Ísafold - 21.11.1906, Qupperneq 1
K'?mdr ut ýmist eina sinni eða
ívísv. í viku. Verð árg. (80 ark,
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eBa
il/ii duil.; borgist fyrir miOjan
jáli (erlendis fyrir fram).
XJppsögn (skrifleg) baiídic v tf
kramót, ðgild nema kom>n sé tii
átgefanda fyrir 1. október og kanp-
andi skuldlaus við blaðið.
Afgreiðsla Aunturstræti H.
XXXIII. árg.
Reybjavík miövikudaginn 21. njóveinber 1906
77. tölublað.
I. 0. 0. F. 8811238‘/8 Fl.________
Pfófastar og prestar,
organistar og aðrir
munið eftir því, að
fsl. hátíðasöngvar
fáat hjá þe8sum mönnum:
Hr. Guðm. Ólsen, Reykjavík
— Guðm. Loftssyni, Reykjavík
— Friðbirni Steinssyni, Akureyri
— Guðm. Guðmundssyni, Akureyri
— Þarsteini Skaftasyni, Seyðisfirði
— Lárusi Tómassyni, Seyðisfirði
— Grími Jónssyni, ísafirði
— Einari Markússyni, Ólafsvik
— Sæm. Halldórssyni, Stykkishólmi
— Hafsteini Sigurðssyni, Blönduósi
— Kristjáni Blondal, Sauðárkrók
— Valdimar Valvessyni, Húsavík
— Guðm. Guðmundssyni, Eyrarbakka.
Hjá sömu mönnnum fáet einnig:
Sex sönglög, eftir B. P.
f>ar í: Systkinin, Kirkjuhvoll o. fl.
Ríkisráðssetubannið
°g
sambandsiögin.
Bægja þarf frá jafnharðan þeirri villu,
hvort heldur stafar af misskilningi eða
vísvitandi misskýringu, að vér banda-
menn um sambandslagasetning ætlumst
til, að bann við ríkisráðssetunni standi
í sjálfum sambandslögunum.
Það er eins og tekið var fram síðast,
að það stendur hvergi í ávarpi voru.
Það sem standa á í sambandslögun-
um, bæði eftir orðanna hljóðun og til-
sætlun vorri, er, að Islendingar skuli
vera einráðir með konungi um löggjöf
:8Ína og stjórn.
Þ a ð á að standa þar, að efni til,
íhvernig svo sem orðum verður hagað.
En meira ekki þar að lútandi.
Það er nóg.
Meira þarf ekki þ a r að standa og
er ekki ætlast til að standi þar.
Viðbótin í ávarpsklausunni þeirri: og
verða þau mál ekki borin upp fyrir
konungi í ríkisráði Dana, — er skýring
/þessa fyrirmælis, sjálfsögð a f 1 e i ð i n g
þeirrar reglu og alveg óhjákvæmileg.
Það er sjálfsögð og bein ályktun af
því, að Islendingar hafa einir með kon-
ungi löggjöf og stjórn, að ekki er ætl-
ast til að sórmálin séu borin upp í rík-
isráðinu.
Þvi stendur: v e r ð a ekki.
Það á að vera nóg, að sú ályktun standi í
ástæðnnum fyrir sambandslögunum, vi8
greinina um einræði Islendinga með
konungi yfir sérmálurnim. Þar þarf hún
~að stauda, vegna þess, sem á undan er
gengið í stjórnmálaviðskiftum vorum við
Datii. Og í stjómarskrá vorri á hún
a<5 stimda berum orðum á sfnum tíma.
!t*að er ómissandi vegna þess, að nú
*hefir hún, stjórnarskráin, að geyma gagn-
stæða reglu, þessa sem smeygt var inn
með endurskoðuninni frá 1903.
Eins vel og við á, að ríkisráðsbaimið
staudi ekki í sjálfum sambandslögunum,
heldur að eins t stjórnarskránni, eins
sjálfsagt er hitt, að ekki sé þó hlaupið
fram hjá því atriði, þegar verið er að
semja um sambandslögin.
Þ a ð er ekki að leggja fyrirkomulag sér-
málastjórnar vorrar undir atkvæði Dana.
Það er aðeins að tryggja sór
viðstöðulausa staðfesting
ríkisráðssetubannsins á sínum tíma, þá
er að því kenmr, að undirskrifa n/ja
stjórnarskrá, ,
Þar má engin undirmál hafa.
Sú varúð er ómissandi vegna Dana,
og ekki síður vegna þeirra landa vorra,
sem vísir eru til að nota þá smugu til
að andæfa ríkisráðsetubanninu í nýrri
stjórnarskrá.
Því að euginn láti sór í hug koma, að
ekki verði einhverir til þess, »í föður-
landi Jóns Ólafssouar«, — þeir sem kjósa
ekki oss til handa annað betra en það
sem nú er, m e ð ríkisráðssetu o. s. frv.
Það er í stuttu máli, að vór megum
alls ekki láta ríkisráðssetuna vera Dön-
um óviðkomandi í sambandslagasam-
ningum við þá.
Enda kemur þeim sannarlega við,
hverir eiga sæti í þeirra eigin ríkisráði
og hverir ekki.
Það gildir einu, hversu ríkt sjálfstæði
vort er og sérstjórn: s ú setning stend-
ur jafn-óhögguð alt um það.
En laga-samastaðurinn rétti fyrir ríkis-
ráðssetubanuið er stjórnarskráin. Því að
hún á að geyma allar reglur um sérmála-
stjórn vora, og þá þessa ekki hvað sízt,
v e g n a breytingarinnar frá því sem
nú er.
Þetta þurfa allir að gera sér ljóst
n ú þ e g a r.
Hitter nógur tími um að ræða: hvern-
ig sköpuð eigi að vera yfirstjóru sór-
mála vorra, hvort heldur landsstjóra-
fyrirkomulag eða tóm ráðgjafasamkunda.
Þ a ð er mál fyrir sig.
Sjógarðar við Eyrarb. m. m.
f>að er töluvert mannvirki, sem þar
er i smíðum, til þess að varna skemd
um af brimi og sjógangi.
Fyrst er viðbót við Eyrarbakkagarð-
inn gamla, alt vestur að Óseyrarnesi,
1400 faðmar alls, 2 áln. á hæð, og
4—2 á þykt Kostnaður áætlaður
10,000 kr., og hefir Landsbúnaðarfélag
heitið til þess 2000 kr. og sýslunefnd
900 kr. Að öðru leyti kostar Lefolii-
dfcrzlun mannvirki þetta fyrir sinu
landi, 600 fðm., og Eyrarbakkahrepp-
ur hitt, með því að hann á Óseyrar-
nesið.
Austur frá Eyrarbakka taka við eig-
endur Hraunshverfis og gera 1100
faðma fyrir sínu landi austur að
Hraunsá, fyrir 7600 kr.
Loks er ráðgerður þriðji garðurinn
fyrir landi Stokkseyrartorfunnar, i
þrennu lagi, 900 fðm. alls, og á að kosta
8000 kr.
Sigurður Sigurðsson ráðunautur hefir
mælt fyrir görðunum og gert áætlanir
þessar.
Af vestasta garðinum eru fullgerðir
400 faðrnar. Var byrjað á þvf í fyrra.
Sláturfélag Suöurlands.
Fundur var haldinn á mánudaginu
(12.) við þjórsárbrú af fulltrúum fyrir
Skaftafellssýslu, Kangárvallas. Arness.
og Kjósar, og lagt þar fram álits-
skjal um sláturfélagsmálið og undir-
tektir bænda úr flestum hreppum í
nefndum sýslum; einnig í Borgarfjarð-
arsýslu. í flestum hreppum þessara
sýslna voru undirtektir svo góðar, að
fulltrúarnir allir í einu hljóði lögðu
eindregið, til að stofnað yrði slátur-
félag fyrir Suðurland.
Frá fundinum voru skrifuð bréf f
alla hreppa á nefndu svæði, og í Mýra-
sýslu, með áskorun um, að halda fuDdi
í hverjum hreppi, koma þar upp deild-
um, skrifa undir bráðabirgðalög fyrir
félagið, kjósa deildarstjóra og safna
stofnfé. Deildarstjórar komi því uæst
á fundum í sýslunum (fyrir Árness- og
Rangárvallasýslu 28. jan. í vetur) til
að kjósa stjórn félagsins, ræða um
lagabreytingar, ef þess verður óskað
o s. frv., eins og lög þau gera ráð fyrir,
er samin voru á fulltrúafundi í Reykja-
vík 26.—30. marz þ. á. S.
Millilandanefndin.
Politiken segir 10. þ. m., að í
ráði sé, að ríkisþingið kjósi í hana
fyrir þinglok í vetur, 11 menn alls, og
muni þeir eiga að vera í för með kon-
ungi hingað að sumri. Alþingi muni
eiga að kjósa 7 menn f nefndina.
Hún muni ekki geta tekið til starfa
fyr en að hausti. Hún eigi að koma
saman f Khöfn. Hún eigi að láta
uppi álit sitt um endurskoðun stöðu-
laganna frá 1871.
Mýrarhúsaskóli. Vönduðu og piýði-
legu barnaskölahúsi hafa Seltirningar kom-
ið upp hjá sér í sumar. Er það 21 al. á
lengd og 16 ál. & breidd, hæð undir loft
5 ál. Uppi eru ibúðarherbergi fyrir kenn-
arann, svo og bókaherbergi og allstór lestr-
arstofa fyrir lestrarfélag hreppsins, enda
hefir það lagt fram að bálfu, eða þvi sem
næst, fé til hússins, sem kostað hefir hátt
á 11. þúsund kr. Niðri er hjört og rúm-
góð kenslustofa, svo og samkomusalur fyrir
hreppsbúa, 16 X H ál.
Hús þetta var fullbúið til notknnar 1. þ.
mán. Þar var þá haldin fjölmenn sam-
koma fyrir hreppsbúa. Þar voru ræður
fluttar, og töluðu þar dómkirk,jupresturinn,
Jón Jónsson sagnfræðingur o. fl. Þeir
mintust hins lofsverða úhuga, sem hreppur-
inn i heild sinni og sérstaklega einstakir
framfaravinir hefðu sýnt á kenslumálum
undanfarin 30 ár og nú með þvi að reisa
þetta veglega og vandaða hús, sem væri til
sóma fyrir hreppinn. Einnig var þar minst
með þaklæti og viðurkenningu hins ágæta
og alúðarfulla kennara Sigurður dbrm.
Sigurðssonar, sem nærfelt 30 ár hafði verið
kennari i hreppum, en varð að hætta þvi
fyrir rúmu ári vegna heilsuhilunar. Var
hinum nýja kennara Einari Þórðarsyni ósk-
að að hann mætti vinna sama gagn og
njóta sömu hylli og þessi göðkunni for-
maður hans. — Þar á eftir var borðhald,
siðan dansað og sungið, og skemtu menn
sér hið bezta. J,
Fánamálið og þegnajafnréttið.
Um það tvent er ritstjórnargreiu
í P o 1 i t i k e n 10. þ. mán., og líkar
blaðinu í hvorugu þvi máli vel kröfur
þær, er komið hafa til orða af vorri
hálfu.
Andmælin munu þó vera sprottia af
mishermi eða misskilningi meðfram að
minsta kosti.
Blaðið beinist < jafnréttismálinu aðal-
lega að fiskveiðum í landhelgi. |>ær
kannast það við að telja beri með sér.
málum vorum. En þykir vafasamt,
hvort vér getum samt bannað Dönnm
að veiða þar, og ber þar fyrir rétt inn-
borinna manna, er vér njótum í Dan-
mörku, en í honum felist sami réttur
oss til handa til hvers konar atvinnu
þar og embætta; þaan rétt hafi allir
ríkisborgarar, og geti hann ekki verið
einhliða. Bendir því næst á, hve lag-
lega það liti út, eða hitt þó heldur, að
þeir, Danir, verndi landhelgi vora, en
svo sé varðskipinu gert að skyldu að
reka dönsk fiskiskip burt úr landhelgi.
Skýtur þessu undir dóm »hugsandi
íslendinga*.
En þessu munu allir »hugsandi
íslendingar* svara svo, að það hafi
þeim aldrei til hugar komið, heldur
hitt i hæsta lagi, að þ e g a r eða e f
hér um rædd vernd legðist niður, sem
hefir yfirleitt reynst m j ö g s v o ónóg;
og þ e g a r eða e f vér afsöluðum oss
almennum rétti innborinna manna í
Danmörku, — þ á gætu danskir þegnar
ekkert tilkall gert framar til landhelgis-
veiða hér frekara en lög v o r leyfðu,
úr þvf að fiskveiðarnar eru eitt af
sérmálunum.
Fáninn segir blaðið að standi ekki
í sérmálaskránni. |>að vitum vér vel.
En verzlun og siglingar standa þar.
Hitt er oss eigi heldur ókunnugt, sem
blaðið tekur fram, að ekki erum vér
einráðir um gilt milliþjóðamerki. Vér
þurfum fulltingi Dana eða samþykki
til þess, að önnur ríki taki gilt sér-
merki fyrir ísland. En það samþykki
virðist oss engin fjarstæða að fara fram
á, um léið og samið er um ný sam-
bandslög milh landanna. Oss virðist
það horfa fremur til að auka veg Dana-
veldis og þjóðhöfðingja þess, konungs-
ins, að það taki yfir fleiri þjóðlönd en
eitt, og að hvert hafi sitt þjóðareinstak-
lings-merki. j?að umburðarlyndi finst
088 meira en hugsanlegt að Danir
hefðu lært af Svíum (sem námu það
þó áður lauk), þótt aldrei nema ná yrði
þeim mun lengra, er til vor kemur,
sem vér erum ekki ríki sér, eins og
Norvegur var löngu á undan skilnaðin-
um, heldur að eins land og þjóð sér.
Engin uppreistarhugsun né skilnaðar
Ieynist bak við þetta fánamál, heldur
ofurlítið traust á frjálslyndi bræðra
vorra þar syðra.
Er það traust ámælisvert?
Og hvaða mein vinnur það þeim?