Ísafold - 24.03.1906, Page 4
72
ISAFOLD
pr ALFA LAVAL er langbezta og algengasta skilvinda í heiini.
hér á víkinai, hinn sami, maður sem
bjargaði skipshöfn hér 5. apríl 1904.
Hann var beðinn að líta eftir skipunum-
sem vantaði. Hann varð fúslega við
þeim tilmælum. Tveir ísl. menn voru
sendir með honum, annar sem túlkur.
Hér langt suður með landi mætti
hann skipinu Fálka, form. Magnús
þórðarson í Sjólyst, nær hlöðnu af fiski
og klaka, og bauð aðstoð sína, sem
var þegin. Var svo festi látin í skipið.
Skipstjóri hafði viljað taka nokkuð af
fiskinum upp á þilfar, þar sem honum
mun hafa virzt ísl. skipið of þungað, en
hinir héldu að öllu væri óhætt; var
skipið því ekki létt. Var svo haldið
með hægri ferð heim með, og fór alt
vel í fvrstu; en svo kcmu 3 stórar
vindkvikur, sem allar óðu yfir skipið,
og sökk það þá og hvolfdi. Tókst
Englendingum með dugnaði að bjarga
6 mönnum, sem héngu á festinni, 3 af
kjöl en einum af siglutrjánum, alls 10,
en 4 druknuðu.
þeir sem druknuðu, voru H ö g n i
Arnas. frá Görðum í Mýrd. í s 1 e i f-
ur Jónssonfrá Skálholti, efnismenn
um tvítugt, Ólafur Helgason frá
Norðfirði eystra á fertugsaldri, og S i g -
urður Sigurðsson lausamaður
frá Túni hér i eyju á fimtugsaldri.
Englendingar hjúkruðu mönnunum,
sem þeir höfðu bjargað, eftir beztu
föngum, og skipstjóri hafði tekið sér
þetta sorglega slys mjög nærri, og sagt
að hann skyldi eigi framar draga skip
á eftir sér, nema að fólkið færi fyrst
upp á þilfar.
Annar botnvörpungur fann íelenzka
skipið daginn eftir, og kom með það
að morgni þess 14. lítið skemt. Auð-
vitaO voru lóðir, segl, árar og flest
lauslegt tínt úr því.
Illir andar?
Til marks um, hve i 11 i r andar
það eru eða ó h r e i n i r , sem hér tala
við menn um þessar mundir fyrir
munn miðla þeirra, tveggja unglinga,
er Tilraunafélagið notar aðallega, og
tjá sig vera hin og þessi andans mikil-
menDÍ, þjóðkunn eða heimsfræg meðan
hér í heimi höfðust við, — skulum
vér nefna þessi spakmæli frá þeirri
ósýnilegri, skynsemi gæddri veru, er
talar í nafni Jónasar Hallgrímssonar
— Fjallkonan getur um þau í gær:
Munið eftir, að kærleikur og
sannleikur eru bræður. Ef sann-
leikurinn vinnur ekki alt af g I æ s i-
1 e g a n sigur, þá er það af því, að
hann hefir borið spjót á kærleikann.
Ef þið eigið sannleikann, þá hafið
þið beitt sverð; en ef þið eigið (líka)
kærleikann, þá er sverðið tvíeggjað.
J. H. mintist einu sinni í sömu sam-
ræðunni á hrokann:
Hvað mennirnir, aðrar eins vesaldar-
skepnur, sem sumir þeirra eru, g e t a
verið hrokafullir! — Nei, við erum
engin börn, sagði einn í gærkveldi.
Og svo minnist hann (J. H.) á Björn
Gunnlaugsson, »spekinginn með barns-
hjartað*; segir hann hafi beðið sig,
þegar þeir hittust hinum megin, að
sýna sér gullin sín, — eins og barn.
Og þó var hann ekki bam á jarð-
neskan mælikvarða, bætir J. H. við.
Hann segist hafa sýnt honum öll gull-
in sin.
Síðdegismessa á morgnn i dómkirk-
junni kl. ö (B. H.).
Fórn Abrahams.
(Frh ).
Viljið þér að eg segi yður dálitla
sögu úr ófriðinum þeim arna?
það var maður, sem hugsaði eins og
þér: Guð gæfi, að höndin á mér snerti
aldrei við vopni! Eefsidómur drott-
ins kom niður á landinu hans. En
hann hafði sig á brott og fól eig ásamt
konu sinni ungri til að losna við ófrið-
inn. En hann vissi ekki, hvað ófriður
er, heimskinginn. Hver getur svo
sem hjá honum komist, haldið þér?
Einhvern dag kemur fjandmanna-
sveit að bænum, þar sem hann bjó,
því það bygðarlag hafði verið lýst í
ófriðaruppnámi. þeir voru lémagna
og þreyttir, og hirtu það, sem hönd á
festi að öllum fornspurðum. Mennirn-
ir, sem rænt var frá, mæltu í móti.
þetta er laust við okkur, sögðu þeir;
látið 088 halda því, sem vér eigum.
Pyrir sveitinni réð piltungur, sem
var ekki vaxin grön, og hann skelli-
hló að þeim, sem báru sig upp undan
þessum aðförum.
Vitið þér, að ófriður er í landi? spyr
hann, og lætur leggja eld í nokkra
bæi, þá sem hann bar fyrst að, til að
sýna, hvað hann ætti undir sér.
Okkur er kalt, sagði hann; og þetta
er nú hernaður. Svona er hann.
Hannsvo sem skeytti því ekki miklu,
hverir heima áttu í þessum bæjum(
sem brent var. Hann var svo sem
ekki að hugsa um það. Hann var
skyldurækinn, sem kallað er, og vildi
gera rækilega það sem yfirmenn hans
höfðu skipað, en þeir þektu ekki hót
til þess, hvaða fólk var þar fyrir, frem-
ur en hann. —
De Wies var ekki stirt um mál, er
hann .tók tií að ræða um það, er hon-
um bjó ríkast í skapi. Eldur brann
úr augunum, og hann talaði orðin af
þeim hamslausum ákafa, er örvæntingin
kveikir. En það voru þó ekki orðin
sjálf, heldur tryllÍDgslegt látæðið og
nístandi rómur, er gerði þum svo bilt,
er heyrðu, að þeir einblíndu á hann
eins og seiðtryldir.
Maðurinn, sem eg mintist á, bjó á
einum bænum. Hann ávarpaði pilt-
ungann, sem grimmileg örlög höfðu
fengið vald á lífi manna og dauða og
skildi ekki, hvað það þýddi. Maður-
inn bað á þessa leið:
Hlífið bænum mínum, herra minn.
þar liggur kona, sem hefir nýtekíð
jóðsótt.
Fpæsölu
gegnir eins og að undanförnu
liagnheiður Jensdóttir, Lanfásveg 13.
Húsnæði til leigu frá 14. ma!, 4 her-
bergi og eldhús. Afgreiðslan visar á.
Herbergi með forstofuinDgangi er til
leigu 14. maí. Ritstj. visar á.
Kjólasaum
tek eg undirrituð að mér nú þegar.
Ragnh. Clausen Jónsson
Laugaveg 1.
II fl *f eg dvel erlendis, veitir
IVIeOan hr- Loftur Loftsson
verzlun minni á Akra-
nesi forstöðu.
Vilhjálmur Þorvaldsson.
Sniðaog uppdráttapappír
(transparent), 5 kvartil á breidd, fæst f
toókverzlun ísafoldarprsm.
Ýmsar iiauðsynjavörur til daglegra heimilisþarfa
er bezt að kaupa í Aðalstræti 10.
Ætíð bezt kaupáskófatnaðí Aðalstræti 10.
Fínt brauð
margar tegundir í verzlun
Matth. Matthíassonar.
I Lækjargöt i 10.
fást all skonar grjótverkfæri, t. d. járn-
karlar, spisshamrar, setthamrar, klöpp
ur og sleggjur o. s. frv. Ennfremur
jarðyrkjuverkfæri, t. d. kvíslar, ofauaf-
ristuspaðar, og skóflur o. fl; ennfrem-
ur allskonar smíðajárn.
Alt þetta selst mjög ódýrt.
Þorsteinn Tómasson.
[f andi íhorðinu?
J4! Er ódýrastur og beztur nærfatn-
aður í verzlun Kristínar Jónsdóttur?
3 högg.
margar tegundir í verzlun
Mattli. Matthíassonar.
Biðið lítið við!
þangað til búið er að taka upp nýju
vörurnar, sem streyma nú sem óðast
í verzl. Jóns þórðarsonar og
valdar hafa verið í Glasgow, Manchester
Berlin og Hamborg.
Vörurnar verða til sýnis og sölu svo
fljótt, sem mögulegt er.
Oít cr það i koti karls,
sem kongs er ekki i ranni.
Svo má segja um verzlunina í Veltu-
sundi 1. þar fæst margt það, sem
óvíða fæst annarstaðar; t. d. hlífar-
föt handa kvenfólki við fiskverkun,
þvott og í ferðalög.
Kristíu Jónsdóttir.
Ágætt
Margarine
í 1 punds stykkjum í verzlun
Matth. Matthíassonar.
AÐALFUNDUR
klæðaverksmiðjunnar
IÐUNNAR
verður haidinn í Iðnaðarmannahúsinu, mið-
vikudaginn h. 25. apríl þ. á., kl. 8 siðdegis.
Á fundinum verða tekin fyrir þessi mál:
1. Skýrt frá hag félagsins og framkvæmd-
um á hinu liðna ári.
2. Endurskoðaður reikningur fyrir hið um-
liðna ár, með athugasemdum endurskoð-
enda, verður lagður fram til urskurð-
unar.
3. Kosnír 3 menn i stjórn félagsins og I til
vara.
4. Kosnir 2 menn til að endurskoða reikn-
inginn fyrir hið yfirstandandi ár.
5. Umræður um önnur mál, sem upp kunna
að verða borin á fundinum.
Reykjavik, 22. marz 1906.
Jön Magnússon. C. Zimsen.
Ólafur Ólafsson.
BANN!
Hór með er öllum bannað að taka
neyzluvatn úr brunninum hjá Litla-
Seli fyrst um sinn eða þar til búið et
að hreinsa og gera við hann.
Heilbrigðisnefnd Rvíkur 22. marz 1906.
Páll Einarsson
settur.
Nýsilfurbúin svipa fundin á
Skólavörðuholti. Vitja má á Skóla-
vörðustíg 40.
Lagermans
þvottaduít
er ágætt til þvotta. |>að er haft eitfc
sér; þarfnast hvorki sápu nó sóda.
f>að sparar vinnu og ver þvottinn sliti.
Hvorki er í því klór né önnur etandi
efni.
f>að fæst hjá kaupmönnum hór í
bænum.
SölubÚð til leigu á Hverfisgötu 6.
Uni svipi lifandi manna
og fjarskynjan
heldur
Guðm. Finnbogason
fyrirlestur f IðnaðarmannahúsinU.
sunnudag 25. marz kl. 5 e. m.
Aðgöngumiðar á 50 aura fást í Iðu-
aðarmannahúsinu sunnudag kl. 10^
12 og 2—5 og við innganginn.
JVýkomið í verzlun
Björns Kristjánssoiiar
mapgbreyttar birgðir
af vefnaðarvörum,
sem nú er verið að taka upp og verðft
til sýnis næstu dagana, svo sem:
Sjöl, alls konar, stór og smá,
mikið úrval,
Silkitau, svört og mislit,
K,jólatau, Svuntutau,
Tvisttau, Flonellett,
Barnahúfur, Kvenhelti,
Kventöskur o. m. m. fl.
Með næstu skipum kemur eni*
meira úrval.
f>rátt fyrir mikla verðhækkun Á
vefnaðarvörum erlendis, hefir mér hepU'
ast að komast að svo góðum kjöruD3>
að eg get selt vörurnar með sana»
verði og síðastliðið ár.
Nákvæm verðskrá kemur 6*
innau skamms og sendist þeim 0Í
þess æskja.
Virðingarfylat
Björn Kristjánssoft'
Hver sá er borða vill gott
Margarine
fær það bezt hjá
Guðm. Olsen.
Ostur
aftur kominu í verzlun
Mattli. Matthlassona^,
Ritstjóri Björn Jónsson.
Isafoldarprentsmiðja.