Ísafold - 09.06.1906, Síða 1
'&enmr út ýmigt einn sinni eða
'tvisv. i vikll Verft irgi (80 ark
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
l'/a dol].; borgist fyrir miðjan
juli (erlendis fyrir fram).
Uppsögn (skrifleg) bandin við
áramót, ógild nema komin sé til
átgefanda fyrir 1. oktðber og kaup-
andi skaldlaus við blaðið.
Afgreiðsla Austurstrœti 8
XXXIII. árg.
1 0- 0. F. 886159
^ugnlækDing <5k. 1. og 3. þrd. kl. 2—3 í spltal
Orngripasafn opi?> á mvd. og ld. 11—12.
Hlutabankinn opinn 10—21/* og o1/*—7.
í'- U. M. Lestrar- og skrifstofa frá 8 árd. til
10 síbd. Alm. fundir fsd. og sd. 8 x/e siod.
^andakotskirkja. Guðsþj. 9 og 6 á helgidögum.
' andakotsspitali f. sjúkravitj. 10 »/*—12 og 4—6.
^&ndsbankinn 10 l/s—2»/«. Bankastjórn við 12—1.
, _ an(^8bókasafn 12—H og 6—8.
^andsskjalasafnið á þrdM fmd. og ld. 12—l.
5j®kning ók. i læknask. þrd. og fsd. 11—12.
Jtfáttúrugripasafn ft sd. 2—8. ^
nnnlaskning ók. i Pósthússtr. 14, l.ogS.md. 11—1
FaiaflíapfÉítiii REYKJAVIK
(er upp í B o r g a r n e s 20. og
júní, 1., 20. og 26. júlí. Kemur við
^ Akranesi í hverri ferð bóðar leiðir.
Til S t r a u m f j a r ð a r og A k r a
13. og 17. júlí.
Ennfr. vestur að Búðum 13. júní.
Suður í Keflavik fer Reykjavíkin
25. júní, og 4. og 23. júlí
Suður í G a r ð 4. júlí.
Og loks 4. júlí auatur á Eyrar-
b a k k a og Stokkseyri, kemur
^ið báðar leiðir í Hafnaleir, Grindavík
°8 forlákshöfn.
Kosningajj|i
,ar í Danmörkn.
Leikslok urðu þau í fólksþingiskosn-
lngum í Danmörku 2S. f. mán., að
stjórnarliðið gekk að vísu saman nokk-
^ð, en minna en við var búist; og
ftilir héldu þeir velli, ráðgjafarnir, hver
i sínu kjördæmi.
Stjórnarliðar, umbótaflokkurinn, voru
^ður 58, en eru nú 55. (Getur breyzt
Utl) 1, þegar fréttist um kosningu í
^æreyjum). |>ar næst eru nú sósíal-
lstar liðfleetir á þingi, 24 orðnir, en
V°ri1 áður 16. f>að er og töluverður
SlgUr fyrir stjórnina; því mjög eru
^ 6 1 f allir henni andvígir.
H eru hægrimenn 13; voruáðurll.
^agnbreytingamönnum fækkaði íir
15 ofan í 11.
Loks fækkaði miðlunarmönnum úr
^ °fan í 9. Einn er flokksleysingi.
Kosningabaráttan var harðari en
901X11 eru til áður. Af 425 þús. kjós-
fD(3um alls neyttu 300 þús. kosning-
,D8arréttar síns. f>að er sama sem
70 af hdr. Hlutfallið hafði
Ve»ð áður mest 67 af hdr. (1887).
®inna hættast var Alberti kominn
* ráðgjöfunum, í Köge. Munaði 90
af 2750. Hans keppinautur var
ransager ritstjóri frá Ringsted. Köge
Am ^Íor<^æmi Hörups ritstjóra fyrrum.
erti náði því frá honum (1892)
6 bandalagi við hægrimenn.
q llr Kbafnarþingmennirnir voru
barUrlí°8ri'r’ ^ að tö*u’ e( ^^iðr-iks-
Yai®S'sförcfæmi (2) eru talin með og
y- Enginn þeirra er stjórnarliði.
eru sósíalistar, 4 hægrimenn og 2
^eytingamenn.
naf 8Um binna nýju þingmanna er
nr etl(lur öðrum fremur, og ekki held-
ú þinlQU Þ0irra er féllu og áður voru
geHT810) að ^VÍ VÍ8U> að stjórnin
°nar atKalag Vlð bægrimenn og miðl-
til bess^^A ^ðrabvora eða hvorutveggja,
a bafa öruggan meiri hlutaá
Beybjavík laugardaginn 9. júní 1906
! 37. tölublað.
Með seinustu skipuin heíir verzlunin EDINBORG í Reykjavík fengið meðal annars
11 tegundir af osti
Eidams á 0,65 a. pd., Gouda á 0,50 a. pd., Gorgonzola á 1,00 a. pd., Roquefort á 1,50 a. pd.,
Stilton á 1,50 a. pd., Chedder á 0,90 a. pd, Schweitzer á 1,00 a. pd.
Og fjórar fleiri tegundir, sem aðeins þurfa að sjást til þess þær verði keyptar.
Ennfremur höfvim vér fengið 50 tegundir af alls konar ágætum brjóstsykri.
þingi. Síns liðs eingöngu, umbóta-
flokksins, er hún þar í minni hluta.
Mest kvíða framsóknarmenn því, að
sá ófögnuður fylgi því bandalagi meðal
annars, að farið verði enn að auka
heldur en vana virkin umhverfis Kaup-
mannahöfn, er kostað hafa 50 milj. kr.
og gerð voru fjárveitingarlaust af þings-
ins hálfu í tíð Estrups, en sæzt raun-
ar á það eftir á (1894) fyrir samhalds-
leysi framsóknarliðsins á þingi. En
það er sannfæring framsóknarliðsins,
að sú víggirðing geri landinu eintóma
bölvan, egni eitthvert stórhvelið til að
gleypa alt saman þá er minst varir, ef
þeim lendir saman einhverjum, áður
en annað þeirra nái í það. En ekkert
viðlit, að Danir séu vaxnir því að
verja virkin þau; þá skortir mannafla
til að skipa þau og alt bolmagn til að
standa hálfan snúning hverju sem er
meðal stórveldanna, er þá kynni að
vilja ásælast. Stjórnarliðið, sem nú
er, var og áður eindregið á því bandi,
að víggirðing Kaupmannahafnar væri
skaðræði og glópska, auk þess er fé
var til hennar eytt í lagaleysi, þvert
ofau í atkvæði fólksþingsins. En því
hefir snúist hugur, er það komst í
kjötkatlana eða höfðingjar þess.
Að öðru leyti líkar framsóknarmöun-
um það verst við stjórnarliðið, að það
hefir ekki kjark né dug til að sitjaeða
standa öðru vísi en þ"im líkar, höfð-
ingjunura í Iandsþinginu, stóreigna-
mönnum og öðrum afturhaldssinnuð-
um burgeisum, er leggjast þar þvers um
götu fyrir flestum framfaranýmælum.
|>að eru meiii háttar bændastéttar-
menn, er langmestu ráða nú á þingi,
en launa svo talsmönnum sínum, þeim
er þá hófu til valda, að þeir bregðast
frelsishugsjónum þeim, er þeir börðust
fyrir.
Tryggvi kongur (Ein. Nielsen) kom
hingað frá útlöndum 6. þ. mán. fullfermdur
vörum, og með um 50 farþega, þar á meðal
var Sveinn Sigfússon kaupm. og frú hans,
L. Fanö, danskur verzlunarerindreki (agent),
Jón Hjaltalin Sigurðsson héraðsl. Rangæ-
inga, Jón Jóhannesson Zoega trésmiður,
stúdentarnir Gnðmundur Ólafsson, Gunnar
Egilsson og Bogi Brynjólfsson, frú Ragnh.
Eyólfsdóttir (Þorkelss.), ungfrúrnar Margrét
Ólafsdóttir, Yalgerður Þórðardóttir og Her-
dís Jóhannesdóttir, danskur skraddari M.
Jeppesen með konu og 2 hörn. Þá komu
einnig 30 Danir (landmælingamenn frá her-
stjórnarráðinu) og fyrir þeim Hammershoy
höfuðsm., og 5 danskir menn aðrir.
Mannskaðasamskotín eru nú orðin
9,465 kr. í peningum.
Yms erl. tíðindi.
i.
Marconiloftsk. 8/6.
f>að hefir sarmast, að maðurinn, sem
fyrirfór sér í Madrid, hefir verið vald-
ur að banatilræðinu við konungshjónin.
Hann var sonur auðugs kaupmanns
frá Bareelona, hafði stundað nám á
J>ýzkalandi og hallast þar að hugsun-
arhætti óstjórnarliða.
Brúðkaupshátíðarglaumurinn í Mad-
rid komst á hæsta stig, er konungs-
hjónin voru við nautaatið á laugar-
daginn.
Játvarður konungur var viðstaddur
þakkarguðsþjónustu í Windsor á sunnu-
daginn.
Páfiun söng te-deum í minningu
þess, að konungshjónin spænsku kom-
ust undan banatilræðinu.
Brúðkaupshátíðarbrigðunum lauk á
þriðjudagskveldið á glæsilegri blysför
til konungshallarinnar.
Spænsk yfirvöld eru sannfærð um,
að tilræðismaðurinn hefir ekki haft
neina aðra í félagi með sér. |>ó voru
margir menn höndum teknir í Barce-
lona.
Mikið uppþot í Ameríku (Bandar.)
út af uppvísum svikum og sóðaskap
kjötsala. f>að gaus fyrst upp í Chicago.
En svo er sagt, að ekki só betra ann-
arsstaðar, þar á meðal í St. Louis,
höfuðborginni í Missouriríki. |>ar hefir
sérhver slátrari birgðir af hvítu dufti
svo gerðu, að ef því er stráð á úldið
kjöti, verður það á að sjá sem nýtt
væri. Talað um nauðsyn á gagngerðri
lagabreyting þar að lútandi, þar sem
lögð sé sem mest áherzla á hreint loft
í kjötsölubúðum og aðra hollustu,
bannað að hafa fúin trégólf, sem eru
gagndrepa af sóttargerlurn úr mönnum
og skepnum, enda berklaveiki mjög
tíð meðal starfsmanna við slátrunar-
húsin; þeir spýta á gólfið að staðaldri.
Svona segir i skýrslu til sambands-
þingsins frá kjörnum manni, Neill að
nafni. Sumt í skýrslunni er ekki prent-
andi. Stjórnin lítur ekki eftir nema
lifandi sláturfé, en ekki dauðu kjöti.
Tuttugusmálestir af smjöri frá Banda-
ríkjum hefir verið lagt hald á í New
York, af því það var blandað eða fals-
að um 40 af hdr. Búist er við, að
árangur af þessum uppgötvunum í
Chieago muni verða feiknamikið gengi
niðursoðins kjöts frá Ástralíu og Nýja-
Sjálandi.
Rafmagnsbrautarslys varð á sunnu-
daginn á einum stað (East-Providence)
í Rhodes Island í Ameríku. |>ar biðu
11 menn bana, en 20 meiddust.
Sagt er að 8 forsprakkar koparnáma-
uppþotsins í Mexieo hafi verið af lífi
teknir. Fjártjón Greene-félagsins fer
ekki fram úr 500 þús. dollurum.
II.
Frá völdum er farið i Svíþjóð
vinstrimannaráðuneyti það, er við
stjórn tók í haust, eftir kosningaósig-
ur afturhaldsliðsins þá. Fyrir því var
Staaff málaflutningsmaður. Almennur
kosningaréttur var eitt áhugamál
þeirrar stjórnar; hann er nú mjög af
skornum skamti. Neðri deild sam-
þykti kosningaréttarfrumvarp þeirra
Staaffs og hans félaga með miklum
atkvæðamun. En höfðingjarnir í efri
deild feldu það og komu með nýtt
frumvarp frá sér; það feldi hin deild-
in. |>á vildu þeir Staaff láta rjúfa
þing, í því skyni að fá enn ákveðnari
yfirlýsing þjóðarviljans í móti aftur-
haldsliðinu á þingi. En konungur
þvertók fyrir það. |>á báðust þeir
Staaff lausnar. Konungur lét sér það
vel líka, og fekk sett saman nýtt
ráðuneyti tómra hægrimanna. Formað-
ur þess heitir Lindman. þ>að á mót-
spyrnu von af meiri hluta þings, þ. e.
neðri deildarinnar. Svíar munu því
eiga fyrir höndum flarða baráttu til að
létta af þjóðinni langvinnu afturhalds-
fargi.
Látinn er í Khöfn nýlega Niels Juel
S i m o n s e n söngvari einn hinn fræg-
asti með Dönura, sextugur að aldri.
Landmælmgar.
Hér er komin enn sveit manna frá
herstjórnarráðinu danska til landmæl-
inga og fyrir henni P. W. Hammershoy
höfuðsmaður. Sveitin skiftir sér í 2
flokka, er annar á við mælingar um
Árnessýslu og Rangárvalla, en hin hér
sunnau heiðar.
Aflabrög-ð.
Vorvertíð fyrirtaksgóð á opin skip
hér í suðurveiðistöðunum, Garði og
Leiru og Keflavík, á færi mest og lóðir
nokkuð. Sömuleiðis góður afli í Höfu
um og Grindavík.
filskip hafa og aflað mikið vel frá
því á krossmessu, það er til hefir spurst;
fiskur óvenjuvænn. Fyrirtaksvel afla
og tvö reknetaskip, er síldarveiði stunda
héðan.
Frá Thorefélagi er von á aukaskipi
þessa daga, s/s Klar.