Ísafold - 10.10.1906, Side 1
Kemur út ýmist einn sinni eða
tvisv. i vikn. YerO árg. (80 ark.
minnst) 4 ltr., eriendis 5 kr. eða
l'/s doll.; borgist fyrir miðjan
júlí (erlendis fyrir fram).
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifieg) bnndín við
iramót, ógild nema komin sé til
itgefanda fyrir 1. október og kaup-
andi skuldlaus við blaðið.
Afgreiðsla Aunturstrœti 8
XXXIII. árg.
Reykjavík miðvikudaginn 10. oktober 1906
66. tölublað. |
I. 0. 0. F. 88I0I28V2
Augnlækning ók. 1. og 3. þrd. kl. 2—B í spítal
Forngripasafn opió A mvd. og ld. 11—12.
Hlutabankinn opinn ll)—2 */« og
K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa frá 8 árd. til
10 siÓd. Alm, fundir fsd. og sd. 8 */* síöd.
Landakotskirkja. Gu^sþj.91/* og 6 á helgidögum.
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 101/*—12 og 4—6.
Landsbankinn 10 4/a—21/*. Bankastjórn við 12—1.
Landsbókasafn 12—B og 6—8.
Landsskjalasafnið á þrdM fmd. og Id. 12—1.
Lækning ók. i læknask. þrd. og fsd. 11—12.
Náttúrugripasafn á sd. 2—3.
'Tannlækning ók. i Pósthússtr. 14, l.ogð.md. 11—1
FnflöapfiÉrii BEMI
fer upp í Borgarues
10., 18. og 23. okt.; 2., 8. og 18.
ðóv.; 3., 13. og 20. des,
Suður í Keflavík m. m. fer hann
15. og 27. okt.; 13. nóv. og
20. des.
Reykjavíkur Biograftheater
byrjar í þessum mánuði í
Breiðfjörðs-húsi
sýningar sínar á
lifandi myndum.
Nýtt prógramm hverja viku.
.Sýning á hverju kveldi.
Hljóðfærasláttur og raflýsing.
Úr prógrömmunum má nefna:
Hs. hátign Friðrik 8.
tekur við konungdómi;
Alþingismenn i Khöfn
og margt annað.
Aths.: Sýningarskálinn verður bygður
um til batnaðar.
Samgöugumáí.
Járnbraut. Höfn.
Nú, þegar hugmyndín um járnbraut
bér á landi hefir hlotið þann þroska,
að landsstjórnin er búin að láta verk-
fræðing skoða járnbrautarstæði frá
Beykjavík til Árnessýslu, þá virðist
ástæða til að fara að ræða málið frá
ýmsum hliðum.
f>að er góðra gjalda vert, er stjórn
styður framfarafyrirtæki þjóðarinnar,
og skylda hmnar er að gera það; en
rnikill er vandinn og stór ábyrgðin, að
meta rétt, hvað þarfast er og fullkomn-
ast. Hin8 vegar væri hún minna en
matvinnungur, ef hún kynni ekki að
Bníða stakkinn eftir vexti þjóðarinnar
eða mæti meir hið ónauðsynlegra,
óhaganlegra eða úrelta, en brýnni
þarfir og betri framkvæmdir.
Flutningsþörf.
Flutningsþörfin hefir aukist mjög
mikið á síðustu árum hér sunnanlands,
Svo þörfin hefir nú loks knúð bændur
öokkuð alment til að nota vagna
(kerrur) á flutningabrautunum, og auk
þess æðivíða yfir vegleysur, færar og
ófærar. Vagnarnir létta mikið flutn-
lnginn og auka vörumegnið, sem flutt
^erður, en þeir fullnægja ekki þörfinni
öema fá ár, þófct allir noti þá og ýmsir
•®'gi 2, 3 eða 4 vagna. Smávagnarnir
eru of manDfrekir í fólksfæðinni, og
ferhjólaðir vagnar verða ekki notaðir
á vegleysunum, eru líka of dýrir fyrir
bændur alment. Mörg heimili þuifa
nú að flytja frá verzlunarstöðunum því
nær eins mörg vagnhlöss og marga
þurfti hestburði fyrir 20 árum, og
flutningsþörfin mun enn aukast, að
líkindum örara en áður.
Varla er von á góðri afkomu meðan
dugandi karlmenn og einyrkjar verða
að vera í ferðalögum mestalt vorið,
auk haustferða, vetrarferða og ferðanna,
sem bændur neyðast til að fara á mið-
jum slætti, dögum saman.
Ferðalög og flutningar nema hundr-
uðum króna á meðalheimili, og telja
má þennan kostnað í hundruðum þús-
unda fyrir sýslurnar báðar, Árness og
ítangárvalla. Er því auðséð, að enu
má kosta nokkru til að liðka sam-
göngurnar.
Einnig má líta á hitt: Reykjavík
þarf nú orðið meira en bændur geta
flutt eða framleitt verður kring um
hana af mjólkurmat, kjötmeti, heyi
o. fl., og slíkar þarfir vaxa meir og
meir, bæði fyrir kaupendur og seljend-
ur, sérstaklega um sláttinu og á vetr-
um.
Efnaðir menn í Reykjavík og þeir,
sem lifa eins og auðmenn, gera æ
stærri kröfur til fæðisins, vilja hafa
nýtt og gott kindakjöt árið um kring,
nýja mjólk, nýtt smjör, nýtt skyr o.
s. frv.
Bændur hefðu mestan hag af því,
ef þeir gætu ávalt fullnægt þörf kaup-
endanna og óskum þeirra. N ú er
þetta ókleift, því næstu sveitir hafa
hálfu minna af slíku en þörfin krefur.
Og — þó dregið sé strik yfir alla erfið-
leikana og ko9tnaðinn við flutningana
úr fjarlægum sveitum, þá er bændum
ekki unt að taka sláttinn til ferðalaga
meir en nú er gert, og oft verða fjall-
vegir ófærir á vetrum.
Járnbrautin og snjórinn.
Hvað mundi nú járnbraut greiða
fyrir bændum hér austan fjalls og íbú-
um Reykjavíkur? Bætt gæti hún úr
samgönguleysinu um sláttinn og mikið
létt undir flutninga vor og haust, en
hætt er við að hún kæmi að litlum
notum, eða jafnvel alls engum á vetr
um — þegar ófært er með kerrurnar.
Litlar sýnast líkur til þess, að járn-
braut yrði notuð frá því á haustin í
októbermán. eða nóv. og alt til vors,
í maí eða júnf, þó hún yrði lögð um
Mosfellsheiði. Allan þennan tíma er
meira eða minna af flutningabrautinni
hulið Bnjó í flestum árum, og snjórinn
verður svo djúpur, að mörgum fetum
nemur — á löngum köflum jafnvel
eftir smá bylgusu. Eg vil geta þess
til dæmis, að um lokin síðustu, 11.
maí, var flutningabrautin á Hellisheiði
hulin snjó algjörlega á nálægt 8 rasta
(4—5 þús. fðm.) svæði, en stórir skafl-
ar yfir henni hér og þar alt frá Kömb-
um niður undir Lækjarbotna (um 25
rastir). Mátti' sjá það á vörðum, að
víða voru 3—6 fet niður að brautinni,
og jafnvel meira á stöku stað. |>etta
er ekki eins dæmi, þótt oftar sé snjór-
inn orðinn minni um lokin.
Mosfellsheiði er vitaDlega lægri en
Hellisheiði, og hlánar því heldur fyr
af henni. En lengi eru þar þó skafl-
ar, og svo mikið snjóar þar á vetrum,
að ótrúlegt má virðast, ef snjóplógur
fyrir vögnum kæmi að nokkuru liði,
nema í litlum snjó eða logndrífu.
Eyjaloftið, með blotum og frosti á
víxl, regni, slyddu og frostbyl á sömu
klukkustundinni, mun reynast óþjálla
fyrir járnbrautarvagna á íslenzkum
fjallvegum en staðviðrin, þurrara loftið
og kaldara, á fjöllum stóru Iandanna.
í>ó blíðviðri sé niðri í bygðinni ná-
lægt sjónum, er sjaldan hægt að vera
ugglaus um, að ekki sé snjór eða bylur
á fjallvegum, eða komi þar þegar minst
varir 8 mánuði (okt.—maí) á hverju
ári.
Yerið getur, að sumir vilji láta gera
8kýli yfir brautina, eins og sumstaðar
tíðkast á fjöllum erlendis, svo að ekki
þurfi að moka og alt af megi ferðast.
En hve mikið mundi það kosta, og
hve langan veg þyrfti yfir að byggja?
Líklega mikið af Ieiðinni úr Mosfells-
dal austur að Ingólfsfjalli, því Grafn-
ingurinn er ávalt talinn »miki! snjó-
kista«.
Svo gott og gagnlegt sem það væri,
e f mögulegt væri að kosta til járn-
brautar á þessum stað, þá er eg samt
mjög hræddur um, að hún gæti ekki
losað bændur við vetrarferðirnar vondu
og hættulega, og að Reykvíkingar hefði
enga hjálp af henni, þó þeir yrðu mötu-
stuttir á miðjum vetri.
Höfn.
Eru þá engin ráð til þess að gera
samgöngur greiðar héðan að austan til
Reykjavíkur bæði sumar og vetur?
þessi spurning krefst þess, að góðir
menn svari henni, og létti ekki fyr en
beztu svörin verða framkvæmd verk
lege-. Meta verður, hvað framkvæman-
legt er fyrir kostnaðar sakir, hvað
nægt geti fyrst um sinn, hvað bezt
svarar kostnaði, og hvað næst fer
markmiði.
Fyrir mínum eyrum hljómar þetta
svar:
Höfn á Eyrarhalcha eða Stokkseyri
og járnbrautarspottar þaðan um ]bétt-
býlustu, láglendu sveitirnar.
Væri gerð brúkleg höfn á Eyrar-
bakka eða Stokkeyri og fenginn gufu-
bátur, hraðskreiður og vel útbúinn,
mætti flytja fólk, fénað og alls konar
vöru milli Árnessýslu og Reykjavíkar,
ekki að eins daglega alt sumarið, held-
ur og allan veturinn því nær daglega,
eða svo oft sem þörf krefði og ástæður
Ieyfðu. Kæmu svo jafnframt járn-
brautarspottar, sem með daglegri yfir-
ferð yrðu líklega oftast færir fyrir snjó,
þó ekki væri nema að Olfusárbrú og
jijórsárbrú fyrst um sinn. f>á gætu
margir sparað sér vorferðalög, með því
að skreppa fyrir endann á Reykjanes-
fjallgarðinum á vetrum þegar bezt
hentaði. Hestarnir gætu hvílt sig
heima á meðan, eða þar sem bezt
gengi að fóðra þá. Heldur yrði þá
hægara og kostaði færri dagsverk að
flytja heim fiskætið af Suðurnesjum og
alls konar vörur frá Reykjavík.
Hjá höfninni kæmi smám saman
nokkuð stór kaupstaður, samgöngur
yrðu greiðari við útlönd og allar hafnir
landsins. Útlend vara lækkaði í verði,
því skipaleiga og uppskipun m. m.
yrði ódýrara. Nýr markaður opnaðist
í kaupstaðnum fyrir afurðir búanna,
og ekki þyrfti að krækja til Reykja-
víkur með smjörið frá rjómabúunum.
Ekki þyrfti að óttast, að nýi kaupstað-
urinn drægi frá Reykjavík, því fram-
leiðslan af landinu ykist éins ört eða
örara en kaupstaðirnir. Samkepni
ómöguleg.
|>egar grasið, fénaðurinn og fólkið
eykst og margfaldast í Flóanum, þá
yrði gufubáturinn eða bátarnir ekki
látnir fljóta lengi tómir.
Með nýjum býlum og hverfum koma
ný mjólkurbú og skyrgerð; mættl
selja skyrið til útlanda, ef illa seldist
í Rvík. (Sbr. Andv. XXX, 186. £ar
er efni í ritgerð. — Áfum er sumstað-
ar helt niður og undanrenna stundum
gefin skepnum. Gæti þó kannske gef-
ið meiri peninga en smjörið — væri
ný tekjugrein — stórfé. Landsbúnað-
arfélagið verður að rannsaka þetta og
hrinda í rétt horf).
Rjómabúin gætu alið svín og kália,
én einstakir bændur hefðu kindur á
eldi. f>etta alt mætti selja á vetrum
jafnt sumrum eftir þörfinni.
Hafnarstæðið.
Milli Olfusár og Baugstaðaár er
braunbrún mikil í sjónum skamt frá
landi, nokkur hundruð faðma, þar sem
lengst er. Brún þessi er öll eða mest-
öll í kafi, nema þegar fjara er mikil;
þá sést mikið af henni upp úr. þegar
aldan kemur af opnu hafi, fellur hún
hvítfyssandi inn af hraunbrúninni.
Fossfallið er nefnt brimgarður.
Brúnin kann Ifka stundum að vera
nefnd brimgarður, og það er hún, sem
eg nefni svo hér á eftir. Fyrir innan
brimgarðinn er skerjaklasi; eru sum
skerin hærri en brimgarðurinn, og
djúp lón milli þeirra. Sumstaðar eru
skörð í brimgarðinn; þau nefnast s u n d.
•þau eru svo þröng og grunn, að sjór
fellur þvert yfir þau þegar brim er
mikið; þá eru þau ófær öllum skipum,
jafnt stórum og smáum.
Oft eru þó 1 ö g á sundunum, þegar
brim er lítið, þó boðar falli á báðar
hðndur. í flæðarmáli eru sumstaðar
klappir, en sandmalarvik í milli. |>ar
er aldrei brim eða brotsjóir hættulegir,
nema í ofsastormi við haflæga átt,
þegar jafnframt er hásjóað eða mikið
flóð.
Lónin sum ná frá flæðarmáli út
undir sundin bæði á Eyrarbakka og
Stokkseyri, og hefir verið notast við
þetta fyrir útræði og innsigling á
verzlunarstaðina, þó að eins fyrir opna
róðrarbáta og lítil vöruskip. Yöruskipin
eru fest við sker á 1 e g u n n i, meðan
verið er að tæma þau og hlaða. Á
Eyrarbakka eru hafðar festar milli