sér framar í lögréttu.
En ofsjónir voru það alt, sem betur fór, tómar ofsjónir og höfuðórar.
Fundarhaldið.
Undirbúningsfundur var haldinn í Báruhúsinu mánudagskveldið undir aðal-
fundinn daginn eftir, af aðkomnum bændum og J>jóðræðisfélagsmönnum í Reykjavík
í sameiningu, svo mörgum, sem núsið tók frekast, og var í fundarlok 7 manna
nefnd kosin til þess að undirbúa fundinn. J>ar voru rædd og útlistuð eingöngu
þessi 3 mál: ritsímamálið, undirskriftarmálið og gufuskipsferðamáliið.
Sá fundur, aðalfundurinrf, hófst þriðjudaginn kl. 11 á sama stað. J>ar
höfðu allir alþingiskjósendur málfrelsi, utanbæjarmenn og innan, en utanbæjar-
kjósendur einir atkvæðisrétt, með því að fundur átti að vera og var aðallega
Rændafundur, og Reykvíkingar höfðu átt hvað eftir annað kost á að láta uppi
sínar skoðanir um stórmál þau, er hér skyldi gera ályktanir um. — Fundar-
stjóri var Jens próf. Pálsson í Görðum og fundarskrifari Ágúst Jónsson amts-
ráðsmaður í Höskuldarkoti.
Vegna rækilegs undirbúnings kveldið áður og í nefndinni urðu umræður
stuttar og fundi lokið eftir rúma 1| stund. Enda var gufuskipsferðamálinu
slept af dagskrá, með því að það væri fremur lítilvægt í samanburði við hin
tvö og að eins tjaldað þar til fárra missira.
J>eir voru frummælendur í hinum málunum: Vigfús bóndi GuðmundsBon
í Haga (ritsímamál), og Jón Jónasson kennari í Hafnarfirði.
J>essar ályktanir voru samþyktar í umræðulok í einu bljóði, með öllum
atkv. atkvæðisbærra fundarmanna:
a. ) Bæntlafundurinn í Reykjavík skorar alvarlega á
alþingi, aö afstýra þeim stjórnarfarslega voða, sem sjálf-
stjórn hinnar islenzku þjóðar stendur af því, að forsæt-
isráðherra Dana undirskrifl skipunarbréf Íslandsráð-
herrans.
b. ) Bæntlafundurinn í Reykjavík skorar á alþingi
mjög- alvarlega, að hafna algjörlega ritsímasamning þeim,
er ráðherra íslands gerði síðastliðið haust við stóra nor-
ræna ritsímafélagið.
Jafnframt skorar fundurinn á þing og-stjórn, að sinna
tilboöum loftskeytafélaga um loftskeytasamband milli
íslands og útlanda og innanlands, eða fresta málinu að
öðrum kosti, því að skaðlausu, og- láta rjúfa þing og
efna til nýrra kosninga.
Til þess að flytja ráðgjafanum ávarp fundarins tilnefndu kjósendur hvers
kjördæmis af 5, utan höfuðstaðarins, sinn fulltrúa hverir í nefnd og urðu þessir
fyrir kosningu: J>órður Guðmundsson f. alþm. í Hala (til vara Sigurður Guð-
mundsson í Helli), Vigfús Guðmundsson í Haga, síra Jens próf. Pálsson, Björn
Jmrsteinsson hreppstjóri í Bæ í Borgarf., og Jón Guðmuncjsson oddviti frá
Valbjarnarvöllum.
J>á voru í annan stað kvaddir af kjósendum 12 menn (eða alt að 12 m.)
úr hverju kjördæmi, þeirra er eiga á þingi andvíga fulltrúa þjóðarviljanum í
ályktunarmálum fundarins, til þess að flytja þeim þingmönnum ávarp fundarins.
Tala fundarmanna utanbæjar var rúmlega 230, alt kjósendur, úr fyrnefnd-
um 5 kjórdæmum.
Niður með ráðgjafann!
Hálfri stundu fyrir nón söfnuðust fundarmenn aftur að fundarhúsinu, bæði
sveitabændur og Reykvíkingar, fylktu sér þar og gengu síðan austur á Lækjar-
torg, að stjórnarsetrinu, Landshöfðingjahúsinu gamla, eftir Tjarnargötu, Kirkju-
stræti — fram hjá Alþingishúsinu —, Pósthússtræti og Austurstræti, og nefndin
í broddi fylkingar, sú er flytja skyldi ráðgjafanum ávarp fundarins. J>ar nam
mannsöfnuðurinn staðar. En nefndarmenn gengu fyrir ráðgjafann og fluttu
honum bréflegt ávarp, er þeir höfðu undirskrifað í umboði fundarins, með fram-
angreindum ályktunum og tilmælum að taka þær til greina að sínu Ieyti.
J>eim dvaldist góða stund inni hjá ráðgj. En mannsöfnuðurinn stytti sér
stundir á meðan með því að syngja Eldgamla ísafold og ýms ættjarðarljóð
önnur.
Loks kom nefndin aftur, og skýrði þeim, sem næstir voru, frá svHri ráð-
gjafans lauslega.
J>á kvað við þegar hátt og snjalt (J>. Th. frá Móeiðarhv.).
Niður með fuí stjórn, sem ékki vill lúta þjóðarviljanum!
Niður með ráðgjafann!
Og tók manngrúinn, sem þá mun hafa skift þúsundum, undir það ein-
um rómi.
Eftir það var horfið aftur og haldið inn á Austurvöll. Eu íslendinga-
bragur sunginn á leiðinni m. fl.
J>ar, á Austurvelli, skýrði formaður nefndarinnar, Jens prófastur Pálsson,
öllum mannsöfnuðinum frá svari ráðgjafans allgreinílega, og var að því búnu
marg-upptekið aftur sama ópið sem fyr: Niður með þá stjórn o. s. frv. En
lúðrasveitin Iék lagið við íslendingabrag og mannsöfnuðurinn söng undir.
Mag. Guðm. Finubogason flutti því næst snjalla ræðu, þakkarorð til bænda
fyrir komuna og frammistöðu þeirra alla. Eftir það sundraðist mannsöfnuð-
urinn smámsaman orðalaust, nema dálítill hópur reykvískra unglinga aðallega,