Ísafold - 08.09.1906, Blaðsíða 2

Ísafold - 08.09.1906, Blaðsíða 2
226 ÍS AFOLD fplp"5* Tvisvar i viku kemur Isafoltl út næstu vikurnar og að jafnaði áfram það sem eftir er ársins, miðvikudaga og laugardaga. Skuldamál þessi 3 hafa dæmd verið nýlega í landsyfirrétti: 1. Jón Jónsson f. kaupm. frá Borg- arnesi dæmdur eins og í héraði (á bæjarþingi Evíkur) til að greiða Weyer- gang timbursala í Mandal (Egg. Claes- sen fyrir hans hönd) 700 kr. eftir- Btöðvar frá því er J. J. hafði uniboðs- 8ölu fynr á timburfarmi hér 1902, auk vaxta og málskostnaðar. 2. Kaupmannsekkja Kristín Arna- dóttir á Akureyri dæmd til að greiða H. B. Fogtmanns Efterflg. í Khöfn 848 ^ kr. skuldareftirstöðvar frá tíð manns hennar, Árna heit. Pétursson- ar, auk 6 /> vaxta. 3. J. V. Havsteen konsúll á Odd- eyri dæmdur fyrir báðum réttum til að greiða H. Jensen bakara 16ð kr. með 5 °/o vöxtum frá sáttakærudegi. Konsúll hafði rekið bakarann úr visi hjá sér ólöglega. Landsyfirréttur lét máls- kostnað falla niðnr fyrir báðum réttum. Eyrarbakkaliéraði þjónar í vetur læknaskólakand. Eirík- ur Kierulf, í fjarvist héraðslæknis Ásg. Blöndal, sem dvelur vetrarlangt í Silkiborgar heilsuhæli fyrir berklaveikt fólk. Dáinn er hér í morgun Hallgrímur Mel- s t e ð landsbókavörður — varð bráð- kvaddur; alheill í gærkveldi. Hann hafði þrjá um fimtugt. Stúdent 1873. Verður minst frekara í næsta bl. Síðdegismessa á morgun i dómkirk- jnnni kl. 5 (B. H.). Druknan er nýfrétt að norðan, 5 manna á bát í fiskiróðri á Steingrímsfirði, er K. Riis kaupm. á Borðeyri hafði gert út. Formaðurinn var Keykvíkingur, Pét- ur þórðaraon (frá Gróttu), og 2 hásetarnir héðan, Jónar tveir Jóns- synir, annar kendur við Höll, roskinn atorkumaður og reglumaður mesti. Pétur heit. var orðlagður vaskleika- maður og sjósóknari mikill. Hafði verið mörg ár fyrir þessum bát frá Borðeyri, á sumrum. Hann var einu- sinni næturvörður hér í bæ. Hinir hásetarnir tveir höfðu verið annar úr Keflavík, en hinn norðlenzkur. Sjálfsmorð. Sá sorgaratburður varð í Hafnarfirði sunnudaginn var, 2. þ. mán., að fyrrum bóndi Kristján Jónsson frá Hliðsnesi á Álftanesi réð sér bana — gekk í sjóinn milli Hafnarfjarðar og Garðahverfis, svo nærri Jandi, að líkið var eigi alveg í kafi, er það fanst síðar um daginn. Kristján heit. var sonur merkisbónd- ans Jóns sál. Kristjánssonar að Skóg- arkoti í fingvallasveit, en bróðir Pét- urs blikkBmiðs í Reykjavík. Hann var fæddur 12. sept. 1844, kvæntist 1871 Kristrúnu Sveinsdóttur, ekkjuSteindórs Sveinssonar á Ottarstöðum, mesta kvenskörung, er hann misti 1903. |>eim varð 3 barna auðið, og er þeirra elzt Kristinn, stýrim. í Hafnarfirði; hitt eru nú giftar konur. fau Krist- ján heit. og Kristrún bjuggu fyrst 12 ár á Óttarsstöðum, en síðan 20 ár í Hliðs- nesi. |>eim búnaðist vel, og voru í fremsta bændafólks röð í sinni sveit. Nokkuru eftir lát konu sinnar fluttist Kristján frá Hliðsnesi til Hafnarfjarðar og fór að verzla þar. |>að hepnaðist miðlungi vel, og gengu efni hans held- ur til þurðar. Loks seldi hann í sum ar verzlun sína. Féþurðurinn mun hafa bakað honum áhyggju, og hafði hann verið eigi mönnum vel siunandi síðustu vikurnar sem hann lifði. — í eftirmælum eftir hann (Fr. Fr.) segir meðal annars: Ljúfur með likn og dáð Lengi var sveitar&toð, Grandvar með góðri lund, Gætinn i orði’ og hug. Um smjörverð á Englandi barst hingað 3. þ. mán. sæsímaskeyti til konsúls Jes Zimsen, er sent hafði verið 27. f. mán. til Seyðisfjarðar frá J. W. Faber & Co. í Newcastle, hin fyrsta símritaða verzl- unarfrétt hingað, um að íslenzkt smjör hafi síðast sel8t á 89 — 100 aura fyrir pd. hér á höfn (fob.), og þá hafi ekkert íslenzkt smjör verið þar fyrirliggjandi, en töluverð eftirspurn og von um enn hærra verð. Lantlmælingameimirnir dönsku, sem hér hafa unnið að land- mælingum í sumar, eru nú farnir héðan heimleiðis, hinir sfðustu á s/s Tryggva kongi. þeir mældu f sumar Skeið og Flóa, og ennfremur austursveitir Rangár- vallasýslu, vestur að |>verá. |>eir hafa og gert nokkrar mælingar í uppsveit- um Árnessýslu, í Kjósarsýslu, Borgar- fjarðar- og Mýrasýslu, Dalasýslu og Snæfellsnessýslu. Um árið 1920 er gizkað á að mæl- ingum landsins muni verða lokið. Byrjað var á þeim 1900. Af Austfjörðum. Þar hefir tíðarfar verið mjög stirt í snmar; sife'.dir knldar og úrkomur; hefir í hverjnm mánuði snjóað meira og minna, stundnm kafaldshylnr dægrum saman. Má heita að ekki hafi þar orðið nokkurs sumars vart, nema fyrri hluta mánaðanna júni og júli. Heyskapur hefir því gengið illa, einkum við sjávarsíðuna. En kuldunum er það þó að þakka, að hey hafa ekki skemst til muna. Aflabrögð hafa og gengið tregt; er það þeim mun bagalegra, sem sjávarútvegurinn hefir verið aukinn að stórum mun á þessu ári, með fjölgun vélarbátanna. Á Seyðis- firði ganga t. d. 24 vélarbátar til fiskjar í sumar, og allmargir hæði á Norðfirði, Mjóa- firði, Reyðarfirði og Yopnafirði. Yfirleitt munu fiskiveiðár á Austfjörðum þ. á. vera reknar að helmingi á vélarbátum. — Að eins 4 eða 5 daga i fyrri hluta júni var uppgripa-afli; sást það á þeim fáu dögum, hve miklu auðteknari er auður hafsins með vélarhátunum, þegar vel gengur á annað horð. Annars hefir aflinn i sumar verið tiltölulega mun rýrari á vélarbátana en á smærri háta; það stafar af þvi, að fiskur- urinn hefir gengið á grunnmið, upp undir land; en þar er víða straumasamt og ilt aðstöðu fyrir stóra og fólksfáa háta. Smá- bátarnir hafa stutta lóð, beita hana hvað eftir annað, færa sig til og leggja aftur þar sem fiskurinn hefir gefið sig að. Yél- arbátarnir fara hins vegar af stað að heim- an með langa lóð beitta, halda til djúps, þar sem straumar eru minni, leggja þar alla lóð sina í einu og fara síðan til lands, hvort sem nokkuð hefir aflast eða ekki. — Það þykir sérstaklega erfiðleikum bundið, að halda þeim með hæfilegri ferð og stefnu við fóð i grunnum sjó, þar sem straumar eru miklir. Síldveiði hefir engin verið á Austfjörð- um í sumar, er teljandi sé; hafa menn því orðið að kaupa beitusild af skipum, er hana hafa veitt í hringnætur úti á hafi. Hluta- félagið A 1 d a n á Seyðisfirði leigði um tíma í sumar norskt fiskiskip, hélt því út til sildveiða og aflaði um 1000 tunnur. Nú hefir félag þetta keypt einn af hval- veiðabátum Ellefsens í Mjóafirði og heldur honum út til síldarveiða. Skip þetta er eitt af elztu hvalveiðaskipum Ellefsens, heitir N o r a og er rúmar 80 smálestir að stærð. Ekki láta þeir alt fyrir brjósti brenna, Seyðfirðingar, um fjárframlög, þó ekki séu þeir nema um 800. Vatnsveitu hafa þeir fengið um aðalbæinn, og mun hún hafa kostað þá um 10,000 kr. (Vatnið tekið úr uppsprettulind rétt við aðalbæinn) Hafskipabryggju á kaupstaðurinn hina beztu, sem til er á landinu, með sporbrautum, vögnum og vörugeymsluhúsum; bærinn keypti þá eign eftir Grarðarsfélagið fyrir 25,000 kr., en hefir bætt hana mikið siðan. Vatnspípur liggja fram á bryggjuna og geta skip tekið þar 20 smálestir vatns á klukku- stund. Raflýsingu eru Seyðfirðingar farnir að undirbúa hjá sér; var Th. Krabbe verk- fræðingur þar eystra i sumar að fram- kvæma undirbúningsrannsóknir þar að lút- andi. Hann hefir ekki látið neitt uppi um kostnaðaráætlun enn, en allvel mun honum hafa litist á fyrirtækið. Aflið á að fram- leiða með því að húa til foss í Ejarðará skamt innan við Öldnna (aðalbæinn); á að reka niður staura í ána og negla þar á planka. Þegar vatnið hækkar í ánni innan við stifl- una, verður þar allstórt stöðuvatn, sem með timanum mun þykja mikill kostur að hafa þar, t. d. til sundkenslu á sumrum, skauta- ferða á vetrum o. fl. Þá ætla Seyðfirðingar að reisa stórt barnaskólahús fyrir bæinn á næsta ári, og eru farnir að undirhúa það mál. Húsið á standa milli sjúkrahússins og lyfjabúðar- ínnar (sem næst miðjum bænum). Hingað til hafa skólarnir verið tveir, annar á Ejarð- aröldu, en hinn á Vestdalseyri; það hefir þótt nauðsynlegt vegna fjarlægðar milli bæjarhlutanna. En það fyrirkomulag er mjög kostnaðarsamt. Nú á skólinn að verða einn og væntanlega með heimavistum fyrir börn af Vestdalseyrinni. A. J. REYKfAVÍKUR ANNÁLL. Aðkomandi í þessari viku: Andrés héraðslæknir Féldsted frá Dýrafirði, Björn Bjarnarson Dalasýslum. og hans frú, Einar sýslum. Benediktsson með sinni frú, Eyólfur prestur Kolbeins frá Staðarb., Jóhann pró- fastur Þorsteinsson i Stafholti, Jón Blöndal héraðsl. f Stafholtsey, Maríno Hafstein sýslum., og Sigurður sýslum. Olafsson í Kallaðarnesi með sinni frú. Brunabótavirðing á þessum húseignum var staðfest á bæjarstjórnarfundi í fyrra- dag, i kr.: Árna Jónssonar trésm. við (xrettisg. 3944 Bjarnh. Jónssonar járnsm. (endurb.) . 4517 Guðm. Jónss. skósm. við Bergst.str. 3498 Jóns Bjarnasonar við Bræðrab.stig . 3172 Jóns Sigmundssonar við Laugaveg . 4300 Jóns Teitssonar við Spítalastig . . 7802 Ólafs Davíð8s. bankabókara (Laufásv.) 9588 Sigurgeirs Jónssonar við Njálsg.. . 3480 Brunabótavirðingamenn hefir hæjar- stjórn endurkosið um næsta ár þá Hjört Hjartarson og Sigvalda Bjarnason trésmiði. Bœjarbryggjan. Hana er nú afráðið að hækka um 1 alin, og fól bæjarstjórn það Tr. G. bankastj. fyrir 3 kr. 65 a. tenings- alin.J; en það verða 1263 ten.áln. á gömlu bryggjunni og viðbótinni að samanlögðu. Svo á hann og að gera við vesturkant bryggjunnar, 100 ferálnir, fyrir 1500 kr., og steinleggja gömlu bryggjuna ofan fyrir nál. 900 kr. Dánir. Eiríkur Helgi Eiríksson þbm. i Eiriksbæ (44 ára) Elin Jónsdóttir frá- skilin kona 26/8. Guðný Þormóðsdóttir ekkja (73) 23/8. Hallgrímur Melsteð lands- bókav. (53) 8/9. Helga Jóhannsdóttir ráðsk. á Suðurklöpp (64) 28/8. Ingunn Jónsd. ekkja (81)5sl/s-Á Jón Jónsson b. á Litlubrekku á GrimsstaðaDolti 6/9. Magnús Símonarson vinnum. frá Sogni(?) i Ölfusi s/9. Margrét Þorláksdóttir, kona Jóns kaupm. Helga- sonar frá Hjalla í Ölfusi s/e. Sesselja Ei- ríksdóttir ekkja (74) 2/9. Fasteignasala. Þessum húsakaupum og lóða hér i bæ var þinglýst í fyrra dag: Sigurður fangavörður .Tónsson selur Páli Magnússyni og Páli Jónssyni húsið nr. 5 á Skólavörðustíg fyrir 8000 kr. Páll Guðmundsson trésm. selur Gunnari Björnssyni skósm. 600 Q ál. af lóðinni nr. 3 við Spitalastig fyrir 900 kr. Kristinn Jónsson trésm. selur Einari Einnssyni 91 □ al. af lóðinni nr. 11 við KlapparBtíg fyrir 500 kr. Einar Finnsson selur Kristni Jónssyni 92 □ ál. af lóðinni nr. 13 A við Klappar- stíg fyrir 500 kr. Jón Magnússon selur Kristni Jónssyni trésm. húseignina nr. 11 við Klapparstíg fyrir 3,250 kr. Guðriður Tómasdóttir selur Sigvalda Há-- konarsyni trésmið húseignina nr. 17 við Laufásveg fyrir 4500 kr. (Lóðirnar fylgja húsunum). Fátœkrafulltrúa skipaði bæjarstjórn 6. þ. m. Jóna8 steinsmið Guðbrandsson frá Brennu í stað Arinbj. Sveinbjarnarsonar bókbindara, er beiðst hafði lausnar. Götulóðir lceyptar. Undir Tjarnargötu samþykti^bæjarstj. i fyrra dag kaup á ióð- nm af Stefáni Egilssyni múrara á 1 '/„ kr. feralin, erfingjum Björns Hjaltested á 2'/2, kr. og Þorsteini kaupm. Sigurðssyni á l'/4 kr. þó svo, að frá gengur 10 álna breið ræma ókeypis. Ennfr. af Eiríki Bjarnasyni fyrir|,2 kr. á'feralinpndir götuna sjálfa. HFyrir breikkun á Laufásvegi og Bókhlöðu- stig fær Sveinn Jónsson trésm. s/4 kr. og Jón Jensson yfird. 2‘/s kr. á feralin, og Jón Ólafsson ritstj. 600 kr. fyrir 200 fer- álnir, með skilyrði. En mats krafist á lóð- um undir sömu götur frá Þorleifi Jónssyni póstafgrm. og Halldóri Sigurðssyni trésm. Hjónavígslur. L. Chr. Cortsen og Margr. Chr. IJNielsen, bæði frá Khöfn, 20/8. Egil Jacobsen kaupm.'j og ungfrú Sigríður Ein- arsdóttir Zoega ’/9. Sveinn Ingjaldsson frá Nýlendu á Akranesi j og;; yngismær Ólafína Ásmundsdóttir frá Háteig 4/9, ~Höfnin. j:Bæjar8tjórnin hefir út af bréfi- frá Smith hafnarumsjónarm. i Kristjaníu falið hafnarnefnd að gera það sem gera þarf tila undirbunings hafnarmálinu eftir bendingum hans. i' Kvennaskótanum iERvík [hefir/ bæjar- stjórn veitt 100 kr. styrk./V^ * méíVtr.i $[Slökkviliðsstjóri$ verðuríj liklega Rost- gaard|velast.jóriaviðjYölund.)—jBæjarstjórn leikuUhugurgáponum ogj,fól síðast bruna- malanefnd að^halda áfram samningum við hann. Thorefélagsskipið Tryggvi kongur (Em. Nielsen) kom hingað af Vestfjörðum mið- vikud. 5. þ. m. að morgni með margt far- þega og fór um kveldið til útlanda full- fermdur vörum og með um 75 farþega, Þar á meðai: kapt. Hammershöj og 28 landmælingarmenn með honum (11 yfir- menn og 18 undirmenn); 18 ritsimamenrr danskir; ennfr. jústizráð Fr. 'Wendel frá Dyraf. og frú hans; J. Frederiksen kaupm. frá Mandal; Charles Nielsen ljósm.; Har- aldur Ámason verzlm.; Magnús Sigurðsson, cand. jur.; stúdentarnir: Geir G. Zoega, Guðm. Einarsson (Flekkudal), Gunnar Egils- son, Jón Sigurðsson (Ólafssonar sýslum.), Stefán Scheving, Vilhj. Finsen, Þorst. Þor- steinsson; ungfrúrnar Halldóra Bjarnadóttir (kenslukona, frá Moss), Emilía Sighvat.s- dóttir (bankastj.), Guðlaug Hjörleifsdóttir; tvær franskar hjúkrunark. frá fr. sjúkahús- inu hér; tvær nunnur frá Landakoti; Jónas Andrésson verzlm. (áleiðis til Kolding); 6 útlendir ferðamenn. Enn fremur til Vest- manneyja um 15 manns. V erzlunarskólinn byrjar með októberbyrjun. Timar byrja 1. okt. Inntökuskilyrði til neðri bekkjar er kunnátta sú er veitt er i barna- skóla Reykjavíkur, eða jafngildi þess. I efri og neðri bekk verða teknir þeir sem upp voru fluttir í þá bekki i vor, er leið, eða nú standast sams konar próf. S k ó 1 a g j a 1 d verður 20 kr. fyrir skóla- árið, og greiðist fyrirfram. Á undirbúningsken8lu verður kostur. Umsóknir um upptöku, stílaðar til skóla- nefndarinnar, afhendist bókara Karl Niku- lássyni í Tbomsens Magasini. Þeir sem vilja taka að sér tímakenslu við skólann, sendi umsóknir til sama. Skölanefndin. Tapast hefir kapsel með mynd af konu og barni. Finnandi skili í afgreiðslu ísaf. Frem fæst í bókverzlun ísafoldarpr.sm. SKANDINAVISK Exportkaffi-Surrogat í Kobenhavn. — F- Hjorth & Co

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.