Ísafold - 07.02.1906, Blaðsíða 1
Xenrar út ýmist einn sinni eða
tvisv. i viku. YerÖ árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eöa
1 */a do!l.; borgist fyrir miöjan
júlí (erlendis fyrir fram).
Uppsögn (skrifleg) bnndin v,ð
áramót, ðgild nema komin sé til
átgefanda fyrir 1. október og kaup-
andi skuldlaus við blaðið.
Afgreiðsla Austurstrœii 8,
XXXIII. árg.
I. 0. 0. F. 87298 >/2.
Reykjavrík miðvikudaginn 7. febrúar 1906
8. tölublað.
Skirnir.
Skirnir, timarit hins
ísl. bókmentafél. Rit-
stjóri Guðm. Finn-
bogason, 79.ár(1905);
4. befti. Rvik 1905.
f>etta síðasta hefti hins fyrBta árgangs
Skírnis með hinu nýja sniði, sem er
samsteypa »tíðindanna* gömlu og af
»tímaritinu« fyrverandi, er bæði fjöl-
breytt og óvenju-veigamikið, eftir þvl
sem gerist um íslenzk tímarit. Sér-
staklega eru þar 2 ritgerðir einhverjar
hinar tilkomumestu tímaritshugvekjur,
er vér eigum til, meðal annars og ekki
sízt fyrir það, að þar er verið að vinna
það því því miður fágæta verk vor á
meðal, að gera íslenzkri alþýðu kunnugt
nokkuð af því, er ýmsir mestu andans
menn með höfuðmentaþjóðura heimsins
hafa sér að viðfangsefni nú á tímum,
og hver niðurstaðan hefir orðið fyrir
þeim.
Sjaldan rekum vér oss greinilegar á
það en í þessu dæmi og þvílíkum,
hvert ólán er fyrir oss að hafa látið oss
nægja öldum saman að tína mola af
borðum einhæfrar smáþjóðar og horfa
varla nokkurn tíma út í heiminn, sér-
staklega á það sem þar gerist í andans
ríki, öðru vísi en gegnum gluggasmug
una þá, sem getur verið stundum og
í sumum greinum hulin svo þykkri
móðu sinnuleysis, sérgæðingsskapar,
hégilju og hindurvitna, að byrgt sé
nær fyrir alla sjón.
Að gera lítið úr þeirri þjóð yfirleitt,
þótt smá sé, sérstaklega andspænis
þjóðkríli því, er þetta land byggir,
væri frámunaleg hneykslisheimska og
fjarstæða. það mun fáum augsýni-
legra en þeim er þetta ritar né ljúfara
við það að kannast, hve stórum fremri
hún er oss í mjög mörgu, í ýmsum
þáttum verulegrar þjóðmenningar.
Bn eins og margan mætan mann og
vel að gervan skortir eitthvað það, fleira
en eitt og fleira en tvent, meira að segja,
er hafa þyrfti haDn til þess, að geta
verið h v e r s manns fyrirmynd, eins
er engin þjóð, smá né stór, þeim yfir-
burðum gædd, að einhlít geti hún verið
hverri þjóð annari til fyrirmyndar.
Greinar þær tvær, er fyr nefndum
vér, er önnur eftir Einar Hjörleifsson
um trúogsannanir, en hin nefnist
ýmsar tegundir trúarreynsl-
u n n a r, eftir ritstjóra Sklrnis, og er
aðallega skilagrein fyrir efni stórmerki-
legrar bókar um það mál eftir amerísk-
an heimspeking, háskólakennara í sál-
arfræði við merkilegasta háskólann í
Bandaríkjunum (Harvard), William
James að nafni, bók, sem Danir hafa
ekkert skift sér af, svo kunnugt sé,
þótt komin muni hún vera á flest
heimsins bókmentatungumál, á ekki
nema rúmum 3 árum, sem liðin eru
frá því er hún var fyrst prentuð í
þremur höfuðstöðum hins ensku-
mælandi heims í senn: New York,
Lúndúnum og Bombay.
Bit þetts. er, eftir því sem fyrir því
er grein gerð og tilvitnanir birtar úr
því, gagnauðugt af hinum skarplegustu
rannsóknarathugunum og íhugunar um
mannkynsins mesta velferðarmál, trú-
Nú fer að líða að þeim tíma, er menn fara að búa fiskiskip sín út til veiða, og ættu sjómennirnir þá að
hafa það í huga, að vepzlunin EDINBORG hefir alt sem þeir þarfnast til útgerðarinnar af beztu tegund-
um og með tiltölulega lágu verði, svo sem; segldúka, linur, kaðla, seglgarn, skipmannsgarn, öngla og ótal margt fleira
sem að út gerðinni lýtur, einnig alls konar matvöru. Ennfremur hefir nú verzlunin mikið úrval af sjófötum,
auk alls annars. — Sjóstígvélin í EDINBORG þarf ekki að minna á, þau eru orðin svo góðkunn.
0 0 -»•♦•♦•«•«•«•«•♦•« 0
Augnlækning ók. 1. og S. þrd. kl. 2—8 í spítal.
Forngripasafn opið á mvd. og ld. 11—12.
Hlutabankinn opinn 10—2*/s og &‘/s—'7.
K. F. U. M. Lestrar- og skritstofa frá 8 árd. til
10 siðd. Alm fundir fsd og sd. 8‘/t siðd.
Landakotskirkja. Gubsþj. 9 og 6 á helgidögum,
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 10*/»—12 og 4—6.
Landsbankinn 10‘/8—2*/». Bankastjórn við 12—1.
Landsbókasafn 12—8 og 6—8.
Landsskjalasafnið á ]ud.. fmd. og ld. 12—1.
Lækning ók. í læknask. þrd. og fsd. 11—12
Náttúrugripasafn á sd. 2—3.
Tannlækning ók.i Pósthússtr. 14, l.og3.md. 11—1
EH
O
O
c3safoló Romur nœst
m
laugaröacj 10. JoBr.
Þar er úr miklu að velja, af allskonar útlendum og
innlendum sjófatnaði, bæði fyrir fullorðna og unglinga,
einnig ýmsum tegundum af
sjósfígvélum
t. d. mjög hlý vetrar.-vertíðar stígvél, öll fóðruð að innan með
loðnu skinni. Allskonar vörur, er sjómenn þurfa
með á sjóinn, fást ætíð í
Liverpool.
W
Ch
O
O:
armálið, í þess orðs víðtækustu merk-
ingu, óbundið við alla heimsins trúar-
flokka og trúarkreddur, kristnar og
ókristnar. það er sálarfræðisleg rann-
sókn, sem fjallar ekki um þær stofn-
anir, sem af trúnni hafa sprottið, held-
ur um sjálfa rótma, trúarhvatirnar,
trúartilfinninguna. »Hvað fer fram í
sál þess manns, sem gagntekinn er af
trú? Um það spyr höf., og svarið
fær hann einkum með því að rannsaka
orð trúmannanna sjálfra, í æfisögum
þeirra og annarsstaðar, þar sem þeir
hafa lýst sálarástandi sínu«. Sam-
kvæmt þeim athugunum verður trúin,
segir hann: »tilfinningar, athafnir og
reynsla einstaklinganna, að svo miklu
leyti sem þeir í einveru sinni telja síg
standa í sambandi við hið guðdómlega,
hvernig sem þeir annars líta á það«.
Höf. tekur það fram á öðrum stað,
að I trúarefnum sem öðrum verði að
byggja á reynslunni. l>ar er um reynslu-
þekking að tefla. Og hið eina, sem
heimspekin geti gert fyrir trúna, sé að
rannsaka, hvað í trúarreynalunni felst,
hver sé aðalkjarni trúarbragðanna og
að nve miklu leyti sá kjarni sé saun
ur í ljósi þeirrar þekkingar, sem vér
höfum annars á tilveruuni.
f>essar meginsetningar telur höf. þá
í trúnni fólgnar:
1. Hinn sýnilegi heimur er partur af
af öðrum andlegri heimi og fær það-
an aðalgildi sitt.
2. Sameimng eða samræmi við þenna
æðri heim er bið sanna markmið
vort.
3. Bæn eða innra samband við anda
þessa heims — hvort sem hann er
»guð« eða »lögmál« — er athöfu,
sem ber verulegan árangur; við
bænina streymir inn andlegt afl,
sem hefir í för með sér verkanir,
andlegar eða líkamlegar, f sýni-
lega heiminum.
Trúnni fylgja enn fremur þessi
andans einkenni:
4. það er eins og lífið fái að gjöf
nýjan auð, er kemur fram annað-
hvort sem skáldleg hugarlyfting
eða hvöt til ^lvöru og hetjumóðs.
5. Trúnaðartraust og jafnaðargeð, og
í sambúð við aðra menn hefir kær-
Ieiksríkt hugarþel yfirhönd.
Höf. tekur það fram, að þekking á
trúarlífinu og meginkjarna trúarsetn-
inganna geti eigi komið í stað trúar-
innar sjálfrar; »því trúin er líf«.
Hann lýsir á öðrum stað heilagleik-
anum og nefnir þær einkennilegar af-
leiðingar, er hið andlega líf hafi í för
með sér: meinlæti, sálarþrótb, hrein-
leik, kærleika.
Um kærleikanD segir hann meðal
annars : #Mannkærleikurinn styðst við
meðvitundina um það, að allir séu
börn hins sama föður, en jafnframt
sprettur hann af innilegri gleði, sem
trúarástandinu fylgir, því gleðin gerir
menn ástúðlegri. Að elska óvini sína
er alls engin sjálfsmótsögn; það er
hæsta stig þess stórhugar og göfug-
lyndis, sem þolir mótgerðir og kennir
í brjósti um mótgerðarmanninn. Og
væri því boðorði fylgt, þá yrði heimur-
inn allur annar; því ein sterkasta
hvötin í mannssálinni, sjálfsvarnar-
hvötin, er þá brotin á bak aftur«.
Meðal annars margs og merkilegs,
sem höf. minnist á, er huglœlcninga-
hreyfingin í Ameríku (mindeure move-
ment). þær hafa, huglækningarnar,
Begir hann, »borið góða ávexti fyrir aud-
lega og likamlega heilbrigði manna,
því menn lækna aðra og lækna
sjálfa sig með trúnni einni saman.
Blindir fá sýn, haltir ganga, menn,
sem verið hafa aumingjar frá blautu
barnsbeini, fá fulla heilsu«.
Lesendur taka vonandi eftir því, að
þetta er hvorki mangaraskrum eða
trúarvingls-staðhæfingar, heldur vísinda-
leg fullyrðing — líklega mesta heim-
speking8ins, sem nú er uppi.
Um ódauðleikann segir hann, að
það sé atriði, sem reynslan verði að
skera úr, með því að sýna, hvort and-
ar framliðinna í raun og veru birtist
hér á jörðu. (Niðurl.).
Lanúsvegagerð 1905.
Landsvegfræðingurinn (J. J>.) skýrir
frá, að lagðir hafi verið í sumar 4757
faðmar af þ j ó ð v e g u m (á aðalpóst-
leiðum), 3100 fðm. af f 1 u t n i n g a-
brautum og 1880 fðm. af fjallvegum,
samtals nær 2| míla, með 35 þús. kr.
kostnaði eða 3J kr. á faðminn til jafn-
aðar, — minst 1 kr., mest 7^ kr,
Lögð var og b r ú á Hítará, hjá
Brúarfossum, 27l/2 alin á lengd milli
stöpla. Hún kostaði 4300 kr, Bn
auk þess lokið við 3 stórbrýr, er ver-
ið hafa í smíðum allleugi sumar: á
Lagarfljóti hjá Egilsstöðum, Jökulsá í
Axarfirði og Sogið í Árnessýslu. Lag-
arfljótsbrúiu er 480 álna löng og hefir
kostað 120 þús. kr.; Jökulsárbrúin 164
álnir, hengibrú, og kostaði 57 þús.;
Sogsbrúin, hengibrú af járni, 60 áln.,
og kostaði 15 þús.
þjóðvegarkaflar nýgerðir, 5 álna
breiðir, eru: 915 fðm. í Helgafells-
sveit (Stykkishólms vegur), 2000 fðm.
í Langadal nyrðrar og á Yatnsskarði,
1322 fðm. í Kræklingahlíð og 520 fðm.
í Suðursveit. Buddir voru og vega-
kaflar hingað og þangað, t. d. við
Hvalfjörð norðanverðan, á Holtavörðu-
heiði, í Miðdölum.
Flutningabrautir, 6 álna breiðar:
1400 fðm. í Borgarfirði og 1700 á
Fagradal eystra.
Fjallvegir, 4 álna: 1450 fðm. á
Brekkuheiði á Langanesi, og nær 400
á Kolugafjalli nyðra.
%
T r ú a r b r ö g ð i n í heiminum.
Svo segir í nýrri ameríakri trúboðs-
árhók, að af öllum jarðarbyggjum, sem
þar eru taldir 1,563,446,000 (rúm 1J
miljón miljóna) séu
kristuir.................. 558,862,000
Konfúsíu8trúar .... 231 816000
Múhamedstrúar . . . 216 630,000
Hindúar................... 209,659,000
Gyðingar................ 11 222,000
með ýmsum sértrúnaði . 15,352,000
Hér um bil réttur helmingur krist-
inna manna er rómversk-kaþólskur
eða 272,638,000; en grfsk kaþólskir
120,157,000, og mótmælendatrúar
116,066,500.