Ísafold - 15.09.1906, Blaðsíða 2
liggur austur Hellisheiði, vegna bratt-
lendis, að töluvert skagi upp í vega-
lengdarnouninn, ef lítið þarf að sneiða
á hinni leiðinni: um Mosfellsheiði o.
s. frv.
Styttri leiðin getur með öðrum orð-
um orðið alt eins dýr, og hefir þann
tilfinnanlegau annmarka umfram, að
svo mikið af henni liggur um óbygð-
ir og öræfi, — alt frá Lækjarbotnum
niður í bygð í Olfusi.
Um kostnaðinn vill hr. þ. Kr. ekk-
ert uppi láta að svo stöddu. Kveðst
enga hugmynd geta sér um hann gert,
fyr en eftir vandlegar mælíngar og
ítarlegar rannsóknir.
jþetta sem hann hefir nefnt, 25 þús.
krónur á röstina — sama sem um 187
þús. kr. á míluna — á ekkert skylt
við þessa ráðgerðu járnbrautarlagning,
heldur hefir hann að eÍDS látið þess
getið, að þess séu dæmi í öðrum lönd-
um, að járnbrautir hafi verið lagðar
fyrir það verð þar, sem m j ö g v e 1
hefir hagað til, eftir torfærulausri flat-
neskju og með hægum aðdráttum á
efni í brautina.
|>að er með öðrum orðum, að kostn-
aður h 1 ý t u r að verða miklu meiri
á þessari leið, hver stefnan sem valin
er. Sennilegt að gizka á, að hann
verði miklu nær 40,000 kr. á röstina
en 25,000 kr.
En hr. f>. Kr. vill ekkert láta eftir sér
hafa um það að svo stöddu.
Sé gert ráð fyrir 40 þúsundum,
kostar 75 rasta járnbraut 3 m i 1 j ó n i r.
Kostnaðurinn yrði nær 2 milj. og
og 700,000 kr. með 35 þús. kr. verði
á röstina; en minna virðist harla ólík
legt að brautin geti kostað. Með
v i s s u er raunar ekkert hægt um
það að segja að svo vöxnu máli.
En hvað sem um það er, þá er
mjög villandi að gera ráð fyrir e n n
minni kostnaði en 25 þús. kr. á röst-
ina yfir flatlendið frá Ölfusá austur á
Eangárvöllu austanverða, í Hvolhrepp,
þ. e. austur að þverá, með járnbraut
arbrúm á 3 stórám: þjórsá og Eang-
ánum báðum. því brúna, sem nú er
á þjórsá, er ekki hægt að nota und-
ir járnbraut. J>að nær alls engri átt,
að miða hér við lægsta verð á torfæru-
lausu jafnlendi annarsstaðar. Meira að
segja getur verið að telja megi með 4.
brúna, sem sé járnbrautarbrú á Ölfusá.
En vitaskuld er full snemt að svo
stöddu að fara að bollaleggja kostnað
á framhaldi brautarinnar, austur frá
Olfusá. Enda alls óvíst, að það fram-
hald yrði látið liggja þann veg: beint
austur um Flóann þveran, en ekki of-
ar, yfir um Sog t. a. m., ef takast
mætti með því móti að láta brautina
þá koma meiri bygð að notum án
óhæfilegs kostnaðarauka og án veru-
legs ógreiða fyrir Plóabygðina.
En það bíður alt síns tíma.
Bíltludalss-lækiiishérað
hefir ráðgjafinn veitt 18. f. mán.
héraðslækni í Nauteyrarhéraði J>or-
birni J>órðarsyni.
Brauðauppbót hafa feDgið þ. á., i
kr:: Auðkúla í Svinadal 200, Barð í Fljót-
urn 100, Bjarnanes 100, Brjánslækur 150,
•DesjarmýrilðO, Fjallaþing 150, Grimsey 100,
Grundarþing 150, Hjaltastaður 150, Holt
undir Eyjafjöllum G00, Hólmar í Keyðarf.
300, Kálfafellsstaður 125, Kálfatjörn 125,
Kviabekkur 250, Landeyjaþing 250, Land-
prestakall 430, Lundur 175, Otradalur 400,
Olafsvellir 275, Prestshakki í Hrútaf. 200,
Presthólar 75, Reynistaður 300, Sandfell
125, Saurhær á Hvalfjarðarströnd 50, Stað-
ur í Grindavik 50, Staður i Grunnavík 120,
Staður i Súgandafirði 200, Stafafell i Lóni
150, Stöð i Stöðvarfirði 100, Svalbarð í
Þistilfirði 150, Torfastaðir 300.
Loftskeytafréttir
U/9
Frá Rússlandi.
Byltingarmenn í Sidelece á Póllandi
réðust á lögreglumenn og herlið. Her-
mennirnir tryldust og veittu Gyðingum
atgöngu. J>rjú stræti gereydd og menn
fengu bana eða sár hundruðum saman.
Ráðist á Urguahart, varakonsúl
Breta í Baku (við Kaspíhaf), og hann
særður eex marghleypusárum, en eng-
um miklurn. Stjórnin rússneska hefir
tjáð sér þykja það illa farið.
Stórskotaliði var fyrir beitt í gær í
Sidelece. Fyrir því fengu bana 100
manna og 300 urðu sárir. Jmsund
manna voru hýddir miskunuarlaust,
mest Gyðingar.
Uppreisnin á Cuba.
Palma forseti hefir úrskurðað, að
beitt skuli hervaldslögum í borgunum
Pinardebrio og Santa Claia. Sömu-
leiðis í Havana. Önnur rikisforseta-
fyrirskipun, um að varpa öllum upp-
reisnarmönuum í varðbald, tekur í
framkvæmdinni til allra meiri háttar
frelsisvina, enda hafa margir af þeim
horfið á brott jafnharðan.
Uppreisnarmenn á Cuba réðust á
brynjaða járnbrautarlest nærri bænum
Consolaciondels, en biðu þar mikinn
ósigur. Mælt er að fallið hafi af þeim
200 manna.
Frá ýmsum löndam.
Uppreisn í Marokko. J>að bar
til í Marokko, að Kaid Anfluss upp-
reisnarhöfðingi hertók borgina Maga-
dore vestur við Atlanzhaf. Herlið
keisarans gekk í lið með honum. Gyð-
ingar flæmdir frá heimilum sínum og
reknir með valdi burt úr Gyðingahverfi
borgarinnar.
Allmjög ókyrt í Bengal á lad-
landi. Uppreisnarbæklingum dreift út
meðal heimalýðsins og hann eggjaður
á þar að taka höndum saman og flæma
Breta úr landi.
Samningar með Rúsaum og Japans-
mönnum um fiskiveiðar við S a k h a-
I i n e y sunnanverða ganga stirt, vegna
þess, að yfirvöld þar í eynni frá Japan
virða vettugi réttindi þau, er Rússum
Voru heitin í friðarsáttmálanum í Ports-
mouth í fyrra, og hefir það bakað þeim
(Rússum) stórtjón.
Lögfræðingar hafa uppgötvað. að
stafsetningar - umbót Roosevelts
forseta er ólögmæt, með því að til eru
25 ára gömul lög frá sambandsþinginu
um að fara skuli eftir stafsetningunni í
Websters orðabók.
Ofsastormur óvenjulegur með rign-
ingu gekk yfir New-York í gær. Vatn-
ið flóði yfir sporbrautirnar og umferð
varð að hætta. Eldingar voðalegar.
Tíu manns fluttir í sjúkrahús. Höfðu
orðið fyrir alvarlegum rafmagnsrykk
jum.
Konsúiar. Konungur hefir 11. f. m.
viðurkent norska vice-konsúla þá hér á
landi, sem fyr hefir verið frá skýrt hér í
blaðinu, og að auki Edv. Har. Tang kaup-
mann á Isaf. Landinu er skift i niilli þeirra
til afskifta af þeim málum, er konsúlum her:
Pétur A. Olafsson verzlunarframkvæmdar-
stjóri á Patreksfirði hefir til umsjónar alt i
milli Snæfell8jökuls að Önundarfirði, E. H.
Tang ÖnuDdarfjörð og alt að Blönduósi,
Fr. Kristjánsson á Akureyri Blönduós og
alt að Langanesi, Stefán Th. Jónsson á
Seyðisfirði þaðan suður fyrir Hornafjörð.
Suðurland alt, þaðan og að Snæfells-
jökli, mun vera ætlað aðalkonsúlnum i
Reykjavík, en hann er enn óskipaður, —
frásögn um það hér í sumar var tekin eft-
ir norðlenzku blaði, sem hefir farið rangt
með.
Skoplegur samsetningur.
Einhvsrn skoplegasta samsetning,
er sést hefir nýlega á prenti, hefir
maður skrifað upp úr aðalhjálpræðis
málgagni snæfelska valds-
m a n n s i n s hér um daginn og sent
ísafold. J>að á að vera frásaga um
dýrlega skilnaðarveizlu, er þeim
sæmdarmanni hafi verið haldin fyrir
skemstu, áður en hann lagði á stað
þaðan alfarinn að sinni (missiri? eða ár?l
til þess að gera sér gott af 5000 kr.
fjárlagabitlingnum, Bem mágur hans
ráðgjafinn stakk að honum í vor.
Fyrnefndur samsetningur, aðalatrið-
in úr honum, er á þessa leið, — og
eru svigale8trarmerkin þar eftir Isa
fold:
.... »héldu bæjarbúar honum (L. H.
B.) mikilsháttar (!) skilnaðarveizlu . . .
kváðust seint mundu fá jafn-röggsamt (!)
og skörulegt(!) yfirvald eða jafn-þokka-
sælt allri alþýðu manna(!!) enda er
það sannast sagt, að L. sýslum. hefir
unnið sér œikla hylli sýslubúa sinna
þau 12 ár, sem hann hefir embætti
þjónað (!!!) . . . Munu og Snæfelling-
ar seint fá mikilhæfari (!!!) sýslumann
en L. H. B. og ötulli þingmann geta
þeir að minsta kosti ekki fengið (!!!),
enda munu þeir naumast hugsa um
breytíngu í þá átt, er til kemur, ef
þeir ættu hins sama kost (!!!).
Ymsum getum er að því leitt, hvern-
ig þessi ritsmíð muDÍ vera undir
komin.
Sumum hafði fyrst orðið það fyrir
að ímynda sér, að e i n h v e r flugu-
fótur væri fyrir þessari forkostulegu
frásögn, býsna-fjarstæður þó, og þá sá
helzt, að skugginn hans svo nefnd-
ur,þessi sem hann hefir látið kalla sýslu-
.mann að jafnaði f fjarveru sinni og
gengist hefir svo upp við það hefðar-
heiti, að haDn kvað hafa látið sér
lynda að fá ekki 1 eyri nokkurn tíma
fyrir »embættisreksturinn«, — að h a n n
hafi haldið vini sfnum og náðugum
herra eitthvert skilnaðarsumbl, er þeir
hafa skírt þvf nafni og boðið til eða
hóað sarnan f það fáeinum kunning-
jum sínum. Hafi þeir félagar því næst
lagt saman um Bkrásetning fyrnefndr-
ar ritgerðar! Kunnugir þykjast þekkja
á því helzt handbragð »yfirvaldsins
mikla« sjálfs.
Önnur »vísindaleg« ágizkun er sú,
aðhann sjálfur hafi skáldað þotta
alveg upp úr þurru og út í bláinn.
Loks hefir verið komið upp með
það, að einhver gamansamur hrekkja-
lómur hafi sett þetta saman í blóra
við manninn, og »hjálpræðið« glæpst
á því, en muni nú eiga von á gófl-
unni, þegar upp kemst um þennan prett
og *mikilmennið« er hnept þann veg
í gapastokk almeuningi til skemtunar.
Fleiri tilgátur hefir ísafold ekki heyrt
að svo stöddu.
En vera má að einhver reyni skarp-
leik sinn á enn fleiri úrlausnum.
N áttúrugripagj nfir.
Hr. P. Nielsen verzlunarstjóri á Eyr-
arbakka er sjálfsagt mestur velgerða-
maður Náttúrugripasafnsins hér. Hann
gaf því fyrir mörgum árum islenzkt
eggjasafn, »mjög fullkomið, og fágæta
fugla og fiska«, segir formaður safns-
stjórnarinnar, adjunkt Bjarni Sæmunds-
son. Mælt er, að ekki hafi sú gjöf
verið hirt svo vandlega sem skyldi,
þótt ótrúlegt sé. En alt um það hefir
hr. P. N. ekki leiðst gott að gera, og
hefir hann fyrir skemstu reitt hingað
sjálfur og gefið safninu nýtt eggjasafn,.
240 egg alls, undan flestum þeim fugl-
um, er hér verpa, 57 alls, og kváðu:
sum eggin vera mjög fágæt. Eggjun-
um fylgdu öskjur, og dúnn öllurn and-
areggjunum. Safn þetta hafði verið
sýnt á Tivolisýningunni f fyrra og þóttr
mikið til koma. J>að er sagt mörg,
hundruð króna virði.
Annar mestur styrktarmaður safns-
ins mun hafa verið héraðslæknir þor-
steinn Jónsson í Vestmanneyjum.
Hann hefir, segir B. S. (í Lögr.), gefið
því marga fugla og egg, og einkum
margs konar sædýr úr sjónum kring-
um Vestmanneyjar, margt af því mjög
fágætt.
J>essir menn og Ben. Gröndal hinn
þriðji hafa verið gerðir heiðursfélagar
Náttúrufræðisfélagsins.
Stórgjöf fekk safnið fyrir mörgum
árum frá þeirn mag. Helga Jónssyni
og Stefáni Stefánssyni gagnfræðakenn-
ar og alþm. það er íslenzkt jurta-
safn, gefið á 10 ára afmæli Náttúru-
fræðisfólagsins (1899). — Stefán kenn-
ari er frumkvöðull félagsins og safns-
ins og aðalstofnandi.
Skipströnd nokkur
og fleirri skaðar hafa orðið hingað’
og þangað um land í aftakaveðri á
sunnan aðfaranótt fimtudags 13. þ. m.
Norskt kolaskip, E m a n u e 1, sleit
upp á Sauðárkróki og brotnaði, ec-
manntjón ekkert.
Sömu leið fór kaupskip eitt á Stokks
eyri, nýkomið til Ólafs Arnasonar,.
fullfermt vörum. þar varð og mann-
Björg. það er þriðja vöruskipið hans^
er strandað hefir á þessu sumri.
Enn fór eins um s/s N j á 1, gufubát
Lefoliis-verzlunar á Eyrarbakka. Hann
rak hátt á land upp, í stórstraums-
flóðfar. Menn björguðust allir ómeidd-
ir. þetta var skamt fyrir utan búðina
(Lefolii), af miðlegunni sem kallað er.
— Ekki kvað neitt skip hafa slitnað
upp af skipalegum Lefoliis-verzlunar fyr
en þetta um fjórðung aldar, eða síðan
1882. Báturinn (Njáll) er sagður lítið
eða ekki brotinn.
Gufuskip rak á fiskiskútu, Mo r n i n g
S t a r, er Aug. Flygenring kaupm. f
Hafnarfirði á og lá þar á höfninni, og
braut hana eitthvað.
Einar kaupm. þorgilsson í Óseyri
við Hafnarfj. misti út stóran uppskip-
unarbát. Hann rak yfir í Garðaland.
og brotnaði þar.
Marga uppskipunarbáta og ýmsa
opna báta aðra stóra og smáa sleifr
upp á Eyrarbakka og Stokkseyri, eða
tók upp, ef á landi lágu, sendust lang-
ar leiðir og fóru í spón.
Húsaskemdir hafa og orðið
þessa nótt hingað og þangað, og heyja
sjálfsagt einnig. þar á meðal hafði
járuþak fokið af öllum bæjarhúsum í
Skeiðháholti, og sömuleiðis þak af bað-
stofu 1 Auðsholti í Ölfusi.
Veðrið var hér austanfjalls eitt hið
mesta í manna minnnm.
Laus læknislióruð. Vopnafjarðar-
kérað meö 1500 kr. árslaunum og Naut-
eyrarhérað 1300 kr. Umsóknarfrestur til
20. okt. Konungsveiting á Vopnafjarðar-
héraði, en ráðgjafa á hinu.
Landlæknisembættið er auglýst
laust. Umsóknarfrostur til 20. okt. Laun
4000 kr.
Landsyfirréttur. Þar er laus önnur
málfærslumannssýslanin, sú er Guðm.Eggerz
hafði. Umsóknarfrestur um hana til 30.
þ. m. Henni fylgir /4)0 kr. ársþóknun úr
landssjóði.
Landsbóltaíiaftiið. Ráðgjafinn hefir
í gær sett aðstoðarbókavörðinn þar, cand.
phil. Jón Jakohsson, aðalhókavörð, meðan
sýslanin er óveitt, og auglýst hana lausa
til 30. nóv., með 1800 kr. árslaunum.
Síðdegismessa á morgun í dómkirk-
junni kl. 5 (J. H.).
Jarðarför landshókav. Hallgríms Mel-
steðs fer fram fimtud. ^ 20. þ. m. Hefst á
heimilinu, Suðurg. 2, á hád.