Ísafold - 10.11.1906, Blaðsíða 1
áCemar út ýmist einu sinni eOa
tvisv. í viku. Yerð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eöa
l* 1/, doll.; borgist fyrir miðjan
júli (erlendis fyrir fram).
Oppsögn (sknfieg) bantfin v 9
iramót, ógild nema kom;n sé til
útgefanda fyrir 1. október og kaup-
andi skuldlaus við biaðið.
Afgreiðsla Austurstrœti 8
XXXIII. arg.
Reykjavík laugardaginn 10. nóveiuber 1906
74. tölublað.
Augnlœkning ók. 1. og 3. þrd. kl. ‘2—8 i spítal
'Forngripasat'n opió A mvd. og ld. 11—12.
Hlutabankinn opinn 10—2 */a og ó1/*—7.
K. F. U. M. Lestrar- og skritstofa frá 8 árd. til
10 sibd. Alm, fundir fsd. og sd. 8 l/t siod.
Landakotskirkja. Gubsþj.91/* og 6 á helgidögum.
Landakotsspítali f. sjúkravitj. 10a/*—12 og 4—6.
Landsbankinn 10 */*—21/*. Bankastjórn við 12—1.
.Landsbókasafn 12—3 og 6—8/
Landsskjalasafnið á þrd^ fmd. og Id. 12—1.
Lækning ók. i læknask. þrd. og fsd. 11—12.
Náttúrugripasafn á sd. 2—3.
Tannlækning ók. i Pósthússtr. 14, l.ogS.md. 11—1
LHKdpóstar al2:ll nval9:ll nv3:l2
a7:!2 nval4:12.
Póstskip 20:111 21:111 23: II t
vf 25: II t 27:11 vf 1:12 vf2:12t 5:12
vf8:12 11:12 12:12 17:12.
fer upp í Borgarnes
18. dóv.; 3., 13. og 21. des.
Suður í Keflavík m. m. fer hann
13. nóv. og 18. des.
Verzlunin Edinborg
Vefnaðarvörudeildin
*4 D Takið eftir: W ■r*
Ný tegund af kven-kápum <S> D i
'D JX QC verð kr. 9.75 at> bct Dn
1 D © Sömnleiðis telpu-kápum sr —s
>■ w verð kr. 3.00 P
Nú með Yestu koma ullarsjölin marg-þráöu
Reykjavíkur Biograftheater
Frá Id. 10. til ld. 17. þ. mán. verða
þessar myndir sýndar:
Christofer Columbus
Með járnbraut um Sviss
VÍ8tráðninga8krifstofan
Dularfull fyrirbrigði
Eíkistaka Friðrika 8.
Uppþotsgabb
Skift um börn
Flökkulíf.
f>essar myndir ætti hver maður að
sjá. þær eru allar ágætar. Frestið
því eigi að koma þangað til það er
orðið ofseint. — J>etta stendur aðeins
yfir 8 daga.
Sýning á hverju kvöldi kl. 7 og 9.
Hljóðfæraeláttur á hv. kvöldi.
Aðgöngumiðar seldir £ atundu áður
en sýning byrjar.
Eins og einn maður.
Eins og einn maður þurfum vór
,a,S koma fram og e i g u m vér að koma
fram í væntanlegum samningum um
sambatidið mtlli Islands og Datimerkur,
tim ný stöðulög, nýjan sambandssátt-
mala, í stað »garnla sáttmá)a«.
Allir stjórnmalaflokkar, allar stéttir,
Æillir þeir, er það mál flytja og nokkurs
/eru unt komnir.
Er það ofætlun?
Þingmenn stigu spor til þess í sumar,
fyrsta sporið.
Þeir gerðu tilraun til að tala einum
rómi frammi fyrir Dönum um það, er
vór gerðum tilkall til af þeirra hendi,
•«g tókst það sæmilega. Þeir höfðu það
Jag, að sneiða hjá að minnast á það, er
I>eir voru ósamtnala um. Lótu að eins
tuppi það, er þá skildi ekki á um að
tneinum mun.
Það var góðra gjalda verð byrjun
En lengra verðum vór að komast.
Fyrir oss liggur að flytja mál vort,
-ajálfsforræðiskröfut vorar, fyrir dönsk-
tim fulltrúum, t hinni fyrirhuguðu milli-
iandanefnd, fá þær viðttrkendar þar og
'því næst af þingi Dana, jafnt sem al-
þingi.
Eru nokkrar hinar minstu líkur til
þess, að það lánist, ef oss ber þar í milli
.sjálfurn og sitt vill hver?
Vór v e r ð u m að vera þ a r sammála,
iþjóð og þittg og þeirra talsmenn.
Hitt er santa sem að spila úr hönd-
um sér fyrir fram hálfri sigurvoninni,
■ef ekki ailri.
Ttmanum til þings á sumri komattda,
koniingskomtinnar og millilandanefndar-
skipunarinnar eigum vér að verja til að
verða sammála um sjálfstæðiskröfur vor-
ar. Tilhögun sórmálastjórnarinnar felst
eigi þar í. ITut hatta megnm vér þrátta
áfrarn, ef vill. En liitt ekki.
Sammála og samtaka eins og dugandi
'drengjutn samir og þjóðræknum ísiend-
ingum.
Sammála um, að gera oss ekki að
góðu annað eða mittna en: að ráða einir
Qieð kottungi sérmálum vorum, og a ð
sérmála8viðið sé ekki haft þrengra en
það, að vér getum neytt tálmunarlaust
allrar orku til að taka þeim andlegum
og efnalegum þroska, sem land og lýð-
ur á til í sér, — að þar ráði v o r i r
hagsmunir og engra annarra, tengdra nó
ótengdra.
Tilslakanir höfum vór reynt, og reynt
til hlítar.
Vér höfum og reynslu fyrir því,
að það sem Danir kalla í dag alls-
endis ótakandi í niál, þykir sem gera
muni ragnarök ríkis síns, þótt í hæsta
lægi valdi einu lykkjufalli í stjórnfræð-
isprjóni þeirra, — það hið sama er orðið
vel fært á morgun, ef svo ræður við að
horfa.
Vér höfum aldrei átt betra færi á að
fá vilja vorum framgengt en nú.
Er þá ekki ábyrgðarhluti að liggja á
liði sínu um að fylgja honum óslælega
eftir, og eins og einn maður?
Danskir stjórnmálamenn hafa aldrei
verið betur við búnir en nú að ljá oss
eyra. Þeir hafa áður sjaldan sem aldrei
fengist til að brjóta þann odd af oflæti
sínu, að leggja sig niður við að hugsa
mál vort eða rannsaka frekara en líkt, og
þegar kría sezt á stein.
Nú er andinn allur annar orðinn.
Svo er skilnaðarskrafinu fyrir áð þakka,
þótt ekki væri annað.
Konungskoman verður sama sem er-
indisleysa, ef ekkert rsetist úr eftir hana
um stjórnarhagi vora, eða um sjálfstæðis-
brestinn aðallega.
Oss er bæði ljúft og skylt að taka
konungi með hinni mestu vinserad og
kurteisi.
En svíkja megum vór hvorki sjálfa
oss né hann með yfirdrepskap og upp-
gerðri ánægju með stjórnarhagi vora.
Vér þykjumst vita með vissu, að hann
sé allur af góðum vilja gerður oss til
handa.
En sú góðvild getur því að eins kom-
ið að nokkuru haldi, að hann só ekki
dulinn þess, er oss bagar og hann má
bætur á ráða, hann og hans stjórn.
Um það eigum vér því að kveða upp
úr hreinskilnislega og afdráttarlaust,
einum rómi, eins og einn maður.
Erlendar ritsímafréttir
til Isafoldar.
Khöfn % kl. 9 árd.
Ráðgjafaskifti nokkur í
Norvegi.
Hægrimennirnir Hagerup-Bull og
Vinje frá völdum. Vinstrimennirnir
Berge hreppstjóri fjármálaráðgjafi og
Aarrestad direktör búnaðarmálaráð-
gjafi.
Kosningar i Bandaríkjum.
Kosningar hafa farið svo á sam-
bandsþingið í Washington, að sam-
veldÍ8manna-meirihlutinn hefir þokaBt
úr 112 niður í 70.
Kvenfrelsi á Englantli.
Frumvarp um kosningarrétt kvenna
borið upp á þinginu í Lundúnum.
I»ingkosningar á Rússlandi.
Kosningar á fulltrúaþingið (dúma)
takmarkaðar.
5>i í]í
þessi fáu ráðgjafaskifti í Norvegi
merkja það og ekki aunað, að kosn-
ingarnar þar í haust hafa gengið vinstri-
mönnum f vil fremur en hinum
og fyrir þvi runnið sundur aftur flokka-
sambræðingur sá, er gerður var fyrir
fátn missirum, þegar sem hæst stóð
hólmgangan við Svía. Michelsen enn
við völd eftir sem áður og hans helztu
samvinnumenn.
J>að er flokkur Roosevelts fcrseta,
sem gengið hefir til muna saman í
fulltrúadeildarkosningum 4. þ. m., en
er þó allstyrkur enn. Mætti nokkurs
til geta um, bvað því veldur, mundi
helzt mega grípa á andróðri hans gegn
auðvaldsríkinu og þar með fylgjandi
margvfslegri þjóðfélagsspillingu. Bn
auðvaldið ræður mjög kosningum í því
mikla lýðfrelsislandi.
Naumast mun það vera stjórnin
brezka, er borið hefir upp á þingi
frumvarp um kosningarrétt kvenna,
heldur einhver þingmaður; og eru það
þá minni tíðindi en ella. Brezkir
kvenfrelsispostular hafa sótt það mál
ákaflega fast einmitt á þessu ári, en
fengið daufa áheyrn hjá ráðgjöfunum,
þeim Campbell Bannerman og hans
félögum, svo frjálslyndir sem þeir eru.
Fréttin frá Rússlandi merkir líklega
takmörkun á kosningarrétti til full-
trúaþingsins. Hann var órífur heldur
áður. Nú hugsar keisarastjórnin sér
liklega að búa svo um huúta, að fáir
komist á þing aðrir en íhaldssamir
þægðargripir henni til handa, og verði
þjóðræðÍ8fyrirheitið frá í fyrra þar með
eintómt gabb.
Reykjavíkur-annáll.
Barn slasaðist hér á mánudaginn, 4 ára
gamall piltur, er á Guðm. Pétursson nudd-
læknir: kubbuðust af því í renmsmiðju 4
fingur á vinstri hönd npp við hnúa og
þumalfingur marðist mjög illa. Þetta var
í smiðju GÍBÍa Finnssonar (Vesturgötu 88).
Hann var ekki við sjálfur. Þar ganga
margar vélar, hlifarlausar við aðvifamii
óvitnm.
Dáinn 2. þ. m. i Landakotsspítala Hannes
bóndi Jónsson frá Glórn i Gnúpverjahreppi,
28 ára.
Fasteignasala. Þinglýsingar frá í fyrra
dag:
Einar M. Jónasson cand. jur. selur Frið-
finni Péturssyni nr. 23 við Bergstaðastræti
á 5,500 kr.
Guðjón Sigurðsson úrsm. selur Kristni Jóns-
syni trésmið mad. Möllers hús gamla lóðar-
lanst á 850 kr.
Jóhannes Jóhannesson kaupm. selur Jóna-
tan söðlasmið Guðmundssyni nr. 8 við
Vitastig á 8,000 kr.
Hjónaefni. Ásgeir Torfason efnafræðingur
og ungfrú Anna Ásmundsdóttir.
Hjuskapur. Grimur Jónsson og yngism.
Sumarlina Pétursdóttir (Grettisgötu 31), 8.
nóv.
Innbrot var gert fyrir helgina siðustu hér
i járnverzlun Gisla Finnssonar og stolið
nál. 10 kr. Meira var þar ekki að hafa þá.
Vélarbátur kom hér á þriðjudag 5. þ. m.
eftir 4 vikna ferð austan af Seyðisfirði
norðan nm land. Varð veðurfastur tvivegis,
á Siglufirði og Patreksfirði, 9 daga hvort
skiftið. Báturinn heitir Gammur og er eign
útvegshónda Björns Gislasonar. Formaður
Oddur Guðmundsson. Hásetar 3.
Messað á morgun í dómkirkjunni á
hádegi af sira Jóni Helgasyni með altaris-
göngu, en síðdegis kl. 5 af sira Jðni Þor-
valdssyni frá Stað.