Ísafold - 27.10.1906, Side 1
jítemur út ýmist einn sinni efTa
tvisv. i vikn. Yerð árg. (80 ark.
■minnst) 4 kr., erlendis 5 kr, eða
l‘/a doll.; borgist fyrir miðjan
jnli (erlendis fyrir fram).
Uppsögn (sarif)eg) bnndfn »D
áramót, ógild netna kom;n sé til
dtgefanda fyrir 1. október og kaup ■
andi sknldlaus við blaðið.
Afgreiðsla Auxturitrœti 8.
XXXIII. arg.
Reykjavík laugardaginn 27. oktober 1906
71. tölublad.
I. 0. 0. F. 88II281/., Fl. (B i.)
Augnlækning ók. 1. og 8. þrd. kl. 2—3 l spital
iForngripasafn opió A mvd. og ld. 11—12.
Hlutabankinn opinn 10—2 */* og ú1/*—7.
K. F. U. M. Lestrar- og skritstofa frA 8 Ard. til
10 siðd. Alm. fundir fsd. og sd. 8 */• siod.
Æiandakotskirkja. Guósþj.ö1/* og 6 A helgidögum.
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 101/*—12 og 4—6.
iLandsbankinn 101/*—21/*. Bankastjórn við 12—1.
Landsbókasafn 12—3 og 6—8.
Landsskjalasafnið A þrd^ fmd. og Id. i2—1.
ÍLækning ók. i læknask. þrd. og fsd. 11—12.
íNAttúrugripasafn A sd. 2—8.
Tannlækning ók. i Pósthússtr. 14, l.ogS.md. 11—1
Liindpóstar nv8:ll al2:ll nval9:ll
)nv3:|2 a7:l2 nvat4:12.
Póstskip 29:101 30:l0tst
1:11 3:11 7:11 10:11 20:111.
•21:111 23.II t vf 25: II t 27:11 vf 1:12
vf2; 121 5:12 vt8:12 11:12 12:12 17:12.
Skýringar: a = austanpóstnr; n = norð-
.=anp.; v = vestanp. (nV = norðan- og vest-
anp., o. s. frv.); vf = Yestfirðir ; t = Thore-
-félagsskip; st = strandferð. Feitt letur
.merkir burtfarardag frá Rvik, en magurt
komudag þangað.
Fremri talan (á undan tvídeplinum) merk-
ir mánaðardag; en hin eftri mánuð, t. d.
•8:11 = 8. nóv.; 3:12 = 3. desbr. o. s. frv.
í>v; merkir t. d. vf 25: II t. að 25. nóv.
ifer Thorefélagsskip til Vestfjarða, en
vf 2:121, að það kemur þaðan aftur 2.
desbr.; 30 :10 tst merkir, að þá, 30. okt.,
leggur Thorefélagsskip á stað frá Rvik i
strandferð (vestur um land og norður).
Verzlunin Edinborg i Reykjavík
Excelsior tatfi
I livern pundspoka af niöluðu kaffi verður hér eftir látinn stimplaður miði
með upphafsstaf. Kaupendur eiga að saina þessum miðurn, þangað til þeir
einn eða fleiri í félagi, hafa fengið þá stafi, er úr verða lesin orðin
BDINBORGAR,
BXCBLSIOR KAFFI
Þegar svo er komið, má hlutaðeigandi, um leið og hann skilar miðunum,
velja sér einhvern af þeim eigulegu munum, sem til sýnis eru í næstaustasta
glugganum í Nýlenduvörudeildinni.
Lítið á munina. 20 kr. virði hver og
þar yíir.
fer upp í Borgarnes
2., 8. og 18. nóv.; 3., 13. og
21. dea
Suður í Keflavlk m. m. fer hanu
27. okt.; 13. nóv. og 18. des.
Reykjavíkur Biograftlieater
byrjar í þessum mánuði í
Breiðfjörðs-húsi
sýningar sínar á
lifandi myndum.
Nýtt prógramm hverja viku.
Sýning á hverju kveldi.
Hljóðfærasláttur og raflýsing.
Ur prógrömmunum má nefna:
Hs. hátign Friðrik 8.
tekur við konungdómi;
Alþingismenn i Khöfn
og margt annað.
Aths.: Sýningarskálinn verður bygður
um til batnaðar.
INýjar bækur.
Gullðld í»deiidinira.
Menning og 1 jfshættir feðra
vorra á söguöldinni. Al-
þýðufyrirlestrar með mynd-
um. Eftir Jón Jónsson
sagnfræðing. Rvik 1906.
(Sig. Kristiánsson). VIII
-f 458 bls.
Allmikið rit og merkilegt. Vafalaust
!lang tilkomumesta ritið í öllu þ. á.
•óvenjumiklu ÍBlenzku bókaflóði. Efnið
bugþekt hverjum íslending. En með-
lerð þess í höndum hins færasta manDS,
er nú eigum vér við þá íþrótt: rök-
þrædda rannsókn þess, er á dagana
befir drifið fyrir þjóð vorri frá upphafi
vega hennar, og skýra, skipulega og
,gagnorða frásögn þess.
Rita ætti, ef vel væri, all langt mál
•og ítarlegt um kost og löst á jafn-
mikils háttar riti sem þetta er og
ætti að vera í höndum hvers þjóðræk-
is lslendingH. Kost og löst, segjum
■vér. |>ví að svo er um vönduð rit
sem annað, að ekki er svá gott, at
galli né fylgi. þess væntir oss þó, að
gallar séu óvenju-fáir og smáir á riti
þes8u. Og þótt tína mætti þá til ein-
hverja, eftir lauslegan yfirlestur, þá
mætti svo fara, að gruunskyguum les
endum yrði starsýnna á þá en rétt
væri eða réttlátt. Enda eigi á ann-
arra færi eu sérfræðinga i íslenzbri
sagnfræði að rýna það svo, að henni
yrði hagur að, en ógagn eigi. |>vf
það á að vera markmið allrar gagurýni.
Kostiruir liggja í augum uppi: glögg
og skipuleg meðferð hins mikla efnis og
oft vandleysta. Hagsýnileg notkun af
markaðs rúms. Rækileg hagnýting
beztu heimildarrita, og bókin gerð
greiðari yfirferðar og þægilegri aflestr-
ar en ella með því að skjóta öllnm
heimildum aftur fyrir, sér í bálk þar.
Loks hugnæm undiralda einlægrar þjóð-
rækni og fölskvalausrar ástar á öld
1qdí, 8em bókin lýsir, en þó hrein-
Bkilni um það, er áfátt var.
Eigi getur betri leiðarvísi en þessi
bók er öllum þeim, er lesa vilja forn-
sögur vorar, Islendingasögur, með hæfi
legri gaumgæfni og hugsandi mönnum
samboðinni gagnrýni á það, sem þar seg-
ir frá, en ekki eins og einkisverðar trölla
sögur eða eldabusku-skáldsögur. Upp
talningin ein f efnisskránni sýuir, hve
þar er um auðugan garð að gresja,
bvo sem: um landsstjórn; um héraðs-
stjórn og sveitar; um löggjof; um bof
og blót; um skáldskap og sagnalist;
um hjátrú, seið og galdra; um atvinnu-
greinar landsbúa; um verzlun og sigl
ingar; um húsakynni; um klæðaburð
og vopna; um árstíðir og árstíðastörf;
um boð og veizlur; um leika og skemt-
amr; um uppeldi og æskulíf; um hús
bændur og hjú; um þrælahald og þræla-
kjör. Og er þó margt hér úr felt í
skrA þeirri.
Enn gerir það bókina eigulegri en
ella, að þar er töluvert af myndum,
er gert hefir jpórarinn B. þ>orIáksson
málari, ekki til fánýts skrauts þó,
heldur til skýringar og skilningsauka,
svo réttar, sem frekast byggja fróðir
menn óhætt að treysta, — sumt er
ekbi um að villast: það, sem geymst
hefir í fornleifum, en það eru einkum
vopn og verjur margs konar, uppgrafn-
ar búðatóftir o. fl. það er eitt til
marks um rökvendni höf., að eigi hef-
ir hann sett neitt það á uppdráttinn af
alþingisstað hinum forna (bls. 41),
sem eigi er fullsannað að rétt sé, öðru
vísi en þá með spurnÍDgarmerki. Enga
búðarstaði telur hann áreiðanlega,
nema Snorrabúð (Hlaðbúð), Njálsbúð,
Möðrvellingabúð og Vatnsfirðingabúð.
— Registur hefði þurft að fylgja mynd-
unum, þótt efnisskráin framan við
væri látin duga um annað.
Fróðlegt væri að gera grein fyrir,
hver gömul og margþvæld vafaatriði
höf. hefir lagt á s i n n úrskurð, og sjálf-
sagt með £óðri greind og glöggsæi.
En of langt yrði það fyrir blað.
Dálítið hrekkur lesandi óþægilega
við, er hann rekur sig á hingað og
þangað í jafn-merkilegu riti og vönd
uðu lítils háttar orðmyndarvillur, sem
ritfærum mönnum á að vera auðsneitt
hjá, t. d. ekki færri en þrjár á s ö m u
bls. (400): bögumælið réði f. réð (tví
vegis), Höskuldar f. Höskulds (einnig
tvív.), vóg f. vá eða vo.
En — þökk og heiður sé í einu orði
höfundi og kostnaðarmanni fyrir ann-
an eins gæðagrip, er þeir hafa nýselt
í hendur þjóð vorri.
Hafblik. Kvæði og
söngvar. Eftir Einar
Benediktsson. Rvik 1906
(Sigurður Kristjánsson).
VIII -(- 184 bls. og mynd
höf. framan við.
Vísindalegt sögurit og ljóðsöngvar
eru ekki vel samræmilegir hlutir. Ann-
ars kostar mundi vel fallið að láta þessar
tvær bækur skipa sama öndvegi. |>ví
gevsi-eigulegur gripur er þetta hið nýja
ljóðasafn E. B., bæði að sjón og raun.
Sumt þeirra um 50 ljóðmæla, er
bókin flytur, er áður kunnugt, úr blöð
um eða lausprenta^), og allfrægt margt,
þar á meðal aldamóta-verðlaunaljóðin,
Haugaeldar, tvenn þjóðminningarljóð,
ávarpið til stúdentaflokksins danska
1900, Kveðja Skírnis, nokkur erfiljóð
o. fl., og enn dálítill kafli úr Pétri
Gaut (Per Gynt) H. Ibsens, sem er 1
örfárra manna höndum, þótt til sé
allur á prenti. En meiri hlutinn er
ný kvæði, og þau harla snjöll vel flest.
jpar má nefna framarlega í flokki inn-
gangsljóðin (Stefjahreim) og eigi síður
allra yngsta kvæðið í bókinni: Til fán-
ans, nokkurs konar Bjarkamál hins
nýja íslenzka fána; mörg vísuorð úr
þeim verða brátt á hvers mauns vör-
um. T. d.:
Vakið, vakið, hrund og halur,
heilög geymið íslands vé.
Eða þá niðurlagserindið — hið síðasta
i allri bókinni:
Meðan snmarsólir hræða
svellin vetra um engi og tún,
skal vor ást til íslands glæða
afl vort undir krossins rún,
djúp sem hlámi himinhæða,
hrein sem jöknltindsins hrún.
|>að er valkyrjubragur á ljóðadis E.
B. Hún er hauklynd og fráneyg.
En mikil viðkvæmni þó auðfundin
undir niðri, ekki sízt er snert er við
strengjum þjóðrækni og ættjarðarástar.
Nokkuð er af nýjum þýðingum í
kveri þessu, og bera þess órækan vott,
að höf. er eigi minni listamaður að
þýða ljóð en frumkveða, bæði trúr og
orðfimur, það lítið sem vér getum um
borið.
|>ví óhappi hefir ritið orðið fyrir,
sem höf. víkur sjálfur að í formálan-
um, að lenda í óvönduðum prófarka-
lestri, og nefnir hann fáeinar hrapal-
legustu villurnar. J>ær eru margar
stórum viðsjálar fleiri, t. d. þar sem
höf. er látinn hafa, á bls. 20 miðri,
tvo höfuðstafi í sama vísuorði; þar á
sýnilega að standa f síðara höfuðstafs-
orðinu orrar, en ekki vorrar.
Ljóðmœli eftir Matthí-
as Jochumsson. V. bindi.
Rvlk. 1906 (DavlðÖstlund).
320 hls. (með registri yfir
öll bindin).
f>á er lokið hinu mikla ljóðasafni
þess höfuðskáldsins af hálfri tylft
eða betur frá þessari miklu skáldöld
vorri. |>að er hið langfyrirferðarmesta
smákvæðaBafn eftir einn höfund, er vér
höfum eignast, — smákvæði hér nefnd
til aðgreiningar frá stórum kviðum; þvf
að smá f straugri merkingu eru kvæði
þessi hvergi nærri öll. f>etta síðasta
bindi flytur meðal annars tvo alllanga
ljóðabálka, annan frumkveðinn, sjón-
leikinn Aldamótaljóð, en hitt er ágæt
þýðing á hinum frægu Fermingarbarna-
ljóðum Esaias Tegnérs. Að þeim ljóð-
mælum fráskildum er inilli þriðjungs
og helmings af þessu bindi erfiljóð,
fjórði hluti þýðingar úr Fánrik St.ils
Ságner, og á nokkrum kvæðum eftir
Gerok, og annar fjórðungur tæpur
ýms ljóð um Danmörku eða yrkisefni
þaðan, kveðiu f fyrra og prentuð í
riti höf. hinu uýja: Frá Danmökur.
Nýtt steDdur ekki til að rnikið sé að
segja um þessa viðbót við eldri bindin
fjögur. Hún hefir hina sömu miklu kosti
og þau, og vitaskuld eins annmarkana,